Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 2.VFEBRÚAR-1991. Skák Einvígin um réttinn tí.1 aö skora á heimsmeistarann Garrí Kasparov árið 1993 eru nú í fullum gangi en einu er þegar lokið. Sovétmaðurinn Vassily Ivantsjúk, sem margir telja líklegt áskorendáefni, fór létt með landa sinn Leonid Judasin. Ivant- sjúk gerði sér lítíð fyrir og vann fjórar fyrstu skákirnar og jafntefli í þeirri fimmtu tryggði honum sig- urinn. Tefldar eru átta skákir í þessari fyrstu lotu einvígjanna sem fjórtán stórmeistarar taka þátt í. Að þeim loknum standa sjö kappar eftir og Anatoly Kafpov bætist í hópinn. Þessir heyja síðan einvígi þar til næstí áskorandi er fundinn. Hollendingurinn Jan Timman átti ekki sjö dagana sæla í æfinga- einvígi við Yasser Seirawan um jólin en þvert ofan í spádóma margra virðist hann ætla að hafa Þjóðverjann Robert Hubner undir í einvigi þeirra sem fram fer í Sarajevo í Júgóslavíu. Timman hefur 3,5 v. gegn 1,5 v. Hubners - nægir einn vinningur til viðbótar til sigurs. Sovétmaðurinn Boris Gelfand og Júgóslavinn Predrag Nikolic tefla einnig í Sarajevo og þar var staðan jöfn eftir fimm skák- ir. Jafnt er í einvígi Kortsnojs við Sax eftir sex skákir en sá gamli verður nú að láta sér nægja að blása tóbaksreyknum á körfubolta og svampdýnur. Sviptingar í áskorendaeinvígjunum: Ævintýralegur tímahraks- dans Kortsnojs við Sax Þá hefur Indverjinn Anand held- ur betur tekið á sprett gegn Sovét- manninum Dreev en þeir tefla í heimalandi þess fyrrnefnda. An- and breytti stöðunni í 3,5 - 1,5 með sigri í 4. og 5. einvígis- skákinni. Svo óheppilega vildi til að land- arnir Nigel Short og Jonathan Speelman þurftu að berja hvor á öðrum í annað sinn í áskorenda- keppninni. í fyrra hafði Speelman betur en nú gætí dæmið snúist við. Short vann fyrsty skákina auðveld- lega með svörtu eftir slaka tafl- mennsku Speelmans. Nú stendur 2-1 Short í vil. í Wijk aan Zee eigast við Sovét- mennimir Dolmatov og Jusupov annars vegar og Ungveijinn Sax og Viktor Kortsnoj hins vegar. Dolmatov hefur vinning á Jusupov, 3,5 gegn 2,5, en einvígi þeirra er þungt, svo að „plógfórin sjást á skákborðinu". Þeir gjörþekkja hvor annan enda eru báðir aldir upp í faömi skákþálfarans kunna Marks Dvoretskijs. Viktor Kortsnoj, andstæðingur Jóhanns frá síðustu áskorenda- keppni, og Guyla Sax heyja grimmilega baráttu. Báðir eru þekktir fyrir að sólunda tíma sín- um ótæpilega og þarf því ekki aö koma á óvart að tímahraksdansinn setur mark sitt á einvígið. Kortsnoj komst yfir en Sax jafnaði í sjöttu skákinni er báðir þurftu að ljúka tíu leikjum á innan við mínútu! Þetta var heppnissigur Saxa, sem kom fótgönguliðum sínum gegn- um víglínuna þrátt fyrir mann- fall. Þess má geta aö reykingabann er á mótum á vegum alþjóðaskáksam- bandsins, FIDE, og Kortsnoj getur því ekki „svælt Sax út af borðinu" eins og hann reyndi hér um árið gegn Jóhanni. Teflt er í stórum íþróttasal í Sjávarvík en Kortsnoj deyr ekki ráðalaus. Fregnir herma að hann laumi sér milli þiija inn í ofurlitla kompu, þar sem íþróttaá- höld ýmiss konar eru geymd. Þar situr hann milli leikja og blæs reyknum á körfubolta og svamp- dýnur. Skoðum sjöttu einvígisskákina, þar sem úrslit réðust í ævintýraleg- um tímahraksdansi: Hvitt: Guyla Sax Svart: Viktor Kortsnoj Petrovs-vörn 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 Be7 6. Bd3 d5 7. 0-0 0-0 8. c4 Rf6 9. h3 dxc4 10. Bxc4 Rbd7' 11. Rc3 Rb6 12. Bb3 Rbd5 13. Hel c6 14. Bg5 Be6 15. Hcl He8 16. Re5 Rd7 17. Bxe7 Hxe7 18. Re4 Rf8 19. Rc5 De8 20. Df3 Hd8 1. stöðumynd Hvítur á virka og fallega stöðu én það virðist ekki hlaupið að því að bijótast gegnum traust tafl svarts. Sax gerir nú glæfralega en athyglisverða vinningstilraun, lík- lega í ljósi þess að Kortsnoj var búinn að eyða miklum tíma. 21. Rxb7!? Hxb7 22. Rxc6 Flétta Sax lofar góðu, því aö ef hrókur svarts á d8 víkur, fellur á d5 og hvítur vinnur manninn aftur og tvö peð að auki. Eða ef 22. - Rf6 23. Bxe6 Rxe6 24. Rxd8 og hrókur- inn á b7 er valdlaus. En Kortsnoj á einfalda leið út úr ógöngunum. 22. - Hxb3! 23. Dxb3 Hd7 Hrókur og tvö peð gegn tveimur léttum mönnum og allt getur gerst. Nú var tími Kortsnojs að fjara út en Sax átti um 5 mínútur eftir fram að tímamörkunum við 40. leik. 24. Da3 Da8 25. b4 Rg6(?) Betra er 25. - Db7. Hvítur nær nú að þrengja að svörtum á drottn- ingarvæng. 26. b5 h6 27. Df3 Db7 28. Hc5 Rf6 29. a4 Bd5 30. Dg3!! Skák Jón L. Árnason Nú var Sax einnig alveg að falla á tíma og allir héldu aö nú hefði hann leikið af sér - ekki séð næsta leik Kortsnojs sem vinnur lið. Það ótrúlega er að þessi „afleikur" vinnur skákina! 30. - Re4 31. Db8+ Dxb8 32. Rxb8 Rxc5 33. He8+! Kh7 34. dxc5 He7 35. Hxe7 Rxe7 36. a5 2. stöðumynd Svartur á manni meira en ekki er að sjá að hann fái stöðvað hvítu peðin með góðu. T.d. 36. - Bc4 37. b6 axb6 39. cxb6 Rc8 40. Rd7 Rd6 41. Rc5 og næst 42. a6 og hvítur ætti að vinna. Var þetta heppni í stöðunni hjá Sax, eöa sá hann þetta fyrir á sekúndubroti er hann lék 30. Dg3? 36. - Kg6 37. a6 Rc8 38. Rd7 Kf5 39. b6 Re7 40. bxa7 Rc8 41. Rb6 Rxa7 42. Rxd5 Ke5 43. Re3 h5 44. Kh2 g6 45. Kg3 Kd4 46. Kf4 f6 47. g4 Og Kortsnoj gafst upp. Piket eftir í Sjávarvík Eftir tíu umferðir af þrettán á alþjóðlega mótinu í Wijk aan Zee í Hollandi var hollenski stórmeistar- inn Jeroen Piket óvænt efstur með 7 v. í 2. sæti var John Nunn með 6.5 v., Adams, Khalifman og Salov höföu 6 v„ Seirawan og Tsjernín 5.5 v„ Curt Hansen 5 v. og biðskák, Fedorowicz, Lautier, Sokolov og van der Wiel 4 v„ Kozul 3 v. og bið- skák og Helgi Ólafsson hafði 2,5 v. Helgi byrjaði vel á mótinu, vann Lautier í fyrstu umferö og gerði síðan jafntefli við Sokolov og Tsjemín. En síðan hefur allt gengiö á afturfótum og Helgi aðeins gert eitt jafntefli í sjö umferöum. „Mesta óstuö ævi minnar,“ sagði Helgi í stuttu spjalli við DV. Piket vann Adams í tíundu um- ferð í aðeins nítján leikjum og klöppuðu áhorfendur honum lof í lófa enda skákin glæsileg. Adams átti fallega skák í síðasta helgar- blaði en nú situr hann í sæti þo- landans. Hann féll í þekkta byrjun- argildru með þessum afleiðingum: Hvítt: Michael Adams Svart: Jeroen Piket Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 d6 5. c3 f5!? Upphafsmaður þessa bragðs er sjálfur Capablanca sem beitti því í Búdapest 1928. 6. exf5 Bxf5 7. 0-0 Bd3 8. Hel Be7 9. He3 e4 10. Rel Bg5 11. Rxd3? í þessa lævíslegu gryflu hafa margir fallið áður! Rétt er 11. Hg3, eða 11. Hh3 RfB 12. Rxd3 exd3 13. Hxd3 0-0 er svartur hefur góð færi fyrir peðið. 11. - Bxe3 12. Rb4 Bxf2+! 13. Kxf2 Dh4+ 14. Kgl Rh6! 15. Dfl Hvítur á eftir að skipa út liði sínu á drottningarvæng og á erfitt með að koma skipulagi á stöðuna. Eftir 15 Rxc6 O-O! 16. Re7+ Kh8, eða 15. De2 0-0 16. Bb3+ Kh8 17. Rxc6 Rg4 18. h3 Rf2 19. Be6 bxc6, eða 15. g3 Dh3 16. Dfl Dxfl+ 17. Kxfl 0-0 + 18. Kgl Re5 19. d4 RÍ3+ 20. Kg2 Rg4 21. h3 Rel+ 22. Kgl e3 23. Bdl Hf2! (Abakarov - Sijanovsky, Kiev 1961) er svarta sóknin óviðráðanleg. 15. - Rg4 16. Df4 Hf8 17. Dg3 3. stöðumynd I #1 iii i mk i A W A A & A A M£)É, ABCDEFGH 17. - Hfl +! 18. Kxfl Rxh2 + 19. Dxh2 Eða 19. Kf2 Rg4+ og drottningin fellur. 19. - Dxh2 Og Adams gafst upp. Tími: Hvít- ur: 1 klst. 28 mínútur. Svartur: 34 mínútur! Skákþing Reykjavíkur Þröstur Þórhallsson var einn efstur með sjö vinninga eftir átta umferðir á Skákþingi Reykjavíkur sem nú stendur yfir í skákmiðstöð- inni Faxafeni 12. Ágúst Ingimund- arson og Hannes Hlífar Stefánsson komu næstir með 6,5 v. og með 6 v. voru Haukur Angantýsson, Ingi Fjalar Magnússon, Sigurður Daði Sigfússon og Uros Ivanovic. Níunda umferð var tefld í gær- kvöldi, sú tíunda hefst kl. 14 á morgun, sunnudag, og ellefta og síðasta umferð verður tefld á miö- vikudagskvöld. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.