Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1991, Side 25
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 1991. 33 Lífsstfll PAPRIKA +.3% I W 3 C 'O OQ 549 152 /CZ SVEPPIR 0% áii. I 639 398 VINBER +21% I <0 3 455 216 DV kannar grænmetismarkaðinn: Meðalverð hækkar á vínberj - um og hvítkáli - en lækkar á tómötum og gúrkum Neytendasíða DV kannaði að þessu sinni verð á grænmeti í eftirtöldum verslunum; Bónus, Skútuvogi, Fjarð- arkaupi i Hafnarfirði, Hagkaupi, Eið- istorgi, Kjötstöðinni, Glæsibæ og Miklagarði vestur í bæ. Bónusbúð- irnar selja sitt grænmeti í stykkjatali en aðrar verslanir selja eftir vigt. Til að fá samanburð þar á milli er græn- metið í Bónus vigtað og umreiknað eftir meðalþyngd yfir í kílóverð. Meðalverð á tómötum lækkaði nú umtalsvert á milli vikna eða um 18 af hundraði og er nú 337 krónur. Tómatar voru ódýrastir í Bónus á 155 krónur, á eftir fylgdi Hagkaup 339, Fjarðarkaup 346, Kjötstöðin 349 og dýrastir voru þeir í Miklagarði á 498. Tómatar voru sérstaklega fallegir í Kjötstöðinni, Hagkaupi og Fjarðar- kaupi. Munur á hæsta verði var 221%. Meðalverð á gúrkum lækkaði einn- ig milli vikna eða um 14% og er nú 278 krónur. Gúrkur voru á hagstæð- asta verðinu í Bónus en þar kostuðu þær 103. Næst kom Fjarðarkaup 281, síðan Kjötstöðin 283, Hagkaup 329 og Mikligarður 395. Munur á hæsta og lægsta verði á gúrkum var 283%. Meðalverð á sveppum stóð í stað milli vikna og er nú 511 krónur. Sveppir voru að þessu sinni ódýrast- ir í Kjötstöðinni á 398 krónur en síð- an kom Bónus 437, Hagkaup 519, Fjarðarkaup 564 og Mikligarður 639. Sveppirnir voru alls staðar mjög fall- egir. Munur á hæsta og lægsta verði á sveppum var 61%. Meðalverð á grænum vínberjum hækkaði töluvert frá í síðustu viku eöa um 21% og er nú 342 krónur. Græn vínber voru ódýrust í Bónus en þar kostuðu þau 216. Á eftir fylgdu Mikligarður 269, Fjarðarkaup 374, Hagkaup 395 og Kjötstöðin 455. Vín- ber voru almennt mjög falleg. Munur á hæsta og lægsta verði var 111%. Meðalverð á grænni papriku lækk- aði lítillega eða um 4 af hundraði og Mjög fallegt grænmeti var víðast hvar á boðstólum í samanburðarverslunun- um. er nú 392 krónur. Græn paprika var ódýrust í Bónus á 152, en á eftir komu Mikligarður 365, Kjötstöðin 440, Fjarðarkaup 456 og Hagkaup 549. Munur á hæsta og lægsta verði á grænni papriku var 261%. Meðalverð á kartöflum stóð í stað milli vikna og er nú 75 krónur. Kart- öflur voru ódýrastar í Fjarðarkaupi 55 krónur, næst kom Bónus 67,50 krónur, Hagkaup 82, Mikligarður 82,50 og Kjötstöðin 89. Munur á hæsta og lægsta verði á kartöflum var 62%. Rétt er að geta þess aö ávallt er mið- að við tegundina gullauga. Meðalverð á blómkáli stóð einnig í stað milli vikna og er áfram 238 krón- ur. Það fékkst þó ekki í verslunum Bónus og Miklagarðs. Blómkál var ódýrast í Fjarðarkaupi en þar kostaði það 230. Stutt á eftir kom Hagkaup 239 og síðan Kjötstöðin 244. Munur á hæsta og lægsta veröi var óverulegur eða 6%. Meðalverð á hvítkáli hækkaði tölu- vert milli vikna eða um 19% og er nú 95 krónur. Hvítkál var ódýrast í Bónus, kostaði þar 74, 79 krónur kostaði það í Fjarðarkaupi, 89 í Miklagarði, 99 í Hagkaupi og 132 í Kjötstöðinni. Munur á hæsta og . lægsta verði á hvítkáli var 78%. Meðalverð á gulrótum var nú 206 krónur sem er óveruleg breyting um eina krónu frá könnuninni í síðustu viku. Gulrætur voru ódýrastar í Bón- us á 147, síðan kom Fjarðarkaup 190, Mikligarður 199, Hagkaup 229 og Kjötstöðin 264. Munur á hæsta og lægsta verði á gulrótum var 80%. -ÍS Sértilboð og afsláttur: Cheerios með eplabragði í verslunum Bónuss mátti kaupa á sértilboðsverði 3 kg af Botaniq þvottaefni á 396 krónur, þriggja tíma Adachi myndabandsspólur á 349 krónur, nýja gerð Cheerios morgun- korns með eplabragði og 10 kílóa pakkningu af Nord strásykri á 490 krónur. Meðal sértilboða hjá Fjarðarkaupi í Hafnarfirði var Bravo ávaxtasafi, 1 1, á 99 krónur, 500 g af Bassets lakk- rískonfekti á-199 krónur, Bonduelle. maískorn í dós, 300 g, á 79 krónur og KP Brannigan bjórhnetur, 100 g, á 59 krónur. Hagkaup, Eiðistorgi, var með nýja bleikju í kjötborðinu á tilboðsverði, 375 kr. kílóverð, reykta Goöa medist- erpylsu, 400 g, á 199 krónur, Carrs tekex, 125 g, á 49 krónur og Gold Berry ítalska tómata í dós, 400 g, á 39 krónur dósina. Kjötstöðin, Glæsibæ, var með til- boðsverð á unghænum, 199 krónur Verslunin Bónus er meö nýja tegund af Cheerios með eplabragði á tilboðs- verði. kg, Busy Baker smákökur, margar bragötegundir, 510 g, á 169 krónur og 6 stk. af tveggja lítra kókflöskum saman á 970 krónur. Þeir voru einnig nýbúnir að fá danska lifrarkæfu sem margir hafa beðið eftir. Meðal þess sem var á tilboðsverði hjá Miklagarði var Shina uppþvotta- lögur, 11, á 69 krónur, RC kóla í 33 cl dósum á 40 krónur, Haust hafra- kex, 250 g, á 99 krónur og Coop Milk súkkulaðikex, 200 g, á 39 krónur. -ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.