Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Page 26
34
MÁNUDAC.UR 4. FEBRÚAR 1991.
Afmæli
Bjami H. Sumarliðason
Bjarni Hólmgeir Sumarliðason,
verkamaður í Isal, Hjallabraut33,
Hafnarfirði, er sjötugur í dag.
Bjarni er fæddur í Bolungarvík og
ólst þar upp.
Starfsferill
Bjarni var matsveinn og lengst af
sjómaður. Hann byrjaði sjómanns-
feril fimmtán ára á Litla-Fræg frá
Bolungarvik og var sjómaður í Bol-
ungarvik fram um tvítugt, einnig
eitt sumar í Hrísey. Bjarni fluttist
til Hafnarfjarðar um 1940, fljótlega
eftir það fer hann á matsveinanám-
skeið í Austurbæjarskóla sem rekið
var af Fiskifélagi íslands. Síðan var
hann á togurum frá Hafnarfirði síð-
ar á varðskipi og hjá Ríkisskip.
Bjarni var kjötiðnarmaöur hjá Búr-
fellsvirkjun 1968-1970 og hefur unn-
iö í Álverinu í Straumsvík frá 1973.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 23. desember 1949
Helgu Sigurgeirsdóttur, f. 11. maí
1923. Foreldrar eru: Sigurgeir Ólafs-
son, sjómaður í Hafnarfirði, og kona
hans, Kristín Pétursdóttir. Fóstur-
sonur Bjama og Helgu er Sumarliði
Bjarki Andrésson, f. 26. janúar 1952.
Kjördóttir Bjarna og Helgu er María
Friðgerður Bjarnadóttir, f. 29. nóv-
ember 1958.
Systkini Bjarnaeru: Magnús, f. 12.
júlí 1922, verkamaður á Akureyri,
var kvæntur Maríönnu Valtýsdótt-
ur, d. 1990; Elín, f. 25. nóvember 1923,
gift Arnfmni Arnfmnssyni, fram-
kvæmdastjóra á Akureyri; Björg, f.
17. júní 1925, verkakonaá Bolungar-
vík, gift Guðjóni Bjarnasyni, er lát-
inn, bakara í Bolungarvík; Guðjóna,
f. 7. október 1929, verkakona í Bol-
ungarvík; Kjartan, f. 22. september
1929, verkamaður á Akureyri,
kvæntur Stellu Jónsdóttur; Rúrik,
f. 8. febrúar 1932, umsjónrmaður
með skóla í Breiðholti, kvæntur
Guðlaugu Björnsdóttur og Kristján,
f. 28. nóvember 1933, sjómaður í
Hafnarfirði. Bróðir Bjarna sam-
feðra er GuðmundurPétur, f. 24.
júli 1916, d. 5. september 1981, kenn-
ari í Rvík, kvæntur Guðrúnu Pét-
ursdóttur.
Ætt
Foreldrar Bjarna voru: Sumarliöi
Guðmundsson, f. 30. september 1888,
d. 11. nóvember 1959, sjómaöurí
Bolungarvík, og kona hans, María
Friðgerður Bjarnadóttir, f. 7. októb-
er 1892, d. 23. tbrúar 1966. Sumarliði
Bjarni Hólmgeir Sumarlióason.
var sonur Guðmundar Sumarliða-
sonar og konu hans, Önnu Petrínu
Magnúsdóttur. María var dóttir
Bjarni, b. á Látrum í Ögurhrepppi,
Jónssonar og konu hans, Hólmfríð-
ar Jónsdóttur.
Jóhanna Magnea Sigurðardóttir
Jóhanna Magnea Sigurðardóttir
ráðskona, Meðalholti 14, Reykja\ik,
er áttræð í dag.
Starfsferill
Jóhanna fæddist í Reykjavik og
ólst upp í Hafnarfirði og í Reykjavik.
Mæja, eins og hún er oftast köli-
uð. gekk í Hvátasunnusöfnuðinn
1957 og starfaði á vegum hans í
fjölda ára. Hún var ráðskona á
barnaheimilunum í Görðum á Flat-
eyri, á Hjalteyri og i Kotmúla í
Fljótshlíð. Þá starfaði hún einnig við
sunnudagaskólana á Vopnafirði og
í Reykjavik. Var hún ætíð dáð af
börnunum sem hún starfaði fyrir
og enn í dag kalla mörg hana ömmu.
Fjölskylda
Jóhanna giftist 12.10.1934 Magn-
úsi Péturssyni, f. 12.10.1905, d. 21.8.
1965. bifreiðarstjóra, en hann var
sonur Péturs Gestssonar og Maríu
Magnúsdóttur.
Börn Jóhönnu og Magnúsar eru
Sigurlín Esther, gift Rósinkrans
Kristjánssyni; Þórir, kvæntur Mar-
íu Jóhannsdóttur; Gunnar Helgi,
kvæntur Sigrúnu Geirsdóttur, og
Grétar, ókvæntur.
Systkini Jóhönnu: Óskar, Einar
og Margrét.
Foreldrar Jóhönnu: Sigurður
Guðmundsson verkamaður og Sig-
urlín Einarsdóttir verkakona en
þau eru bæði látin.
Mæja tekur á móti gestum í neðri
sal Fíladelfíu að Hátúni 2 á afmælis-
-daginn milli klukkan 17.00 og 19.00.
Jóhanna Magnea Sigurðardóttir.
Menrdng__________________________
Laugarásbíó - Skuggi ★★ Vi
Skálkabani í skjóli nætur
íslenskum bíógestum gefst nú hið fyrsta tækifæri
að sjá mynd eftir hinn unga Bandaríkjamann Sam
Raimi. Fyrir tvítugt hafði hann gert hryllingsmyndina
The Evil Dead sem var umsvifalaust talin ein sú merki-
legasta sinnar tegundar. Næsta mynd hans, furöuleg
glæpamynd að nafni Crimewave, fékk aldrei almenna
dreifingu. Evil Dead II: Dead by Dawn kom svo í kjöl-
farið og var Raimi þá búinn.að tileinka sér svo um
munaði sérstakan stíl þar sem hraðinn í atburðarás-
inni er ógurlegur og allar mögulegar tökubrellur og
klippingar notaðar, stundum með undraverðum ár-
angri. Kvikmyndir Raimi eru alltaf forvitnilegar fyrir
auga og eyra því hann er gjörólíkur öðrum á mynd-
ræna sviðinu, minnir helst á ofvirkar teiknimyndir
Warner Bros. Ef áhættuatriði og almenn furðulegheit
eru hans styrkur er veikleiki hans að hann getur ekki
unnið nægilega vel úr eigin hugmyndum. Það er ekki
við Raimi einan áð sakast þvi tjórir aðrir eiga þátt í
handriti Skugga og slíkt veit aldrei á gott. Þeir hafa
soðið saman nokkrar gamalkunnar hugmyndir úr
fantasíu- og hryllingsþemum gegnum tíðina og kemur
Óperudraugurinn helst upp í hugann sem forfaðir hins
sálusærða Skugga.
Vísindamaðurinn Peyton Westlake (Neeson) flækist
inn í misindismál glæpamanna sem svífast einskis.
Þeir ráðast á stofu hans í leit að sönnunargagni og
misþyrma honum grimmilega. Hann var aö vinna að
stórmerkri uppfmningu, gervihörundi, sem gerir hon-
um kleift að hylja afskræmingu sína í takmarkaðan
tíma og leita hefnda á þeim sem höfðu gert honum
eitthvað til miska. En afskræmingin er meiri en hör-
undsdjúp...
Myndin lætur sér ekki nægja eina sögu, heldur reyn-
ir að skora á sem flestum vígstöðvum. Hún reynir aö
vera spennandi, hryllileg, harmræn og ástríðufull í
senn en megnar það ekki. Raimi gengur djöfulgang
með myndavélina og klippiborðið og heldur vissulega
athyglinni út í gegn en í rólegu atriðunum fer sárlega
að vanta í uppbygginguna.
Þau fáu skipti sem myndin hægöi á sér læddust aö
mér óviöeigandi hugleiöingar um tæknilegar forsend-
ur þær er gervihörundiö byggði á og í stað þess að
sitja negldur yfir sögunni fór ég að spá í hvernig
Skugga tækist með hjálp grímu og hanska að breyta
útliti sínu þannig að lögmál hæöar og breiddar virtust
ekki eiga lengur við, hvað þá vöövastjórnun, þar sem
engir vöðvar ættu að vera.
Þá var sem betur fer aldrei langt í næsta áhættuat-
riði, sem eru mörg hver ansi stórkostleg, ein og sér.
Liam Neeson fer á kostum i titilhlutverkinu.
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
írski leikarinn Liam Neeson á líka stóran þátt í því
aö halda myndinni uppi. Honum nægir eitt auga til
að koma leiknum til skila, hvað þá þegar hann er ekki
hlaðinn farða og búningi og hefði hann sennilega get-
að komið Skugga í hóp klassískra kvikmyndaskálka
einn síns liös ef aðstæðurnar hefðu leyft það. Það er
einnig gaman að Larry Drake í hlutverki, sem er eins
ólíkt hinum einfalda Benny í L.A. Law og hugsast
getur. Hér er hann miskunnarlaus gikkfingur aðalbóf-
ans, og safnar fingrum andstæðinganna sem hann
sneiöir af meö vindlaskera. Úffl
Darkman (Band. 1990) Handritshluti og leikstjórn: Sam Ra-
imi. Tónlist: Danny Elfman (Batman, Dick Tracy). Leikarar:
Liam Neeson (Good Mother, Lamb), Francis McDormand (Blo-
od Simple, Mississippi Burning), Larry Drake (L.A. Law),
Colin Friels.
Til hamingju med
afmælið, 4. febrúar
85 ára
Sigurbjörg Gísladóttir,
Fjólugötu 11, Akureyri.
75 ára
Margrét Ólafsdóttir,
Strandhöfn, Vopnafirði.
70ára
Sigurbjörg Runólfsdóttir,
Frostafold 5, Reykjavík.
Hólmfríður Jónsdóttir,
Víðilundi 2C, Akureyri,
60 ára
Steinn Steinsson,
SævarlandilS, Reykjavík.
Guðrún K. Sigurbjörnsdóttir,
Háholti 11, Keflavík.
Ester Kristjánsdóttir,
Austurhlíð, Öngulsstaðahreppi.
50ára
Bjarni Snæbjörnsson
Geitdal, Skriðdalshreppi.
Karl S. Björnsson,
Hafrafellstungu I, Öxarfjarðar-
hreppi.
Björn Fribrik Björnsson,
Grundarstíg 12, Sauðárkróki.
Vatnar Viðarsson,
Bollagötu 2, Reykjavík.
Ruth BredahlSörensen,
Kringlumýri 9, Akureyri.
Ámi Pétursson,
Brekkubyggð4, Garöabæ.
Úrsúla Ágústsdóttir,
Hringbraut 67, Reykjavík.
Róbert Brimdal,
Gaukshólum 2, Reykjavík.
40ára
Þórunn P. Þórisdóttir,
Boðagranda 20, Reykjavik.
Elín Anna Sigurjónsdóttir,
Dúfnahólum 2, Reykjavik.
Borghildur Gunnlaugsdóttir,
Smáratúni 46, Keflavík.
Erna Magnúsdóttir,
Lækjargötu 9A, Akureyri.
Markús Hálfdánarson,
Hátúni 33,' Reykjavík.
Benedikt Ingimarsson
Benedikt Ingimarsson að Hálsi í
Saurbæjarhreppi er áttatíu og fimm
ára í dag.
Benedikt fæddist að Hálsi í Saur-
bæjarhreppi og ólst þar upp. Hann
hefur lengst af unnið við landbúnað-
arstörf auk þess sem hann starfaði
í fjórtán ár að sveitarstjórnarmál-
efnum. Þá hefur Benedikt stundaði
ritstörf og þó einkum fengist vdö
ljóðagerð.
Benedikt átti einn bróöur, Ár-
mann Hólm, f. 1.1.1912, d. 11.11.1957.
Foreldrar Benedikts voru Ingimar
Traustason, f. 1876, bóndi, og Indí-
ana Benediktsdóttir, f. 1882, húsfrú.
Ingimar var sonur Trausta Ingi-
marssonar úr Húnavatnssýslu og
Vilhelmínu Sigríðar Stefánsdóttir.
Indíana var dóttir Benedikts Ein-
Benedikt Ingimarsson.
arssonar úr Suður-Þingeyjarsýslu
. ogMargrétarÓlafsdótturfrá Ana-
stöðum í Saurbæjarhreppi.
SJÁUMST
MED
ENDURSKINB
ENOURSKMS-
MERKI last í
apótekum
ogviðar.
tíæsEBow