Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990.
BILAGALLERI
Opiö virka daga 9-18.
Laugardaga 10-16.
Toyota Corotla liftback ’8tí, ailfur-
grár, 5 g., útv/sogulb., ’91 skoð-
un, ek. 57.000, v. 550.000.
Volvo 245 GL ’82, gullbrons,
sjálfsk., vökvast., útv/segulb., '91
skoðun, ek. 119.000, v. 420.000.
Volvo 480 ES '88, svartur, 5 g.,
vökvast., álfelgur, leöursæli,
útv/segulb., ek. 21.000, sem nýr
bfll, v. 1.280.000.
Volvo 440 GLT ’90, hvitur, 5 g.,
vökvast., útv/segulb., ek. 8.000,
sem nýr, v. 1.250.000.
Charade CS '87, rauöur, 4ra g.,
útv/segulb., fallegur bill, ek.
32.000, v. 430.000.
Charade TS ’88, dökkblár, 4ra
g., failegur bíll, ek. 26.000, v.
550.000.
Toyota Corolla XL ’88, Ijósblár,
sjálfsk., útv/segulb., ek. 13.000,
v. 750.000.
Daihatsu Cuore ’86, rauður, 5 g.,
útv/segulb., '91 skoðaður, ek.
52.000, v. 290.000.
Charade TX ’86, Ijósgrænn met.,
sjálfsk., útv/segulb., '91 skoðun,
ek. 44.000 aðeins, v. 440.000.
Fjöldi annarra úrvals notaðra,
bila á staðnum og á skrá.
Brimborg hf.
Faxafeni 8, s. (91) 685870
UtLönd
Sendi íraksfor-
seta leyniskjöl
- njósnahneyksli í Þýskalandi
Njósnari í Bonn lét íraksforseta í té leynilegar skýrslur með mati vest-
rænna ríkja á ástandinu við Persaflóa. Simamynd Reuter
Saddam Hussein íraksforseti fékk
leynilegar upplýsingar og skýrslur
frá embættismanni í utanríldsráðu-
neytinu í Bonn í Þýskalandi um
Persaflóamálið. Þýska leyniþjónust-
an hefur þar með orðið fyrir enn einu
áfallinu.
Njósnarinn, sem hefur verið hand-
tekinn, hafði ekki aðeins aðgang að
skýrslum þýskra sendiráða um
ástandið heldur einnig að leynilegu
mati Bandaríkjanna á ástandinu.
Svo virðist sem njósnarinn, sem
nýlega tók múhameðstrú, hafi verið
á mála hjá Stasi, fyrrum öryggislög-
reglu Austur-Þýskalands. Tahð er að
hann hafi afhent íraska sendiráðinu
í Bonn upplýsingar sínar og þaðan
hafi þær verið sendar til Saddams
Hussein.
Njósnarinn hafði aðgang að skjöl-
um utanrílúsráðuneytisins og upp-
lýsingum leyniþjónustunnar. Þar
með komst hann yfir þær upplýsing-
ar sem Bandaríkin, Bretland og önn-
ur vestræn ríki höfðu látið þýskum
yfirvöldum í té.
Þýska lögreglan, sem gerði húsleit
á heimih njósnarans, fann þar
hundruð leynilegra skjala. í einum
plastpoka fann lögreglan til dæmis
tvö hundruð leynilegar skýrslur um
ástandið á Persaflóa, í Kúvæt og í
írak. Ritzau
Cicciolina þrábiður nú Saddam Hus-
sein um að fá að heimsækja hann.
Cicciolinavill
verða„ástargísl“
Saddams
ítalska þingkonan og klámdrottn-
ingin Cicciohna hefur ritað Saddam
Hussein bréf og boðist til að verða
„ástargísl” hans gegn því að leið-
toginn gefi öðrum gíslum frelsi til að
fara úr landi.
„Ég vh vera hjá þér og hjala við
þig um ást eins og engill sem kemur
til Múhameðs," skrifar Cicciohna í
bréfi sínu. Cicciolina hefur beðið
sendiherra íraka að koma bréfinu
áleiðis. Fréttamenn fengu þó áður að
líta á skrif Cicciolinu.
„í nafni ástarinnar, má ég koma th
Bagdad?” biöur hún í bréfinu. Cic-
ciohna hefur áður gert Saddam hhð-
stætt tilboð en hann hefur ekki séð
ástæðu til aö svara. Reuter
Utanríkisráðherra Bretlands, Douglas Hurd, við sjúkrabeð Palestínumanns
sem særðist í átökum við ísraelska hermenn. Símamynd Reuter
Hurd gagniýnd-
ur bæði af Isra-
elum og Palest-
ínumönnum
Nokkrum klukkstundum eftir að
Palestínumenn neituðu í gær að hitta
að máh Douglas Hurd, utanríkisráð-
herra Bretlands, söfnuðust öfgasinn-
aðir ísraelar fyrir utan hótel hans
og sökuðu hann um að vera hhð-
hohur Palestínumönnum.
Leiðtogar Palestínumanna neituðu
að hitta Hurd eftir fréttir í ísraelsk-
um fjölmiðlum þess efnis að Hurd
hefði sagt að hann væri andvígur
stofnun ríkis Ealestínumanna. Hurd
sagði orð sín rangtúlkuð og lagði á
það áherslu að það væri Palestínu-
manna að ákvarða framtíð sína. Tal-
iö er þó líklegt að önnur ummæh
hans muni vekja talsverða reiði
araba. Breski utanríkisráðherrann
lýsti því nefnilega yfir að stuðningur
Frelsissamtaka Palestínu, PLO, við
Saddam Hussein íraksforseta hefði
orðið til þess að áht hans á samtök-
unum heföi breyst.
Palestínumenn gagnrýna Hurd fyr-
ir að reyna að þóknast öllum. Búist
haföi verið við að hann myndi gagn-
rýna ísraelsk yfirvöld vegna blóð-
baðsins í Jerúsalem fyrir viku eins
og hann gerði þegar hann var í heim-
sókn í Egyptalandi fyrir stuttu. Eftir
fund Hurds með ísraelskum ráða-
mönnum lýstu hins vegar báðir aðil-
ar yfir því að viðræðurnar hefðu far-
ið fram í vinsemd.
Palestínskur leiðtogi sagði í gær að
svo gæti farið að PLO myndu heim-
ha aröbum á herteknu svæðunum
aö nota byssur til varnar gegn ísra-
elskum hermönnum ef Sameinuðu
þjóðirnar gerðu ekkert til að vernda
þá.
Reuter
Þrætur Sovétmanna um efnahagsmál:
Einn af höf undum 500daga
áætlunarinnar hótar afsögn
Einn af höfundum 500 daga áætl-
unarinnar svoköhuðu um markaðs-
væðingu sovésks efnahagslífs segist
ekki eiga annarra kosta völ en að
segja af sér embættum ef Gorbatsjov
fær Æðsta ráðið til að samþykkja
nýjustu bræðingstillöguna í efna-
hagsmálum.
Sá sem í hlut á er Grigory Javhn-
sky, aðstoðarforsætisráðherra í
Rússneska lýðveldinu. Hann segir að
hugmyndir Goratsjovs um endur-
reisn efnahagslífsins séu vonlausar
og verk síðustu mánaða við nýja
efnahagsáætlun aht unnið fyrir gíg.
Þing Rússlands hefur þegar sam-
þykkt aö vinna eftir 500 daga áætlun-
inni en Javhnsky segir að lýðveldið
geti ekki fylgt henni eftir ef Æðsta
ráðið samþykkir að fara hægar í sak-
imar.
Fuhtrúar í Æösta ráðinu reyna nú
allt tíl að bera klæði á vopnin eftir
harkalegar dehur á fundum þess. Þar
hafa Boris Jeltsín og Gorbatsjov látið
stór orð faha vegna efnahagsstefn-
unnar. Jeltsín er einarður talsmaður
500 daga áætlunarinnar en á undir
högg aö sækja vegna þess að Gor-
batsjov sér sig knúinn th að taka th-
ht th gamalla harðhnumanna.
Margir stuðningsmenn Gor-
batsjovs hafa oröiö th að taka upp
hanskann fyrir hann í dehunum við
Jeltsín. Fjármálaráðherrann Valent-
in Pavlov segir að hugmyndir Jelts-
íns séu óraunhæfar þótt þær virðist
vænlegar vegna þess að efnahagslíf
Sovétríkjanna þoh ekki algera koll-
steypi á rúmu ári.
Jeltsín gagnrýnir Gorbatsjov eink-
um fyrir að ætla að breyta hagkerf-
inu á lengri tíma en gert var ráð fyr-
ir í upphaflegum áætlunum. Þá telur
hann að Gorbatsjov æth stjóminni í
Moskvu of mikil völd yfir efnahags-
málunum en allar hugmyndir um
einkavæðingu séu þokukenndar.
Pavlov fjármálaráðherra segir að
útlokað sé að koma því í kring á
nokkmm mánuðum sem að réttu
lagi ætti að taka hehan mannsaldur.
„Eg held að viö ættum að hemja th-
fmningar okkar og hta raunsætt á
thutina. Að öðmm kosti getur allt
hagkerfið lamast,” sagði Pavlov.
Reuter