Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 42
«0
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991.
Merming
,/Bráttverður
alltbjart"
Gangan langa er þriöja ljóðabók Normu Samú-
elsdóttur en áöur hefur hún sent frá sér skáld-
söguna Næst síðasti dagur ársins (1978), og
ljóöabækurnar, Tréð fyrir utan gluggann minn
(1982) og Marblettir í regnbogans litum (1987).
í Göngunni löngu er að finna 63 ljóö sem öll
fjalla um síðustu daga gamallar konu sem skynj-
ar aö lífi hennar er brátt lokið:
jökullinn heilsar
henni og sumrinu
gengur enn haltrandi
horfir miðnæturbirtuna
gegnum glært glerbrot
ein í íjöru
gangan langa
senn á enda
gangan
senn
á
enda
(Gangan langa)
Ljóöin eru öll kennd viö göngu, heita Fyrsta
gönguferð, önnur gönguferð, Þriðja gönguferð,
Tuttugasta ferð með gangastúlku o.s.frv., og
hver ganga mjakar konunni nær dauðanum.
Hún færist frá einu sviði til annars, eilíflega
hrædd um aö misstíga sig, alltaf hrædd um aö
komast ekki heim. Hugsanir hennar eru eins
og litlir flögrandi fuglar, staldra stutt við á
hverjum staö þar sem hún ráfar um göturnar
og hugleiðir líf sitt og tilveru. Hugurinn reikar
til og frá, dvelur um stund á sjúkrahúsi eða í
kirkju eöa viö löngu horfna daga þegar návist
hennar hafði eitthvað aö segja. Hún þráir þetta
undursamlega líf sem hún eitt sinn tók þátt í
af lífi og sál, skynjar fremur en finnur aö hún
er ennþá til og langar að vera. Tilfmningarnar
eru sveiflukenndar og breytast frá einu ljóði til
annars. Stundum er konan glöð og finnst lífið
vera eins og lítið fallegt ljóð en fyrr en varir
fyllist hún trega og óþoli. Af fullum þunga hvolf-
ist yfir hana sú vissa aö áhyggjuleysi og heil-
brigði æskunnar er aö baki:
Eins og lítil lömb
hlaupa þau
úr skólastofunni
hoppa og skoppa
og kasta
einum
tveimur
snjókúlum
ó frelsi
ó frelsi
hækjurnar
stara
láréttar
Norma E. Samúelsdóttir.
Bókmenntir
Sigríður Albertsdóttir
og bíöa
Mikið
er
leiðinlegt
að
ganga
ekki
heil
og
finna
til
Asnalegt
vitlaust
asnalega vitlaust
og hún horfir
annars hugar
framhjá
samverumönnum
sínum
æ hvers vegna
(Þrftugasta ferð með hlaupandi skóla-
börnum)
Stíllinn á ljóðabók Normu Samúelsdóttur er
einfaldur og tilgerðarlaus og gjarnan má heim-
færa uppsetningu ljóðanna beint upp á hugar-
ástand konunnar sem er brotakennt, íjarlægt
og hreint ekki átakalaust. í myndmálinu býr
óskin um frelsi, líf án fjötra. Hækjan er tákn
sjúkleika og elli og aftrar konunni frá því að
gera það sem hún þráir heitast, að hlaup um,
klífa fjöll, gera það sem hún hefur ekki enn feng-
ið aö gera, vera frjáls. Konan fylgist angurvær
með flugi fuglsins um himininn þar sem hún
situr alein við hafið og kemst hvergi. Hún er
fangi löngunar sinnar líkt og flugan sem gengur
upp og niður rúðuna og vill út í vorið sem er
svp ótrúlega stutt.
Á einlægan hátt er í Göngunni löngu fjallað
um vandamál ellinnar, sársaukann sem gjarnan
fylgir því að vera ekki lengur „fullkominn" þátt-
takandi í lífinu, veikindi, einmanaleika og ót-
tann við dauðann sém oft felur samt í sér von-
ina um nýtt og betra líf:
Horfir
enn
gimsteinana
á himni
Brátt verður
allt
bjart
Og
hún
á
fórum
(Sextugasta og fyrsta ganga án hækju)
Norma Samúelsdóttir.
Gangan langá
mgju
með af-
mælið
19.
janúar
90 ára
Eirikur Stefánsson,
Dalbraut 18, Reykjavík.
80ára
Kamila Þorsteinsdóttir,
Viðilundi 20, Akureyri.
70ára
SigurðurR. Pétursson,
Þingholtsbraut 67, Kópavogi.
Brynhildur Olgeirsdóttir,
Hátúni 17, Reykjavík.
60 ára
Guðmundur Snorrason,
Gnoðavogí 67, Reykjavík.
Stefón Jónsson,
Laufvangi 2, Hafnarfirði.
Margrét Aðalsteinsdóttir,
Auðnuml, Öxnadalshreppi.
50 ára
Guðmundur Gíslason,
Stapaseli 12, Reykjavík.
Ester Bára Sigurðardóttir,
Rauðamýri 19, Akureyri.
Þorbjörg Magnúsdóttir,
Brúarflöt4, Garðabæ.
Guðríður Fj óla Ólafsdóttir,
Borgarheiði 19H, Hveragerðí.
Ásta Kristjánsdóttir,
Grenigrund 18, Akranesi.
Jóhannes Gíslason,
Hafhargötu67, Keflavík.
40ára
Sigþóra Bára Ásbjörnsdóttir,
Hagalandi 5, Mosfellsbæ.
Theodóra I. Albertsdóttir,
Snorrastöðum IV, Norðfjarðar-
hreppi.
Studioblóm
ÞönglabaKKa 6
Mjódd, sími 670760
Blóm og
skreytingar.
Sendingarþjónusta.
Munið bláa Kortið.