Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifíng: Sími 27022
FOSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
sigá
Miklatúni
Karlmaður á miðjum aldri gyrti
niður um sig og sýndi átta og níu ára
stúlkum kynfæri sín við Miklatún
síðdegis í gær. Lögreglan hóf þegar
leit að manninum. Stúlkurnar lýstu
manninum á eftirfarandi hátt: Hann
er á miðjum aldri, var með brúna
loðhúfu, með höku- og yfirvaraskegg,
í gulbrúnni úlpu og í brúnum buxum.
Lögreglan handtók nokkru síðar
mann sem talinn var passa við lýs-
inguna. Teknar voru af honum
myndir. Maðurinn reyndist þó ekki
vera sá sem lýst var eftir. Dóninn
hefur því ekki náöst ennþá.
Svipað áttísér stað í Fossvogi um
kvöldmatarleytið á Þorláksmessu og
aftur í Álfheimum síðar það kvöld.
^ Þá var maður einnig að sýna á sér
kynfærin. Sá náðist ekki. .
-ótt'
Hannes Hlífar
gefur
ekkert eftir
Hannes Hlífar Stefánsson heldur
áfram að gera það gott á Evrópumót-
inu í skák, 20 ára og yngri, sem nú
fer fram í Arnhem í Hollandi. Hann
tefldi til vinnings í gær og er nú
hæstur á mótinu. Þykir hann eiga
mesta möguleika á að sigra í mótinu.
Alls verða tefldar 11 umferðir í
mótinu. Að loknum sex hefur Hann-
es Hlífar hlotið 6 stig og er með 1,5
vinnings forskot fram yflr næsta
keppanda. Alls taka um 40 ungir
skákmenn, víðsvegar að úr Evrópu,
þátt í þessu móti, þar af margir al-
þjóðlegir meistarar.
-kaa
Bráöavakt Borgarspítalans:
Lokað
á næturnar?
Læknar á slysadeild Borgarspítal-
ans íhuga að loka bráðvakt slysa-
deildarinnar á næturnar frá og með
kvöldinu í kvöld vegna mikils álags.
Yfirlæknar og sérfræðingar hafa
þurft að standa vaktir aðstoðar-
lækna sem hafa takmarkað vinnu-
tíma sinn.
Tryggvi Þorsteinsson, yflrlæknir
slysadeildar, segir að neyðarástand
ríki nú hjá læknum deildarinnar.
Ekki hefur verið boðaður nýr samn-
ingafundur lækna og ríkis eftir að
upp úr slitnaði fyrir jól. Félag ungra
lækna hyggst funda um ástandið í
dag. -ns
LOKI
Vanir menn -vönduð
vinna!
Atök í Framsókn
um ráðninguna
w
I • • •
/ • * *• :
A fundi bankaráðs Landsbank-
ans í dag verður nýr bankastjóri
ráðinn. Þetta er staöa sem Fram-
sóknarflokkurinn telur sig eiga og
hafa átt sér stað mikil átök innan
flokksins um hver hreppi stöðuna.
Allir þeir sem DV ræddi við í gær
og í morgun telja öruggt að Halldór
Guöbjarnason, fyrrum bankastjóri
Útvegsbankans, verði ráðinn. Geir
Magnússon, fyrrum bankastjóri
Samvinnubankans, hefur verið
helsti keppinautur hans eftir að
Guðmundur G. Þórarinsson al-
þingismaður heltist úr lestinni. Um
tíma var talið líklegt að Guðmund-
ur G. yrði ráðinn til aö leysa póli-
tiskt vandamál innan ílokksins.
Stóryrði Guðmundar eftir próf-
kjörið í Reykjavík skemmdu fyrir
honum og nú kemur hann ekki til
greina.
Steingrímur Hermannsson, for-
sætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, lagði til að Geir
Magnússon yrði ráðinn. Hann hef-
ur ekkert hvikað frá þeirri skoðun
sinni. Nokkrir sterkir aðilar innan
flokksins hafa aftur á móti stutt
Halldór. Þar hafa farið framarlega
í flokki Kristhm Finnbogason, full-
trúi Framsóknarflokksins í banka-
ráði Landsbankans, og Páll Péturs-
son þingflokksformaður. í morgun
var talið víst að Steingrímur yrði
undir í þessu máli og að Halldór
yrði ráðinn, sem fyrr segir.
Hvað eftir annað hefur ráðningu
bankastjóra við Landsbankann
verið frestað vegna þessara deilna.
Eins var beðið eftir því hvort þætti
Halldórs Guðbjarnasonar í Haf-
skipsmálinu yrði áfrýjað til Hæsta-
réttar. Hann var ákæröur í því sem
bankastjóri Útvegsbankans en var
sýknaður í undirrétti. Nú hefur
verið ákveðið að máh hans verði
ekki áfrýjað til Hæstáréttar og því
hægt að ganga frá málinu.
S.dór
Vegagerðin:
Færtum
allt land
Flestir vegir landsins eru nú færir
og samkvæmt upplýsingum Vega-
gerðar ríkisins er færðin eins og best
verður á kosið. Rutt verður um helg-
ina og fram að hádegi á mánudag ef
þörf krefur.
Að sögn Ólafs Tómassonar hjá
Vegagerðinni verða helstu vegir
ruddir á mánudag en fjallvegir látnir
vera. „Veður og vindar ráða svo ferð-
inni því við ryðjum ekkert aftur fyrr
en 2. janúar."
-ns
BláfjöH:
Stutt í að
lyftur opnist
Banaslys varð þegar 47 ára háseti á varðskiplnu Tý varð fyrir kranabómu á bátaþilfari skipsins síðdegis i gær.
Hann lést samstundis. Rannsóknadeild lögreglunnar í Reykjavík annast rannsókn á tildrögum slyssins. Maðurinn
hét Sigurður Bergmann. Hann hafði starfað hjá Landhelgisgæslunni í áratugi. Sigurður lætur eftir sig uppkomna
dóttur og aldraða foreldra. DV-myndS
Lítið vantar á til að hægt sé að
opna lyftur við skíðasvæðið í Blá-
fjöllum. Brekkur voru troðnar í gær
en þá vantaði ennþá snjó ofar í þær.
Þegar DV fór í prentun í morgun var
Þorsteinnn Hjaltason, forstöðumað-
ur svæðisins, á leið upp eftir til að
kanna hvernig lítur út í brekkunum
eftir nóttina.
ÓTT
Veðrið á morgun:
Snjókoma
eðaél
Á morgun verður noröaustan-
og austanátt um allt land og sums
staðar snjókoma eða él. Frost 1-6
stig.
Sími: 91-41760