Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991.
25
íþróttir
Sport-
stúfar
• Portland Trail Bla2-
ers, sem náð hefur
hvað bestum árangri
til þessa í NBA-deild-
inni í körfuknattleik, beið ósigur
fyrir Dallas Mavericks á útívelli
i fyrrinótt. Dallas sigraði með 109
stigum gegn 99 en leikurinn var
í jámum allan tímann en það var
ekki fyrr en á lokasprettinum
sem DaUas seig fram úr og sigr-
aði á sannfærandi hátt. Boston
og Lakers sigruðu andstæðinga
sína mjög auðveldiega.
Úrslit í fyrrinótt urðu annars
þessi:
Boston-Milwaukee.....110-102
Orlando-Minnesota...93-111
Dallas-Portland......109-99
Phoenix-Cleveland..113-105
76ers-Chicago.......99-107
Lakers-UtahJazz.......108-85
Der Elst knattspyrnumaður
ársíns í Belgíu
• Belgíski landsliðs-
maöurinn í iiöi Club
Briigge, Franky Van
der Elst, var í fyrradag
kjörinn knattspyrnumaður árs-
ins í Belgíu 1990. Það voru
íþróttafréttamenn, dómarar og
forsvarsmenn liðanna sem stóðu
að þessu kjöri. Elst, sem er 29 ára
að aldri, hlaut 313 atkvæði en
brasilíski leikmaðurinn Luis Oli-
vera hafnaði í ööru sæti með 202
atkvæði.
Lewis og Johnson
mætast í Sevilla 30. maí?
• Samkvæmt fréttum
sem bárust frá Spáni í
gær eru allar likur
taldar á því að Ben
Johnson og Carl Lewis mætist á
hlaupabrautínni i spænsku horg-
inni Sevilla 30. maí nk. Fram-
kvæmdaaðili sagði í gær að þegar
væri búið að fá sterka peningaað-
ila til að standa straum af kostn-
aöi við hlaupið. Ef af hlaupinu
verður fær Lewis 100 milljónir í
sinn vasa en Johnson 50 milljón-
ir. Ben Johnson hefur ekkert
keppt opinberlega siðan hann var
staðinn að þvi að neyta óleyfi-
legra lyfja á ólympíuleikunum í
Seoul 1988. Johnson mun keppa
á sínu fyrsta móti í Hamilton í
Kanada á fóstudaginn kemur að
loknu tveggja ára keppnisbanni.
Maradona ekki með
• Argentiski nöldurseggurinn
Diego Mardona, sem leikur með
ítalska liðinu Napoli, leikur ekki
með liðinu gegn Roma á sunnu-
daginn. Maradona var í vikunni
úrskurðaður x eins leiks bann eft-
ir aö hafa æ ofan í æ mótmælt
dómum viö dómararm í leil\ Ju-
ventus og Napoli um síöustu
helgi. Maradona heldur áfram aö
gefa út yfirlýsingar um aö hann
sé á fórum frá Napoli en kappinn
mætti ekki á æfingu liðsins í gær,
hann var í símasambandi við
Buenos Aires allan daginn vegna
þess að faðir hans fékk snert af
hjartaáfalli.
Haröur slagur í London
• Lundúnaliðin Tottenham og
Arsenal mætast á morgun í 1.
deild og verður leiknum sjón-
varpað í íslenska sjónvarpinu.
Talsverð eftirvænting rikir fyrir
þennan leik Lundúnárisanna en
Arsenal hefur enn ekki tapað leik
á keppnistímabilinu og er í öðru
sæti. Tottenham er i sjötta sætí,
fimmtán stigum á eftir Liverpool.
Cartertil Liverpool
Ensku meistararnir Liverpool
keyptu í gær Jimmy Carter frá
Millwall fyrir 800 þúsimd pxmd.
Reiknaö er með að hann fari beint
í byrjunarlið Liverpool gegn Ast-
on Villa á morgun þar sem Ray
Houghton á við meiðsli að stríða.
Booker frekar
slakur en gerði
samt 55 stig
- þegar ÍR tapaði fyrir KR, 105-91
ÍR-ingar hafa náð sér í hrikalegan
leikmann í körfuknattleiknum.
Franc Booker heitír sá og er hreint
ótrúlega snjall leikmaður. Á dögun-
um skoraði hann 54 stig fyrir ÍR gegn
Njarðvík og í gærkvöldi gerði hann
enn betur. Booker skoraði 55 stig
gegn KR en það dúgði þó ekki til sig-
urs gegn KR sem sigraði, 105-91.
Hefði hann skorað 70-80 stig í leikn-
um ef hittnin hefði verið betri og
dómarar leiksins verði með á nótun-
um í fyrri hálfleiknum. Það kann að
hljóma undarlega en þrátt fyrir stíg-
in 55 var Booker frekar slakur í
leiknum. Hér er hins vegar ekki um
neinn meðalmann að ræða. Þá má
geta þess að Booker lék veikur með
mikla hálsbólgu.
Það var oft með ólíkindum að sjá
til Bookers í gærkvöldi og er hann
líklega besti leikmaðurinn sem hér
hefur leikið körfuknattleik, enda oft-
ar en einu sinni verið með annan
fótinn í NBA-deildinni. Hraði hans
og boltameðferð er með því besta sem
gerist og ef kappinn hrekkur í gang
fyrir alvöru í næstu leikjum er það
dagaspursmál hvenær hann skorar
enn meira en 55 stig.
Leikurinn í gærkvöldi var nokkuð
vel leikinn og mikið skorað. Eftir
einnar mínútu leik var staðan 8-6,
KR í vil, og lengst af höfðu KR-ingar
leikinn í hendi sér. Komust þeir í
49—26 í fyrri hálfleik en ÍR-ingar voru
alltof seinir að breyta um leikaðferð
í vörninni. Staðan í leikhléi var 57-51.
ÍR-ingar byrjuðu af krafti í síðari
hálfleik og minnkuðu muninn í þrjú
stíg, 63-60. KR-ingar komust síðan
aftur í mikla forystu, 82-65, en þá
kom frábær leikkafli hjá Booker og
skoraði hann meðal annars 6 stig í
einni og sömu sókninni. Fyrr en
varði var staðan orðin 86-83 en þá
misnotaði Booker þriggja stiga skot
og í stað þess að ÍR jafnaði juku
KR-ingar forskotið og skoruðu næstu
13 stíg og breyttu stöðunni í 99-83.
Lokatölur urðu svo 105-91.
Hjá KR var Jonathan Bow bestur
og skoraði 38 stig. Einnig var Lárus
Ámason góður. Athygh vakti hins
vegar hve Páll Kolbeinsson lék lítið
með og var hann greinilega ekki sátt-
ur við það.
Booker var allt í öllu hjá ÍR og þeg-
ar þeir Jóhannes Sveinsson og Björn
Steffensen verða komnir í liðið er það
til alls líklegt. Aðrir leikmenn ÍR eiga
langt í land og undirstöðuatriði í
körfubolta eins og að stíga andstæð-
ing út í frákasti virðast ólærð ennþá.
• Stig KR: Bow 38, Lárus 21, Áxel
21, Hermann 9, Matthías 9 og Páll 7.
• Stig ÍR: Booker 55, Hilmar 15,
Brynjar 6, Karl 4, Ragnar 4, Halldór
4 og Bjöm B. 3.
• Leikinn dæmdu Bergur Stein-
grímsson og Víglundur Sverrisson.
Voru þeir slakir, sérstaklega í fyrri
hálfleik. -SK
Breiddin meiri
hjá Haukunum
- sem sigruðu Snæfell, 94-84
Það var breiddin sem skildi á milli ■
í leik Hauka og Snæfells í úrvals-
deildinni í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Leikurinn var í jafnvægi lengi vel í
fyrri hálfleik en síðan stungu Hauk-
amir af og komust í 55-37 fyrir hlé.
Þeir héldu öraggri forystu í síðari
hálfleik en Snæfell lagaði stöðuna
undir lokin og útkoman varð öragg-
ur hafnfirskur sigur, 94-84.
Nýju bandarísku blökkumennirnir
í liðunum voru nokkuð í sviðsljós-
inu, einkum í fyrri hálfleik. Damon
Vance hjá Haukum skoraði þá 19 stíg
og er öflugur í vöm og sókn en lék
lítið sem ekkert í þeim síðari vegna
vihuvandræða. Tim Harvey hjá Snæ-
felli er litríkur leikmaður sem getur
átt eftir að gera það gott fyrir Hólm-
ara í vetur. Hann var búinn að troða
boltanum í Haukakörfuna eftir að-
eins 15 sekúndur og gerði oft
skemmtilega hluti en var mistækur
inni á milli.
Annars léku Haukarnir flestir
ágætlega og liðið sýndi oftskemmti-
lega takta. Jón Arnar 'var drjúgur að
vanda og Henning Henningsson lék
vel í síðari hálfleik. Hjá Snæfelli var
Bárður Eyþórsson iðinn við kolann
og Sæþór Þorbergsson sýndi að þar
er efnispiltur á ferð.
Stig Hauka: Jón Arnar 22, Vance
19, Henning 16, Pálmar 16, Ivar 12,
Hörður 4, Ingimar 4, Pétur 1.
Stig Snæfells: Bárður 27, Harvey
23, Sæþór 14, Brynjar 10, Ríkharður
5, Hjörleifur 3, Hreinn 2.
Kristinn Óskarsson og Ámi Freyr
Sigurlaugsson komust sæmilega frá
dómgæslunni. -VS
Víkingur vann UBK
- og Þróttur lagði Fram
Framarar veittu Þrótturum litla
mótspymu þegar liðin mættust í 1.
deild karla í blaki. Leikurinn var
fremur stuttur og afdráttarlaus og
gat þjálfari Þróttar gefið öllum sínum
mönnum tækifæri til að spreyta sig.
Um leikinn er ekkert að segja, hann
var ekki mikið fyrir augað. Þróttur
vann, 3-0.
• Víkingsstúlkur bára sigur úr
býtum í viðureign sinni við Breiða-
blik. Ekki þurfti nema þijár hrinur
til að gera út um leikinn en það seg-
ir þó ekki allt því að á köflum var
mjótt á mununum. Eftir tap í fyrstu
tveimur hrinunum (12-15 og 8-15)
varð Breiðabliksstúlkum ljóst aö nú
varð að leggja aht í sölurnar. Leikur
þeirra varð öllu beittari í þriðju
hrinu. í stöðunni 15-14 fyrir UBK
misnotuðu Blikar txppgjöf og þá öðl-
uðust Víkingar nýja von, létu kné
fylgja kviði og gerðu út um hrinuna,
17-15.
Það háir Breiðabliksliðinu töluvert
að Kristín Eysteinsdóttir leikur ekki
meira með í vetur. Af þessum sökum
hefur miðjan veikst. Hildur Grétars-
dóttir leikur nú á miðjunni og þar
með myndast skarð í „díagónaT-
stöðunni sem Arndís Þorvaldsdóttir
gerði sitt besta til áö fylla.
-gje
• Franc Booker, snillingurinn í liði ÍR, skoraói 55 stig gegn KR i gærkvöldi og hefur
þvi gert 109 stig í tveimur fyrstu leikjum sínum, þar af 75 með þriggja stiga skotum!
Hér geysist hann framhjá KR-ingunum Jonathan Bow og Herði Gauta Gunnarssyni.
' DV-mynd GS
Urvalsdeild
Grindavík - Keflavík....... 82-85
KR - ÍR....................105-91
Haukar - Snæfell........... 94-84
A-riðill: .
Njarðvík...14 11 3 1297-1025 22
KR.........15 10 5 1254-1192 20
Haukar.....15 8 7 1248-1245 16
Snæfell....14 2 12 1046-1262 4
ÍR.........15 1 14 1163-1427 2
B-riðill:
Tindastóll... 14 12 2 1371-1236 24
Keflavík....14 10 4 1326-1239 20
Grindavík... 15 10 5 1314-1243 20
Valur.......15 5 10 1244-1302 10
Þór.........15 4 11 1385-1407 8
Stigahæstir:
Rondey Robinson, Njarðvík.....399
Ivan Jonas, Tindastóli........392
Jón Amar Ingvarss, Haukum ...387
Magnús Matthíasson, Val.......330
David Grissom, Val............325
Spánarmótið
ísland - SpánnB.......28-22
Spánn - Sviss.........27-22
Spánn.....2 2 0 0 58-43 4
Júgóslavía.... 1 1 0 0 26-23 2
ísland....2 1 0 1 51-48 2
Sviss.....1 0 0 1 22-27 0
Spánn B...2 0 0 2 43-59 0
íþróttir
helgarinnar
eru á bls. 23
Keflavík með
undirtökin
- eftir mikilvægan sigur 1 Grindavík, 82-85
Ægir Már Kárason, DV, Sudurnesjura;
„Þetta var mikllvægur sigur og má
segja að þetta hafi verið einn af úrshta-
leikjunum. Við sphuðum lélega vörn
framan af en þetta gekk upp undir lok-
in og þetta var sigur liðsheOdarinn-
ar,“ sagði Falur Harðarson í samtali
við DV í gærkvöldi en hann átti stór-
leik með Keflvíkingum þegar þeir
unnu mikilvægan sigur í Grindavík í
úrvalsdeíldinni í gærkvöldi, 82-85.
Með þessum sigri standa Keflvíking-
ar betur að vígi í baráttu höanna um
annað sætið í B-riðh, hafa tapað fiórara
leikjum en GrindavOt fimm.
Grindvíkingar höföu ylirhöndina í
fyrri hálfieOt, sem einkenndist nokkuð
af taugatitringi leikmanna, og leiddu í
hléi, 50-46. Þegar fjórar mínútur voru
eftir stóð 78-72 Grindvíkingum í hag meiðslanna. Steinþór Helgason og
og þá reiknuðu flestir með öruggum Rúnar Árnason áttu ágæta spretti.
sigri þeirra. Jón Kr. Gíslason sneri Hjá Keflavík voru bestir þeir Falur
leiknum Keflavík í hag þegar liann Harðarson, sem átti stórleik, sérstak-
geröi 5 stig á nokkrum sekúndum, legaísíðarihálfleik.og Albert Óskars-
78-80, og síöan komust hans menn í son sem er mikill baráttujaxl. Jón Kr.
80-85 á lokaminútuxmi. og Tom Lytle léku einnig vel.
„Við töpuöum leiknum undir körf- Stig Grindavíkur: Jóhannes Krist-
unni hjá okkur þar sem þeir náðu öh- björnsson 21, Guðmuhdur Bragason
um sóknarfráköstum og skutu þrisvar 19, Dan Krebbs 18, Stehiþór Helgason
tii ijómm sinnum í hverri sókn undir 11, Rúnar Ámason 9, Sveinbjörn Sig-
lokin. Mótiö er ekki búið, það er nóg urösson 4.
af leikjum eftir og við erum alls ekki Stig Keflavíkur: Falur Harðarson 27,
búnir að gefast upp í barátturuú," sagði Albert Óskarsson 15, Tom Lytle 14, Jón
Gunnar Þorvarðarson, þjálfari Grind- Kr. Gíslason 12, Sigurður Ingimundar-
víkinga. son 9, Júlíus Friðriksson 4 og Hjörtur
Bestir Grindvíkinga voru þeir Jó- Harðarson 4.
hannes Kristbjörnsson, Guömundur Jón Otti Ólafsson og Kristinn Al-
Bragason og Dan Krebbs sem átti góð- bertsson dæmdu og skiluðu hlutverki
an leik en hhföi sér nokkuð vegna sínu meö prýði.
Valsstúlkur náðu að jaf na
Valur tók á móti Víkingi að Hlíðarenda
í 1. dehd kvenna í handknattleik í fyrra-
kvöld. Víkingsstúlkur byrjuðu leikinn
mun betur og var staðan í hálfleik 14-11
fyrir Víking. Víkingur komst í 17-11 og
virtist allt ætla að stefna í stórsigur
þairra. Þá tók Valshðið sig saman í and-
htinu og og tókst aö jafna og urðu loka-
tölur leiksins 22-22.
Hjá Val var mikill kraftur í Unu og
Arna nýtti færin sín vel, annars hefur
liðið oft sphað betur. Sigrún í markinu
hjá Víkingi var góð og einnig Svava.
Mörk Vals: Una 9/3, Katrín 4, Arna 4,
Guðrún 3, Sigurbjörg 1, Berghnd 1.
Mörk Víkings: Halla 6/3, Svava 5, Inga
Lára 4, Heiða 3, Andrea 2, Matthildur 2.
• Grótta og Selfoss áttust við á Nes-
inu. Jafnræði var með liðunum í byijun
en Grótta komst í 12-7 fyrir hlé og jók
svo muninn og sigraði, 25-14.
Laufey, Helga og Sara áttu góðan leik
fyrir Gróttu en það var aðeins Hulda
B. sem barðist af krafti í Selfosshðinu.
Mörk Gróttu: Laufey 9/3, Sara 5, Helga
3, Elísabet 2, Björk 2, óunnhildur 2,
Brynhildur 1 og Sigríður 1. .
Mörk Selfoss: Hulda B. 5, Guðrún 4,
Inga Fríða 2, Auður 1, Vigdís 1, Guðfinna
1. -ÁBS
íþróttir
Spánarmótið í handknattleik:
„Svipuð úrslit og
ég átti von á“
- ísland sigraði B lið Spánar, 28-22, og Spánn vann Sviss, 27-22
„Þetta var mjög góður leikur hjá
mínum mönnum og svipuð úrsht og
ég átti von á. Enn eigum við þó langt
í land og sérstaklega skortir samæf-
ingu. Það er enn ár fram að b-keppn-
inni í Austurríki og við þurfum að
nota þann tíma vel,“ sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, landshðsþjálfari í
handknattleik, í samtali við DV í
gærkvöldi.
ísland mætti b liði Spánar á Spán-
armótinu í gærkvöldi og sigraði 28-22
eftir 15-14 í leikhléi. Islenska liðið,
sem lék án Kristjáns Arasonar,
komst í 9-4 í byrjun en hið unga lið
Spánverja náði að jafna metin í 11-11,
í síðari hálfleik var íslenska hðið
hins vegar mun betri aðhinn og sig-
urinn öruggur og verðskuldaður.
Valdimar Grímsson átti mjög góðan
leik og Konráð Olavsson sömuleiðis.
Einnig átti Geir Sveinsson mjög góð-
an leik. Þá stóð Guðmundur í mark-
inu allan leikinn og varði mjög vel.
• Mörk íslands í gærkvöldi: Valdi-
mar Grímsson 9, Konráð Olavsson
7/2, Sigurður Bjarnason 5, Stefán
Kristjánsson 3, Geir Sveinsson 3 og
Júlíus Jónasson 1.
• í gærkvöldi léku A lið Spánar
og lið Sviss og sigruðu Spánverjar,
27-22 eftir 13-12 í leikhléi.
í kvöld verður leikin þriðja umferð
mótsins. ísland mætir þá Sviss og
Júgóslavía leikur við Spán B.
-SK
• Valdimar Grímsson átti mjög góðan leik í gærkvöldi og skoraði 9 mörk
fyrir íslenska liðið.
Evrópukeppnin:
Hemmndur Hgmundssan, DV, Noregi:
Það er hætt við að íslandsmeist-
arar Fram eigi þungan róður fyr-
ir höndum á sunnudagskvöldið
þegar þeir mæta norsku meistur-
unum Byásen í Þrándheimi í fyrri
viðureign liðanna í 2. umferð
Evrópukeppni meistaraliða í
kvennaflokki í handknattleik.
Byásen er eitt sterkasta félags-
lið heims og í fyrra féll það naum-
lega út úr. Evrópukeppninní í
undanúrslitum, gegn sovéskalið-
inu sem varð Evrópumeistari.
Liðið leikur mjög öfluga vöm og
beitir skæðum hraðaupphlaup-
um og er á mikilli keyrslu allan
tímann.
Byásen er efst í norsku l. deild-
inni, reyndar jafnt öðra hði, og
er með landsliðsmenn í öhum
stöðum. Þar er fremst í flokki
sænska stúlkan Mia Hermans-
son, sem er talin ein besta hand-
holtakona heims í dag og sú
launahæsta sem leikur í Noregi.
Ásamt henni eru í aðalhlutverk-
um þær Karin Petterson og Trina
Haltvik, sem báðar era mjög fjöl-
hæfar og snjahar.
Framstúlkurnar hafa húið sig
mjög vel undir leikinn en þær
koma beint tii Þrándheims frá
Danmörku þar sem þær hafa
leikið æfingaleiki við dönsk fé-
lagslið í vikunni.
Síöari leikur Fram og Byásen
fer fram 1 Laugardalshöllinni um
aðra helgi.
Heimsmeistaramótið í sundi í Perth:
Spánverjar komnir á blað
- Íslandsmet Eðvarðs ekki langt frá sigurtímanum í 200 metra baksundi
Spánverjar unnu sín fyrstu gullverð-
laun á heimsmeistaramótinu í Perth
í Ástralíu í fyrrinótt. Martin Lopez
Zubero vann þá sigur í 200 metra
baksundi á 1:59,52 mínútum. Steffano
Battistelh frá Ítalíu varð í öðru sæti
á 1:59,98 mínútum og Vladimir
Selkov frá Sovétríkjunum lenti í
þriðja sæti á 2:00,33 mínútum.
Þess má geta í leiðinni að íslands-
met Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar í
greininni er 2:02,79 mínútur og var
sett á Evrópumeistaramótinu í
Strassborg 1987 og var lengi vel
Norðurlandamet.
Lopez sigursæll á
síðustu misserum
Sundið var mjög spennandi og það
var ekki fyrr en á síðustu fimmtán
metranum sem Lopez fór fram úr
Battistelh og tryggði sér sigur. Lopez
hefur verið sigursæll á mótum á síð-
ustu mánuðum en hann vann sigur
í 200 metra baksundi á friðarleikun-
um í Seattle á síðasta sumri og á síð-
asta Evrópumeistaramóti í Bonn
vann einnig sigur.
Sovétmaðurinn Valdimir Selkov
var fyrstur eftir 150 metra en Lopez,
sem stundar nám við háskólann í
Miami og Battistehi fóru fram úr
honum á síðustu 50 metrunum.
Kvennasveit USA
vann fjórsundið
Kvennasveit Bandaríkjanna sigraði
í 4x100 metra skriðsundi, fékk tím-
ann 3:43,26 mínútur. Sveitina skip-
uðu þær Nicole Haislett, Juhe Coo-
per, Whitney Hedgepeth og Jenny
Thompson. Sveit Þýskalands varð í
öðru sæti á 3:44,37 mínútum og sveit
Hollands lenti í þriðja sæti á 3:45,05
mínútum. Þessar þrjár sýndu um-
talsverða yfirburði því sveit Ástralíu,
sem lenti í fjórða sæti var tæpum
þremur sekúndum á eftir hollensku
stúlkunum.
Matt Biondi frá Bandaríkjunum
sigraði í 100 metra skriðsundi, synti
vegalengdina á 49,18 sekúndum.
Svíar unnu sín fyrstu verðlaun þegar
Tommy Werner kom annar í mark á
49,63 sekúndum og Giorgi Lamberti
frá Ítalíu lenti í þriðja sæti, fékk tím-
ann 49,82 sekúndur.
Þriðju gullverðlaun
til Ungverja
Ungverjar unnu sín þriðju gullverð-
laun á jafnmörgum dögum er hin 16
ára gamla Kristztina Egerszegi sigr-
aöi í 100 metra baksundi kvenna.
Egerszegi synti vegalengdina á
1:01,78 mínútum. Szabo landi Egerz-
segi lenti í öðru sæti á 1:01,98 mínút-
um og Janie Wagstaff frá Bandaríkj-
unum hlaut bronsið, synti á 1:02,17
mínútum. -JKS
• Nicole Haislett var I sigursveit Bandaríkjanna
kvenna og fagnar hér sigrinum.
4x100 metra boðsundi
Simamynd Reuter
Skipting verðlauna á
HM í sundi í Ástralíu
Gull Silfur Brons
Bandaríkin 7 7 . .. 4
Kína 3 1 2
Ungverjaiand 3 1 0
Þýskaland 2 3 2
Ástralia 2 3 1
Italía 1 2 4
Sovétrlkin 1 1 2
Holland 1 1 1
Kanada 1 0 1
Spánn 1 0 0
Surinam 1 0 0
Japan 0 1 2
Bretiand 0 1 0
Frakkland 0 1 0
Sviþjóð 0 1 ■ o i
Danmörk 0 0 2
Tékkóslóvakia 0 0 1 1
Pólland 0 0 1