Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 19. JANÚÁR 1991.
39
Stefnir í harða
baráttu í 2.
flokki kvenna
- liðin sjaldan jafnari
Um helgina var leikið í 2. flokki
kvenna á íslandsmótinu og var 1.
deildin leikin í Reykjavík en önnur
deildin á Akureyri
1. deild
Það voru stúlkurnar efnilegu frá
Selfossi sem sigruðu að þessu sinni
í 1. deild. Það er þó alveg ljóst að
ekki er hægt að útiloka neitt hð í
þessari deild, þau virðast vera mjög
jöfn að getu og úrslitakeppnin í vor
ætti að geta orðið meira spennandi
en undanfarin ár.
Eins og áður sagði voru það stúlk-
urnar frá Selfossi sem báru sigur úr
býtum, þær sigruðu Fram, Stjörnuna
og Víkinga, gerðu síðan jafntefli við
KR en töpuðu fyrir Gróttu. Stjarnan
varð í öðru sæti á markahlutfalli en
Stjörnustúlkur voru jafnar Víking-
um og Gróttu að stigum, öll liðin með
6 stig. Stjarnan sigraði Fram, KR og
Víking en tapaði fyrir Selfossi og
Gróttu. Grótta varð í þriðja sæti,
sigraði Stjörnuna, Fram og Selfoss
en tapaði fyrir KR og Víkingi. Vík-
ingar urðu að láta sér lynda fjórða
sætið, sigruðu Fram, Gróttu og KR
en töpuðu fyrir Selfossi og Stjörn-
unni. KR-stúlkurnar stóðu varla
undir væntingum í þessari törn og
lentu í flmmta sæti, sigruðu Fram
og Gróttu og gerðu jafntefli við Sel-
foss. Fram varð að láta sér lynda
sjötta og neðsta sætið að þessu sinni
en varla var von á góðu því nokkrar
af sterkustu stúlkunum í Fram voru
staddar í Noregi að leika með meist-
araflokki félagsins í Evrópukeppni
meistarliða. Þær sem eftir stóðu eru
margar hverjar í yngri flokkum en
baráttan var góö hjá Frömurum að
þessu sinni og eiga hrós skilið.
2. deild
Önnur deildin var leikin eins og
fyrr segir á Akureyri og var það nán-
ast einstefna hjá FH og heimamönn-
um í Þór. FH hafði þó betur í inn-
Hulda Bjarnadóttir, Selfossi. Hulda
og félagar hennar i Selfoss-liðinu
eru líklegar til afreka í vetur. Hulda
er ein þriggja stúlkna úr 2. flokki
Selfoss sem leika með A-landsliði
íslands og er Ijóst að framtíðin er
björt á þessum höfuðstað Suður-
iands.
Umsjón
Heimir Ríkarðsson og
Lárus H. Lárusson
byrðisleik liðanna en sigraði í hon-
um, 16-15, eftir að staðan hafði verið
8-6 FH í vil í hálfleik. Haukar úr
Hafnaríirði urðu í þriðja sæti, töpuðu
fyrir FH og Þór en unnu Völsunga
og HK. Völsungar frá Húsavík urðu
í fjórða sæti þrátt fyrir jafntefli við
HK, markahlutfall þeirra var betra.
Næsta umferð
Næsta umferð í 2. flokki karla og
kvenna verður 1.-3. febrúar.
Úr leik FH og Gróttu fyrr i vetur. Bæði þessi lið áttu nokkurri velgengni
að fagna um síðastliðna helgi. Grótta varð i þriðja sæti í 1. deild og FH
vann sig upp í fyrstu deild aö nýju.
Handbolti unglinga
Jason Ólafsson, leikmaður úr Fram, var ekki með félögum sínum þegar þeir sigruðu í 1. deild 2. flokks karla
um síðastliðna helgi. Framarar virðast hafa nokkra yfirburði ásamt Val í þessum aldurflokki.
DV-mynd Ómar
2. flokkur karla:
FramogVal-
ur í sérflokki
Það fór eins og blaðamenn DV
spáðu um síðustu helgi að baráttan
um efsta sæti 1. deildar stæði milli
Fram og Vals og að önnur lið kæmu
þeim nokkuð að baki.
í 2. deild, sem var leikin í Selja-
skóla, var keppni ótrúlega jöfn og
spennandi og skildi aðeins eitt stig
efsta lið deildarinnar og liðið í
þriðja sæti.
Fram vann úrslita-
leikinn gegnVal
Úrshtaleikur 1. deildar var viður-
eign Fram og Vals. Leikurinn ein-
kenndist af mikilli baráttu og var
varnarleikur beggja liða í þessum
leik með miklum ágætum á meðan
sóknarleikur Uðanna hefur oft ver-
ið betri.
Valsarar byrjuðu leikinn betur
og voru yfir í hálfleik, 6-5.
í seinni hálfleik náðu Framarar
að snúa leiknum sér í vil og vinna
öruggan sigur, 10-12.
Framarar söknuðu Jasonar Ól-
afssonar í þessari umferð en hann
gat ekki leikið með vegna meiðsla.
Mörk Framara skoruðu þeir
Ragnar Kristjánsson 4, Karl Karls-
son 3, Andri V. Sigurðsson 3, Páll
Þórólfsson 1 og Gunnar Kvaran 1.
Mörk Vals: Óskar Óskarsson 3,
Dagur Sigurðsson 3, Sveinn Sigf-
innsson 2, Valgarð Thoroddsen 1
og Ólafur Stephensen 1.
Þessi sigur tryggði Fram deildar-
meistaratitiUnn í annað sinn þar
sem þeir töpuðu ekki leik að þessu
sinni, unnu ÍBV, 15-12, KR, 22-16
og gerðu jafntefli viö FH, 16-16.
Valur varð í öðru sæti að þessu
sinni, þeir töpuðu aðeins leiknum
gegn Fram en unnu aöra andstæð-
inga sína nokkuð örugglega. Valur
vann ÍBV, 13-11, KR, 19-15 og FH,
24-16.
í þriðja sæti deildarinnar varð lið
ÍBV en Vestmannaeyjapiltarnir
unnu KR, 15-13, og FH unnu þeir
einnig í hörkuspennandi leik, 10-9.
Með þessu tapi féUu FH-ingar í
annað skiptið í vetur í 2. deild þar
sem KR bar einnig sigurorð af
þeim, 22-19.
KR-ingar urðu því aftur í næstn-
eðsta sæti deildarinnar og er það
eftirtektarvert að röð liðanna er sú
sama og í síðustu umferð.
Spenna í 2. deild
Nú fer hver að verða síðastur í
að komast í úrsUtakeppni 2. flokks
karla og bar keppnin í 2. deild þess
glöggt merki, hart var barist og
ekki ljóst fyrr en í síðustu leikjun-
um hvaða Uð tækist að tryggja sér
sæti í 1. deUd.
Baráttan stóð á mUU þriggja Uða,
UBK, Hauka og Víkings.
Eftir harða baráttu voru Uð Vík-
ings og Hauka jöfn að stigum í efsta
sæti deUdarinnar. Efsta sætið féU
Haukum í skaut þrátt fyrir að þeir
hafi gert jafhtefli bæði við Stjörn-
una og UBK þar sem þeir báru sig-
urorð af Víkingi í mjög jöfnum leik,
16-15.
Víkingar töpuðu aðeins þessum
eina leik gegn Haukum en aðra
leiki unnu þeir.
UBK varð í þriða sæti deildarinn-
ar, stigi á eftir Víkingi og Haukum.
Stjarnan, sem féll úr 1. deild í síð-
ustu umferð, varð í næstneðsta
sæti deildarinnar að þessu sinni en
þess má geta að Uðið saknaði stór-
skyttunnar Patreks Jóhannesson-
ar sem var að leika á sama tíma
með A-landliði íslands á Spánar-
mótinu.
Vængbrotið lið ÍR féU í 3. deild
og á því ekki möguleika á að kom-
ast í úrslit 2. flokks í ár.
í næstu umferð berjast liðin í 2.
deild um þrjú laus sæti í úrslitun-
um og verður án efa mjög gaman
að fylgjast með þeirri keppni.
Heimamenn sterkir
KA-menn reyndust sterkir á
heimavelU sínum en þeir unnu alla
andstæðinga sína nokkuð örugg-
lega og úrslitaleikinn gegn Selfossi
unnu þeir, 16-12.
Selfoss varð í öðru sæti, vann
bæði HK og Gróttu og Grótta vann
HK síðan í botnbaráttuslagnum,
18-7.