Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Qupperneq 12
Spumingin
Ertu ánægð(ur) með að
Gorbatsjov skyldi fá friðar-
verðlaun Nóbels?
Elísabet Ástvaldsdóttir fóstrunemi:
Auðvitaö er ég ánægð með það. Hann
hefur verið að gera góða hluti.
Ingvi Guðmundsson bifreiðarstjóri:
Já, mjög ánægður.
Halldóra Stefónsdóttir nemi: Ég er
algjörlega hlutlaus í þessu máli.
Póll Sigurvinsson smiður: Já, mjög
svo. Mér finnst hann alveg meiri
háttar persóna.
Hjördis Pálsdóttir nemi: Nei, eigin-
lega ekki. Mér finnst ástandiö í landi
hans ekki þannig að hann eigi þau
skilin.
Vilborg Torfadóttir fiskvinnslukona:
Já, eru það ekki aliir?
Lesendur
Afstaða Alþýðubandalagsins til álmálsins:
Einungis enda
lausar umræður
íbúi í Vogum skrifar:
Það er bersýnilegt að afstaða Al-
þýðubandalagsins í álmálinu er
einungis sú ein að notfæra sér það
til að sitja áfram í ríkisstjórn þrátt
fyrir þá opinberu yfirlýsingu nokk-
urra forystumanna þess að þeir séu
alfarið á móti stóriðju. - Og nú
hafa þeir fundað um málið í mið-
stjóm flokksins og tilkynntu þó
fyrirfram að engrar niðurstöðu
ætti að vænta frá þeim fundi!
Það virðist ekkert annað vaka
fyrir ráðherrum Alþbl. en að not-
færa sér veikburða málatilbúnað
ráðherra Alþýðuflokksins sem hef-
ur haft forgöngu um samningamál-
in ásamt aðilum Landsvirkjunar til
að geta þvælt máhð fram undir
vorið og þar með stutt forsætisráð-
herra sem vill fyrir engan mun fara
frá fyrr en eftir að kjörtímabilinu
lýkur.
Það tekur auðvitað enginn trúar-
leg ummæh eins og þau að Al-
þýðubandalagið sé „eindregið
fylgjandi því að samningur um ál-
Frá miðstjórnarfundi Alþbl. um sl. helgi. - „Sviðsettur til að framlengja líf ríkisstjórnarinnar," segir m.a. í
bréfinu.
ver takist og því nauðsynlegt að
vanda til samningagerðar,“ eins og
haft er eftir formanni flokksins.
Það er allt annað mál hvað formað-
ur flokksins vill (og enginn efar að
hann styður álverssamninga), en
flestir aðrir áhrifamenn flokksins
eru hatrammir gegn álveri, hvar
sem er á landinu.
Strax og Alþýðubandalagið er
komið úr ríkisstjórn mun það fara
að berjast gegn stóriðjufram-
kvæmdum líkt og flokkurinn hefur
löngum haft á stefnuskrá sinni. Já,
þetta álmál er talsverð þolraun fyr-
ir Alþýðubandalagið og það er ekki
víst að flokkurinn geti stólað á að
komast á leiðarenda kjörtímabils
með þeim tvískinnungshætti sem
hann er nú staðinn að.
Það er varla nokkur vafl á því að
miðstjórnarfundur sá sem haldinn
var um sl. helgi var sviðsettur sér-
staklega til að framlengja líf ríkis-
stjórnarinnar, fá þar ræðumenn til
að þæfa málið og láta í það skína
að álmáhð verði ekki banabiti rík-
isstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar. Og nú hefur Alþbl. fengið
liðsauka frá meirihluta stjórnar
Landsvirkjunar og þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins sem allur sem einn
vill sitja nýbyrjað þing í rólegheit-
um. - Segi menn svo að Steingrím-
ur Hermannsson kunni ekki á pól-
itíkinni tökin!
Lögreglan vinnur traust
Þórður Guðmundsson skrifar:
Það var lögregludagurinn sem
sunnudagurinn síðasti snerist um,
„Lögreglan og almenningur". Vel til
fundið hjá Lögreglunni. Sennilega
hefur þetta verið eitt besta ráðið til
að kynna fólki, svona almennt talað,
hvað það er sem lögregluþjónustan
snýst um. - Mikhl áhugi var hjá öllu
því fólki sem heimsótti lögreglustöv-
amar, og ekki síst hinna yngri. Það
er einmitt mikilsvert að sá hópur
landsmanna þekki til starfa lögregl-
unnar. Það getur skilaö sér síðar er
þessi hópur vex úr grasi.
Ég hefi ástæðu til að ætla, eftir því
sem mér sýndist á gestum sem ég var
samferða í skoðunarferð minni hjá
lögreglunni hér í Reykjavík, að þetta
framtak hennar verði til þess að
vinna traust ahra þeirra sem þama
komu, og auðvitað miklu fleiri, því
þetta var vel kynnt í fjölmiðlum að
starfskynningunni lokinni.
Það er mjög mikilvægt í þessu
landi, sem ekki hefur neinum her á
aó skipa, að menn fái það álit á lög-
reglu landsins að hún sé eins konar
brjóstvöm landsmanna, í daglegu lífi
Ungt fólk í heimsókn hjá lögreglunni i Reykjavik skoðar safn tækja og tóla
sem gerð hafa verið upptæk.
jafnt og neyðartilfehum, þegar allir
em tilbúnir að þiggja aðstoð hennar
og hollráð. - Ég vona að svona átak
skih sér um allt land og landsmenn
alhr sjái hve mikilvægt þaö er að
halda uppi lögum og reglu með þeim
hætti sem við höfum kosið hér á
landi meö því að hafa á að skipa
vaskri sveit hraustra, agaðra og
sanngjarnra lögreglumanna.
Þakkarkveðja í Ás-
hvol, Hveragerði
Krístín Halldórsdóttir, f.h.
Mæðrastyrksnefndar, skrifar:
Dagana 15. til 26. sept. sl. dvöld-
um við, 6 konur, i Áshvoli í
Hveragerði á vegum frú Helgu
og Gísla Sigurbjörnssonar for-
stióra og nutum þar frábærrar
vináttu heimihsins.
: Fyrír þann góða t'iðurgjörning,
sem viö nutum, þökkum við inni-
lega og biðjum heimihnu farsæld-
ar og Öllu því ágæta fólki sem þar
starfar. - Bestu þakkir og kveðj-
r r
1
milli kl. 14 og 16
Tryggur lesandi skrifar:
Mig langar tyil.að koma á fram-
færi dálitlum upplýsingum til
þeirra sem eiga viö vandamálið
ofát að etja. - Eg er ein þeirra sem
hef átt við þetta vandamál aö
stríöa sl, 15-16 ár en núna hefur
dálítið merkilegt gerst. Til eru
nefnilega samtök sem hjálpa fólki
að hjálpa sér sjálft. það eru OA-
samtökin þar sem fólk iúttist og
ræðir saman um vandamál sín.
Myndast þarna góöur Iiópur
sem á saman yndislegar stundir,
jafnt á fundum sem úti í lífinu.
Sameiningin, sem þarna mynd-
ast, hjálpar okkur til að horfa
björtum augum á lífið og tilver-
una því oft erum við langt niðri
og finnst sem viö séum komin út
úr öllum tengslum við annað fólk,
alhr horfi á okkur og hlæi að
okkur. Stundum er þetta bara
ímyndun í okkur sjálfum.
Ég hvet j)ví aha sem eiga við
þessi vandamál að stríða aö byrja
á því að kynnast OA-samtökun-
um. Og þótt ekki ætli ég að fara
áö auglýsa hér þá vil ég gjaman
bcnda fólki á bókina „Allt í lagi
vinm“ eftir Ásgeir Hannes Ei-
ríksson þingmann. - Þessi bók er
MÍN BIBLÍA og lesm á hverjum
degi. Ég vil þakka Ásgeiri Hann-
esi fyrir námskeið sem hann hef-
ur haldið fyrir fólk sem á við
hömlulaust át aö stríða.
±