Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991.
Myndbönd
DV-listinxi
Það verða litlar breytingar á list-
anum þessa vikuna enda mjög
sterkar leigumyndir sem skipa
fyrstu fimm sætin á listanum og
er lítill munur á milli þessara
mynda. Internal Affairs skipar enn
fyrsta sætið. Spennumyndirnar
Hard to Kill og Total Recall hafa
innbyrðis sætaskipti. Ein ný mynd
kemur inn á listann, spennumynd-
in Loose Cannons og gamanmynd-
in Nuns on the Run kíkir aftur inn
á listann eftir að hafa dottið út af
honum í síðustu viku.
1 (1) Internal Affairs
2 (2) Look Who’s Talking
3 (4) Hard to Kill
4 (3) Total Recall
5 (5) Revenge
6 (6) We’re No Angels
7 (-) Loose Cannons
8 (10) Always
9 (-) Nuns on the Run
10 (8) Hunt For Red October
HARD TO KILL
Útgefandi Steinar hf.
Leikstjóri: Bruce Malmuth.
Aðalhlutverk: Steven Seagal, Kelly Le
Brock og Bill Sadler.
Bandarisk, 1990-sýningartími 121 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Steven Seagal er dæmigerð
markaðsframleiðsla, starfsheitið er
leikari en hæfileikarnir liggja í
öðru. Mér er ekki kunnugt um að
hann hafi þurft að hafa mikið fyrir
því aö komast á toppinn.
Seagal, sem er fyrrverandi meist-
ari í sjálfsvarnaríþrótt, hefur útlit-
ið með sér og mikla hæfileika í
slagsmálaatriðum. Þessir hæfileik-
ar nýttust honum vel í fyrstu kvik-
H« s L.A. Dcleclivo
Mason Slsini
TtwM hiretí awasstns
lett tvm tar títtad.
And hc s twlletí seven
myndinni sem hann lék í, Nico, og
reynast honum enn betur í Hard
to Kill. Þær fréttir hafa borist að
þriðja mynd hans, Marked for
Death, sé mjög vel sótt vestan hafs.
Þessi afrek hans á hvíta tjaldinu
gera það aö verkum að hann er lík-
legastur arftaki Sylvesters Stallone
og Arnolds Schwarzenegger sem
báöir hafa margoft lýst yfir að þeir
séu orðnir leiðir á þeim stöðluöu
hlutverkum sem þeir eru þekktast-
ir fyrir. Svo getur einnig orðið að
hann verði aldrei meira en annar
Chuck Norris.
í Hard to Kill leikur Seagal súper-
löggu sem verður fórnarlamb
harðsvíraðra glæpamanna. Þeim
tekst að myrða eiginkonu hans og
særa hann það alvarlega að hann
liggur í dái í sjö ár. Þegar hann
vaknar til lífsins kemst ekkert ann-
að að hjá honum en hefnd. Leið
hans að foringja glæpamannanna,
sem þá er orðinn öldungadeildar-
þingmaður, er blóði drifin.
Handritið að Hard to Kill er form-
úluhandrit sem oft hefur verið
skrifaö í misjöfnum útgáfum, enda
kemur ekki eitt einasta atriði
manni á óvart. • Skemmtanagildi
myndarinnar er samt nokkurt,
sérstaklega þær senur þar sem lík-
amsatgervi hetjunnar nýtist til
fulls.
Steven Seagal gerir það sem ætl-
ast er til af honum allvel en hvort
hann getur gert eitthvað meira en
að sýna spengilegan líkama og
standa sig vel í slagsmálum er ekki
hægt að dæma eftir frammistöðu
hans í þessari mynd.
-HK
Flagð undir fögru skinni
MALEDICTION
Útgefandi: Laugarásbió.
Leikstjóri: Bert I. Gordon.
Aðalhlutverk: Robert Forster, Lydie
Denier og Caren Kaye.
Bandarísk, 1989-sýningartimi 87 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
í Malediction leikur Robert
Forster fyrrverandi löggu sem hef-
ur það að atvinnu að hafa uppi á
týndum unglingum. Við leit hans á
stúlku einni kynnist hann hinni
fögru Nicole sem rekur umboðs-
skrifstofu fyrir ungar stúlkur sem
vilja verða tískusýningardömur.
Cherney finnst undarlegt hvað
margar stúlkur hverfa sem hafa
verið skráðar hjá Nicole og ákveð-
ur að rannsaka hana betur. Þótt
þaö taki hann langan tíma að kom-
ast að því hver hún er þá fær áhorf-
andinn fljótlega að vita að Nicole
er flagð undir fógru skinni í orðsins
fyllstu merkingu því hún er 300 ára
gömul vampíra sem lifir á ungu
blóöi...
Fyrir aödáendur hryllingsmynda
er Malediction hin sæmilegasta af-
þreying þar sem yfirleitt mikið er
að gerast. Eins og veröa vill í slík-
um myndum er allt raunsæi látið
Uggja milli hluta, aðeins reynt að
hrella áhorfendur sem mest. Til að
það takist þurfa tæknimenn og
fórðunarmeistarar aö standa sig í
stykkinu og má segja að oft hefur
þeim tekist betur upp.
-HK
★★★
Óvenjuleg leið á toppinn
A SHOCK TO THE SYSTEM
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Jan Egleson.
Aðalhlutverk: Michael Caine, Elizabeth
McGovern, Peter Riegert og Swoosie
Kurtz.
Bandarisk, 1989-sýningartími 90 mín.
Michael Caine hefur oft verið
skammaður fyrir það að vera ekki
nógu vandlátur á hlutverk. Og satt
er að þessi ágæti leikari á æði mis-
jafnar myndir að baki. Einhvem
tímann þegar blaðamaður hafði
orð á þessu við hann svaraði hann
með sinni alkunnu kímni að hiut-
verkin skiptu ekki máli. Áður en
hann tæki að sér hlutverk grennsl-
aöist hann ávallt fyrir um hvort
myndin væri ekki tekin upp þar
sem honum þætti þægilegast að
vera.
Caine hefur hitt á vel skrifað
hlutverk þegar tók að sér að leika
auglýsingamanninn Graham
Marshall í A Shock To The System
sem er svört kómedía í orðsins
fyllstu merkingu.
Marshall er í hjónabandi með
óþolandi konu sem gerir lionum
lífið leitt. Honum gengur vel í vinn-
unni og allir telja að hann sé á
uppleið og vinnufélagar hans halda
honum meira að segja veislu þar
sem þeir telja það fullvíst að hann
fái forstjórastöðu sem losnað hefur.
Það verður því Marshall mikið
áfall þegar yngri maður er vahnn
í stöðuna. Hin snobbaða eiginkona
hans bætir ekki um og hund-
skammar hann fyrir að vera algjör
aumingi. Marshall sér að ef líf hans
tekur ekki róttækum breytingum
verður óþolandi að lifa þvi . . .
Ekki er vert að fara nánar út í
söguþráðinn en ráðabrugg Mars-
halls kemur áhorfendum á óvart
og aðallega þegar kemur í ljós að
hann kemst upp með ráðbrugg sitt.
Myndin er haganlega skrifuð og
nokkur atriði snilldarlega gerð, má
þar nefna lokaatriðið. Michael Ca-
ine sannar hér enn einu sinni að
fái hann gott hlutverk í hendurnar
þá er hrein unun að horfa á hann.
-HK
Frosin spenna
COLD COMFORT
Útgefandi: Kvikmynd
Leikstjóri: Vic Sarin
Aðalhlutverk: Maury Chaykin, Margaret
Langrick og Paul Gross
Amerísk - 1990
Sýningartími 90 minútijr^
Bönnuö innan 12 ára
Dolores býr ein meö pabba sínum
á sveitabæ rétt utan við amerískan
smábæ. Hún er alltaf ein og henni
leiðist því það er hávetur. Það
glaðnar yfir Dolores þegar pabbi
færir henni ungan sprelllifandi pilt
í afmælisgjöf. Piltinn hirti hann
upp þar sem hann var strandaður
í hríðinni.
Stephen, sem er sölumaður á
ferðlagi um héraðið, er björguninni
feginn og nýtur gestrisni feðgin-
anna uns það rennur upp fyrir
honum að heimilisfaðirinn er auð-
vitað kolgeggjaður og ætlar alls
ekki að sleppa honum, Þegar Step-
hen frnnur sjálfan sig hlekkjaðan
með digurri keðju við dyrastaf í
eldhúsinu verður honum ljós al-
vara málsins.
Þessi einkennilega mynd er bæði
góð og slæm. Góð vegna þess að
leikararnir standa sig hreint ágæt-
lega og í sumum atriðum tekst að
byggja upp góða spennu. Mynda-
takan er á köflum mjög falleg og
vetrarríkiö fær að njóta sín.
Gallarnir felast hins vegar í því
að sagan er nokkuð augljós eftirhk-
ing á Misery, kvikmynd eftir sögu
Kings sem nú er sýnd við feikilega
aðsókn vestanhafs. Höfundar Cold
Comfort hafa greinilega gengiö í
smiðju til hans.
Hinn gallinn er afskaplega hal-
lærislegur endir sem gengur á
skjön við allt það sem á undan er
gengiö. Á heildina litið sæmileg-
asta afþreying því kostirnir vega
heldur þyngra á metunum. .p^
★★
Refsivöndur á hjóli
THE PUNISHER
Útgelandi: Skifan
Leikstjóri: Mark Goldblatt
Aðalhlutverk: Dolph Lundgren og Louis
Gossett jr.
Amerísk - 1988
Sýningartimi 91 mínúta
Bönnuð innan 16 ára
Það er ekki margt sem gleður aug-
að i þessari kvikmynd. Hér segir
frá herferð eins manns gegn glæpa-
hyski sem þrífst á eymd annarra.
Refsarinn, eins og okkar maður kýs
aö kalla sig, hefst við í holræsum
stórborgarinnar og feröast þar um
á mótorhjóli. Þegar myndin hefst
er hann lagt kominn með að ganga
milli bols og höfuðs á mafiunni
einn síns liðs. Ástæðan fyrir
óslökkvandi hefndarþorsta refsi-
vandarins er sú að fjölskylda hans
var drepin af þeirri sömu mafiu.
Leikurinn flækist nokkuð þegar
japönsk útgáfa af mafíunni iendir
í stríð við ameríska stéttarbræður
sína. Refsarinn dregst inn í þau
átök og áður en lýkur liggja margir
i valnum.
Fyrir þá sem kunna slíkt aö meta
er þetta ágætis afþreying. Mér
Þingmaður í frumskógi
Sýningartimi - 96 minútur
Bönnuð börnum yngri en 12 ára
Hér kemur sagan af Tom nokkrum
Bell sem hefur verið kosinn á þing
í Ameríku. Hann er eins og fiskur
á þurru þegar þangaö kemur þrátt
fyrir dygga leiðsögn föður síns sem
vermdi sætiö næstur á undan. Tom
líst ekki sérlega vel á hrossakaupin
og baktjaldamakkið í þinginu.
Hann kýs frekar aö fara einn síns
liðs til Costa Verde en þar er eftir-
litsmaður frá eiturlyfjalögreglunni
amerísku týndur og tröllum gefinn.
Faðir þess týnda ríður húsum í
Washington en enginn gerir neitt
fyrr en Tom kemur og bjargar
málum. Til þess að gera langa sögu
(og leiða) stutta þá finnur Tommi
kauða, tekur þátt í pólitiskum
hrossakaupum til þess að bjarga
honum og hefur slæma samvisku
yfir öllu saman.
Hvað á svo sem að segja um
þetta? Áferðarfalleg iðnaðarfram-
leiðsla, sæmilegir leikarar, handri-
tið óttaleg ótrúverðug þvæla.
Sæmilegasta afþreying ef þú ert
búin að sjá allt annað. -Pá
LAME DUCK
Útgefandi: Bíómyndir
Leikstjóri: Allan Metzger eftir handriti
Stephen J. Cannell
Aðalhlutverk: William Katt, Dick O'Neill,
Jordan Rowe Baker, Tony Edwards og
Kenneth McMlllan
Amerisk - 1988
sýndist þeir skipta nokkrum tugum
sem lágu í valnum eftir átökin. Við
skulum hins vegar ekkert vera að
minnast á frammistöðu leikara eöa
svoleiðis. í þessu tilfelli skiptir það
ekki .máli. Lundgren refsari er
vöðvastæltur og hefur gott vald á
þeim fúllyndissvip sem hlutverkið
krefst. Það dugar. -Pá