Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991.
35
Sigurjón Sighvatsson
Propaganda
Films
Nýlega hélt Verzlunarráð íslands
hádegisverðarfund þar sem kvik-
myndaframleiðandinn Sigurjón
Sighvatsson, annar aðaleiganda og
frumkvöðull að stofnun Propag-
anda Films, gerði grein fyrir upp-
byggingu og velgengni fyrirtækis-
ins. Erlendis hefur mikið verið
skrifað um Sigurjón, eðá Joni eins
og hann er stundum kallaður, og
félaga hans, Steve Golin. Á síðasta
ári mátti lesa viötöl við þá félaga í
blöðum eins og New York Times
og Los Angeles Times ásámt grein
í Premier þar sem farið var mjög
lofsamlegum orðum um starf
þeirra.
Velgengni þeirra félaga er næst-
um ótrúleg og það jafnvel á banda-
rískan mælikvarða. Síöan fyrir-
tækið var stofnað fyrir rúmum
fiórum árum hefur það fest sig í
sessi og öðlast virðingu fyrir vönd-
uð vinnubrögð og frumleika. Sigur-
jón lagði á það mikla áherslu á
fundinum hve mikilvægt væri að
vera öðruvísi en aðrir. Meö því
móti væri bryddað upp á frumleika
auk þess að Propaganda Films
kæmist síður upp á kant við stóru
kvikmyndaverin, eins ogUniversal
og Paramount, með því að vera
ekki í beinni samkeppni við þau.
Tónlistarmyndbönd
Það sem vakti þennan mikla
áhuga bandarískra íjölmiöla-
manna á Propaganda Films var
David Lynch og mynd hans, Wild
At Heart. í framhaldi af því spunn-
ust sjónvarpsþættirnir Tvídrangar
sem juku enn hróður Lynch og
þeirra Propanda Films manna. En
það sem kom raunar fótum undir
fyrirtækið samkvæmt Sigurjóni
Sighvatssyni var gerð tónhstar-
myndbanda. Þessu sviði kvik-
mynda og/eða myndbandagerðar
haíði lítið verið sinnt út frá list-
rænu sjónarmiði. Hollywood leit
næstum því niður á tónlistarmynd-
bandagerð og taldi htla peninga þar
að hafa. Þeir félagar í Propaganda
Fhms sáu sér leik á borði og réöu
mikið af ungu hæfUeikaríku fólki,
sem hafði numið kvikmyndagerð,
til að framleiða og leikstýra tórdist-
armyndböndum. Þeir gáfu fjölda
ungs fólks sitt fyrsta tækifæri til
að sýna sig og sanna. Áhættan var
ekki mikil miöað við gerð kvik-
myndar í fullri lengd því þaö tekur
um 3 daga að kvikmynda dæmigert
tónlistarmyndband og hljóðar
kostnaðurinn upp á um 8 milljónir
króna fyrir hvert band. Þetta er
líka ódýr skólun fyrir Propaganda
Films því að þeim sem standa sig
vel eru fengin bitastæðari verk-
efni, t.d. við kvikmyndagerð.
Atriði úr Tvídröngum.
Umsjón:
Baldur Hjaltason
150myndbönd
árlega
i fyrra gerði Propaganda Films
næstum þriðja hvert tórdistar-
myndband sem gert var í Banda-
ríkjunum og geri aðrir betur. Þetta
gerir um 150 myndbönd árlega fyr-
ir listamenn á borð við Madonna,
Prince, U2, Bruce Springsteen,
Sting, Janet Jackson, Paula Abdul
og Fleetwood Mack.
Flest þessi myndbönd eru gerð
fyrir hljómplötuútgáfur. í áður-
greindri grein í New York Times
var haft eftir einum framkvæmda-
stjóra hljómplötuútgáfu: „Þegar
rætt er um myndbönd er Propag-
anda Films stærsta og besta fyrir-
tækið vegna þess að þessir strákar
eru svo traustir viðskiptamenn og
jafnframt þeir dýrustu. En þar sem
Propaganda Films skilar ahtaf ár-
angri þá heyrirðu ekki marga
kvarta. Fólk er ef til vih ekki mjög
viljugt að viðurkenna það en
Propaganda Films gegndi lykil-
hlutverki í að gera hljómsveitir
eins og Guns’n’Roses að stjöm-
um.“
Kvikmyndir
og sjónvarp
En kvikmyndaframleiðsla hefur
alltaf verið áhugamál þeirra félaga.
Þegar þeir fengu David Lynch til
að skrifa handritið að Wild at He-
art var það í fullu samræmi við þá
stefnu þeirra félaga aö gera öðru-
vísi myndir en aðrir. David Lynch
hefur alltaf farið sínar eigin leiðir
og eins og þeir geta vitnað um sem
sáu eina fyrstu mynd hans, Eraser-
head. Af öðrum myndum má nefna
The Elephant Man, Dune, sem
reyndar var hálfmislukkuð, Blue
Velvet og svo Zelly and Me þar sem
hann var aðeins leikari.
Samkvæmt New York Times hef-
ur Propaganda Films nokkrar aðr-
ar forvitnilegar myndir í vinnslu
eins og Love field sem fiahar um
Jack Ruby og moröið á John F.
Kennedy og You Play the Black
And the Red Comes Up sem sagt
er að Lynch ætli sjálfur að skrifa
handritið að og leikstýra.
Tvídrangar
Þaö sem er einna forvitnilegast
er að skoða aðkomu Propaganda
Films að sjónvarpsþáttagerð. Fyr-
irtækið hefur gert nokkrar sjón-
varpsmyndir, enda hefur þaö sér-
staka deild fyrir framleiðslu sjón-
varpsþátta. Mynd þess, Heat Wave
var sýnd á TNT kaplasjónvarps-
stöðinni síðasta haust og Murder
in Milan keypti NBC-sjónvarps-
stöðin. Propaganda Fhms fram-
leiddi einnig þáttaröðina Beverly
Hihs, 90210, sem fiahar um fiöl-
skyldu frá miðvesturríkjum
Bandaríkjanna sem flytur í umrætt
hverfi, og Urban Anxiety sem ger-
ist í íbúð í Manhattan. En svo komu
Tvídrangar.
Það má segja að aftur hafi þeir
félagar Siguijón og Steve verið rétt-
ir menn á réttum staö og tíma.
Stóru sjónvarpsstöðvarnar CBS,
NBC og ABC hafa átt erfitt upp-
dráttar að undanförnu. Þær hafa
séð áhorfun minnka ár frá ári. Th
að ná vinsældum sínum að nýju
hafa þær reynt að koma með nýja
sjónvarpþáttaraöir meö mjög tak-
Leikstjorinn David Lynch
mörkuðum árangri. Ástæðan hefur
verið meðal annars sú að stöðvarn-
ar og framleiðendur sjónvarps-
þáttaraða hafa veriö að hjakka of
lengi í sama farinu. Þetta er mjög
íhaldssamur iðnaður en áhorfend-
ur voru bara orðnir leiðir á nýjum
útfærslum á gömlum frösum.
Öðruvísi en aðrir
En þaö var einmitt þarna sem
Propaganda Films fann sitt hlut-
verk varðandi sjónvarpsþætti. Þeg-
ar David Lynch kom til þeirra
Propaganda-manna eftir að þeir
unnu saman að gerð Whd At Heart
og vhdi fá þá með sér í gerð Tvídr-
anga sáu þeir fram á að geta gert
t þætti sem voru öðruvísi en flest
annað sjónvarpsefni af sama toga
spunnið. Hingað th hafa leikstjórar
haft afskaplega htið að segja í sjón-
varpsþáttagerð hvaö varðar heild-
aryfirbragð þáttanna. í kvikmynd-
um kannast allir við að sjá, þegar
myndin hefst, „Mynd gerð af ‘ og
svo nafn leikstjórans eða að hann
fær bestu kynninguna þegar nöfn
aðstandenda myndarinnar birtast
á hvíta tjaldinu. Það eru hka yfir-
leitt margir leikstjórar sem koma
við sögu þegar gerð er sjónvarps-
þáttaröð. Hrynjandin verður að
vera sú sama milh þátta og eru því
flestir þeirra gerðir mjög hlutlausir
frá myndrænu og listrænu sjónar-
miði.
Persónulegur stíll
En þaö sem þeim hjá Propaganda
Films datt í hug var að heimfæra
ímynd leikstjórans eins og í kvik-
myndum yfir á sjónvarpsþætti.
David Lynch gat ekki verið betri
leikstjóri því að myndir hans hafa
svo sterkan persónulegan stíl. Þeir
sem hafa séð Tvídranga ættu að
vera sammála um að yfirbragð
þessarar þáttaraðar er mjög frá-
brugðið öðrum þáttaröðum og allt
miklu persónulegra. Þættirnir
höíðu David Lynch-gæðastimpil
þótt hann leikstýrði ekki þeim öll-
um. Það er raunar hægt að sjá hve-
nær Lynch er ekki leikstjóri því að
hann hefur svo sérstæðar tíma-
setningar þegar hann bæði kvik-
myndar og klippir að fáir geta
hermt eftir. Sjónvarpsstöðvarnar
voru einnig að verða örvæntingar-
fullar svo að þær voru thbúnar að
prufa eitthvað nýtt og gripu því
fegins hendi þessari þáttaröð þótt
ákveðið hik hafi verið í upphafi.
Það var reglulega gaman að
hlusta á Siguijón lýsa fæðingu og
barnsárum Propaganda Films. Nú
er fyrirtækið líklega á gelgjuskeið-
inu og við skulum óska þess því
besta á næstum árum sem gætu
orðið þau frjósömustu ef við getum
líkt fyrirtækjarekstri við okkar
lífsskeið.
Helstu heimildir: New York Times,
Los Angeles Times og Premier