Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Síða 17
16
fþróttir
Sport-
stufar
Elí Ohana, landsliös-
maður ísraels í knatt-
spymu, er nú loksins
búinn að finna sér fé-
lag til að stunda hjá atvihnu sina.
Ohana, sem gerði garðinnfrægan
í úrslitaleik með félagi sínu, Mec-
helen, gegn Ajax í Evrópukeppni
bikarhafa fyrir tveimur ónun
gerði í gær samning við portú-
galska liðið Braga. Samningur-
inn mun gilda út þetta keppnis-
tímabil en áður hafði Ohana
reynt að komast að hjá Leeds og
Nottingham Forest en ekki tekist.
Enski boitinn byrjar
iaugardaginn 27. október
Fyrsti leíkurinn sem sýndur
verður beinni útsendingu í ríkis-
sjónvarpinu verður laugardag-
inn 27. október. Þá eigast við
Nottíngham Forestog Tottenham
og hefst útsendingin kl. 14. Bftir
það verða beinar utsendingar á
hveijúní laugardegi frá leikjum í
ensku knattspyrnunni. Svo er
bara að vona aö Guðni Bergsson
þjá Tottenham og Þorvaldur Örl-
ygsson hjá Nottínghmam Forest
verði í liðinu þegar leikurinn
verður sýndur.
Mikið skorað i
haustmótinu
Þessa dagana stendur yfir haust-
mót Knattspymuráðs Reykjavík-
ur í meistaraflokki karla í knatt-
spyrnu. Liðin sem taka þátt í.
mótinu eru 12 og er þeim skipt í
3 riöla. í A-riðli leika KR, Leikn-
ir, ÍR og UBK. í B-riðli leika
Stjarnan, Árvakur, FH og Þróttur
og í C-riðli era Fram, Ármann,
Víkingur og Fylkir. Úrsiit í leikj-
unum sem leiknir hafa verið eru
þessi: KR - Leiknir 4-2, UBK-ÍR
2-3, Stjaman - Árvakur 9-2,
FH - Þróttur 6-4, Fram - Ármann
4-0, Víkingur - Fylkir 3-3, Þrótt-
ur - Árvakur 9-1 og FH - Stjarn-
an 7-3.
Tveir hörkuleikir í
úrvalsdeiidinni
Tveir leikir fara fram í
úrvalsdeUdinni i
körfuknattleik 1 kvöld.
í Keflavík taka heima-
metm á móti Tindastól. Bæði liðin
hafa sigrað í sínum fyrstu tveim-
ur leikjum og verður þvi örugg:
lega ekkert gefið eftir. Þá leika I
Seljaskóla ÍR og Snæfell. Báðum
líðum hefur veriö spáð fallbar-
áttu í deildinni og hafa þau enn
ekki hlotið stig. Hástökkvarinn
Douglas Shouse mun þar leika
sinn fyrsta leik meö IR. Báðir
leikimir heíjast ki. 20.
Maradona kom tveimur
dögum of seint
Diego Maradona kom i
gær til Napoli á Ítalíu
eftir stutt frí í heima-
landi sínu, Argentínu,
en var þó tveimur dögum lengur
en hann hafði leyfi til. Ekki í
fyrsta sinn sem það gerist! Heima
í Argentínu lét Maradona hafa
eftir sér að hann vUdi snúa heim
sem fyrst og enda ferUinn þar
með Boca Juniors. Við komuna
til Ítalíu í gær neitaði Maradona
að ræða það mál frekar en sagð-
ist ætja aö ræða viö forseta Na-
poli. í herbúðum félagsins var
engin kátína með framlenging-
una á leyfi stjörnunnar en fram-
kvæmdastjóri þess, Luciano
Moggi, sagöi: „Við munum fyrst
heyra ástæðurnar fyrir sein-
kunni og svo tökum viö ákvöröun
um hvað gera skal,“ Maradona
átti að mæta á æfingu á þriöju-
dagiim en Napoli býr sig undir
toppslag gegn AC Milan í ítölsku
1. deildinni á sunnudag.
Bikarkeppnin 1 handknattleik:
Allt í bál og brand
í Garðabænum
- slagsmál í lokin þegar KA vann Stjömuna, 22-23
Það sauð heldur betur upp úr í
íþróttahúsinu í Garðabæ í gærkvöldi
þegar Stjarnan og KA mættust þar í
32 liöa úrslitum bikarkeppninnar í
handknattleik. KA vann þar Stjöm-
una í annað sinn á fimm dögum, nú
22-23, eftir æsispennandi og jafnan
leik þar sem grunnt var á því góða
milli leikmanna liðanna.
Á lokasekúndunum, þegar staðan
var 21-23, lenti saman þeim Sigurjóni
Guðmundssyni, leikmanni Stjörn-
unnar, og Pétri Bjarnasyni úr KA,
sem lék ekki með en sat á vara-
mannabekk Akureyrarliðsins. Pétur
tók boltann þegar Sigurjón ætlaði að
sækja hann út fyrir völlinn, Siguijón
ýtti við Pétri, sem þá sló til Sigúr-
jóns. Við þetta fór allt í bál og brand
á milli leikmanna og aðstandenda
liðanna. Dómararnir, Guðmundur
Kolbeinsson og Þorgeir Pálsson,
náðu að stilla til friðar og sýndu þeir
Pétri rauða spjaldið.
Lendir Pétur í
fjögurra leikja bann?
„Þetta var vanhugsað hjá mér og al-
gjör óþarfi,“ sagöi Pétur við DV eftir
leikinn. „Ef Pétur hefði ekki verið á
leikskýrslu heldur óbreyttur áhorf:
andi, hefði verið um lögreglumáí aö
ræða,“ sagði Guðmundur Kolbeins-
son dómari. Pétur gæti átt yfir höfði
sér fjögurra leikja bann fyrir þetta
atvik, samkvæmt reglugerð fyrir
aganefnd HSÍ.
Leikurinn var jafn allan tímann,
staðan 11-11 í hálfleik, en KA var
með undirtökin í síðari hálfleik.
Magnús Sigurðsson skoraði 10 mörk
fyrir Stjömuna og Patrekur Jóhann-
esson 4. Guðmundur Guðmundsson
gerði 8 mörk fyrir KA og Erlingur
Kristjánsson og Hans Guðmundsson
5 hvor.
Sigurður ekki með
vegna agabrots
Siguröur Bjarnason lék ekki með
Stjömunni. Aö sögn Eyjólfs Braga-
sonar, þjálfara Stjömunnar, var
hann var settur í leikbann hjá félag-
inu vegna agabrots fyrir deildaleik
félaganna um síðustu helgi, og það
kemur í ljós í dag hvort hann fær að
leika með Stjömunni gegn Val í 1.
deildinni á laugardaginn.
Valsmenn stálheppnir
að vinna HK
Valsmenn sigmðu 2. deildar lið HK,
13-14, í gífurlegum baráttuleik í
Digranesi. Staðan í hálfleik var 8-7,
HK í hag, og Valsmenn komust yfir
í fyrsta og eina skiptið tveimur mín-
útum fyrir leikslok þegar Valdimar
Grímsson skoraði sigurmark þeirra.
Valdimar skoraði 5 marka Vals og
Jón Krisljánsson 3. Gunnar Gíslason
var markahæstur hjá HK með 4
mörk. Magnús Ingi Stefánsson,
markvörður HK, var besti maður
vallarins og varði fimm vítaköst
Valsmanna. Frammistaða HK-
manna var frábær og þeir voru hárs-
breidd frá því að verða fyrstir til að
sigra Val á tímabilinu.
• Haukar unnu nokkuð ömggan
sigur á Fram í Hafnarfirði, 26-20, eft-
ir 12-10 í hálfleik. Óskar Sigurðsson
skoraði 6 mörk fyrir Hauka og Stein-
ar Birgisson og Pétur Ingi Amarson
5 hvor, en Karl Karlsson gerði 5
mörk fyrir Fram.
• FH vann ÍBK í Keflavík, 17-26,
eftir 8-14 í hálíleik. Guöjón Árnason
skoraði 8 mörk og Jón Erling Ragn-
arsson 5 fyrir FH en Einvarður Jó-
hannsson skoraði 9 mörk fyrir ÍBK
og Hermann Hermannsson 4.
• ÍR-ingar voru í markaham í
Hafnarfirði þar sem þeir unnu B-lið
ÍH, 14-50.
• Víkingar unnu B-lið Stjörnunn-
ar í Garðabæ, 22-36.
• Eyjamenn sigruðu B-lið Vals að
Hlíöarenda, 22-37'.
• Grótta vann B-hð Breiðabliks í
Digranesi, 20-39.
• Ármenningar þurftu tvær fram-
lengingar til að sigrast á B-liði Hauka
í Hafnarfirði, 29-30.
• í 16 hða úrslitum leika B-lið
Fram, B-lið FH, Fjölnir, Selfoss, Þór,
Breiðablik, KR, Víkingur, ÍBV, ÍR,
Valur, FH, Haukar, Grótta, Ármann
og KA.
• í 2. deild kvenna var einn leikur
í gærkvöldi. ÍBK sigraöi Ármann í
Keflavík, 19-15. -RR/ÆMK/VS -
„Ég hef haft gott af
verunni hjá Stuttgart“
- Eyjólfur Sverrisson frá vegna meiösla
„Mér hefur gengið svona sæmilega
en ekki alltof vel. Ég var óheppinn
að rífa vöðva í læri fyrir viku og er
núna rétt farinn að hreyfa mig á
nýjan leik. Það er slæmt aö lenda í
þessum meiðslum því nú var einmitt
tækifæriö til að verða valinn í liðið
eftir lélegt gengi þess að undan-
fómu,“ sagði Eyjólfur Sverrisson,
atvinnuknattspymumaður hjá
þýska félaginu Stuttgart, í samtali
viðDV.
Eyjólfur Sverrisson gerði samning
við Stuttgart á síðasta ári og hefur
ekki fengið mikið að spreyta sig með
liöinu fram að þessu. Undir lok síð-
asta keppnistímabils kom Eyjólfur
inn á í tveimur síðustu leikjum tíma-
bilsins og náði þá að skora eitt mark.
Það sem af er yfirstandandi tímabili
hefur Eyjólfur fengið fá tækifæri
með aöalliðinu, kom þó inn á í leik
fyrir skemmstu og lék síðustu tutt-
ugu mínúturnar.
„Andrúmsloftið er
lævi blandið“
.„Andrúmsloftið í herbúðum Stutt-
gart er lævi blandið þessa dagana.
Hvorki gengur né rekur hjá liðinu
og sem stendur er liöið í 11.-14. sæti
með .átta stig. Menn eru almennt
ákveðnir að taka sig saman í andlit-
inu og gera betur í næstu leikjum
sagði Eyjólfur Sverrisson.
„Hef bætt mig sem
knattspyrnumaður“
„Atvinnumennskan er mun erfiöari
en ég gerði mér fyrir í upphafi. Mað-
ur þarf að sýna mikla þolinmæði en
vonandi kemur tækifærið fyrr en
seinna! Það er mikið af stjörnum hjá
Stuttgart, sem gerir þaö að verkum ^
að ekki er auðvelt að vinna sér sæti
í liðinu. Ég á nóg eftir enda er ég
aðeins 22 ára frá því í ágúst. Ég hef
haft gott af veranni hjá Stuttgart og
bætt mig sem knattspyrnumann. Það
er æft aö jafnaði tvisvar á dag svo
maður kemst ekki hjá að bæta sig
eitthvaðsagði Eyjólfur Sverrisson.
-JKS
„Það er ekki 29 marka
munur á þessum liðum“
- íslenska kvennalandsliöið steinlá gegn Hollandi, 37-8
„Þetta voru sterkir andstæðingar
en það er langt frá því aö vera 29
marka munur á liðunum," sagöi Inga
Lára Þórisdóttir, landsliðskona í
handknattleik, í samtali við DV í
gærkvöldi. íslenska kvennaiandslið-
ið beið hrikalegan ósigur gegn Hol-
lendingum, 37-8, í fyrstu umferö al-
þjóðlegs móts sem hófst í Hollandi í
gærkvöldi.
Leikurinn var jafn í byijun, staðan
4-2 fyrir Holland eftir nokkrar mín-
útur, en síðan skildu leiðir algerlega.
Staðan í hálfleik var 16-4 og hol-
lensku stúlkurnar gerðu 21 mark
gegn fjórum 1 síðari hálfleik. íslenska
liðið gerði sex af átta mörkum sínum
úr vítaköstum.
„Við gerðum mikið af mistökum í
sókninni og fengum á okkur hvert
hraðaupphlaupið á fætur öðru. Hol-
lenska liðið hefur sennilega gert 80
prósent af sínum mörkum á þann
hátt. Ég held líka aö það hafi verið
mikil minnimáttarkennd í liðinu,
enda erum við með mikið af nýlið-
um,“ sagði Inga Lára.
Slavko Bambir landsliðsþjálfari
kom beint frá Júgóslavíu í leikinn
en hann þurfti að fara þangað af per-
sónulegum ástæðum. Enginn aðstoð-
arþjálfari er með liöinu og landsliðs-
konumar þurftu því að stjóma sjálf-
ar þeim æfingum sem fram fóm fyr-
ir leikinn.
Mörk íslands: Halla M. Helgadóttir
4/3, Inga Lára Þórisdóttir 3/3, Sigrún
Másdóttir 1.
-VS
18. OKTÓBER 1990.
25
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990.
Samkomulag um kaup á Amóri Guðjohnsen:
Bordeaux
greiðir 80 til
85 milQónir
- Amór til samningaviðræðna í Frakklandi 1 dag
■
I
- ':Æ
• Arnór Guðjohnsen verður væntanlega fimmti íslendingurinn sem leikur í
frönsku 1. deildinni. Hinir eru Albert Guðmundsson, Þórólfur Beck, Karl Þórðar-
son og Teitur Þórðarson.
Forráðamenn Anderlecht og
Bordeaux komust síðdegis í gær að
samkomulagi um að fránska félagið
Bordeaux keypti íslenska knatt-
spyrnumanninn Arnór Guðjohnsen
frá Anderlecht í Belgíu. Frá þessu
var skýrt í belgíska sjónvarpinu og
DV fékk þetta staðfest í gærkvöldi.
Arnór fer í dag til Frakklands til
viðræðna við Bordeaux en aðeins
stendur á samþykki hans til að félög-
in geti gengið endanlega frá kaupun-
um.
Kaupverðið á Amóri var ekki gefið
upp en samkvæmt heimildum DV
er það í kringum 45-50 milljónir
belgískra franka eða 80-85 milljónir
íslenskra króna. Það er verðið sem
Anderlecht hefur sett á Arnór og
fældi mörg félög frá - Toulouse í
Frakklandi og Ekeren og Antwerpen
í Belgíu höfðu öll hug á að fá Arnór
til sín en hættu við þégar Anderlecht
hélt þessu verði til streitu.
Löngbiðáenda
Þar með ætti langri bið Arnórs að
vera lokið en hann hefur ekki leikið
með félagsliði síðan í úrslitaleik
Evrópukeppni bikarhafa í maí með
Anderlecht gegn Sampdoria. Síðan
þá hefur harin einungis leikið með
íslenska landsliðinu.
Arnór hefur leikið með Anderlecht
frá árinu 1983 en hann spilaði með
Lokeren í Belgíu til þess tíma frá
haustinu 1978. Ef hann nær sam-
komulagi við Bordeaux byijar hann
væntanlega að leika með liðinu á
allra næstu dögum.
Skuldar Bordeaux
tvo milljarða króna?
Bordeaux hefur verið eitt besta lið
Frakklands undanfarin ár, varð
meistari 1984,1985 og 1987 og bikar-
meistari 1986 og 1987. Á síðasta tímar
bili varð Bordeaux í öðru sæti 1.
deildar aðeins tveimur stigum á eftir
meisturum Marseilles. í haust hefur
liðinu gengið illa og er um miðja
deildina og er öragglega farið að
svipast um eftir leikmönnum af
þeim sökum. Þá hefur mikið verið
fjallað um erfiða fjárhagsstöðu
Bordeaux og félagið er sagt skulda
um tvo milljarða íslenskra króna.
Forseti Bordeaux, Claude Bez, hef-
ur verið mjög áberandi í Frakklandi
undanfarin ár, hann tók við embætt-
inu árið 1978 og ákvað strax að gera
Bordeaux að stórveldi. Það tókst,
félagið hefur verið það öflugasta í
frönsku knattspyrnunni á níunda
áratugnum en síðustu tvö árin hefur
það misst forystuhlutverkið til Mar- -
seille. -VS/KB/Belgíu
Evrópukeppni landsliða
2. riðill:
Rúmenía-Búlgaría.............0-3
Skotland-S viss..............2-1
Skotland.......2 2 0 0 4-2 4
Búlgaría........2 1 0 1 3-2 2
Sviss..........2 10 13-22
SanMarino......0 0 0 0 0-0 0
Rúmenía.........2 0 0 2 1-5 0
3..riðill:
Ungverjaland-Italía..........1-1
Sovétríkin.....1 1 0 0 2-0 2
fJngverjaland ..2 0 2 0 1-1 2
Italía.........1 0 111-11
Noregur........2 0 110-21
Kýpur..........0 0 0 0 0-0 0
4. riðill:
Norður-írland-Danmörk........1-1
Danmörk........2 110 5-23
Júgóslavía.....1 1 0 0 2-0 2
Færeyjar.......2 10 1 2-4 2
N-írland.......2 0 111-31
Austurríki.....1 0 0 1 0-1 0
5. riðUl:
Wales-Belgia.................3-1
6. riðill:
Portúgal-Holland.............1-0
7. riðill:
Írland-Tyrkland..............5-0
England-Pólland..............2-0
Evrópukeppni landsliða í knattspymu:
Slæm byrjun meistaranna
- Portúgalir sigruðu Hollendinga, 1-0, í Lissabon 1 gærkvöldi
Evrópumeistarar Hollendinga í
knattspymu hófu titilvörnina ekki á
sannfærandi hátt í gærkvöldi. Þeir
máttu sætta sig við ósigur gegn Portúg-
ölum, 1-0, í Lissabon, í leik sem fram
fór í ausandi rigningu. Þaö var Rui
Aguas sem skoraði sigurmark heima-
manna á 53. mínútu.
Portúgalir léku án margra fasta-
manna, en í lið Hollands vantaði Ron-
ald Koeman sem ekki fékk að vera með
þar sem hann gagnrýndi Rinus Michels
lahdsliðsþjálfara opinberlega á dögun-
um. Hollendingar gerðu harða hríð að
marki Portúgala undir lokin en náðu
ekki að jafna.
Lineker angrar
enn Pólverja
Gary Lineker, hinn nýi landsliðsfyrir-
liði Englendinga í knattspyrnu, hélt
uppteknum hætti gegn Pólveijum þeg-
ar þjóðimar mættust á Wembley-leik-
vanginum í London í gærkvöldi í Evr-
ópukeppni landsliða. Lineker haföi
skoraö fjögur mörk í þremur leikjum
gegn Pólveijum, og hann gerði fyrra
markið í 2-0 sigri Englands.
Það var á 39. mínútu sem Lineker
skoraði. Þá átti hann skalla á mark
Póllands en varnarmaður afstýrði
marki með höndum á marklínunni.
Dæmd var vítaspyrna og Lineker var
ekki í vandræðum með að skora úr
henni, 1-0. Þetta var hans 37. mark fyr-
ir enska landsliðið. Á 51. mínútu þurfti
Lineker að yfirgefa völlinn eftir aö
sparkaö haföi verið í andlitið á honum.í
Sauma þurfti 8 spor til að loka sáijnu.
Peter Beardsley skoraði síðara mark-*
ið á lokamínútu leiksins með fallegu1
skoti eftir sendingu frá Lee Dixon.
Saunders gerði
Belgum lífið leitt
Dean Saunders, sóknarmaðurinn
snjalli frá Derby, var maðurinn á bak
við óvæntan sigur Walesbúa á Belgum,
3-1. Hann skoraði eitt mark og lagöi hin
tvö upp fyrir Ian Rush og Mark Hug-
hes. Bruno Versavel skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir Belga.
ítalir heppnir
í Búdapest
ítalir sluppu vel með eitt stig frá Búda-
pest í gærkvöldi þegar þeir gerðu þar
jafntefli við Ungveija, 1-1. Laszlo Disztl
skoraði fyrir Ungverja strax á 16. mín-
útu en Roberto Baggio náði að jafna
fyrir ítali úr vítaspyrnu á 54. mínútu
eftir að Fernando De Napoli hafði verið
felldur í vítateignum. Ungverjar gerðu
oft harða hríð að ítalska markinu og
hefðu hæglega getað knúið fram sigur.
Aldridge með
þrennu gegn Tyrkjum
John Áldridge skoraði þrjú mörk fyrir
íra í gær þegar þeir sigraðu Tyrki, 5-0,
í Dublin. Aldridge hafði áður aðeins
gert þijú mörk í 35 landsleikjum. Hin
möridn gerðu David O’Leary, hans
fyrsta í 54 landsleikjum, og Niall Quinn.
Þetta er stærsti sigur íra síðan Jack
Charlton tók við liðinu fyrir hálfu
fimmta ári og þeir hafa nú leikið 21
heimaleik í röð án taps.
Stærsti sigur
Búlgara á Rúmenum
Búlgarir komu geysilega á óvart í gær
þegar þeir skelltu hinu öfluga liði Rúm-
ena, 0-3, í Búkarest. Búlgarir beittu
skæðum skyndisóknum og Kasimir
Balakov skoraði í fyrri hálfleik og Ni-
kolai Todorov tvö mörk í þeim síðari.
Jafnt í Belfast
Norður-írar og Danir skildu jafnir í
Belfast, 1-1. Danir byrjuðu mjög vel,
Brian Laudrup krækti í vítaspyrnu eft-
ir 11 mínútur og úr henni skoraði Jan
Bartram, en Colin Clarke náði að jafna
fyrir heimamenn á 58. mínútu.
Dómari þurfti lögreglu-
vernd í Glasgow
Lögregla þurfti að vemda dómarann
fyrir svissnesku leikmönnunum eftir
leik Skota og Svisslendinga í Glasgow,
sem Skotar unnu 2-1. Skotar fengu tvær
vítaspyrnur, skoruðu rangstöðumark,
og Andre Egli, varnarmaður Sviss, var
rekinn af velli undir lokin.
Ally McCoist brenndi af úr fyrri víta-
spymu Skota en úrhinni skoraði John
Robertson. Gary McAllister var rang-
stæður þegar hann kom Skotum í 2-0 á
53. mínútu, en á 65. mínútu fékk Sviss
víti sem Adrian Knup skoraði úr.
-VS
Laugardalsvöliurmn ótrulega góður:
Fram leikur fyrri leikinn
gegn spænska stórliðínu
Barcelona í 2. umferð Evr-
ópukeppni bikarhafa næst-
komandi þriðjudag á Laugar-
dalsvellinum. Að sögn Jó-
hannesar Óla Garöarssonar,
vallarstjóra í Laugardal, er
ástand vallarins mjög gott um
þessar mmidir og eins og um
hásumar væri.
„Tíðin er búin að vera ein-
staklega góð hér á suðvestur-
hominu aö undanförnu. Kkk-
ert frost er í vellinum, hann
er frekar þurr og lítur bara
vel ut þaniiig að hann er vel
í stakk búirrn að taka á móti
leik Fram og Barcelona á
þriðjudaginn kemur. Viö er-
um búnir að undirbúa völlinn
fyrir veturinn, sandbera, gáta
og sá í hann. Ef tíðin helst
svipuö fram að leikdegi er ég
hvergi s_meíkur,“ sagði Jó-
hannes ÓIi Garðarsson vall-
arstjóri í samtali við DV. -JKS
Gunnar skoraði 5 mörk
Gunnar Gunnarsson og fé-
lagar í Ystad unnu stórsigur
á Saab, 27-16, í sænsku úr-
valsdeildinni í handknattleik
í gærkvöldi. Robert Anders-
son, nýliði í sænska landslið-
inu, skoraði 6 mörk fyrir
Ystad og Gunnar 5.
„Lið Saab er ekki svipur hjá
sjón án Þorbergs Aðalsteins-
sonar, það saknar hans bæði
í sókn og vörn. Þetta er að
koma hjá okkur eftir erfiða
byijun, og nú eigum við fram-
undan fimm leiki gegn liðum
í neðri hluta deildarinnar,"
sagði Gunnar í samtali við
DV í gærkvöldi.
Drott vann sinn sjötta sigur
í jafnmörgum leikjum, sigr-
aði Warta 33-21. Lugi vann
Kristianstad, 24-19, Skövde
vann Irsta, 23-20, Redbergslid
vann Söder, 24-16, og GUIF
tapaði fyrir Sávehof, 15-18.
Drott er með 12 stig, Lugi 9,
Redbergslid 8,. Skövde 8,
Savehof 7 og Ystad 6 stig.
-VS
íþróttir
• Marteinn Geirsson verður sitt
sjötta ár með Fylkisliðið.
Marteinn
með Fylki
Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis
hefur átt í viðræðum við Martein
Geirsson um að hann haldi áfram
starfi sínu sem þjálfari félagsins og
eru allar líkur á að svo verði.
Marteinn hefur verið við stjórn-
völinn hjá ÁrbæjarliðinU undanfarin
fimm ár og hann er einnig þjálfari
íslenska landsliðsins sem skipaö er
leikmönnum 21 árs og yngri. Undir
hans stjórn vann Fylkir sér sæti í
fyrsta sinn í sögu félagsins árið 1988.,.
Fylkismenn féflu naumlega úr 1.
deildinni í fyrra og í ár hafnaði liðið
í 3. sæti í 2. defld og missti af 1. deild-
ar sæti, eftir harða keppni við
Breiðablik.
„Við áttum fund með Marteini í
fyrrakvöld og þar voru málin rædd
og viðræður áttu sér stað um endur-
ráðningu hans. Ég veit ekki betur en
allir þeir leikmenn, sem léku með
liðinu í fyrra, haldi áfram svo við lít-
um björtum augum til næsta keppn-
istímabils enda efniviðurinn mikill í
Árbænum," sagði Björn Árni’
Ágústsson, formaður knattspyrnu-
deildar Fylkis, í samtali við DV.
-GH
• Magnús Jónatansson verður sitt
þriðja ár með Þróttarliðið.
Magnús
með Þrótt
Magnús Jónatansson hefur verið
endurráðinn þjálfari Þróttar úr
Reykjavík í knattspymu en undir
hans stjórn vann félagið 3. defldina
í sumar og leikur því í 2. deild á
næsta keppnistímabili eftir tveggja- ,
ára dvöl í 3. defld.
„Þetta leggst vel í mig. Þaö hefur
verið mikill uppgangur í félaginu þau
tvö ár sem ég hef starfað og bæöi
leflimenn og stjórn hafa tekið hönd-
mii saman um að gera góða hluti og
þá er aðstaðan hjá félaginu er orðin
mjög góð. Við stefnum aö sjálfsögðu
að því að vera meðal 10 bestu flða á
íslandi en við gerum okkur grein
fyrir því að keppnin í 2. defld á næsta
sumri verður hörð og hvort okkur
tekst að ná markmiðinu á næsta
keppnistímabili verður bara að koma
í ljós,“ sagði Magnús við DV í gær,
en hann tók við liði Þróttar árið 1989.
Þróttarar missa ekkert af leik-
mönnunum sem unnu 3. defldina í
sumar. Goran Micic, Júgóslavinn
sem hefur leikið með Víkingi, hefur
verið orðaður við Þrótt og staðfesti
Magúús að hann vissi ekki betur en
hann væri á leiö í félagið.
-GH