Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Side 9
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR lððl. 9 Persaflóastríðið: 3. febrúar 2.30- írakar skjóta Scud-eldflaug aö Riyadh, höfuðborg Saudi- Arahíu. Tuttugu og rau særöust af brotura úr Scud-flauginni sem gagnflaug hæföi. 7.52- írakar tilkynna um nýja eld- flaugaárás á ísraei. 9.05- Tj'rkir segjast ætla aö biöja íraka um að fækka starfsmönn- um í íraska sendiráðinu í Tyrk- landi. 9.23- írakar segja Sýi'lendinga hafa aihent bandaríska sendiráö- inu sjö bandaríska ílugmenn sem hefðu verið skotnir niður. Yfir- völd í Sýrlandi visa fréttinni á bug. 10.10- Bandaríska dagblaöið Uos Angeles Times segir bandaríska embættismenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að sókn banda- manna á landi geti hafist þegai* helmingur farartækja og búnaö- ar íraka hefur verið eyðilagöur, það er ef til vill eftir tíu til tutt- ugu daga. 10.51- Kúvæskur sendimaður heldur til íran. 11.01- Bretar segjast hafa beöið starfsmenn ílugfélaga og flug- valla um aö leita gaumgæfilega aö sprengjum i skjalatöskum til að koma í veg fyrir slys eins og varð yfir Lockerbie í Skotlandi 1988, há grandaöi sprengja bandarískri farþegaþotu. 11.03 Tiikyimt ura árásarferðir Frakka yfir Kúvæt. 12.04- Bandamenn gera árásir á ausíurhluta íraks. 12.53- Pierre Joxe, hinn nýi varn- armálaráðherra Fi*akklands, kveðst ætla til Saudi-Arabíu til að fúllvissa franska hermenn þar um stuðning frönsku stjórnar- innar. 13.12- Sprengju varpaö úr banda- rískri flugvél á Scud-eldflauga- palla í írak um leið og skotið var úr þeim á ísrael og Saudi-Arabíu. 15.30- Douglas Hiu-d, utanríkis- ráðherra Bretlands, segir yfir 50 prósent likur á að Saddam Hus- sein iraksforseti beiti efnavopn- um. 16.23- Greint er ffá að sjö börn hafi verið meöal þeirra tuttugu og niu sem særðust þegar írakar skutu Scud-eldflaug á Riyadh í Saudi-Arabíu snemma á sunnu- dagsmorgmi. 16.30- Bandarísk B-52 sprengju- flugvél, sem var að koma úr árás- arferð frá írak, ferst yfir Ind- landshafi á leið til eyjunnar Diego Garcia. 17.03- Egypskir stjórnmálaflokk- ar andvígir Persaflóastríðinu hvetja til tafarlauss vopnahlés. 17.09- Þrjú hundruö þúsund Ma- rokkóbúar mótmæla hernaöar- aðgerðum bandamanna gegn ír- ak. 17.47- TaJsmaður Bandaiikjahers segir sjö bandaríska hermenn hafa látið lífið þegar eldflaug bandamanna hæfði bifreið þeirra. 18.27- Tilkynnt um sprengjuárás vinstti sinnaðra skæruliða á kjúklingabitastað, Kentucky Fri- ed Chicken, í Lima i Perú á laug- ardaginn. Að minnsta kosti átta manns særðust i sprengjuárás- inni að sögn lögreglu. 18.59- Bandaríska sendiráðið í Jórdaníu tilkynnir um brott- flutning fleiri starfsmanna í kjöl- far árása gegn vesturlenskum skrifstofum. 19.02- Breskur liðsforingi kveðst búast við efnavopnaárás íraka um leið og bandamenn fara inn i KúvæL 19.28- Turgut Özal, forseti Tyrk- lands, hvetur Miðáústurlönd til stofnunar efnahagsbandaiags á; svæðinu að stríöinu loknu. 19.41- Spænska lögreglan skýtur gúmmíkúlum og reyksprengjum til að dreifa mótmælendum fyrir : utan bandai'íska flugstöð. Útlönd Sjö Bandaríkja- menn féllu í eigin eldflaugaárás - Scud-eldflaugar íraka hætta aö hæfa skotmörk sín Nú er talið víst að sjö bandarískir hermenn hafi fallið þegar þeir urðu fyrir eldflaug frá samheijum sínúm. Örðrómur um þetta var á kreiki síð- ustu daga og fékkst loks staðfestur í gær. Hermennirnir voru á brynvörðum bíl þegar skotið var á þá eldflaug frá einni af orrustuþotum Bandaríkja- manna. Atvikið gerðir þann 29. jan- úar þegar hermennirnir áttu í skær- um við íraska hermenn við landa- mæri Kúvæts og Saudi-Arabíu. Þessir menn voru meðal fyrstu Bandaríkjamannanna sem féllu í stríðinu. Sama dag féllu aðrir fjórir en talið er að þeir hafi orðið fyrir skotum Iraka. Þá er talið að einn hermaöur enn úr hði Bandaríkja- manna hafi fallið fyrir skotum sam- heija. Allir Bandaríkjamennimir, sem fallið. hafa til þessa, eru úr land- gönguliði flotans. Þeir hafa varð- stöðu við landamæri Kúvæts og Saudi-Arabíu ásamt breskum sveit- um og hermönnum frá Saudi-Arabíu og Quatar. Saudi-Arabar hafa misst marga menn í bardögum á svæðinu, einkum um bæinn Khafji en engar tölur hafa enn verið gefnar upp um mannfall í liði þeirra. Bandamenn hafa nú farið 41 þús- und árásarferðir til íraks og Kúvæt. Bandamenn segjast nú hafa eyðilagt 99 flugvélar íraka en áður sögðust þeir hafa náð að eyðileggja 31 vél. Þá er talið að um hundrað flugvélar úr flugflota íraka séu í íran. írakar hafa reynt að skjóta Scud- eldflaugum aö Saudi-Arabíu og ísrael um helgina en ekki haft árangur sem erfiöi. Engin flaug hefur hæft skot- mörk í þessum löndum en sagt er að ein flaug hafi lent í Jórdaníu. Scud-eldflaugarnar geiga nú oftar en var á fyrstu dögum stríösins. Þetta þykir benda til að írakar séu búnir að nota allar bestu flaugar sínar en þær eru til af ýmsum gerðum. Reuter Hermenn Bandaríkjanna virðast ekki nægilega vel búnir undir átök enn. Simamynd Reuter BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG Ó R LY G S • BÓKAMARKADUR ARNAR OG ð R LV G S • BÓKAMARKAÐUR ARNAR OG ÓRLYGS Opið laugardaga kl. 10 til 18 mánudaga til föstudaga kl. 9 til 18 og sunnudaga kl. 11 til 16 Vegna fjölda tilmæla og mikillar aðsóknar framlengjum við bókamarkað okkar til sextánda þessa mánaðar. ORN OG ($ ORLYGUR Síðumúla 11 * Sími 84866 SÓAIBQ 00 UVNBV MnOVMUVHVMQB • S3ATMQ OO M V N M V M ÍIO V M M V H VM Q B ■ SOA1BQ OO MnQVMMVHVMQB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.