Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1991, Side 22
22 LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1991. Til íslands frá Riyadh: Flúðu úr borginni eftir árás íraka - segja Sigrún Jónasdóttir og Björn Johannesson sem komu heim frá Saudi-Arabíu í vikunni „Viö trúöum aldrei aö Irakar ættu eftir að ráðast á borgina Riyadh og stríöiö var framan af mjög fjarlægt," segja hjónin Sigrún Jónasdóttir og Björn Johannesson í samtali við helgarblaö DV en þau komu heim frá Saudi-Arabíu á þriöjudagskvöld eftir langt og strangt ferðalag meö börn sín þrjú. Sigrún og Björn uröu vitni að fyrstu eldflaugaárás íraka á borg- ina en þau fóru út á svalir til aö sjá hvaö væri aö gerast. „Þetta gerðist svo fljótt aö við hugsuðum ekki einu sinni um að setja á okkur gasgrím- ur,“ segja þau. Sigrún og Björn, sem er norskur, bjuggu um eins og hálfs árs skeið í Noregi en vegna ótryggs atvinnu- ástands þar urðu þau alsæl er Birni bauðst starf hjá sænsku bygginga- verktakafyrirtæki í Saudi-Arabíu. Starfstilboðið barst óvænt og þau höfðu lítinn tíma til að ákveða sig. Há laun voru í boði svo ákveðið var að Björn færi til Riyadh. Starfssamn- ingurinn var til tveggja ára og Björn átti að hefja störf í apríl á síðasta ári. Þau leigðu húsiö sitt í Noregi og Sigrún hélt til íslands meö börnin þrjú en ekki var æskilegt aö fjöl- skyldan kæmi öll á sama tíma til Saudi-Arabíu. Sigrún haföi hugsað sér aö fara í byrjun ágúst en innrás íraka í Kúvæt breytti þeim áformum. Það var því ekki fyrr en í september sem hún hélt áleiðis en þá þótti öllu óhætt enda bjuggust Saudi-Arabar ekki við aö stríð skylli á. Kynntust í Noregi Sigrún stundaði nám í landbúnaö- arfræðum við háskóla í Noregi er hún kynntist Birni. Þau fluttu heim til íslands áriö 1983 og bjuggu hér á landi í flmm ár. Björn, sem er mennt- aður landslagsarkitekt, starfaði um tíma hjá Einari Sæmundsen en stofn- aði síöan eigið fyrirtæki. Þau hjónin ákváðu síöan að flytjast aftur til Nor- egs árið 1988 þar sem Björn fékk starf þar. Hins vegar eru erfiðir tímar hjá Norðmönnum, mikið atvinnuleysi og starfið var ótryggt. Sigrúnu hafði ekki tekist aö fá atvinnu í sínu fagi. Björn fékk boö frá verktakafyrirtæki í byggingum í Saudi-Arabíu í sér- verkefnum en hann þurfti að undir- rita loforð sitt um þagmælsku og hefur því ekki leyfi til að skýra út verksviö sitt eða verkefni fyrirtækis- ins. „Við litum á þetta boð sem gott tækifæri til aö prófa eitthvað nýtt og kynnast framandi menningu og um- hverfi," segir Björn. Sigrún hélt utan 1. september en þá haföi Björn sagt henni að allt væri í stakasta lagi á þessum slóðum og engin hætta. „Fólk hér á landi var undrandi á að ég þyrði að fara í þetta óvissuástand. Fyrirtækið, sem Björn vinnur fyrir, lofaði okkur fullkomnu öryggi og mig langaði til að ijölskyld- an væri saman. Þegar ég kom til Riy- adh sá ég að öllu var óhætt. Fólkið lifði eðlilegu lífi og var rólegt. Fyrir- tækiö er mjög stórt og margir vest- rænir menn sem starfa þar. Allir starfsmenn fyrirtækisins hafa íbúðir á sérstöku lokuðu svæði en þar sem við bjuggum voru fimmtíu hús. Þar er sameiginlegt útivistarsvæði með sundlaug og mjög góð aöstaða fyrir börn. Það má segja að þetta sé lítið samfélag," segir Sigrún. Börnin þeirra þrjú eru fjögurra, sex og tíu ára gömul. Þau eru vön ferðalögum svo Sigrún segir það ekki hafa verið mikið mál að ferðast þessa löngu leið. Hún gisti eina nótt í Kaupmanna- höfn, síðan hélt hún til Rómar og þaðan til Saudi-Arabíu. „Það gekk mjög vel.“ Lítið, verndað samfélag Þegar Sigrún kom til Saudi-Arabíu í september var yfir fjörutíu stiga hiti þar. Hann fór niður í þrjátíu gráður í október og lækkaði síðan enn meira en fór þó ekki undir tutt- ugu stig. „Maður vandist fljótt hitan- um. Loftið er þurrt, ekki rakt, og því ekki mjög þrúgandi.“ Sigrún segir að í því litla samfé- lagi, sem þau bjuggu í, hafi umhverf- ið verið nokkuð vestrænt enda íbú- arnir vestrænir. „Þarna voru Svíar, Norðmenn, Englendingar, Spánverj- ar og einn Kenýabúi svo þetta var nokkuð blandað. Strákarnir fóru í amerískan skóla. Þeir voru keyröir til og frá skóla svo segja má að lífiö sé verndað fyrir börn á þessum stað. Við litum annars á okkur sem gesti í þessu landi og vorum jákvæð gagn- vart trúarvenjum og siðum þess fólks sem þarna býr,“ segir Sigrún. Björn kynntist nokkrum aröbum í gegnum vinnuna og hefur ekki mikiö af þeim að segja. „Þaö er alltaf hægt að tína til eitthvað neikvætt en okkur fannst þetta mjög vinalegt fólk og barngott. Þegar maður kom í versl- anir 'var börnunum mjög vel tekiö,“ segir Sigrún. Ekki segist hún hafa gert sér mikl- ar hugmyndir um þetta land áður en haldiö var að stað og segir því lítið hafa komið sér á óvart. „Ég kom mjög opin fyrir öllu,“ segir hún. Björn bætir við að hann hafi tekið eftir þegar arabarnir hlupu í mosk- urnar til bænahalds fimm sinnum á dag. „Það er kallað til bænahalds og þá hlaupa þeir til og mjög stutt er á milli moskanna. Trúin er mjög ríkur þáttur í daglegu lífi arabanna." Litu hlutlaust á siðvenjur Sigrún átti ekki von á að fá starf i Saudi-Arabíu enda ekki auðvelt fyrir vestrænar konur að fá starf á þeim stað. Aðallega starfa þær við heil- brigðismál og kennslu. Konur hafa ekki sama rétt og karlar í Saudi- Arabíu en Sigrún segir að hún hafi ekki látið það angra sig. „Ég var nokkuð róttæk í kvennabaráttu en þarna leit ég á mig einvörðungu sem gest sem engu gat breytt um siðvenj- ur. Hins vegar vissi ég til þess að margar vestrænar konur áttu erfitt með að þola misréttið. Maður vill líta hlutlaust á þessi mál,“ segir Sigrún. með tilliti til þess að þau hjónin eigi væntanlega eftir að fara aftur á þess- ar slóðir. Björn fer reyndar aftur eft- ir nokkrar vikur enda hefur hann skyldum að gegna. í Riyadh er bæði hægt að lifa dýrt og ódýrt, segja þau. „Það er ekki mikið um að vera eins og við þekkj- um til. Áfengi er bannað, skemmti- staðir eru engir né heldur kvik- myndahús. Einhverjir Evrópubúar hafa þó komið sér upp skemmtistað." Sigrún og Björn segja að mikið sé dvalið utanhúss viö sundlaugina, tennis er oft spilaður og grillveislur vinsælar. Tónleikar er algengir og kórsöngur. Einnig fer fólk mikið í dagsferðir út í eyðimörkina og tekur nesti með sér. „Maður hefur meiri tíma til að sinna öðruvísi hlutum en hér heima," segir Sigrún. íbúar Riyadh búa vel og flestir eru efnaðir, segja þau. Húsin eru stór en oft eru nokkrar kynslóðir sömu fjöl- skyldunnar undir sama þaki. Þá er ekki óalgengt að sjá stórt hús á stórri afgirtri lóð þar sem gjarnan eru nokkur minni hús einnig en þar búa eiginkonur eins manns hver .í sínu húsi. En eins og flestir vita er fjöl- kvæni leyfilegt í Saudi-Arabíu. Engin spenna Sigrún og Björn segjast enga spennu hafa fundið varðandi yfirvof- andi stríð í Riyadh. „Það var ekki fyrr en í desember að menn fóru allt í einu að tala um 15. janúar. Þetta var einungis síðari hlutann í des- ember. Reyndar fann ég aðeins fyrir spennu þegar innrásin í Kúvæt var gerð í byrjun ágúst. Menn voru þá að velta fyrir sér hvort Hussein myndi ráðast á Saudi-Arabíu lika. Þegar Bandaríkjamenn fóru síðan að senda hermenn suðureftir róaöist fólk og ekki var meira talaö um inn- rás,“ segir Björn. „Þegar þessi dagsetning var ákveð- in fundum við fyrir að fólk fór mikið að velta fyrir sér hvað myndi ger- ast,“ segir Sigrún. „Allmargir vest- rænir íbúar fóru þá aö tínast burt. Fyrirtækið, sem Björn vinnur fyrir, gaf fólkinu þrjá kosti, aö bíða og sjá hvað myndi gerast, að fara til Kýpur eða fara' heim. Helmingur starfs- manna ákvað að senda fjölskyldur sínar heim en það var áður en stríö- ið braust út. Við ákváðum að halda kyrru fyrir og sjá hvað yrði. Við hugsuðum auðvitað mikið um þetta en eftir að við tókum ákvörðun urð- um við rólegri. Fyrirtækiö lofaöi að sjá um okkur ef eitthvað gerðist og við treystum því. Fólkið, sem við umgengumst mest, varð eftir og það hafði áhrif á okkur, við vorum ekki ein og höfðum stuðning," segir Sig- rún ennfremur. Dagsetningin breytti öllu Talsvert var fjallað um yfirvoíandi stríð í fjölmiðlum þegar dagsetningin 15. janúar kom upp. Fólki voru gefn- ar ráðleggingar í gegnum sjónvarpið. Og þegar eitt sendiráðið byrjaði að dreifa gasgrímum komu hin á eftir til að valda ekki óróleika meðal fólks- ins. Saudi-Arabar fengu að sjálfsögðu einnig gasgrímur. „Þó við værum komin með gasgrimurnar fannst mér afar fiarlægt að stríð myndi skella á. Maður hefur aldrei upplifað styrj- öld og finnst það mjög ótrúlegt að einhverjum detti í hug að fara í stríð. Þess vegna datt okkur ekki í hug að við þyrftum á gasgrimunum aö halda,“ segir Sigrún ennfremur. „Við tókum þær samt alltaf meö okkur hvert sem viö fórum eftir aö stríðið byrjaði. Öllum var ráðlagt að hafa stað þar sem hægt væri að leita skjóls og við einangruðum eitt her- bergi með plasti. Allir fengu vissa öryggisáætlun sem fara átti eftir en hún náði yfir alla mögulega þætti sem gætu átt sér stað. í sjónvarpi var hamrað á að fólk héldi ró sinni og allir áttu að'vera vel undirbúnir. Hins vegar var ekki talið að ráöist yrði á Riyadh og við bjuggums.t alls ekki við að þetta myndi gerast svona allt í einu. Tveimur nóttum áður en þeir skutu á Riyadh var skotið á Tel- Aviv en menn höfðu efast um að ír- ösku eldflaugarnar drægju til Riy- adh. Líkurnar voru því taldar mjög litlar á árás.“ Mikill flugvélagnýr Þegar stríðið hófst aðfáranótt fimmtudagsins 17. janúar voru Sig- rún og Björn í fastasvefni en vökn- uðu upp við mikinn flugvélagný endá Fjölskyldan komin heim i öryggið á bjuggu þau nálægt flugvellinum. Þeim datt strax i hug að nú væri stríðið byrjað og kveiktu á útvarpinu en hálftíma síðar var tilkynnt að stríðið væri hafiö. Þau hlustuðu á herstöðvarútvarp Bandaríkjahers

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.