Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Side 17
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
25
Iþróttir
Ungur á
nýjan leik
„Aö hleypa Svíum í 8-0 er meö
ólikindum en sýnir um leið að við
erum skammt á veg komnir í und-
irbúningi okkar. Það er stöðugt
verið að skipta um leikmenn í
stöðunum fyrir utan og það mun
taka fleiri mánuði og tugi leikja
að byggja upp sterkan sókirnr-
leik," sagði Þorbergur Aðalsteins-
son, þjálfari íslenska landsliðsins,
eftír landsleikinn í gærkvöldi.
„Ég fæ ekki þá leikmenn sem
ég viidi helst af öllu hafa en samt ■
er ég mjög ánægöur með margt í
þessum leik, það eittað strákam-
ir skyldu aldrei gefast upjp er stór-
kostlegt út af fyrir sig. Eg mun á
næstunni leggja áherslu á sókn-
ar- og hraðaupphlaup. Það er lið-
inu gífurlegur styrkur að hafa
Kristján Arason og strákunum
líður vel í návist hans,“ sagði
Þorbergur Aðalsteinsson.
Kristján Arason:
„Byrjunin var afleit, enda
kannski aðlilegt. Við erum að æfa
ný kerfi og það tekur tíma að fín-
pússa þau, alla vega hvað mig
snertir. Byrjunm gaf samt engan
veginn rétta mynd af getu Iiðsins, ;
enda spennan mikil að leika gegn
sjálfum heimsmeistufunum,"
sagði Kristján Arason.
„Um leið og isinn brotnaði átt-
um við í fullu tré við þá en ljósi
punkturinn var varnarleikurinn
og það var virkilega garaan að
koma inn í liðiö á nýjan leik. Þaö
er sterkt að ná jafntefli gegn
heimsmeisturunum en Svíar og
Sovétmenn er án efa með bestu
landsliðin í heiminum í dag. Mér
finnst ég vera ungur á nýjan leik
og ég legg um fram allt áherslu á t
að liafa gaman af þessu," sagði
Kristján Arason.
Geir Sveinsson:
„Það er ekki slæmt að ná jafn-
tefli gegn heimsmeisturunum.
Byrjunin var hrikaleg og það
vantar ákveðni á nokkrum svið-
um í liðiö. Við vorum alltof ragir
í byrjun en smám saman hrökk
liðið í gang. Það sáust margar
jákvæðar hliðar í leiknum og ég
held að þetta sé allt saman á réttri
leið,“ sagði Geir Sveinsson.
Sigurður Bjarnason:
„Þetta var ein versta bvrjun sem
ég hef lent í en þegar öllu er á
botninn hvolft var þetta stórkost- -
legt. Við gáfumst aldrei upp,
vörnin var sterk og Svíar skor-
uðu þorra marka sinna úr hraða-
upphlaupum. Það kom mér á
óvart að við skyldum ná jafhtefli
gegn jafhsterku liði og Svíar
eru,“ sagöi Sigurður Bjamason.
jgn Svíum í gærkvöldi en hefur þó oft leikið mun betur. Patrekur Jóhannsson er fyrir aftan en hann átti mjög góðan leik og skoraði fjögur góð mörk.
DV-mynd GS
úlegur leikur
'öu jafntefli viö heimsmeistara Svía eftir hreina martröð í byrjun, 22-22
im
;ik
ir-
in-
rá
'ur
ir-
sta
i.
'ur
m.
;ki
igt
ití
nn
;r-
og reyndar allan leiktímann. Hefur
ekki áður verið boðið upp á aðra eins
markvörslu í Laugardalshöllinni.
Eftir að hin ótrúlega staða, 0-8,
varð staðreynd komu varamenn Svía
inn á hver af öðram og þá hrökk ís-
lenska liðið í gírinn. Fyrsta markið
kom eftir 19 'A mínútu og staðan eftir
20 mínútur 1-9. Þá komu fimm ís-
lensk mörk og staðan í leikhléi 6-9.
• í síðari hálfleiknum var íslenska
liðið gott og reyndar allt annað lið á
ferðinni. Svíar þó aldrei langt undan
og þegar 11 mínútur voru eftir varð
staöan jöfn í fyrsta skipti, 16-16.
Heimsmeistararnir virtust með unn-
inn leik í höndunum í lokin en mikil
barátta færöi íslenska liðinu jafntef-
lið. Patrekur Jóhannesson jafnaði
metin, 22-22, á síðustu sekúndunni.
Kórónaði hann þar með leik sinn en
Patrekur lék aðeins varnarleikinn.
Skoraði hann alls fjögur mörk úr
hraðaupphlaupum og fiskaði að auki
vítaköst. Á þessi 18 ára gamli leik-
maður eftir að koma mikið við sögu
í landsleikjum framtíðarinnar.
Tvö stór vandamál blöstu viö fyrir
leikinn. Skyttu vantaði vinstra meg-
in og er búið var að færa miðjumann-
inn Sigurð Bjarnason þangað vantaði
miðjumann. Jón Kristjánsson byrj-
aði á miðjunni en var alveg úti að
aka. Konráð Olavsson fór síðan í
miðjuhlutverkið og stóð sig mjög
vel. Fer þar einn skemmtilegasti
handknattleiksmaður okkar um
þessar mundir. Sigurður Bjarnason
var lengi í gang en eftír að hafa náð
úr sér skjálftanum sem angraði hann
í fyrri hálfleik átti hann stórleik í
þeim síðari. Sérlega var gaman að
sjá hvernig þessi ungi og reynslu-
lausi landsliðsmaður fór með „bí-
tilinn“ Staffan Olson um miðjan síö-
ari hálfleik. Og er Olson var rekinn
út af í tvær mínútur í kjölfarið
sprakk Höllin og eftir það var „Faxi“
með alla Höiljna „á bakinu". Fleiri
góða mætti nefna eins og Guðmund
Hrafnkelsson sem varði 15 skot.
Kristján Arason styrkti liðið en Al-
freö Gíslason sást ekki, hvorki í
leiknum né Höllinni, enda kappinn
fyrir norðan og gaf ekki kost á sér í
leikinn.
• Mörk íslands: Sigurður 5/1, Pat-
rekur 4, Konráð 4/2, Jakob 3, Kristján
3, Valdimar 2, og Geir 1.
• Mörk Svía: Erik Hajas 9/1, Staff-
an Olson 6, Per Carlén 4, Ola Lind-
gren 2, og Magnus Wislander 1.
-SK
5al
ím
ÍU-
on
na
FLUGELDASALA
FJÖLSKYLDUPOKAR - 4 GERÐIR
BLYS - ORGEL - GOS
ALLAR STÆRÐIR FLUGELDA
VERÐ OG GÆÐI VIÐ ALLRA HÆFI
AÐALSÖLUSTAÐUR
Framheimilið við Safamýri
sirpar 680342/680343/680344
föstudaginn 28. des................kl. 14-22
laugardaginn 29. des...............kl. 10-22
sunnudaginn 30. des................kl. 10-22
og að sjálfsögðu á gamlársdag,
mánudaginn 31. des..................kl. 10-16
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA
ÁVÍSANIR GEYMDAR
EINNIG ER SELT I KRINGLUNNI
föstudaginn 28. des....
laugardaginn 29. des...
og einnig á gamlársdag,
mánudaginn 31. des.....
kl.10-19
kl.10-16
kl. 10-12