Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 2. FEBRUAR 1991. Hinhlidin Stefnan ligg- uruppávið - segir Pétur K. Pétursson kaupmaður Kjötbúr Péturs hefur um árabil veriö til húsa á Laugavegi 2 í þröng- um húsakynnum sem eru þó stór því margt góðgætið leynist þar inn- an veggja. Þessi litla kjötbúð í al- faraleið hefur heldur betur fært út kvíarnar því á fimmtudaginn var opnað útibú frá Kjötbúri Péturs í Austurstræti 17. Þar hefur í áratugi verið verslun. Silli og Valdi ráku á sínum tíma eina flnustu raatvöru- verslun bæjarins i Austurstræti 17 og verslunin Víðir var starfrækt þar um árabil. Nú er Pétur sestur að í Austurstrætinu með sitt útibú og er það óneitanlega nokkuð sér- stætt að útibúið er trúlega flórum sinnum stærra en höfuðstöðvarnar sem áfram verða á Laugavegi 2. Við fengum Pétur til þess að sýna á sér hina hliðina. Fullt nafn: Pétur K. Pétursson. Fæðingardagur og ár: 28. febrúar 1953. Maki: Anna S. Einarsdóttir. Börn: Ásdís 17 ára, Dagmar 10 ára ogtveirhamstrar. Bifreið: Audi, árgerð 1981. Starf: Verslunarmaður. Laun: Það veit ég ekki ennþá. Þau standa og falla með atkomunni. Áhugamál: Silungsveiði ogrjúpna- veiði og reyndar öll veiði er það skemmtilegasta sem ég geri. Hvað hefur þú fengið margar réttai- tölur í lottóinu? Þrjár minnir mig. Ég spila reyndar afar sjaldan í happdrættum. Hvað fmnst þér skemmtilegast að gera? Mér flnnst mest gaman að veiða ijúpu. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að þurrka leirtau. Ég vil miklu frekar vera 1 sjálfu upp- vaskinu. Uppáhaldsmatur: Rjúpur ogsvart- fugl, steikt með minni eigin aðferð. Uppáhaldsdry kkur: Kampavín, Dom Péringon, en það fæ ég ekki nema viö hátíðlegustu tækifæri. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Meistara- hópur stúlkna í fimleikadeild Ár- manns. Uppáhaldstimarit: Sportveiðiblað- ið. H ver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Ég gef alls ekkert upp um það. Það kemur ekkitilmála. Ertu hlynntur eða andvigur ríkis- stjórninni? Ég vil ekkert segja um það. Éghugsaekkert um pólitík, er alveg gj örsamlega ópólitískur. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Agúst Sigurðsson. Hann er rafvirkinn minn. Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson. Uppáhaldsleikkona: AnjelicaHus- ton. Uppáhaldssöngvari: Mick Jagger. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Oss- ur Skarphéðinsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Línan finnst mér langbest. Uppáhaidssjónvarpsefni: Það er einna helst að ég horfi af áhuga á íþróttir. Ertu hlynntur eða andvigur veru varnarliðsins hér á landi? Þeir hafa ekkert angrað mig svo ég býst við að mér sé alveg sama. Hver útvarpsrásanna fmnst þér best? Aðalstöðin og Rás 2 er það sem ég hlusta helst á og líkar vel. Uppáhaldsútvarpsmaður: Stefán Jón Hafstein sem sér um Þjóðarsál- inaerbestur. Hvort horfir þú meh'a á Sjónvarpið eða Stöð 2? Ætli það sé ekki álíka mikið. Ég veit oft ekkert á hvora stöðina ég er að hor fa þá sjaldan aö égsestniður. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Helgi Pétursson þó hann sé hættur á skjánum fbili. Uppáhaldsskemmtistaður: Gott matarboð í heimahúsi, þar skemmti ég mér best. Uppáhaldsfélag í iþróttum: í augna- blikinu er það Fylkir. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að halda þessum rekstri i horfinu og helst að láta leiöina liggja upp á við en ekki nið- ur. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Þaö er alveg á hreinu að ég fæ ekkerteiginlegt sumarfrí. Ég kemst örugglega í veiði eina ogéina helgi en það verður að duga. -Pá VETRARTILBOÐ HAFIÐ SAMBAND I SÍMA 91-61-44-00 BÍLALEIGA ARNARFLUGS NYTT 6 vikna STREET DANCING námskeió aó hefjast 11. febr. fyrir börn og unglinga. D A N C I N G ... er meiri háttar dans SMsr D A N C I N G ... er meiri háttar hreyfing Allir eru aó dansa STREET DANCING í dag. Ef þú veist ekki hvaó STREET DANCING er þá bjóóum vió upp á frían kynningar- tíma föstudaginn 8. febr. kl. 18.15. Innritun hefst mánudaginn 4. febr. kl. 12.00 í síma 687701 og 687807. SÓLEYJAR ^ Engjateigi-1,-S;-687701-687807 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.