Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 21
LAUÖARD'ÁGUR 19. JANÚAR 1991. 21 DV Vísnaþáttur Alltaf græðir þessi þjóð, þegar skáldin yrkja Eg vona aö enginn hafi tekið Dana- haturssögurnar í síðasta þætti svo að mér hafi þótt undir þær tak- andi. Nú er allt fyrir löngu breytt um hug Norðurlandaþjóðanna hver til annarrar. Saga þeirra er löng og á ýmsu hefur gengið. Síð- ustu áratugi hafa þær allar kapp- kostað að gleyma þeim misjöfnu böggum sem þær áttu hver í ann- arra garði. Nú eru þessar þjóðir allar einn vinahringur, keppast við að bæta fyrir það sem áður var ámælisvert. í skrifum mínum vegna útkomu Gilsbókarinnar um ævi og verk Einars Benediktssonar hef ég haft til hliðsjónar fimm binda útgáfu ísafoldar, sem kom út á árunum milli 1950 og ’60, er þeir Pétur Sig- urðsson háskólaritari og Stein- grímur J. Þorsteinsson prófessoi sáu um. Minningarljóð Það hefur lengi verið siður á ís- landi að kveðja merkisfólk eða látna ástvini með rímuðum eftir- mælum. Oftast er hér um að ræða saknaðar- og minningarorð og fæst þykir ástæða til að birta í ljóðasöfn- um skáldanna. Þó var þetta lengi gert og enn einstaka sinnum þegar vel þótti takast. í Hafblikum Einars Benediktssonar er ljóð tileinkað Steingrími Johnsen sem látinn er síðasta dág janúarmánaðar 1901. Hann var útskrifaður úr Hafnar- háskóla, málamaður og söngkenn- ari, f. 1846. Ég tek hér fyrsta erindi ljóðsins. Ailt, sem á hjarta, ber í sér þrá upp í söngvanna ríki. Herskara drottins sálimar sjá syngjandi engla í líki. Þjóðskáldin þrjú Alltaf var vinátta með þeim þjóð- skáldunum Hannesi Hafstein, Matthíasi og Einari Benediktssyni. í veislu, sem Einar hélt Matthíasi, rétti hann öldungnum silfurbikar, fleytifullan af kampavíni, og fylgdi vísa: Eins og gulli gegnum sáld geislum slær þinn andi. Höfðingja og helgiskáld, hátt þín minning standi. Matthías orti síðar og sendi Einari Bikarrímu og þar stóð: Nýja fossa fjörs og blóðs flyturðu oss með töfrum óðs, nýja blossa lífs og ljóðs, lifi hnoss þíns guðamóðs. Allar gættir opnist þér, allar vættir dugi þér. Hörpuslætti úr höndum mér hruninn mætti fel svo þér. Þetta var 1916. Fjórum árum síðar dó Matthías. Einar liföi tuttugu árum lengur en síðasti áratugur hans og rúmlega það varð honum Vísnaþáttur mjög örðugur. Hjónabandi hans lauk, fjárhagur hans gerðist þröng- ur, heilsan bilaði. Aðdáandi ljóða hans, roskin kona, Hlín Johnson, gerðist forsjá hans og þau fluttust til Herdísarvíkur, afskekktrar eignarjarðar hans. En tvær ferðir gerðu þau til útlanda. Þegar hér var komið hallaði stöðugt undan fæti og kunna allir bókmennta- menn þá sögu. Einar orti eftirmæli um sér ná- komið fólk og með listrænni hætti. Hér eru þó einkenni hans og and- legt fangamark. Rímleikni hans og furðulegt vald á máli kemur og glöggt fram í Ólafs rímu Grænlend- ings sem er ort undir erfiðasta hætti tungunnar, sléttuböndum. Varla mun þar þó lifa nema ein vísa: Falla tímans völdug verk varla faileg baga. Snjalla ríman stuðlasterk stendur alla daga. Síðasta haustiö sem Einar lifði var 1939. Frá þeim tíma munu vera þessar stökur: Þegar Bláland seint ég sá, sár var þrá míns hjarta. Aldrei má ég endursjá undrið háa og bjarta. Eldar hrapa yfir mold, andinn tapar vegi, eilíf gnapir undrafold efst á skapadegi. Og þessi: Stjömur signa hvelin hálf, höfin lygna augum, jörðin skyggnir, sér hún sjálf sunnu stigna af laugum. Frú Hlín taiar og um það í sam- bandi viö þessar vísur hve hug- fanginn Einar geti orðið af aþ sjá undur himingeimsins og stjörnu- hröp. í bréfi, sem frú Hlín Johnson sendi fornvini Einars 5. mars 1931, úr síðari utanfór þeirra, er þessi visa sem Einar hafði þá ort: Dýrmæt eru lýðsins ljóð, landsins von þau styrkja. Alltaf græðir þessi þjóð, þegar skáldin yrkja. Einar dó í Herdísarvík aðfaranótt 13. janúar 1940. Hann varð tæplega 77 ára. Mikið skáld. Örlögin dæmdu hann til harðrar baráttu. Vissulega hafði hann lifað ham- ingjuríka ævi en enginn veit hversu auðmýkjandi breytni sam- borgara og sinnulítillar þjóðar átti hlut að því að svipta hann að lokum reisn. Hann fæddist á stórbýli, eignarjörð foður síns, mikilsvirts þjóðmálaskörungs, átti stórbrotna ástríka móður sem taldi sig verða að hverfa frá manni sínum og syni á viðkvæmu æviskeiði barnsins. Nú dó hann, þjóðskáldið, í skjóli gamallar konu sem unni honum, á eyðijörð afskekktri sem hann að vísu átti sjálfur. Knöpp skáldalaun og atorka gáfaðrar konu hélt í hon- um lífi, ellimóðum og sjúkum. Nú hafði ljósið slokknað. Jón úr Vör Skilafrestur launaskýrslna o.fl. gagna Samkvæmt lokamálsgrein 93. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefurskilafrestur eftir- talinna gagna sem skila ber á árinu 1991 vegna greiðslna o.fl. á árinu 1990 verið ákveðinn sem hér segir: I. Tilogmeð 21. janúar 1991: 1. Launaframtal ásamt launamiðum. 2. Hlutafjármiðar ásamt samtalningsblaði. 3. Stofnsjóðsmiðar ásamt samtalningsblaði. 4. Bifreiðahlunnindamiðarásamt samtalningsblaði. II.Tilogmeð 20. febrúar 1991: 1. Afurða- og innstæðumiðar ásamt samtalningsblaði. 2. Sjávarafurðamiðar ásamt samtalningsblaði. III. Til og með síðasta skiladegi skatt- framtala 1991: 1. Greiðslumiðar yfir hvers konar greiðslurfyrir leigu eða afhot af lausafé, fasteignum og fasteigna- réttindum, sbr. 1. og 2. tölul. C-liðs 7. gr. sömu laga. 2. Gögn frá eignarleigufyrirtækjum þar sem fram koma upplýsingar varðandi samninga sem eignar- leigufyrirtæki, sbr. II. kafla laga nr. 19/1989, hafa gert og í gildi voru á árinu 1990 vegna fjár- mögnunarleigu eða kaupleigu á fólksbifreiðum fyrir færri en 9 manns. M.a. skulu koma fram nöfn leigutaka og kennitala, skráningarnúmer bifreiðar, leigu- tímabil ásamt því verði sem eignarleigufyrirtæki greiddi fyrir bifreiðina. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI SKEMMTISKRBPP UM HELGI TIL... Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Krlnqlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 6 90 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum FÍugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum HELGARFERÐ LAUGARD AGUR TIL ÞRIÐJUD AGS HOSPITALITYINN TVEIR í HERB. KR. 27.680 Á MANN FLUGLEIÐIR Þjónusta alla leið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.