Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 9
Wf HA'lWrf'! :: HUDAflHA-OrJA;J LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991. 9 Þegar Japanir böröust viö Kínverja árin 1937-42 beittu þeir fyrmefndum gassprengjum í nokkur skipti. Gasi var þó aldrei beitt í miklum mæli en haföi talsverð áhrif því Kínverjar eins og Eþíópíumenn gegn ítölum voru algjörlega varnarlausir gegn vopnum af þessu tagi. Sýklahernaður Sýklahernaður, þar sem bakteríum eða gerlum er beitt gegn óvinum í hemaðarlegum tilgangi, er mun sjaldgæfari. Vitað er að stórveldin og fleiri þjóðir hafa á síöustu áratug- um gert tilraunir með sýklahernað af ýmsu tagi og þróað ýmis vopn til þeirra nota. Slíkar rannsóknir hafa þó eðli málsins samkvæmt farið afar leynt og verið framkvæmdar í skjóli fælingarkenningarinnar, þ.e. að til- vist vopnanna sé ógnun og vörn gegn árásum í sjálfu sér. Hernaður og sjúkdómar hafa iðu- lega átt samleið í gegnum söguna. Plága herjaði á hermenn við hliö Jerúsalemsborgar til forna, Márar á Spáni börðust við taugaveiki og nið- urgangur og matareitrun felldi her- menn Napóleons í herförinni gegn Rússum. í Búastríöinu féllu fleiri hermenn úr taugaveiki en fyrir kúl- um. Þó þessi dæmi verði að teljast til slysa eru mörg dæmi um tilraunir til þess að að hafa áhrif á framgang hernaðar með sýklum. Til forna hentu menn líkum þeirra sem létust úr sjúkdómum inn fyrir múra um- setinna borga. Amerískum indíánum voru sendar ábreiður sem báru með sér bólusótt- arveiru gagngert til þess að veikja baráttuþrek þeirra. í fyrri heims- styrjöldinni sendu Þjóðverjar sýkt hross til herja Rúmeníumanna sem tóku þátt í stríðinu og sýktu enn- fremur nautgripi sem átti aö-senda herjum bandamanna til viðurværis. Japanir voru ásakaðir um að hafa beitt sýklahernaði gegn Kínverjum á fjórða áratugnum en þær ásakanir voru aldrei staðfestar, né heldur svipaöar ásakanir Kóreumanna á hendur bandamönnum í Kóreustríð- inu. Helstu ógnvaldar af þessu tagi, sem menn óttast að beitt verði í átökun- um við Persaflóa, eru annars vegar eitur af tegundinni Clostridium Bot- ulinum. Hér er á ferðinni eitur sem þekkt veira framleiðir og veldur dauðsföllum af matareitrun. „Þetta er eitur, sem er raunar prótín, sem veiran gefur frá sér,“ sagði Franklín Georgsson, sérfræð- ingur hjá Hollustuvernd ríkisins, í samtali við DV. „Sennilega er þetta eitt sterkasta taugaeitur sem til er í heiminum. Til eru skjalfest dæmi um að maður hafi látist af því að borða eina baun úr baunadós þar sem veira þessi hafði þroskast." Franklín sagði að eðli málsins sam- kvæmt væri lítið vitað um hve öflug- um afbrigðum stórveldin réðu. Hann taldi þó að erfitt væri að beita eitri af þessu tagi þar sem það væri við- kvæmt fyrir hitastigi og vindátt og fleiri umhverfisþáttum. Hins vegar óttast menn smitandi bakteríur sem valda ákveðnum sjúk- dómum og hefur veiran, sem veldur miltisbrandi, einna helst verið nefnd. Miltisbrandur er bráðdrepandi sjúk- dómur sem leggst á búfénað og menn geta auðveldalega smitast. Veiran getur lifað í jarðvegi árum saman og haldið áfram að sýkja búfé. Miltisbrandur í rakburstum Litlu munaði aö miltisbrandsfar- aldur brytist út meðal hermanna bandamanna í fyrri heimsstyrjöld- inni. í ljós kom að sýkingin barst með rakburstum framleiddum í Jap- an. Fjöldi óbreyttra borgara sýktist af sömu orsökum. Hægt er að lækna miltisbrand á byrjunarstigi með fúkkalyfjum. Ljóst má vera að sýklahernaði er hægt að beita á margvíslegan hátt og erfitt getur verið að átta sig á því hvort um er að ræða hernaðarað- gerðir eða náttúrulega sjúkdóma. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.