Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Qupperneq 13
MÁNTJDMjUíí 4: FEBR-ÚAR 1991
Flyferie sommer 1991
Fjölmenni sótti þorrablótið. Hótelið var fullt og voru gestir á fimmta hundrað.
Heiðursgestir á þorrablótinu. Á myndinni má meðal annarra sjá Flosa
Ólafsson, Lilju Margeirsdóttur, Þorstein Pálsson, Ingibjörgu Rafnar, Rúnar
Birgisson, Guðjón Pálsson, Sigríði Bjarnadóttur, Elinu Úlfarsdóttur, Jón
Ragnarsson og Hrafnhildi Vaidimarsdóttur. DV-myndir S-ljósmyndir
Hér má sjá marga áhugasama spilara i félagsvistinni.
Fyrir miðri mynd eru sigurvegararnir i félagsvistinni.
N Y H E Ð E R
Silkevejen - Canada - Bornholm
Marokko Rundrejse - Cruise Grækenland
Budapest - Wien - Madrid - Nazaré
Tjœreborg
..«mwm
WKT'...’
Lionsfélag Bessastaðahrepps:
Eldri borgurum boðið
til skemmtikvölds
Lionsfélag Bessastaðahrepps bauð
fyrir stuttu eldri borgurum í Bessa-
staðahreppi og Garðabæ til skemmti-
kvölds í hátíðasal nýja íþróttahúss-
ins á Álftanesi. Var þar margt til
skemmtunar og afþreyingar fyrir
eldri borgarana, meðal annars var
spiluö félagsvist og tóku Lionsfélag-
arnir einnig þátt í spilamennskunni.
Voru vegleg verðlaun í boði. Einnig
var ijöldasöngur með harmóníku-
spili.
Lionsfélagarnir höfðu sjálfir allan
veg og vanda af veitingum, báru fram
kaffi og meðlæti sem þeir höfðu sjálf-
ir bakað. Eldri borgararnir fóru glað-
ir hver til síns heima eftir ánægju-
legt kvöld.
Ferðaskrifstofan Saga hefur tekið vlð
elnkaumboði á stflu ferða ffyrir Tjæreborg
á fslandi. Vlð verðum með kynnlngu á ferðum
Tjæreborg þessa viku á skrifstofu okkar
að Suðurgötu 7, síml 624040
FERÐASKRIFSTOFAN
Tjœreborg
Suðurgötu 7
-Sími 624040
;*>■ - .
c. -
■ ■
Sviðsljós
Árborgarþorri á Hótel Örk:
Þorrablótsgestir troðfylltu hótelið
Fjölmenni var og húsfyllir á svo-
nefndum Árborgarþorra á Hótel Örk
í Hveragerði laugardaginn 26. janúar
sl. Gestir á þorrablótinu voru á
fimmta hundrað og skemmtu sér hið
besta.
Karl Sighvatsson tónlistarmaður
og kirkjuorganisti sá um ljúfa tóna
meðan á borðhaldinu stóð. Þorsteinn
Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, var heiðursgestur og flutti hátíð-
arræðu. Ómar Ragnarsson spaugaði
fyrir gesti. Hljómsveitin Amadeus sá
síðan um dansmúsíkina. Öllu þessu
skralli stjórnaði Flosi Ólafsson með
harðri hendi.
Menn höfðu þó fulla samúð með
Flosa á þorrablótinu þar sem hann
hafði verið sér til heilsubótar á Nátt-
úrulækningahælinu í Hveragerði og
mátti því éta gulrætur einar í stað
súrmetisins.
SAGA KYNNIR
TJÆREBORG
Á ÍSLANDI
meira ferðaúrval