Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 42
«0 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. Merming ,/Bráttverður alltbjart" Gangan langa er þriöja ljóðabók Normu Samú- elsdóttur en áöur hefur hún sent frá sér skáld- söguna Næst síðasti dagur ársins (1978), og ljóöabækurnar, Tréð fyrir utan gluggann minn (1982) og Marblettir í regnbogans litum (1987). í Göngunni löngu er að finna 63 ljóö sem öll fjalla um síðustu daga gamallar konu sem skynj- ar aö lífi hennar er brátt lokið: jökullinn heilsar henni og sumrinu gengur enn haltrandi horfir miðnæturbirtuna gegnum glært glerbrot ein í íjöru gangan langa senn á enda gangan senn á enda (Gangan langa) Ljóöin eru öll kennd viö göngu, heita Fyrsta gönguferð, önnur gönguferð, Þriðja gönguferð, Tuttugasta ferð með gangastúlku o.s.frv., og hver ganga mjakar konunni nær dauðanum. Hún færist frá einu sviði til annars, eilíflega hrædd um aö misstíga sig, alltaf hrædd um aö komast ekki heim. Hugsanir hennar eru eins og litlir flögrandi fuglar, staldra stutt við á hverjum staö þar sem hún ráfar um göturnar og hugleiðir líf sitt og tilveru. Hugurinn reikar til og frá, dvelur um stund á sjúkrahúsi eða í kirkju eöa viö löngu horfna daga þegar návist hennar hafði eitthvað aö segja. Hún þráir þetta undursamlega líf sem hún eitt sinn tók þátt í af lífi og sál, skynjar fremur en finnur aö hún er ennþá til og langar að vera. Tilfmningarnar eru sveiflukenndar og breytast frá einu ljóði til annars. Stundum er konan glöð og finnst lífið vera eins og lítið fallegt ljóð en fyrr en varir fyllist hún trega og óþoli. Af fullum þunga hvolf- ist yfir hana sú vissa aö áhyggjuleysi og heil- brigði æskunnar er aö baki: Eins og lítil lömb hlaupa þau úr skólastofunni hoppa og skoppa og kasta einum tveimur snjókúlum ó frelsi ó frelsi hækjurnar stara láréttar Norma E. Samúelsdóttir. Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir og bíöa Mikið er leiðinlegt að ganga ekki heil og finna til Asnalegt vitlaust asnalega vitlaust og hún horfir annars hugar framhjá samverumönnum sínum æ hvers vegna (Þrftugasta ferð með hlaupandi skóla- börnum) Stíllinn á ljóðabók Normu Samúelsdóttur er einfaldur og tilgerðarlaus og gjarnan má heim- færa uppsetningu ljóðanna beint upp á hugar- ástand konunnar sem er brotakennt, íjarlægt og hreint ekki átakalaust. í myndmálinu býr óskin um frelsi, líf án fjötra. Hækjan er tákn sjúkleika og elli og aftrar konunni frá því að gera það sem hún þráir heitast, að hlaup um, klífa fjöll, gera það sem hún hefur ekki enn feng- ið aö gera, vera frjáls. Konan fylgist angurvær með flugi fuglsins um himininn þar sem hún situr alein við hafið og kemst hvergi. Hún er fangi löngunar sinnar líkt og flugan sem gengur upp og niður rúðuna og vill út í vorið sem er svp ótrúlega stutt. Á einlægan hátt er í Göngunni löngu fjallað um vandamál ellinnar, sársaukann sem gjarnan fylgir því að vera ekki lengur „fullkominn" þátt- takandi í lífinu, veikindi, einmanaleika og ót- tann við dauðann sém oft felur samt í sér von- ina um nýtt og betra líf: Horfir enn gimsteinana á himni Brátt verður allt bjart Og hún á fórum (Sextugasta og fyrsta ganga án hækju) Norma Samúelsdóttir. Gangan langá mgju með af- mælið 19. janúar 90 ára Eirikur Stefánsson, Dalbraut 18, Reykjavík. 80ára Kamila Þorsteinsdóttir, Viðilundi 20, Akureyri. 70ára SigurðurR. Pétursson, Þingholtsbraut 67, Kópavogi. Brynhildur Olgeirsdóttir, Hátúni 17, Reykjavík. 60 ára Guðmundur Snorrason, Gnoðavogí 67, Reykjavík. Stefón Jónsson, Laufvangi 2, Hafnarfirði. Margrét Aðalsteinsdóttir, Auðnuml, Öxnadalshreppi. 50 ára Guðmundur Gíslason, Stapaseli 12, Reykjavík. Ester Bára Sigurðardóttir, Rauðamýri 19, Akureyri. Þorbjörg Magnúsdóttir, Brúarflöt4, Garðabæ. Guðríður Fj óla Ólafsdóttir, Borgarheiði 19H, Hveragerðí. Ásta Kristjánsdóttir, Grenigrund 18, Akranesi. Jóhannes Gíslason, Hafhargötu67, Keflavík. 40ára Sigþóra Bára Ásbjörnsdóttir, Hagalandi 5, Mosfellsbæ. Theodóra I. Albertsdóttir, Snorrastöðum IV, Norðfjarðar- hreppi. Studioblóm ÞönglabaKKa 6 Mjódd, sími 670760 Blóm og skreytingar. Sendingarþjónusta. Munið bláa Kortið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.