Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. Slátrarinn frá Bagdad Saddam Tikriti Hussein, einvaldur íraks. Saddam Hussein, einvaldur í írak fæddist í apríl árið 1937 í moldar- kofa í smáþorpinu Tikrit sem er rétt norðan við höfuðborgina Bagdad. Níu mánaða gamall varð hann munaðarlaus, án þess að vit- að sé hvernig það kom til, en vitað er að foreldrar hans voru fátækir bændur. Hann var alinn upp hjá frændfólki sínu í Tikrit og vann í æsku á melónubúgarði frænda síns sem var ákafur stuðningsmaður Sunnítahreyfmgar íslam. Nýtt nafn . Við fæðingu var Saddam Hussein gefið nafnið Saddam Tikriti og það var hans nafn langt fram á fullorö- insár. Það var ekki fyrr'en eftir 1968, þegar hann var orðinn næstur for- setanum að völdum, að reglum um eftirnöfn íraka var breytt og þá tók Saddam Tikriti sér nafnið Saddam Hussein. Sagt er að þessi breyting hafi komið Saddam sérstaklega vel og hann hafl verið hvatamaður þess að henni var hrint í framkvæmd. Vegna breytinganna er engin leið að átta sig á ættfræði eða öðrum tengslum manna á milli. Fyrir vikið gat hann umkringt sig vinum og ættingjúm og hefur nánasti hópur aðstoðar- og stuðningsmanna hans verið kölluð Tikriti mafían. Sjö ára með hlaðna skammbyssu Saddam ungi gekk í barnaskóla í Tikrit og þjóðsögur segja að hann hafi frá sjö ára aldri gengið með hlaðna skammbyssu í vasanum sem hann skildi aldrei við sig. Á þessum tíma var mikil ókyrrð og ólga í Tikrit og mikið útlendinga- hatur vegna þess að innlendur leð- ur- og fataiðnaður á þessu svæði var í rúst vegna innílutnings frá Bretlandi. Náfrændi Saddams tók þátt í uppreisnartilraun gegn ein- valdinum sem talinn var leppur Breta. Uppreisnin mistókst og þátt- takendur voru fangelsaðir um ára- bil þar á meöal frændi Saddams. Þetta átti sinn þátt í því að móta afstöðu hins unga Saddams gagn- vart erlendum árhrifum og ítökum heimsvaldasinna. Áriö 1956 fór Saddam til Bagdad í framhaldsskóla. Þar gekk hann til hðs við arabíska Baath sósíali- staflokkinn sem stefndi að samein- ingu allra araba. Á vegum Baath flokksins tók Saddam þátt í mis- heppnaöri uppreisnartilraun gegn Faisal konungi 1956. Misheppnað banatilræði Konungsveldið í írak var síðan brotið á bak aftur 1958. Abdul Ka- rim Kassem sem var leiðtogi upp- reisnarmanna sneri að henni lok- inni baki við Baath flokknum og gekk til liös við kommúnista. Baath flokkurinn setti á laggimar 10 manna aftökusveit sem átti að ráöa Kassem af dögum. Saddam Hussein var meðal félaga í sveitinni. Bana- tilræðiö mistókst gjörsamlega þrátt fyrir að Kassem nyti lítillar vernd- ar. Bílstjóri og lífvörður létu lífið í árásinni en skotmarkið slapp ómeitt. Allir árásarmennirnir voru í kjölfarið handteknir nema Sadd- am Hussein sem flýði særður til Sýrlands. Goðsagnir og reyndar opinber ævisaga Saddams fullyrða að hann hafi skorið kúíu úr fæti sínum eigin hendi með vasahníf. Aðrar heimildir herma að sprengja hafi sprungið í vasa hans af mis- gáningi. Lærði lögfræði Hvað sem rétt er komst hann að lokum til Egyptalands þar sem hann dvaldi næstu árin undir verndarvæng Nassers Egypta- landsforseta. Saddam lauk fram- haldskólanámi árið 1961 og lagði síðan stund á lögfræðinám við há- skólann í Kairó. Sumar heimildir herma að hann hafl 1958 ráðið mág sinn af dögum fyrir stuðning við Kassem. Þegar Kassem var steypt af stóli í Bagdad sneri Saddam Hussein heim og hélt áfram lögfræðinámi við háskólann í Bagdad. Hann náði ennfremur fótfestu í forystu Baath flokksins. Fljótlega varð önnur stjórnarbylting og Saddam neydd- ist til þess að fara í felur. Hans eig- in ævisaga segir hann hafa barist hetjulega einan síns liðs við upp- reisnarmenn þar til hann þraut skotfæri. Hann var handtekinn og settur í fangelsi þar sem hann dvaldi næstu tvö árin og las lög- fræði þar til hann var látinn laus eða flýði úr fangelsinu en um það greinir heimildir á. Árið 1963 kvæntist Saddam frænku sinni Sajida Tolfah og hef- ur eignast með henni fimm börn. Með vopnaða líf- verði í lokaprófið Hann átti stóran þátt í friðsam- legri byltingu sem kom Baath flokknum til valda í írak árið 1968. Saddam gekk þá næstur forsetan- um Ahmed Hasan al-Bakr að völd- um. Hann var sæmdur æðstu heið- ursmerkjum hersins og veitt hers- höfðingjatign og réði illræmdum dauðasveitum á vegum stjómar- innar. Árið 1969 lauk hann prófi í lög- fræði og fékk prófskírteini. Því er reyndar haldið fram að Saddam hafi mætt til prófs í fylgd fjögurra lífvarða með alvæpni og formlegt próf hafi ekki farið fram. Þegar Bakr lét af völdum árið 1979 af heilsufarsástæðum tók Saddam Hussein við æðstu völdúm í írak og þeim völdum hefur hann hefur haldið síðan. Eitt hans fyrsta verk var að hreinsa til meðal ráða- manna flokksins með aðstoð stuðn- ingsmanna sinna. Sagt er að nær 500 manns hafi verið líflátnir fyrir meintar uppreisnaráætlanir eða aörar sakir. Baath flokkurinn segist hafa lýð- ræði á stefnuskrá sinni en írak er á lista Amnesty International yflr lönd þar sem mannréttindabrot eru hvað tíðust í heiminum í dag. Saddam hefur stjórnað landi sínu með harðri hendi og aftökur og fangelsanir daglegt brauð. Hann sagði þjóð sinni í byrjun áratugar- ins að stríðið sem hann hafði þá hafið við íran myndi standa í nokkra daga og kenna ætti Kho- meini erkiklerki í íran holla lexíu. Stríðiö stóð í rúm átta ár og kost- aði hálfa milljón mannslífa. Annað grimmdarverk sem kom Saddam í heimsfréttirnar var þeg- ar hann lét varpa gassprengjum á fjallaþorp Kúrda í írak með þeim afleiðingum að rúmlega 4.000 manns létu lífið í einni svipan. Því er haldið fram að Saddam Hussein sjái sjálfan sig í anda sem keisara nýs arabísks heimsveldis. Hann sveipar sjálfan sig og persónu sína dularljóma og allskonar sögur af afrekum hans og tiltektum fyrr og nú ganga um samfélagið í þjóð- söguformi sem hann hvorki játar né neitar. Það er meira og minna viðurkennt að opinber ævisaga hans er mjög fegruð mynd af fortíð- inni. Nebúkadnesar II Hann hefur líkt sjálfum sér við Nebúkadnesar konung í Babýlon hinni fornu. Reyndar er eitt þeirra verkefna sem Saddam hefur eytt hvað mestum peningum í er endur- bygging hinnar fornu borgar. Þar er andlitsmynd hans sjálfs greypt í margra mannhæða háa múr- veggi. Stærsti kostnaðarliðurinn við endurbygginguna er keisara- höll sem Saddam er að reisa sjálf- um sér á rústum Babýlon. Þar verða hinir nafntoguðu svífandi garðar endurbyggðir og hefur verkið þegar kostað milljónir doll- ara og langt í land enn. Annað átrúnaðargoð Saddams úr sögu íraks er Hammúrabí konung- ur sem ríkti um 1750 fyrir Krist. Hann, eins og Saddam, þótti mjög grimmur leiðtogi og á hans tíma var handvömm iðnaðarmanna dauða- sök svo dæmi sé tekið. Saddam vitn- aði til Hammúrabís þegar hann fyrr á þessu ári úrskurðaði að eigin- menn eða ættingjar lauslátra kvenna mættu ráða þær af dögum án þess að sæta refsingu fyrir. Ástoghatur Saddam virðist á yfirborðinu njóta mikilla vinsælda. Algeng sjón í fréttamyndum frá írak er af fólki íklæddu peysum með mynd af ást- sælum leiðtoga hrópandi slagorð honum til stuðnings eða dansandi á götum úti af einskærri hrifningu. Margir halda því fram að þessi hrifning sé sviðsett fyrir fjölmiðla og risti alls ekki djúpt. Aðrir benda á að frá sjónarhóli almennings sé betra að dansa á götunum en vera skotinn fyrir grun um óhollustu. Enn er bent á að almenningur sé illa upplýstur vegna þess að í írak er ekki ritfrelsi, erlendar bækur og erlent sjónvarp er ekki leyft. Þann- ig ríki í skjóli fáfræði og trúarhita nokkurs konar ástar-haturs sam- band almennings við leiðtoga sinn. í Bagdad er sérstakt safn til dýrð- ar leiðtoganum. Þar eru meðal ann- ars varðveittar undir gleri skamm- byssur Saddams frá yngri árum, námsbækur og glósur frá skólaár- unum og fleira í þeim dúr. Þvert yflr eina aðkomuleiðina inn í höfuðborgina Bagdad er sig- urmerki til dýrðar Saddam og stríði hans gegn írönum. Þar eru steyptir úr bronsi tveir 20 metra langir handleggir sem rísa yfir göt- unni. Þeir koma saman með sverð í krepptum höndum og mynda sig- urboga. Handleggirnir eru reyndar nákvæm eftirlíking af handleggj- um Saddams sjálfs og hver vöðvi og æð á sínum staö og er kannski besta dæmið um persónudýrkun foringjarfs. Bygging minnismerkis- ins kostaði 120 milljónir dollara. Hefur aldrei gegnt herþjónustu Saddam gegndi aldrei herþjón- ustu vegna þess að sem ungur maður var hann ekki tekinn í her- inn. Hann gat sér þó gott orð sem árásarmaður fyrir Baath flokkinn á yngri á-um og var sagt að það sem hann skorti í þjálfun hefði hann bætt upp með grimmd. Ein af þjóðsögunum um grimmd Saddams fjallar um það þegar hann á einhverri yfirreið um írak hitti ungan dreng. Sá stutti sagðist þekkja hann því pabbi hans spýtti alltaf á gólfið þegar hann kæmi á sjónvarpsskjáinn. Nokkrum dög- um síðar hvarf drengurinn og öll fjölskylda hans og hefur ekkert spurst til þeirra síðan. Þetta er í takt við það sem opinberlega er vitað, það að Saddam hefur haldið embætti fyrst og fremst vegna þess að öll mótstaða hefur verið barin mður af mikilli hörku. Andstæð- inga lætur hann frekar taka af lífi frekar en aö dæma þá í fangelsi, minnugur þess að hann sat sjálfur í fangelsi á yngri árum en slapp þaðan til þess að halda áfram að berjast. Þau mistök hefur Saddam ekki látið henda sig þegar andstæð- ingar eru annars vegar. Saddam er sagður vera hálfgerð- ur heimalningur í hugsunarhætti. Hann hefur lítið sem ekkert ferðast utan arabalanda og aldrei svo vitaö sé komið til Vesturlanda. Því eru honum hugsunarhættir Vestur- landabúa og lífsstíll ákaflega fram- andiognánastlokuðbók. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.