Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Blaðsíða 21
J66I a/ UHSH'í .9 H'JOACÍJJ/ í) -LAUGABDAGUIt 9. FEBRUAR 1991. % „Eg flýtti mér út í bílinn sem stóð fyrir utan og rétt í þvi kom björgunarsveitin á vettvang," segir Margrét Jónasdóttir. „Rosaleg lífsreynsla'' - segir Margrét Jónasdóttir í Sandgerði Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Við vorum ekki komnar inn í eldhúsið eins og við ætluðum okk- ur, sem betur fer því þá hefðum við fengið allt drashð yfir okkur, þetta gerðist meðan við vorum inni í sjónvarpsherbergi,“ sagði Margr- ét Jónasdóttir, sem býr á Klöpp við Sandgerði ásamt unnusta sínum, Karli Karlssyni, og dóttur þeirra, Karenu Helgu, en hún átti tveggja ára afmæli á mánudaginn var. í óveðrinu, sem reið yfir landið sl. sunnudag, urðu þau fyrir miklu fjárhagslegu tjóni þegar þakið af húsi þeirra fauk af í heilu lagi og margt innanstokksmuna skemmd- ist. „Við vorum staddar inni í sjón- varpsherberginu þegarþakiö fauk af í heilji lagi og jenti 60-70 metra frá bænum. -Ég heyrði að það var eitthvað að gerast og leit upp en vatn var þá farið að leka inn. Þá hringdi ég í unnusta minn sem var veðurtepptur í Reykjavík hjá tengdaforeldrum sínum. Þakplöfur byrjuðu að losna og síðan sviptist þakið af í einu lagi. Ég var mjög hrædd um að eitthvað lauslegt myndi hrynja yfir okkur og því forðaði ég mér með barnið úr hús- inu. Þegar ég opnaði dyrnar kom mik- ill gegnumtrekkur og allt lauslegt þeyttist út um allt húsið. Þetta var rosaleg lífsreynsla og sérstaklega fyrir dóttur mína sem ætlaði að halda upp á afmælið sitt þennan dag,“ sagði Margrét. ■ „Sem betur fer slasaðist enginn en þær voru í stórhættu meðan þetta dundi yfir. Ég táraðist þegar ég sá allt innbúið okkar sem hggur undir skemmdum. Við vorum ný- búin að kaupa allt nýtt en sem bet- ur fer vorum við tryggð. Það er ljóst að skaðinn á húsinu er mikill en ennþá vitum við ekki hvort við fáum hann bættan. Það er byrjað að endurnýja allt þakið og það sem skemmdist inni í húsinu. Reiknað er með að það taki tyo til þrjá mán- uði að ljúka verkinu," sagði Karl Karlsson. Bærinn Klöpp var byggöur árið 1936. NYTUM DROPAMI HBM SAMAN NOTUM STRÆTÖ STRÆTISVAGNAR REYKJAVÍKUR NÝRDAGUR AUGL ÝSlNGASTOFA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.