Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1990, Síða 18
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990.
Iþróttir
EMífrjálsum
íBrussell950:
40 ár
frá
því að
lið ís-
lands
slóí
gegn
Á dögunum kom hópur
frækinna íþróttamanna
saman á Hótel Holti. Til-
gangurinn var að halda
upp á það að 40 ár voru liðin frá
því aö íslenskir frjálsíþróttamenn
gerðu garðinn frægan á Evrópu-
mótinu í frjálsum íþróttum í Bruss-
el árið 1950.
Þeir íslendingar, sem urðu vitni
að árangri íslensku keppendanna,
gleyma aldrei dvölinni í Brussel. I
tvígang var íslenski fáninn dreginn
að húni er íslendingar hömpuðu
gullverðlaunum. Gunnar Huseby
varð Evrópumeistari í kúluvarpi,
varpaði 16,74 metra og varði því
titil sinn frá Evrópumótinu í Osló
íjórum árum áður. Torfi Bryn-
geirsson, faðir knattspymumanns-
ins Guðmundar Torfasonar hjá
skoska félaginu St. Mirren, hafði
góða möguleika á að verða tvöfald-
ur Evrópumeistari í Brussel. En
keppt var til úrslita í langstökki og
stangarstökki samtímis og Torfi
varð því að velja á milli. Hann valdi
langstökkið og varð Evrópumeist-
ari með stökk upp á 7,32 metra.
Fleiri íslenskir íþróttamenn fengu
íslensku þjóðina til að standa á
öndinni af spennu er líflegar lýs-
ingar Sigurðar Sigurðssonar
hljómuðu í útvarpsviðtækjum
landsmanna.
Er íslenska hðið kom heim var
því ákaft fagnað. Blöð voru uppfull
af frásögnum og mánudaginn 4.
september 1950 voru á forsíðu og
baksíðu Vísis langar greinar um
frjálsíþróttakappana. Og forseti ís-
lands, Sveinn Bjömsson, tók á
móti Brusselfórunum er þeir komu
til landsins með Gullfaxa, einnig
Gunnar Thoroddsen borgarstjóri,
ráðherrarnir Bjarni Benediktsson
og Bjöm Ólafsson og lögreglustjór-
inn í Reykjavík. Það vom engir
smákarlar sem komnir vora heim
eftir glæsilegustu för íslensks
íþróttahóps á erlenda gmnd fyrr
og síðar.
• í stuttri greinargerö, sem
Bmsselfaramir sendu frá sér á
dögunum, segir: „Hingað til höfum
við gert þetta í kyrrþey, en af ýms-
um ástæðum langar okkur nú að
nota tækifærið og minna menn á
þessa frægðarfor, ef það mætti
verða til þess að hressa upp á áhug-
ann á frjálsum íþróttum, sem virð-
ist vera í lágmarki hér á landi um
þessar mundir.“
-SK
• Hópurinn, Brusselfararnir 1950 sem svo rækilega slógu í gegn á Evrópumeistaramótinu i Brussel 1950. Efri röð frá vinstri: Ingólfur P. Steins-
son, fararstjóri og stjórnarmaður í Frjálsíþróttasambandi íslands, Magnús Jónsson sem keppti í 800 m hlaupi, Guðmundur Lárusson sem varð 4. í
400 m hlaupi, Pétur Einarsson sem keppti í 800 og 1500 m hlaupi, Torfi Bryngeirsson, Evrópumeistari í langstökki, og loks Gunnar Huseby, Evrópu-
meistari i kúluvarpi, 1946 og 1950. Neðri röð frá vinstri: Ásmundur Bjarnason sem varð 5. í 200 m hlaupi, Finnbjörn Þorvaldsson, sem keppti i 100
m hlaupi, Haukur Clausen sem varð 5. í 100 m hlaupi, örn Clausen sem vann silfurverðlaun i tugþraut og loks Jóel Sigurðsson sem keppti í spjótkasti.
DV-mynd GS
• Þessi mynd er 40 ára gömul og er tekin af islensku Brusselförunum
í Osló árið 1950 en flokkurinn keppti þar á heimleiðinni. Efsta röð frá
vinstri: Ingólfur P. Steinsson, fararstjóri og stjórnarmaður í FRÍ, Garðar
S. Gíslason fararstjóri og Benedikt Jakobsson landsliðsþjálfari. Miðröð
frá vinstri: Magnús Jónsson, Guðmundur Lárusson, Pétur Einarsson,
Gunnar Huseby og Torfi Bryngeirsson. Fremsta röð frá vinstri: Ásmund-
ur Bjarnason, Finnbjörn Þorvaldsson, Haukur Clausen, Örn Clausen,
og Jóel Sigurðsson. Ljósm. Metro-Foto, Osló.
• Málin rædd á Hótel Holti á dögunum. Þá komu Brusselfararnir sam-
an til að halda upp á það að 40 ár eru liðin siðan glæsilegur árangur
náðist á EM i Brussel 1950. Frá vinstri: Magnús Jónsson, Guðmundur
Lárusson, Jóel Sigurðsson, Finnbjörn Þorvaldsson, Torfi Bryngeirsson
og fremstur á myndinni í stólnum situr Gunnar Huseby. Hann vann það
einstæða afrek að verja Evrópumeistaratitil sinn í kúluvarpi í Brussel
1950 frá EM í Osló 1946.
DV-mynd GS
• Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra hefur víða komið við, en hvað í ósköpunum var hann að gera með Brusselförunum á Hótel Holti
á dögunum? Jú, hann var á Evrópumótinu í Brussel 1950 og starfaði þar sem iþróttafréttamaður fyrir Tímann. Hér sést Steingrímur í góðum hópi
en meö honum á myndinni eru þeir Ásmundur Bjarnason, Pétur Einarsson og Haukur Clausen. DV-mynd GS