Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 23
,ieei aaOvíai. .ei HUOAaíiAOUAJ . ts
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. 23
DV Lífsstíll
Skómir það allra
mikilvægasta
Sérfræöingar eru sammála um að
af búnaöi alpaskíðamanns séu
skórnir mikilvægasti hlekkurinn.
Það er ekki bara mikilvægt fyrir
vana skíðamenn að vera í réttum
skóm, sem þeir eru fullkomlega sátt-
ir við, heldur getur það skipt sköpum
fyrir byrjendur að velja rétta skó
þegar þeir stíga sín fyrstu spor á
hálum skíðabrautum. Séu skórnir
ekki réttir getur það verið sársauka-
full og óttavekjandi reynsla að stíga
á skíði.
Þess vegna er það góð hugmynd
fyrir þann sem hyggst ná valdi á svig-
skíðum að leigja sér skó fyrsta vetur-
inn sem hann stundar íþróttina. Það
er alveg sama hve skór eru valdir
af mikilli kostgæfni í búöinni. Það
er í rauninni ekki hægt að komast
að raunverulegu gildi þeirra fyrr en
brekkan blasir við.
Á flestum vinsælum skíðastöðum
er hægt að leigja allan búnað. Rétt
er þó að panta sérstaklega til þess
að tryggja að rétt númer sé til og
taka fram ef maður vill fá skó af ein-
hverri sérstakri gerð.
Með skíðaskó
við sjónvarpiö
Fari menn hins vegar út í það að
kaupa sér skíðaklossa áöur en farið
er í fríið er mjög gott ráð að sitja
heimavið í nokkra klukkutíma með
þá spennta á fætuma. Til dæmis eina
kvöldstund fyrir framan sjónvarpið.
Komi einhverjir skavankar í ljós er
líklegra að búðin vilji skipta út skón-
um meðan þeir eru ennþá ónotaðir.
Hvort sem skór eru keyptir eða
teknir á leigu er að sjálfsögðu mikil-
vægt aö vera í sömirsokkum og nota
Góðir skíðaskór eru afar mikilvægir.
á á fjallinu þegar skórnir eru mátað-
ir. Þegar skórnir eru mátaðir í búð-
inni er gott að fá að setja skíði á fæt-
urna og prófa að halla sér fram og
ganga úr skugga um að hælhnn lyft-
ist ekki í skónum og hann haldi þétt
að fætinum án þess að vera of þétt-
ur. Lengdin er ekki eins mikilvæg
og það má alveg vera smápláss fyrir
tærnaV.
Helst á að hafa tvenna sokka á
fætinum þegar skórnir eru mátaðir.
Mikilvægasti þátturinn er að skórinn
haldi þétt að fætinum á alla vegu svo
ekki sé hið minnsta hlaup á fætinum
í skónum. Það hefur áhrif á beygj-
urnar í rennslinu. Meginreglan er sú
að því þéttar sem skórinn situr um
öklann því betri stjórn hefur viðkom-
andi á skíðunum. Sömuleiðis á hreyf-
ing til hliðanna varla eða ekki að
vera möguleg í skónum. Sé hægt að
hreyfa fótinn til hliðanna verður erf-
itt að beita köntunum á skíðunum
svo vel sé.
Ertu hjólbeinóttur?
Sé kaupandinn óvenjujega hjól-
beinóttur eða með aíbrigðilegt fótlag
að öðru leyti er hægt að fá skóna
lagfærða í versluninni og á dýrari
gerðum er hægt að leiðrétta slíkar
skekkjur sjálfur með litlum inn-
byggðum stilliskrúfum. Annars er
ekki mælt meö því að byrjendur eða
óvanir kaupi mjög vandaöa og dýra
skó sem eru ef til vill ætiaðir þaul-
vönum skíðamönnum. Síðast en ekki
síst þarf skórinn að vera með lausum
innri skó sem hægt að taka úr og
þurrka yfir nóttina óg hann þarf að
vera vel bólstraður framan á leggn-
um þar sem mikið mæðir á.
Notið skynsemina
Að lokum er rétt að ráðleggja neyt-
endum aö láta ekki slá ryki í augu
sér með glæsilegri hönnun og auka-
stillingum sem að engu gagni koma.
Þegar búið er að finna skó sem kaup-
andinn er ánægður með þá er rétt
að vera ekki að leita lengra að ein-
hverju sem er dýrara þó það sé
kannski glæsilegra og meira í tísku.
Skíðaskór eru framleiddir í mörgum
stærðum og gerðum fyrir allar gerðir
skíðamanna en vegna þess hve þeir
eru mikilvægur liður í því að veröa
góður skíðamaður og vegna þess hve
þeir eru dýrir er rétt að vanda vahð
og gefa sé góðan tíma.
-Pá
Hótel Borg í Þórshöfn:
Gestir komi
með eigið
áfengi
Sérstakt jólatilboð Hótel Borgar
í Þórshöfn í Færeyjum vakti
nokkra athygli á Norðurlöndum.
Þar var gestum boðið upp á ódýr-
an ,julefrokost,“ á hótelinu og
var flug og gisting í tvær nætur
innifalið. Verðið þótti í lægri
kantinum en það sem mesta at-
hygli vakti var aö gestir voru
beðnir að koma með sitt eigið
áfengi.
Nú er það svo að heföbundin
máltið af þessu tagi er aö margra
mati harla lítils virði ef ekki fylg-
ir sterkur snafs og bjórkolla. Sala
á shkum drykkjum er mjög tak-
mörkuð í Færeyjum og markmið
þeirra sem að auglýsingunum
stóðu var að ögra færeyskum
yfirvöldum og vekja jafnframt
athygh á úreltri áfengislöggjöf.
„Þessi lög hafa verið í gildi
meira og minna óbreytt síðan
1906 og eru gjörsamlega úr takt
við tímann," segir Uffe Bærents-
en, hótelstjóri á Hótel Borg í Þórs-
höfn. Hann telur þessi úreltu lög
eina af mörgum ástæðum fyrir
erfiðum rekstri hótelsins en það
hefur verið tii sölu um nokkurt
skeiö. Enginn kaupandi hefur
sýnt áhuga og er nú mikil herferð
í gangi á Norðurlöndum sem hef-
ur að raarkmiði að vekja athygli
á Hótel Borg sem ráðstefnustað.
-Pá
Á sldðum í nágrenni Rómar
I örskotsfjarlægð frá Róm er að finna marga góða skiðastaði.
Þegar rætt er um heimsborgina
Róm á ítalíu sjá trúlega flestir fyrir
sér sólskin og götuveitingahús. Hitt
vita færri að rétt utan borgarmar-
kanna er hægt að komast í afbragðs
skíðaland.
Skíðasvæðið í Monte Livata í App-
ennínafjöllum er aðeins í 75 kíló-
metra fjarlægö frá Róm. Það er rösk-
ur klukkutíma akstur. Á góðum
vetri, þ.e. hæfilega snjóþungum, er
fræðilega séð hægt að renna sér dag-
langt á skíðum uppi í fjöllunum og
þeysa síðan niður á strönd til þess
að fá sér sundsprett í sjónum eftir
erfiðan dag. Starfsemi skíðastaða á
þessum slóðum beið aö vísu nokkurn
hnekki veturinn 1989-90 sem var
hinn snjóléttasti í Appennínafjöhum
í 20 ár. Síðustu fréttir herma að snjó-
koma hafi verið góð í fjöllunum það
sem af er vetri og komiö hið besta
skíöafæri.
Snjóbyssur þær sem algengar eru
í Alpafjöllum eru ekki notaðar á
þessum slóðum og því ekki hægt að
opna svæðin fyrr en náttúran leyfir.
Snjóbyssur eru dýrar og því er aö
sama skapi ódýrara aö vera á skíðum
þar sem þær eru ekki, lægri lyftu-
gjöld o.s.frv.
í Lazio héraði í nágrenni Rómar
er að finna skíðastaðina Livata,
Terminillio, Valle dell’Inferno en þar
eru sagðar mjög góðar skíðabrekkur
en jafnframt þær erfiðustu á svæð-
inu. Livata er vinsælasta svæðið en
þangað er hægt að fara með rútu frá
Róm. Þorpið Livata, sem er frægt
fyrir munkaklaustur og gamlar
byggingar, stendur í aöeins 20 kíló-
metra fjarlægð frá fjöllunum.
Campo Staffi býður upp á afar lang-
ar brekkur, þær lengstu eru tæpir
þrír kílómetrar, en Campo Catino er
sagt vera upplagt fyrir byrjendur og
skemmra á veg komna í þessari
glæsilegu íþrótt.
Séu vanir skíðamenn akandi á
þessum slóðum er upplagt að bregða
sér til Abruzzo, sem er úrvals skíða-
svæði hátt í Appennínafjöllum, þekkt
fyrir mikla náttúrufegurð.
Af stöðum sem eru lengra frá Róm,
2-3 tima ferð í rútu, má nefna Campo
Imperatore sem er afar vinsælt um
þessar mundir og býður upp á brekk-
ur við allra hæfi. Einnig má nefna
Tre Valloniþar sem er að finna einna
lengstu brekkur á þessum slóðum,
skíðaslóðir sem ná allt að fimm kfló-
metrum.
Frekari upplýsingar fást auðvitað
á ferðaskrifstofum en þetta er sett
hér fram aðeins til þess að benda
þeim, sem halda að Róm og-nágrenni
sé aðeins sumar og sól, á annað.
-Pá
Snjódýpt
á
nokkram
erlenduin
skíða-
stöðum
. Nú eru bundnar vonir við aö
snjódýpt verði nægíleg á skíða-
svæðum Evrópu til þess að ver-
tíðin verði viðunandi á fjölsótt-
ustu stöðunum. Hér á eftir fylgir
listi yfir spjódýpt i sentímetrum
á nokkrum þekktum skíðastöð-
um sem íslendingar ættu að
kannast við.
Staöur: Minnst:
Davos 40
St. Moritz 120
Verbier 40
Wengen 52
Zermatt 95
Mest:
95
190
150
80
115
Austurríki
Zell Am Ziller 18 40
Ischgl 30 130
Saalbach 30 55
St Johann 40 60