Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991. Myndbönd Það fór eins og búist hafði verið við, Back to the Future III náði auðveldlega toppsætinu og sendi Internal Affairs niður í fimmta sæti. Tvær nýjar kvikmyndir koma inn á listann, gamanmyndin Joe Versus the Volcano, en umsögn um hana er hér á síðunni, og sakamála- myndin Miami Blues. Eftir lægð í janúar er útgáfa á myndböndum að taka kipp þessa dagana og eru margar úrvalsmyndir að koma á markaðinn og eiga þær eftir aö vera á listanum á næstunni. 1 (7) Back to the Future III 2 (3) Look Who’s Talking 3 (5) Loose Cannons 4(3) HardtoKill 5 (1) Internal Affairs 6 (-) Joe Versus the Volcano 7 (-) Miami Blues 8 (2) Total Recall 9 (9) Always 10 (6) Revenge ★★★ Hitnar í kolunum HEAT WAVE Útgefandi: Skífan Leikstjóri: Kevin Hooks Aðalhlutverk: Blair Underwood, Cicely Tyson, James Earl Jones og Sally Kirk- land Amerísk - 1990 Það er heitt í kolunum í svertingja- hverfinu Watts í Los Angeles og um það fjallar kvikmyndin Heat- wave sem gerist að mestu árið 1964 þegar endanlega sýður upp úr og kemur til átaka milli ólíkra kyn- þátta sem beijast á götum borgar- innar. Bob Richardsson er ungur svertingjadrengur sem á sér þann draum að verða blaðamaður. Vegna litarháttar síns nær hann ekki lengra en að vera sendisveinn á L.A.Times. Hans tækifæri kemur þegar óeirðirnar brjótast út og það veröur beinlínls hættul'ogt fyrir hvíta blaöa- og fréttamenn aö fara á staölnn, Þá krefst Bob þess að vera sendur og f'ær þar með tæk- ifæri lífs síns. Ekki líkar öllum það sem hann skrifar en síðar fær blað- ið Puhtzerverðlaunin fyrir um fjöllun sína um óeirðirnar. Hér er hörkugott bíó á ferð. Það er Propaganda Films sem framleið- ir myndina fyrir kapalkerfi Turn- ers CNN konungs. Hér er ekkert slegið af gæðakröfum og fékk myndin verðskulduð fem verðlaun sem veitt eru kvikmyndum og sjón- varpsseríum sem eingöngu eru gerðar fyrir kapalkerfi. Cicely Tyson og James Earl Jo- nes, sem bæði eru raunar í auka- hlutverkum, fengu verðlaun enda frammistaða þeirra lofsverð. Blair Richardsson, sem leikur Richards- son, hefði átt skihð verðlaun líka. Handritið er afar vandað og ber uppi litskrúðuga söguna af miklum styrk, Reynt er aö draga upp breiöa mynd af orsökum og afleiöingum þess óróttlætis sem þeldökkír hafa lengi mátt þola, Þetta tekst án þess prédikunareldmóðs og væmni sem því miður einkennir stundum myndir sem fjalla um þetta viö- fangsefni. Sannsögulegir atburðir, sem fléttað er inn í myndina í svart- hvítum fréttamyndum, gefa henni aukinn þunga og raunveru- leikablæ. Það er full ástæða til þess að gefa þessari mynd fyllstu meðmæli. Ekki sakar að meö þessu bætir okkar maður í Ameriku (Sigutjón Sighvatsson) enn einni fjöður í hatt fyrirtækis síns. Astríður og pólitík Jiccern jyjaNif'es'^g MANIFESTO Útgefandi: Háskólabíó Lelkstjóri: Dusan Makavejev Aóalhlutverk: Camilla Soeberg, Allred Molina, Simon Callow og Eric Stoltz Bandarisk/júgóslavnesk, 1988 - sýning- artími 91 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára Manifesto er nýjasta kvikmynd þekktasta leikstjóra Júgóslava, Dusans Makavejev. Óbeislað kynlíf jafnt sem duldar hvatir hefur verið Makevejev yrkisefni og svo er einn- ig nú. Sögusviöið er Júgóslavía í byrjun aldarinnar. Aðalpersónan, hin fagra Svetlana, er á leið til fyrri heimkyna í smábæ einum. Hún er ekki aðeins að koma til að end- urnýja kynni sín af heimaslóðum heldur á hún að undirbúa morð á kónginum sem væntanlegur er í heimsókn. Við kynnumst smám saman bæj- arlífinu, aðallega því sem undir rólegu yfirborðinu býr. Kynlíf kemur upp á yfirborðið í ólíkustu myndum, stundum grátbroslegum. Má þar nefna að hin fagra Svetlana hefur sinn veikleika sem felst í sambandi hennar við ruddalegan hestahiröi. Lögreglumaöurinn, sem undirbýr komu konungs, hef- ur mestan áhuga á stúlkubami einu en endar með móður Svetlönu og tískuljósmyndari nokkur gerir mun meira en að mynda fyrirsætu sína. í bænum er einnig geðveikrahæli þar sem sjúklingarnir em notaöir sem tilraunadýr. Þegar svo loks konungurinn kemur í bæinn er A-fil.M or passíoN. POW<?K onö polítícs. . IM .I NNM l< it:xn ... ANytplNQ qoca. aNö bocs! áhorfandinn fyrir Jöngu búinn að missa áhugann á morðtilræðinu en fylgist mun betur með athöfnum einstakra persóna. Leikarar koma úr öllum áttum. Eftirminnilegastir em Eric Stoltz í hlutverki ástsjúks pilts, sem gerir allt fyrir Svetlönu, og Simon Callow sem leikur kennara einn sem notaður er sem tilraunadýr á sjúkrahúsinu. Manifesto er uppfifil af góðum myndbrotum. Stundum er hún fyndin og skemmtileg en í öðmm atriðum er alvarlegur undirtónn. Kvikmyndataka er oft á tíðum mjög góð en gallinn er að myndbrotin ná aldrei að mynda þolanlega heild. -HK ★★ @r Að deyja með stæl JOE VERSUS THE VOLCANO Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: John Patrick Shanley Aöalhlutverk: Tom Hanks, Meg Ryan, Lloyd Bridges og Robert Stack Bandarisk, 1990-sýningartimi 98 min. Leyfð öllum aldurshópum. í Joe Versus the Volcano fær Joe Banks þann læknisúrskurð að hann eigi aðeins sex mánuði eftir ólifaöa. Banks, sem haldinn hafði verið ímyndunarveiki í sex ár, hressist allur andlega og tekur til við að njóta lífsins í fyrsta skiptið. Hann tekur því feginshendi þegar milljónari kemur til hans og býður honum lúxuslíf þaö sem hann á eftir ólifaö ef hann vilji að leikslok- um taka sér ferð á hendur til eyju einnar og fleygja sér ofan í eld- flallagíg. Margt fer þó öðruvísi en ætlað Áriðsem breytti öllu THE YEAR MY VOICE BROKE Útgefandi Bergvik Leikstjóri: John Duigan Aðalhlutverk: Noah Taylor, Loene Carmen og Ben Mendelsohn Áströlsk, 1987 - sýningartimi 104 mín. Leyfð öllum aldurshópum Frá Ástralíu koma margar gæða- kvikmyndir sem færu fram hjá manni ef ekki væru þær gefnar út á myndbandi. The Year My Voice Broke er ein slík. Mynd þessi fékk fimm áströlsk „óskarsveröTaun“ 1988 og er auðvelt að skilja hvers vegna. í myndinni er sagt frá þremur unglingum sem eru ekki eins og foreldrar vilja að börn þeirra séu. Sögumaður er Danny, ungur drengur sem er yfir sig ástfanginn af Freyju sem er aðeins eldri. Hún er aftur á móti ástfangin af Trevor sem er töffarinn í bænum. Ung- menni þessi eru mjög ólík en eiga þó það sameiginlegt aö vilja eitt- hvað meira en bærinn þeirra býður upp á. Danny, en skólafélagar hans álíta hann hálfgert viðrini, fylgist með ástarævintýrinu úr fjarlægð, þó alltaf haldi hann sig nálægt Freyju og hjálpar þegar á reynir. Freyja, sem er tökubam, verður ófrísk og er úthúðað af bæjarfélaginu. Tre- vor, sem er kæruleysið uppmálað, leggur út á glæpabraut sem getur ekki endað nema á einn veg... The Year My Voice Broke er sér- lega hugljúf kvikmynd um mann- legar tilfinningar unglinga sem eru að komast af gelgjuskeiðinu. Hún minnir á nokkrar aðrar myndir um sama efni, til dæmis myndir á borð við Rebel without a Cause og Wish You Were here, svo einhverjar séu nefndar. Hún hefur samt eigin sjarma sem auðvelt er að meðtaka. -HK var. Á skútusiglingu fil eyjunnar, þar sem eldfjallið er, kynriist hann dóttur milljónamæringsins og er hún hinn besti kvenkostur. Þegar þau verða einu skipverjamir sem komast lífs af þegar eldingu lýstur í skútuna blossar ástin upp hjá þeim og viðhorfin breytast. Á ein- hvern óskiljanlegan hátt rekur fle- kann þeirra, sem er byggður úr koffortum, til eldfjallaeyjunnar þar sem beðið er eftir Banks með mik- illi eftirvæntingu. Leikstjóri er John Patrick Shan- ley sem er sjálfsagt þekktastur fyr- ir handrit sitt af Moonstruck. Ekki tekst honum jafnvel upp með hand- ritið hér og sem leikstjóri finnst mér hann missa tökin í einstaka atriðum. Tom Hanks leikur Joe Banks með ágætum tilþrifum en hefur oft ver- ið betri. Meg Ryan leikur þrjú hlut- verk og sannar enn einu sinni að hún hefur mikla hæfileika til að leika gamanhlutverk. í heild er Joe versus the Volcano ágæt afþreying þótt einstaka atriði pirri dálítið. -HK 4§ M í lögguleik LOOSE CANNONS Útgefandi: Bíómyndir Leikstjóri: Bob Clark eftir handriti Ric- hard Matheson Aðalhlutverk: Gene Hackman og Dan Aykroyd Amerlsk - 1989 Sýnlngartimi - 60 mlnúlyr Bönnuð innan 16 ára Hefðbundin löggumynd á mnrgan hótt, Söguhetjurnar eru óvallt tvær, saman í liði gegn ótöldum her illmenna. Þetta ó hins vegar að vera gamanmynd þar sem gamal- reyndur jaxl tekur að sér nýjan félaga. Sá reynist vera eins kolg- eggjaður og frekast er hægt að vera, nýsloppinn úr endurhæfingu en nýtur frændsemi við yfirmann lög- reglunnar. Saman rekja félagarnir slóö kald- riljaðra morðingja sem vilja ólmir komast yfir klámmynd þar sem Hitler heitinn leikur aðalhlutverk- ið. Einnig eru heittrúaðir gyðingar á höttunum eftir filmunni sem þeir ætla að nota til þess að steypa nas- ískum kanslara Þýskalands. Þetta er ekki mjög gæfulegur söguþráður og það er reyndar myndin ekki heldur. Þó gengur vit- leysan á köflum út í þær öfgar að ekki er hægt annað en að hlæja. líKWPIOllEmri • X »MÍ»SmUK/*IJ«6(iB5«WiNi<».aOMfC«ia6/0«íaHil-«DNWtB jsma^au^HMiffmujfflifaiffliiJiByi “iMBiJBiJtwiuiiaBaiiii-iniuB g Það orkar þó tvímælis hve myndin er ofbeldiskennd. Fyrir vikið verð- ur hún hálfmisheppnuð sem gam- anmynd. Hitt er svo annaö mál aö Aykroyd er ágætur grínisti og Hackman er traustur á móti hon- um. Það er á mörkunum að hægt sé að mæla með þessu en ég geri það nú samt. Þetta er ágætis skemmt- un. -Pá Áflog úti í geimnum MOON 44 Útgefandi: Kvikmynd Aðalhlutverk: Michael Pare, Lisa Eic- horn, Malcolm McDowell, Stephen Ge- offreys og Brian Thompson Amerísk - 1989 Sýningartimi 95 mínútur Bönnuö innan 12 ára Árið 2038 er líf jarðarbúa háð fram- leiðslu á eldsneyti í föstu formi sem er unnið á plánetum utan sólkerfis- ins. Menn og vélmenni berjast hat- rammri baráttu um yfirráð yfir þessum fjarlægu orkulindum. Vondir geimræningjar stela geim- skutlum frá Plánetu 44 og nota í eigin þágu. Fyrirtækið sem annast námuvinnslu á plánetunni sér að við svo búið má ekki standa. Því er töffarinn og uppreisnarseggur- inn Felix Stone fenginn til þess aö komast að því hver í hópi starfs- manna á plánetunni lekur upplýs- ingum til óvinanna. Kompaníið lætur hins vegar undir höfuð leggj- ast að segja Stone frá því að hann snúi trauðla lifandi aftur úr þessari sendiför. Þetta er ágætis afþreying. Leik- inynd og áhættuatriði bera þess að vísu merki að framleiðendur hafa búið við þröngan kost. Leikarar eru lítt þekktir en standa sig flestir með ágætum. Gamli refurinn Malcolm McDowell er þarna í litlu hlutverki og má vissulega muna fífil sinn talsvert fegri. Sú var tíðin að hann þótti meö betri leikurum og hefði á þeim dögum varla lagt nafn sitt við iönaðarframleiðslu eins og þessa. Loftbardagar eru margir með tíð- um sprengingum og eldblossum sem standa undir stórum hluta myndarinnar. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.