Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Blaðsíða 20
20
LfUG^RDAGIIR ^.jFEBRÚAR)!^!;
Kvíkmyndir
Vinsælustu
myndirnar
Að undanfórnu hafa verið að
birtast í erlendum sem innlendum
tjölmiðlum upplýsingar um aðsókn
að kvikmyndahúsum árið 1990 í
hinum ýmsu löndum. Þar kennir
margra grasa og því vel við hæfi
að líta nánar á hvernig staðan er.
Eins og alltaf virðast bandarískar
kvikmyndir bera ægishjálm yfir
aðrar myndir. Lönd eins og Frakk-
land með rótgróna kvikmyndagerð
verða að sætta sig við að hlutur
franskra mynda fer síminnkandi á
kostnað bandrískra í þarlendum
kvikmyndahúsum. Ef við lítum á
ísland kemur í ljós að á árunum
1985 til 1989 voru frumsýndar 966
myndir hérlendis og þar af voru 795
bandarískar eða hvorki meira né
minna en tæp 83% sem þó er ekki
óalgeng prósentutala í öðrum lönd-
um heims.
Vinsælustu myndirnar á Islandi 1990
Erlendar kvik-
myndir sýndar á
íslandi 1985-1989
Land Fjöldi
Bandaríkin 795
Bretland 74
Frakkland 26
Danmörk 13
Ástralía 8
Þýskaland 8
Önnur lönd 42
Samtals 966
A sama tíma voru frumsýndar 11
íslenskar myndir en það voru að-
eins um 165.000 manns sem sáu þær
eöa um 15.000 manns að meðaítali
á hverja mynd. Hagstofa íslands
birti nýlega athyglisverðar upplýs-
ingar um kvikmyndasýningar á
íslandi 1985-1989. Þar kemur meðal
annars fram að sætaframboð kvik-
myndahúsanna hefur minnkað um
ein 20% en þess ber að gæta að síð-
an þá hafa bæst nýir salir í Há-
skólabíó sem ættu að vega upp á
móti þessu minnkandi sætafram-
boði. Áætla má að sætaframboðið
í dag sé milli 5 til 6 þúsund sæti.
En lítum aðeins nánar á kvik-
myndaaösókn okkar íslendinga.
Við erum þekktir fyrir að vera
heimsmethafar í flestu ef miðað er
við fólksfjölda. Eins og sést á neð-
angreindri töflu viröast íslending-
ar fara um 5 sinnum á bíó á ári og
er þetta nokkur fækkun miðað viö
eldri tölur. Hins vegar er þetta
hærri tala en víðast hvar þótt þetta
sé ekki heimsmet.
Þessar tölur hafa einnig að geyma
aðsóknartölur yfir íslensku mynd-
irnar sem ættu að laða að þá ald-
urshópa sem yfirleitt fara ekki á
kvikmyndahús. Svo virðist sem
aðeins milli 35% kvikmyndahúsa-
gesta hafi keypt miða á sýningar á
íslenskum myndum og er það mið-
ur aö þessi tala skuli vera eins lág
og raun ber vitni.
Nýlega birtust í Variety listar yfir
vinsælustu myndirnar vestanhafs
Heiti Fjöldi gesta
Stórkostleg stúlka/Pretty Woman 51.200
Pottormur í pabbaleit/Look Who Is Talking 40.000
Á tæpasta vaði 2/Die Hard 2 33.500
Draugar/Ghost 32.000
Afturtilframtíðarinnar il/"Back to the Future II 28.000
Turnerog Hooch/Túrnerand Hooch 28.000
Elska min, ég minnkaði börnin/Honey, i Shrunk the 26.000"
Kids
' Frumsýningumjólin1989.
sæti að íslensku myndinni PAPP- ÍRS PÉSA tókst að lauma sér inn á milli. Svo má nefna að í 2529 sæti er PARADÍSARBÍÓIÐ sem er lík- lega sú mynd sem fæstir áttu von á að gengi svona vel í landann. En lítum aðeins á samsvarandi banda- ríska listann. ir allra tíma. Það voru hins vegar myndir sem lítið var lagt í sem slógu í gegn eins og PRETTY WOMAN og svo á þessu ári HOME ALONE. Nýlega birtist í Financial Times forvitnileg skýring á því hvers vegna flestum framhaldsmyndum
Vinsælustu myndirnar í Bandaríkjunum 1990
Heití Leikstjóri
Ghost J. Zucker
Pretty Woman G.K. Marshall
HomeAlone C. Columbus
DieHard2 R. Harlin
TotallRecall P. Verhoeven
Tateenage Mutant Ninja Turtles S. Barron
DickTracy Warren Beatty
The Huntfor Red October J.Mctiernan
Driving MissDaisy Bruce Beresford
Back to the Future, Part 111 R.Zemeckis
Þegar þessar tvær töflur eru
bornár saman kemur i ljós að þrjár
af vinsælustu bandarísku myndun-
um eru einnig á íslenska listanum.
Sýnir þetta einu sinni enn að ís-
lensk kvikmyndahús eru farin að
keppast við að frumsýna erlendu
myndimar eins og fljótt og hægt
er eftir erlendu frumsýninguna.
En skyldu einhverjar breytingar
hafa orðið á listanum yfir vinsæl-
utu myndir allra tíma í Bandaríkj-
unum.
stórmynda gengi svona illa. Það
væri vegna þess að meðan leikar-
amir urðu eldri og bættu á sig
nokkrum kílóum, þá hækkaði ekk-
ert meðalaldur kvikmyndahúsa-
gesta. Unga kynslóðin hefur aldrei
séð t.d. hinn unga stælta Rocky sem
sló í gegn í samnefndri mynd 1976.
í fyrra var svo frumsýnd ROCKY
V. Stallone er nú hvorki meira né
minna en 15 áram eldri og spurning
hvort hann passi lengur í hlutverk-
ið.
Vinsælustu myndir allra tíma í Bandaríkjunum
Heiti Leikstjóri/ár
E.T. The Extraterrestrial Steven Spielberg/1982
Star Wars G. Lucas/1977
Returnof Jedi R. Marquand/1983
Batman T. Burton/1989
The Empire Strikes Back I. Kershner/1980
Ghostbusters I. Reitman/1984
Jaws S. Spielberg/1974
Raidersof the Lost Ark S. Spielberg/1981
Indiana Jones and the Last Crusade S. Spielberg/1989
Indiana Jones and the Temple of Doom S. Spielberg/1984
Það er athyglisvert að það er ekki
fyrr en í 15. sæti sem vinsælsta
myndin frá 1990 lendir í þessum
lista og PRETTY WOMAN er núm-
er 21. Þetta sýnir hve magurt ár
Umsjón:
Aðsókn aö kvikmyndahúsum 1985-1989
1985 1986 1987 1988 1989
Heildarfjöldi gesta 1.418.000 1.274.000 1.257.000 1.094.000 1.204.000
Þar af islenskar myndir 23.200 37.100 9.300 45.100 50.700
1990. Einnig birtist nýlega sam-
svarandi Usti um vinsælustu
myndimar hérlendis.
Allar þessar myndir eru banda-
rískar og það er ekki fyrr en í 1821
1990 var fyrir stóm kvikmyndaver-
in hvað varðar stórmyndir. Hver
stórmyndin á fætur annarri féll
eins og DICK TRACY sem náði að-
eins 54. sæti yfir vinsælustu mynd-
Baldur Hjaltason
Það er ágætt að botna þessa grein
með tilvitunun í Harold Ramis sem
lék með þeim BIll Murray og Dan
Akroyd í GHOSTBUSTERSII. „Við
vorum allir um 10 kg þyngri og
nokkrum árum eldri en þegar viö
gerðum fyrstu myndina. Það þurfti
aö lita á okkur hárið og mála yfir
skallablettina. Viö litum því hvor á
annan og spuröum „Hvers vegna
erum við eiginlega að gera þetta?“.
Helstu heimildir: Variety/Hagtíð-
indi/Financial Times. B.H.
1990
Myndin Ted og Hooch gekk nokkuð vel í fyrra.
Vinsælasta myndin á íslandi var Stórkostleg stúlka.