Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 18
18
LAUGARDÁGUR 19. JANÚAR 1991.
Veiðivon
Stangaveiðifélag Reykjavíkur:
Aldrei hafa fleiri
sótt um veiðileyfi
„Við í stjóm Stangaveiðifélags
Reykjavíkur munum ekki eftir öðru
eins umsóknaflóði í gegnum árin og
þetta á jafnt við á öllum svæðum
okkar,“ sagði Jón "G. Baldvinsson,
formaður Stangaveiðifélags Reykja-
víkur. En núna í vikunni hafa félög-
um í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
verið send þau veiðileyfi sem þeim
var úthlutað í pósti.
„Það er sótt um jafnt á öllum okkar
svæðum og það að við hækkum ekki
veiðileyfin nema í Norðurá hefur sitt
að segja. Elliðaárnar, Brynjudalsá og
Miðá í Dölum em búnar. í Langá,
Fjallið, Sogið, Stóru-Laxá og Gljúfurá
er nánast allt farið líka. í Tungufljót-
ið meö sína laxa og silunga hefur
selst feiknavel og það sama má segja
um Norðurá, þar era ekki margir
veiðidagar eftir. Upptaka neta í Hvítá
í Borgarfirði hefur sitt að segja,“
sagði Jón.
Við höfum heimildir fyrir því að
golfleikarinn frægi, Jack Nicklaus,
komi aftur í Norðurá á sumri kom-
anda en hann veiddi í Norðurá í
fyrsta skipti í fyrra og fékk fjóra laxa
og hann varð hrifinn af náttúrufeg-
uröinni við ána.
Svo virðist sem veiðimenn hugsi
sér gott til glóðarinnar að renna fyr-
ir lax og silung í sumar. Veiðileyfi
hafa ekkert hækkað neitt í mörgum
veiðiám, enda var það alls ekki hægt.
Sú þróun er kannski komin að veiði-
leyfi lækki á næstu áram? Það verð-
ur að lækka hlut sem selst ekki eins
og gerðist í fyrra. Það hefur sitt að
- segir Jón G. Baldvinsson formaður
ekki eftir öðrum eins umsóknum um
veiðileyfi hjá félaginu og nú. En á
myndinni heldur Jón á vænum laxi
sem fékkst á flugu.
DV-mynd ÓÓ
Veiðieyrað
segja núna í ár og veiðimenn fagna
því með kaupum á fleiri veiðileyfum
en áður. Þetta á jafnt við hjá Stanga-
veiðifélagi Reykjavíkur og öðram
þessa dagana. Veiðileyfi hafa selst
vel síðustu daga.
Frakki vildi
alla Svartá
á leigu
Það eru fleiri en íslendingar sem
sækjast eftir að ná veiðiánum okkar
á leigu. Fyrir nokkram dögum gerði
Frakki nokkur tilboð í Svartá í Húna-
vatnssýslu en náði henni ekki. Vildi
hann hafa ána einn og veiða þarna
sjálfur og selja síðan frönskum veiði-
mönnum. Honum varð ekki að ósk
sinni enda bauð hann ekki nógu hátt
verð fyrir ána. Svartá var fyrir fáum
dögum leigð þeim sömu og Hafa
Blöndu á leigu. Leiga fyrir Svartá var
3 milljónir og 350 þúsund.
ísland með í
heimsmeistara-
keppninni
í dorgveiði
Fyrir nokkrum klukkutímum til-
kynnti Dorgveiðifélag íslands að það
ætlaði að taka þátt í heimsmeistara-
keppninni í dorgveiði í fyrsta skipti.
Það þykja nokkur tímamót að íslend-
ingar verði með en mótið verður
ísland verður með í fyrsta skipti í
heimsmeistarakeppninni í dorgveiði
sem haldin verður um miðjan mars.
Þangað til á landinn eftir að æfa sig
vei fyrir keppina.
DV-mynd G.Bender
haldið í Svíþjóð um miðjan mars.
Verður spennandi að sjá hvernig
okkur gengur. Ekki er búiö að
ákveða á þessari stundu hveijir fara
fyrir íslands hönd í þessa keppni.
-G.Bender
Dóúrmis-
skilningi
Læknir nokkur var eitt sinn
spurður að því úr hveiju tiltek-
inn maður heföi látist.
„Hann lést úr misskilningi,"
svaraöi læknirínn. „Hann átti
nefhiiega að drekka kaffi meö
litlu af koníakl saman við en
drakk í staðinn koníak með ör-
litlu kaffi út í.“
Síðari heims-
styrjöldin
„Þeir luEtta ekki þessu fjandans
stríði fyrr en þeir eru búnir að
drepa hvor annan,“ sagði gömul
kona i Eyjafirði eftir að hafa
hlustað á fréttir af stríðshörm-
ungum síðari heimsstyrjaldar-
innar.
Fangavörður á Litla-Hrauni
tapaði eitt sinn lyklakippu á
vinnustað sínum. Hann leitaði
lengi að lyklunum en það bar
engan árangur. Þegar hann var
orðinn úrkula vonar um að þeir
fyndust kom hann að máli við
yfirmann sinn og sagði:
„Ég finn hvergi lyklana mína.
Það hljóta að vera þjófar hér í
húsinu.“
Hvarer
penninn?
Læknir einn á stofugangi bað
hjúkranarkonu aö lána sér
penna. Hjúkranarkonan greip til
vasa sins og rétti lækninum hita-
mæli sem þar var.
„Hvað á ég að gera við Iiita-
mæli,“ spurði læknirinn hissa.
„Guð hjálpi mér. Ég hef skiiið
pennann eftir I konunni á númer
Finnur þú fimm breytingai? 89
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Sharp útvarpstæki með
segulbandi að verðmæti
kr. 8.500,-
2. Sharp útvarpstæki með
segulbandi að verðmæti
kr. 8.500,-
Verðlaunin koma frá
versluninni Hljómbæ,
Hverfisgötu 103, Reykjavík
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 89
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir áttu-
gustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. Brynja K. Þórarinsdóttir,
Hvasscdeiti 38,103 Reykjavík.
2. Ármannía Kristjánsdóttir,
Aðalgötu 56, 625, Ólafsfirði.
Vinningarnir verða
sendir heim.