Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Page 11
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
11
Sviðsljós
Verður Brooke Shields
keisaraynja í Japan?
Slúðurpressan í Bandaríkjunum,
Japan og víðar stendur nú á önd-
inni yfir samdrætti leikkonunnar
Brooke Shields og japanska krón-
prinsins Naruhito. Sagt er að þau
standi í bréfaskriftum og hittist á
laun hvar sem þvi verður við kom-
ið.
Nýlega var Brooke á ferð í Japan
og fregnir herma að prinsinn hafi
oftar en einu sinni lúmskast út úr
höllinni í dulargerfi til að hitta leik-
konuna fallegu. Margir láta sig
dreyma um að þetta ævintýri
þeirra verði eitthvað í líkingu við
þaö þegar Rainier fursti af Mónakó
gekk að eiga leikkonuna Grace
Kelly.
Naruhito, eða Hiro, eins og prins-
inn er kallaður, hefur ekki farið í
felur með áhuga sinn á Brooke. Þau
hittust fyrst fyrir fimm árum þegar
prinsinn kom í heimsókn til Banda-
ríkjanna. Þá var meðal annars far-
ið með hann í skoðunarferð til
Princeton háskólans, þar sem Bro-
oke var við nám. Honum tókst að
ná fundum hennar þar og hefur að
eigin sögn ekki getað hugsað um
annað kvenfólk síðan. Brooke hef-
ur líka látið hafa það eftir sér að
hún sé mjög spennt fyrir prinsin-
um.
En jafnvel þó ástin blómstri hjá
unga fólkinu er margt talið mæla
gegn því að parið geti gengið í
hjónaband. Brooke er til að mynda
höfðinu hærri en prinsinn og það
er í orðsins fyllstu merkingu talið
lítillækkandi fyrir komandi Jap-
anskeisara.
Þá er ætlast til þess að brúður
prinsins hafi verið hreinlíf sem
nunna og má ekki hafa haldið í
hönd karlmanns, hvað þá meira.
Brooke er ekki talin standast þess-
ar kröfur þar sem hún hefur átt í
fjölmörgum ástarsamböndum.
Ekki má tilvonandi brúður held-
ur hafa verið í vinnu þar sem karl-
maður hefur veriö yfirmaður
hennar. Brooke hefur leikið í ótal
myndum þar sem karlmenn hefa
verið leikstjórar, þannig að enn
fellur hún á prófinu.
Síðast en ekki síst er ætlast til að
verðandi keisaraynja sé japönsk.
Það útilokar endanlega möguleika
Brooke á því að hljóta vegsemdina.
Þó er aldrei að vita þegar Hiro er
annars vegar. Hann hefur líst því
yfir að þær japönsku stúlkur sem
foreldrar hans hafa álitið honum
sæmandi komist ekki með tærnar
þar sem Brooke hafi hælana. „Þær
eru þess ekki veröar að binda skó-
þveng Brooke," segir prinsinn ást-
fangni.
Brooke Shields tekur sig vissulega
vel út í japönskum brúðarkjól. Hér
er hún að vísu bara í fyrirsætuhlut-
verkinu, en hver veit hvað koma
skal.
Hinn þrítugi krónprins Japans,
Naruhito, er svo sem ekkert sérs-
takt augnakonfekt en hver setur
það fyrir sig þegar keisaratign er
i boði?
Bifreiðaíþróttaklúbbur Skagafjarðar afhenti nýlega björgunarsveitinni Skagfirðingasveit 30 þúsund króna gjöf. Var
það afrakstur síðustu bílkrosskeppni klúbbsins í haust. Á myndinni sést Bjarni Haraldsson, formaður Bilaklúbbs-
ins Braga, afhenda Þór Haraldssyni, formanni Skagfirðingasveitar, ávísunina. Til vinstri á myndinni er Sigurður
Aðalsteinsson, gjaldkeri bilaklúbbsins. DV-mynd Þórhallur
íþróttabandalag Akraness:
Þórður Þórðarson
heiðursfélagi
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Þórður Þórðarson, kenndur við
Hvítanes, hefur verið kjörinn heið-
ursfélagi íþróttabandalags Akra-
ness. Jafnframt var hann útnefnd-
ur heiðursfélagi Knattspyrnufélags
ÍA. Þórður er aðeins sá þriðji sem
hlýtur nafnbót heiðursfélaga
íþróttabandalagsins.
Þórður var á árunum 1950-1960
ein styrkasta stoð gullaldarliðs
Skagamanna í knattspyrnu og ís-
lenska landsliðsins. Tveir sona
hans, Teitur og Ólafur, hafa einnig
gert garðinn frægan, jafnt heima
sem erlendis með liði Skagamanna,
íslenska landsliðinu og erlendum þeim árum sem hann lék í gullald-
félagsliðum. arliði Skagamanna.
Þórður Þórðarson - myndin er frá
Dan Lauria:
Ég er hættur-farinn!
Dan Lauria, sem leikur pabbann í
framhaldsmyndaflokknum
Bemskubrek, hefur ákveðið að
hætta að leika í þáttunum. Dropinn
sem fyllti mælinn var er hann
komst að því að Fred Savage, sem
leikur guttann, var með þrisvar
sinnum hærri laun en hann sjálfur.
Dan segist vera orðinn lang-
þreyttur á allri þeirri athygli sem
snáðinn fær. „Hlutverk mitt verð-
ur æ ómerkilegra á meðan öll at-
hyglin beinist að krakkanum. Ég
er orðinn hundleiður á þessu hand
riti. Ég er góður leikari og læt ekki
fara svona með mig,“ segir Dan
Lauria sár og svekktur.
Ennfremur klagar hann hegðun
stráksa. „Hann er gjörSpilltur,
krakkinn. Hann kemst upp með
alls kyns dónaskap við samleikara
sína og orðin „viltu gjöra svo vel“
og „þakka þér fyrir“ em ekki til í
hans orðaforöa. Mér er hreinlega
nóg boðið og hef ákveðið að snúa
mér að hlutverkum þar sem ég er
tekinn alvarlega og einhvers er
krafist af mér. Eg kæri mig ekki
lengur um að vera látinn sitja í aft-
ursætinu hjá spilltum krakk-
abjálfa," segir Dan Lauria.
„Hingað og ekki lengra," segir Dan Lauria, pabbinn i Bernskubrekum.
Mátaðir hattar
á útsölu
Nú eru útsölur í algleymingi eins og venja er i janúar. Ljósmyndarinn
rakst á þessar frúr þar sem þær mátuðu hatta. Ekki var annað að sjá
en þeim likaði vel. DV-mynd GVA