Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Page 9
jeei HAÚ/Al, .81 JIUOAtlHAaUAJ 8
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. 9
- segir Guðrún Bergmann
Guðrún Bergmann, eigandi Betra lifs. DV-mynd BG
„Allir spádómar, frá örófl alda,
benda til þess aö sá tími sem við er-
um aö fara inn í og er nýhafmn sé
tími mikilla breytinga og samfara þvi
nýs hugsunarháttar," sagði Guörún
Bergmann, eigandi og verslunar-
stjóri í versluninni Betra líf, í sam-
tali við DV. Nokkur gagnrýni hefur
komið fram á ýmislegt í starfsemi
svokallaðrar nýaldarhreyfmgar og
því var Guðrún sem eigandi um-
ræddrar verslunar ásamt eigin-
manni sínum, Guðlaugi Bergmann,
beðin að skilgreina hvað í hugtakinu
fælist.
Skilaboð og
hjálp aö handan
„Fyrstu skiiaboðin um þörf á
breyttri framkomu manna hvers
gagnvart öðrum og umhverfi sínu
bárust gegnum miðla seint á síöustu
öld og hafa ágerst eftir því sem líöur
á öldina. Ef við trúum á annað til-
verustig þá trúum við jafnframt að
þessar upplýsingar séu meira og
minna réttar. Öll þessi skilaboð
benda á hve mannkynið sé á hættu-
legri braut. Viö höfum gengiö á gæði
jarðar og notað hugvitið til að smiða
vígvélar hættulegar okkur og öðrum.
Við þurfum aö læra að byggja upp
jafnvægi milli allra sem lifa á þessari
jörð, snúa af braut efnishyggju og
leita jafnvægis milli efnislegra og
andlegra verðmæta.
Til þess að hjálpa okkur er beint
til okkar orku, auknu ljósafli utan
úr geimnum frá alheimsvitundinni.
Þessi orka á að hjálpa okkur til að
skilja aö breytinga er þörf strax og
gerir það jafnframt að verkum að
venjulegt fólk fer að skynja hluti sem
það gerði ekki áður.
Þessar breytingar eru að gerast
hraðar og í ríkara mæli en áður hef-
ur þekkst. Margir vinna samkvæmt
þessum hugsunarhætti án þess aö
kalla sig nýaldarfólk.
Fleiri en áður með
dulvitlega hæfileika
Hæfileika, sem áður tók langan
tíma að þjálfa upp hjá fólki, tekur
nú styttri tíma að þjálfa með aðstoð
þessarar orku. Auk þess erum við
tilbúnari að taka á móti. í því felst
að hluta útskýring á hvers vegna
fólk getur farið að leiðbeina öðrum í
dulvitlegum efnum eftir styttri þjálf-
unenáðurþekktist," segirGuðrún.
„Nú fá líka margir skilning, hæfi-
leika og þekkingu sem aðeins var
fáum ætluð áöur. Fleiri en áður geta
eflt með sér dulvitlega hæfileika og
t.d. komist í samband við fólk á öðr-
um tilverustigum en áður hefur ver-
ið.“
Aðeins tveir á geð-
deild
- Margir hafa orðið til þess að gagn-
rýna margt af því sem fram fer í
nafni nýaldarinnar. Það er bent á að
leiðbeinendur á námskeiðum séu
ekki hlutverki sínun vaxnir og fólk
lendi jafnvel á geðdeild eftir kukl af
einhverju tagi. Viðurkenna nýaldar-
sinnar allt þetta sem gott og blessað?
„Fyrst er rétt að taka fram að ný-
öldin og nýaldarsinnar eru aðeins
hugtök sem hafa verið búin til. Það
eru engin samtök til og enginn félags-
skapur. Það er hins vegar ákveðinn
hugsunarháttur sem kenndur er við
nýöld og þeir sem viðurkenna þann
hugsunarhátt eru samkvæmt þeirri
skilgreiningu nýaldarsinnar.
Nýöldin er þegar fólk reynir að
stjórna eigin lífi en skilur jafnframt
að það getur ekki stjórnað lífi ann-
arra.
Ég tel aö íslendingar hafi í flestum
tilfellum verið mjög heppnir með þá
erlendu leiðbeinendur sem hingað
hafa komið til námskeiðahalds. Hins
vegar eru námskeið misgóð, rétt eins
og leiöbeinendurnir. Fólk velur sjálft
hvaða námskeið það sækir og þau
sem ekki eru nægilega góö detta sjálf-
krafa út með tímanum.
Ég hef heyrt um tvo aöila sem lentu
á geðdeild eftir námskeið mér óvið-
komandi. í báöum tilfellum var um
að ræöa einstaklinga sem höföu ver-
ið eða voru í meðferð vegna geð-
rænna vandamála og villtu á sér
heimildir.
Við erum öll aö leita og það er
margt sem á fjörur okkar rekur í
þeirri leit að nýjum gildum sem nú
stendur yfir. Við höfum öll frjálsan
vilja og það sem hentar einum hentar
ekki nauðsynlega öðrum, því er eðli-
legt að sumt sé komið til að vera en
annað ekki.
Eitt meginatriðanna í nýjum hugs-
unarhætti er að öll svörin er að finna
hjá okkur sjálfum. Við þurfum að
líta inn á við og leita þeirra þar. I
þeirri leit þurfum við hins vegar að-
stoð með lestri bóka og námskeiða-
haldi.“
- Nú hefur það verið gagnrýnt að ef
þeir útlendingar sem hingað koma
væru jafngóðir og látið er í veðri
vaka þá væru þeir bókaðir mörg ár
fram í tímann og hefðu engan tíma
til að sinna íslandi. Er þetta rétt?
„Við höfum í mörgum tilfellum
verið heppin og getað fengið erlenda
leiðbeinendur með stuttum fyrirvara
en oftast þarf að bóka langt fram í
tímann.
- Hvers vegna þarf að sækja þessa
leíðbeinendur til útlanda. Geta ís-
lendingar ekki leiðbeint öðrum í and-
legum efnum?
„Við erum mjög fá hér á landi og
eigum fáa en góða leiðbeinendur en
eftirspurnin er svo mikil að nauðsyn-
legt hefur verið að leita til útlanda. “
Miðlar 85% nákvæmir
- Nú vita menn þess mörg dæmi að
fólk hefur tekið leiðbeiningar og spá-
dóma mjög bókstaflega og jafnvel
breytt lífi sínu gagngert til samræm-
is við spádóma. Ekki getur þaö talist
að taka ábyrgð á eigin lífi.
„Ef ég vitna í George W. Meek,
merkan bandarískan vísindamann
og dulspeking, þá vill hann halda
fram að í heiminum séu aðeins örfá-
ir miðlar sem komast hærra en á
lægra astralplanið. Ég hef ekki þekk-
ingu til að dærna um það en margir
hafa bent á að í flestum tilvikum
megi reikna með 85% nákvæmni í
upplýsingum frá miðlum. Fólk þarf
að vera gagnrýnið í því sem öðru.
Menn verða að átta sig á því að
orðiö spá þýðir nákvæmlega það og
ekkert annað. Það er ekki verið að
segja fólki hvað á eftir að gerast held-
ur benda á ýmsa möguleika á því
hvað gæti gerst.“
- Hefur þessi hreyfing mætt mikilli
andstöðu?
„Allar breytingar mæta andstöðu.
Flestir eru hræddir við breytingar
og óttast að heimur þeirra raskist.
Það varð mikill hávaði og andspyrna
þegar rauðsokkahreyfingin nam
land á íslandi, enda gekk hún fyrst
í stað lengra en góðu hófi gegndi. Nú
hefur fólk valið og hafnað úr þeim
boðskap og allt er komið í ró aftur.
Sú þróun sem felst í nýöldinni
verður ekki stöðvuð en eftir nokkur
ár verður komið meira jafnvægi á
þessa hluti þegar fólk verður búið
aö velja það sem nothæft er. Fyrstu
viðbrögðin við nýjungum eru gjarn-
an árás.“
Þjóðkirkjan stöðnuð
-óttastbreytingar .
- Þjóðkirkjan hefur gagnrýnt starf-
semi nýaldarsinna og boðskap
þeirra. Er sú gagnrýni réttmæt?
„Við sýnum umburðarlyndi gagn-
vart trúarbrögðum. Við teljum að
það sé einn alheimsguð sem fólk leit-
ar til í gegnum öll trúarbrögð. Það
eru allir jafnréttháir.
Kristin kirkja boðar 2000 ára gaml-
an boðskap sem búin er að fara gegn-
um hendurnar á mörgum mönnum
sem hafa verið misjafnlega þroskað-
ir. Þeir hafa þýtt, staðfært og breytt
Biblíunni í aldanna rás:
Það má segja að hjá kirkjunni hafi
orðið ákveðin stöðnun. Það getur
verið aö hún þurfi aö endurskoða
sína afstöðu. Kirkjan vill halda sinni
stöðu og þeim ávinningum sem hún
hefur öðlast. Þessi ótti við breytingar
veldur að mínu mati þeim árásum á
nýaldarhreyfmguna sem hún hefur
sætt frá kirkjunni og öðrum.
Kirkjan og ýmis kristin félög hafa
verið í mikOli andstöðu við okkur,
dreift bæklingum um að við séum
að boða villutrú og fleira í þeim dúr.
Kirkjan um allan heim virðist vera
með fordóma í garö nýaldarhreyfing-
arinnar. Nýaldarfólk tengist öllum
trúarbrögðum en sum hafa meira
umburðarlyndi en önnur.
Við erum hins vegar tilbúin til þess
að vinna með kirkjunni og vOjum
sýna umburöarlyndi," segir Guðrún.
- En nú byggja nýaldarsinnar í raun
á gömlum kenningum. Er þá rétt að
gagnrýna kirkjuna á þessum for-
sendum?
„Við höfum ekki gagnrýnt kirkj-
una á annan hátt en að svara gagn-
rýni hennar. Hugsunarháttur nýald-
ar byggist á kærleik og umburðar-
lyndi og við erum að reyna að vinna
á nýjan hátt úr því sem okkur hefur
mistekist í fortíðinni. Trúarbrögð
eins og allt annað verða að þróast svo
þau henti fólki á hveijum tíma,“
sagði Guðrún að lokum.
-Pá