Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Blaðsíða 24
-ieer nkíimm .e æudaqæaðuaj
LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1991.
Austur-Landeyj ar:
„Versta sjokkið er liðið hjá. En
óneitanlega leið manni ekki vel
fyrst húsið fauk af grunninum en
nú er maður að jafna sig á þessu.
Þaö er ekkert neyðarástand hjá
okkur og við erum ekki húsnæðis-
laus því við getum haldið áfram að
búa í eldra húsinu. Það er ágætt
íbúðarhús byggt árið 1955. Það er
númer eitt að það var enginn í
húsinu því þá veit ég ekki hvernig
hefði farið,“ segir Auðunn Leifs-
son, bóndi á Leifsstöðum í Austur-
■ Landeyjum, en þar býr hann ásamt
konu sinni, Sæunni Birgisdóttur,
tveimur börnum, móður sinni og
systur. Það er blandað félagsbú á
Leifsstöðum, búið með kindur, kýr
og hesta.
Húsið var horfið
Ungu hjónin urðu fyrir tilflnnan-
legu tjóni í ofsaveðrinu á sunnudag
er íbúðarhús þeirra fauk.
„Ég leit út um gluggann rétt fyrir
tólf á sunnudagsmorguninn og
heim að húsinu sem stóð í um 200
metra fjarlægð frá eldra húsinu.
Skömmu seinna varð mér litið út á
nýjan leik og þá var húsið horfið
og brakið úr því hafði dreifst yfir
túnið, við sáum hins vegar ekki
þegar húsið fauk. Þetta var óskap-
legt veður og það gekk mikið á,
veggimir á eldra húsinu titruðu en
það stóð af sér veðrið sem betur
fór. Við teljum að það hafi komið
sterkur vindstrengur og svipt hús-
inu í einu lagi af grunninum án
þess þó aö við vitum nákvæmlega
hvað gerðist."
Húsið var viðlagasjóðshús, svo
- segir Auðunn Leifsson, bóndi á Leifsstöðum
Auðunn á grunninum þar sem íbúðarhús hans stóð.
DV-myndir GVA
er illa farið því víða hafa gróður-
torfur spænst upp. En óveðrið lét
ekki þar við sitja á Leifsstöðum því
um V, af þaki fjóssins fauk einnig.
Gífurlegt tjón
Auðunn og Sæunn höfðu tryggt
húsið en í samtali við DV á þriðju-
daginn sagði Sæunn aö hún hefði
talað við tryggingarfélagið og þaö
tæki ekki yfir þetta tjón en ungu
hjónim misstu megnið af öllum eig-
um sínum í óveðrinu og innbúið
var ótryggt.
„Ég hef ekki reiknað út hversu
mikið tjónið er en það er ljóst að
það er mikið. Ég hef verið beðin
um að setja það á blað og meta það
en ég hef ekki enn komist í að
reikna það út.
Það er mjög margt fólk sem hefur
haft samband við okkur vegna
þessa og maður finnur hvarvetna
fyrir velvild í okkar garð og fyrir
það er við þakklát,“ segir Leifur
-J.Mar
NÝTT Á ÍSLANDI
- VÖNDUÐ NORSK HEILSÁRSHÚS
Fallegir, gagnvarðir, með stórum veröndum og vönduðum handriðum. „Fransk-
ir“ opnanlegir gluggar. Einangraðir með 6... steinull í þaki og gólfi og 4... í útveggj-
um. Klæddir að innan með völdum, sérþurrkuðum, norskum furupanel. Margar
gerðir og stærðir, eða sérhannaðir eftir þinni tillögu. Afgreiðslufrestur 3 vikur.
KC & Cc. Vf 1-670470
Brakið úr húsinu dreifðist yfir bæjartúnið og á myndinni má meðal
annars sjá hversu illa eldavélin hefur farið en isskápurinn fauk enn
lengra út á túnið.
fyrir nokkur hundruð þúsund og
flytja í húsið.
Fundið skrúfjárn
firakiö úr húsinu dreifðist um
bæjartúnið á Leifsstöðum. Þyngstu
hlutirnir liggja í .um 100 til 200
metra fjarlægð frá grunninum en
léttustu hlutirnir fuku 800 til 1000
metra út á túnið. Húsið og flest af
því sem í því var molaöist mélinu
smærra og stór og þung heimil-
istæki hafa beyglast og brotnað.
„Ég hef ekki fundið neitt heillegt
af því sem var í húsinu nema eitt-
hvað smálegt. Til dæmis hef ég
fundið heilt skrúfjárn og eitthvaö
ámóta sem hefur sloppið óskemmt.
Allt annað er ónýtt,“ segir Auðunn.
Hluti af húsbrakinu lenti á rúllu-
baggastæðu og gataði plastið utan
á rúllunum en Auðunn telur að sér
hafi tekist að bjarga heyinu því
hann hafi getað límt fyrir götin.
Brakið fauk og á girðingarspotta
og eyðilagði hann að hluta auk þess
sem túnið þar sem brakið dreifðist
kallað gámahús, um 60 fermetrar
að stærð. Það var upphaflega reist
í Vestmannaeyjum eftir gosið árið
1973. Auðunn og Sæunn kona hans
keyptu húsið síðastliðið vor og
fluttu það austur að Leifsstöðum.
Síðan hafa þau unnið að því að
gera húsið upp.
„Það hafði ekki verið búið í hús-
inu í nokkur ár þegar við festum
kaup á því það þurfti því lagfær-
inga við. Ég vann sjálfur við að
gera það upp með aöstoð nágranna
minna og í vinnuskiptum við þá en
nágrenni hér er mjög gott og al-
gengt að menn hjálpi hverjir öðrum
þegar á þarf aö halda. Það þurfti
að þétta það og setja nýja dúka og
mála. Verkinu var nánast lokið,
það eina sem var eftir var að setja
dúk á eitt gólf og flytja inn.“
Sæunn og Auðunn voru auk þess
búin að kaupa sér sófasett, hillu-
samstæðu og' ýmis heimilistæki
Sumarbústaðir
greiðslukjör
Það er ekkert neyðar-
ástand hjá okkur