Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Side 11
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 1991. 11 íslenskur sérfræðingur í klínískum forvömum: Kennir Norð- mönnum betri lífsstíl „Eftir því sem ég best veit er ég annar tveggja einstaklinga á Noröur- löndum sem hef lokið sérfræðinámi i klínískum forvörnum í læknis- fræði. Þaö er til forvarnarstarf í læknisfræði svo sem bólusetningar og annað það sem unnið er af land- læknisembættinu. Hins vegar er það klínisk fyrirbyggjandi læknisfræði þegar maður vinnur á venjuiegu sjúkrahúsi eða stofu og reynir að hjálpa sjúkiingum sem eiga við lífs- stílssjúkdóma að stríöa," sagði Snorri Ólafsson læknir í samtali við DV en hann hélt fyrirlestra um starfssvið sitt hér á landi fyrir skömmu. Snorri býr í Noregi og starfar þar við fagið og hefur vakið mikia athygli í fjölmiðlum þar. Sjálf- ur lifir Snorri lífi sem myndi kallast fyrirbyggjandi gagnvart lífsstílssjúk- dómum. Hann er grænmetisæta, drekkur ekki áfengi, hleypur mara- þon, hjólar og syndir. Snorri var í námi í Bandaríkjunum, Suður-Kali- forníu, og segir hann að þar sé að vakna mikill áhugi meðal fólks aö lifa heilbrigðara lífi. Snorri hafði áhuga á að koma hingað heim eftir nám. sem hann lauk haustið 1989, en þar sem engin staða var til fyrir hann sneri hann til Noregs. „Það er ágætt að vera kominn með starfsreynslu þegar ég kem heim.“ Hópmeðferð virkar best Snorri er auk þess meltingafæra- sérfræðingur og liefur gegnt þvi starfi til hálfs við starf sitt. „Við höf- um verið með hópa í meðferö og það hefur gengið mjög vel. Það eru sjúkl- ingar sem eru með of hátt kólester- ól. Það er alveg nýtt í Noregi að slík- ir sjúklingar séu teknir í hópmeð- ferð. Venjulegast er þetta eintal læknis og sjúklings,“ segir Snorri. „Þegar maður vinnur meö sex til átta manns í einu getur maður gefið þeim betri tíma, meiri fræðslu og svo myndast auðvitað samvinna þeirra sem er til góðs.“ - En eru ekki tengsl á miili melting- arfæra- og lífstílssjúkdóma? „Jú. í Bandaríkjunum eru það yfir- leitt hjartalæknar sem fást við of hátt kólesteról og þess háttar en í Noregi eru það meltingarfærasér- fræðingar.'1 - Hváð ráðleggur þú fólki helst? „Það fer auðvitað mest eftir við hvaða sjúkdóma er aö glíma. Vissa sjúkdóma má hafa áhrif á með lifs- stíl, t.d. kransæðasjúkdóma, offitu, sykursýki, háan blóðþrýsting og hátt kólesteról. Það er ýmislegt fleira en þetta ér það helsta sem má benda á.“ - Á fólk að breyta mataræði sínu? „Eins og um hefur veriö talað í mörg ár er það fyrst og fremst að hætta að reykja og ekki drekka of mikið. Stunda líkamsrækt og fæðið hefur einnig gífurlega mikið að segja, borða lítið af mettaðri fitu, meira grænmeti, meira af grófu korni, belg- jurtum svo sem sojabaunum, linsu- baunum og hrísgrjónum." Mikill áhugi fjölmiöla Viðtöl hafa birst við Snorra Ólafs- son í norskum blöðum og þau jafn- framt hvatt til heilnæmara lífernis. Snorri segir að gífurlegur áhugi sé að vakna í Noregi á betra lífsstíl. „Ég hef varla undan því fólk er alltaf að biðja mig um fyrirlestra, viðtöl og hvaðeina. Annars skiptist þetta alltaf í tvo hópa, annars vegar þá sem vilja lifa heilbrigðu lífi og svo hina sem kjósa frekar lyf og uppskurði og helst að breyta ekki neinu. Læknar eru þar engir eftirbátar. Blöðin og einnig útvarpsstöð hafa sýnt þessu áhuga og hafa óskað eftir að fá að vera með í hópvinnunni, t.d. með því að taka viötöl. Einnig hefur verið óskað eftir greinum frá mér,“ segir Snorri. - Hér á landi hefur verið mikill áhugi fyrir betri lífsstíl undanfarin ár og heilsuæði nánast gripið um sig. Getur verið að sá áhugi sé á undan- haldi? „Þegar ég var í læknisfræði í Há- ' skóla íslands voru tveir læknar, Ár- sæll Jónsson og Bjarni Þjóðleífsson, sem töluðu mikið um betri líffsstil. Þá breyttist meðal annars brauðgerö á íslandi og úrvalið varð meira af grófum brauðum. Ég fæ alltaf DV sent til mín og fylgist með umræð- unni heima ogmér finnst vanta post- ula núna á íslandi sem virkilega standa upp og minna á þetta. Það þarf að vera með stöðugan áróður um betri lífsstíl, annars gleymist hann. Sömuleiðis þarf þessi áróður að vera hluti af starfsemi heilsu- gæslustööva.“ Grænmetisæta ítólfár Snorri segist hafa verið grænmetis- æta í tólf ár og þó hann hafi ekki endilega fundið mikla breytingu á sér telur hann það koma sér til góðs í sambandi við líkamsrækt. „Þolið verður miklu betra og mun minni hætta á sjúkdómum síðar meir. Kól- esterólið lækkar og áhættuþættirnir batna,“ segir hann. Snorri er auk þess að berjast fyrir betri lífsstíl Norðmanna að vinna að rannsóknarverkefni þar í landi. Sú rannsókn beinist að því að skoða ed í SS-vegetar im m iasm$m~ pttn Oíöfwtt- Ikkn mknfriii Spáng®? msmm, nfklm ly&mnw gár pá tkt éá- ?o skmairmmn tr í ktl&tek fo- mmM&rn, Hwor* iOkdmm m tiwn mm Há tsr hmr mk&mmM TSSI *kím, mpÆ&tmk fúnr hm I mims m ár i tmrnMk’mQ®? Ö * tes- om kiyMtikwn i m mm rmkk mmínfc 0$ úmmrn mimi ftaHpmim m for Oktfs- SList,‘ islifi’- rfrikkt. M&lwl’ ■m-ríc&íhtg'inwn mnSpoMkn . M>%, úsk mnkn 'km&úlitet- er iá&vm. Oon ttorSfcr teísíR&ííáslrosfeíj tsi síof bidfögsvk’? Ut éeimom sa* jíiUéz v.>?a ih-hitnw- ngkms-yÍL" i’nrniii áea&K fcvátáffs- mi, avíeirioief i bhúk- W iíi hjssit, íýeme- víw£otí$aw. Dett’pwrötetaa- • úsr 508» s ssör gra4 &#r sam-*- nmár&Q meá ik'nniri - kmikáki fsíjSsánjt' mmmn v. SMimrí vi hoe wá arxi p&M&tteu aclv víí, —• Fiif ij, 'nu gi$. vj spíse • hva? Mem pnicj ag nnrrc g.mtmsa- ;.,Vr iikut ém eakeltMtmao «ms vi vetfö’ mrsí sfcfeáeti&' Ingj/sa IttftjS! vtt fcttsae öjdiW *?* jwyker tA cn bedra ssáíe esn á ö. kommettiie iií & Uvwtiteiwapi fsptœfcyggmíe er nn apesíattiet kvm sp&ÁH&iiAm ÍV#r- sökvr & fcrttttttire syktfeya* isivéSw seg bös fóske mmnxs- hss, eScf iágea íörsafeer á sykiiöít? pá ri tídiig stodittttt vrirski treittíteies er tfikí’k á behttBíUe 4m. Mawge wúa m&Qfhstsrt mm grivettáes tttttmíor fcmbyggí’ttiii- meðmn. Snorri Ólafsson hefur vakið mikla athygli i Noregi fyrir störf sín i fyrirbyggjandi læknisfræði. Hann er annar tveggja lækna á Norðurlöndum sem sérhæft hafa sig i fyrirbyggjandi klínískum forvörnum. Einkunnarorð hans eru betri lífsstíll. ættingja þeirra sem fengið hafa ristil- krabbamein. Með rannsókninni er annars vegar verið að kanna erfða- þætti og hins vegar hvað sé hægt að gera til að koma í veg fyrir ristil- krabbamein ættingja. „Ristilkrabba- mein er einnig ört vaxandi á íslandi svo ég býst viö að rannsóknar sé þörf þar líka,“ segir Snorri. í viötali, sem birtist við Snorra í norska blaðinu TA, segir hann að Norðmenn borði fremur óholla fæðu. Of mikil fita sé í mat þeirra en þeir hafi þó aukið neyslu á grófu brauði hin síðari ár. Og það sem Snorri mælir með er minna kjöt og fiskur, miklu meira af grænmeti og ávöxt- um, pastaréttum og kartöflum og grófu brauði. Þetta á jafnt við um Norðmenn sem íslendinga. -ELA Þjóðleg freisting! pORRA* WIATOB Tilvalið fyrir hópa! \feitingahúsið Aðeins kr. 1.590,- __A.HANSEN Vetturgölu 4 (gegnt Strandgötu) s: 651130

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.