Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1991, Qupperneq 27
■ iIÍAlfcÁÍÍÖAftU'R. 9! í'KöteÁR íy 1.
39
Helgarpopp
Fönkrokksveitin Eftirlitið tekur til starfa að nýju:
Leggjuin kapp á að
ná eyrum útgefenda
„Þegar lögin okkar eru samin eru
þau ekki í neinum sérstökum stíl.
En þegar við Þyrjum að æfa enda þau
ávallt sem fönkrokk. Þetta eru áhrif
frá Gunnari. Hann hlýtur að hafa
verið halanegri í fyrra segir
Davíð Freyr Traustason, söngvari og
annar tveggja lagasmiða hljómsveit-
arinnar Eftirlitsins. Hinn er Gunnar
Hilmarsson sem fyrr var getið.
Eftirlitiö er nú að komast í gang
að nýju eftir fri síðan í desember.
Fyrstu tónleikarnir á árinu verða í
tónlistarmiðstöðinni Púisinum á
miðvikudaginn kemur. Eftir það
stendur til að hljómsveitin komi
fram í skólum og víðar.
„Við ætlum að bjóða fulltrúum
hljómplötuútgefenda á tónleikana á
miðvikudaginn,“ segir Gunnar. „Við
erum tilbúnir að senda frá okkur
plötu hvenær sem er svo fremivað
einhver vilji gefa okkur út. Við erum
með íjórtán fullæfð lög núna og eig-
um allnokkur til viðbótar niðri í
skúffu.“
Óskiljanlegur
blúsáhugi
Auk Davíðs Freys og Gunnars eru
í Eftirlitinu þeir Þorsteinn Magnús-
son gítarleikari og Gunnar Erhngs-
son trommuleikari. Gunnar spiiar á
bassa. Þeir segjast vera einu fönk-
rokkaramir á markaðinum um þess-
ar mundir sem betur fer, segja þeir,
en skilja ekkert í því að fleiri skuh
ekki fást við þessa tegund tónlistar.
„Lífið snýst allt um blús um þessar
mundir. Eins og hann er dauðleiðin-
legur,“ segir Gunnar og Davíð sam-
sinnir heilshugar. „Það er boðið upp
á fimm til sex blústónleika í viku í
Umsjón
Ásgeir Tómasson
Reykjavík. Ekkert annað virðist
komast að. Við bíðum spenntir eftir
því að þessi blúsalda fari rénandi.“
Aðgengilegt fönkrokk
Eftirlitið lék í fyrsta sinni opin-
berlega síðasthðið haust og þarf alls
ekki að kvarta yfir móttökunum. Að
minnsta kosti hafði hljómsveitin
talsvert að gera fram í desember og
vakti þónokkra athygli.
„Við ættum að ná til áheyrenda.
Svo mikið er vist,“ segir Davíð Freyr.
„Eönkrokkiö okkar er aðgengilegt
flestum sem eru til í að gefa okkur
séns. Við ætlum að leggja áherslu á
að fá útgefanda núna á næstunni og
taka þess vegna upp tvö lög. Það er
ekki nóg að æfa bara og spila. Menn
verða að koma lögunum sínum frá
sér á plötu til að geta haldið áfram
að þróast.“
Eftirlitið, Davíð Freyr Traustason, Gunnar Erlingsson, Gunnar Hilmarsson og Þorsteinn Magnússon, úti í kuldanum
við æfingabúðir sínar. DV-mynd ÁT
U2 plata í smíðum
U2 fremur undir evrópskum áhrifum
en ameriskum á næstu plötu sinni.
írska stórsveitin U2 er komin sam-
an að nýju og er byrjuð að taka upp
nýja plötu. Ekkert er gefið upp um
hvernig upptökur ganga. Svo tU það
eina sem spurst hefur um plötuna
er að hún sé frekar undir evrópskum
áhrifum en amerískum.
Hingað til hafa Bono, The Edge,
Larry Mullen og Adam Clayton unn-
ið að nýju plötunni í hljóðverum í
Berlín og Dublin. Daniel Lanois hef-
ur unniö með þeim. Hann hefur bæði
verið upptökumaður og upptöku-
stjóri hljómsveitarinnar í nokkur ár.
Þá er einnig reiknað með að Brian
Eno eigi eftir að koma við sögu við
takkastjómina.
Þrátt fyrir að tvö ár séu liðin síðan
síðasta U2 plata kom út er hljóm-
sveitin síður en svo gleymd og graf-
in. Seint á síðasta ári efndi breska
músíkblaöið Q til kosninga meðal
lesenda sinna og þar hlaut U2 titilinn
„Besta hljómsveit heimsins um þess-
ar mundir." Framkvæmdasfjóri U2
tók við verðlaunagrip fyrir hönd
sinna manna, kvað þá áreiðanlega
eftir að hlæja dátt aö því að verða
valdir heimsins besta hljómsveit eft-
ir aö hafa ekkert sent frá sér í tvö
ár en kvaðst þess fullviss að piltamir
væru þakklátir aðdáendum sínum
fyrir að vera ekki búnir að gleyma
þeim.
James Brown losnar senn
James Brown, guðfaðir soultón-
listarinnar eins og hann er oft nefnd-
ur, losnar senn úr fangelsi. Hann
verður látinn laus til reynslu í næsta
mánuði. Fastlega er búist við að
kappinn snúi sér þegar í stað að
plötugerð og hljómleikaferðum.
Brown hefur setið í fangelsi í um
tvö ár. Hann hlaut dóm fyrir ólögleg-
an vopnaburð og notkun ólöglegra
vímuefna. Fyrir nokkm var hann
fluttur úr harðlokuðu fangelsi í opið
og gert að skyldu að vinna þarfleg
störf í þágu samfélagsins þar til að
reynslulausninni kæmi. Hann er enn
samningsbundinn bandarískri
hljómplötuútgáfu og er reiknað með
að hann byrji að taka upp nýja plötu
um leið og fangelsisdvölinni lýkur.
James Brow'n ætti aö verða frelsinu
feginn eftir 2ja ára fangelsisdvöl.
Princeplata í lokavinnslu
Prince er væntanlegur i hljómleika-
ferö til Evrópu í sumar. Fyrirhuguö
er hópferö islenskra aödáenda.
Hinn ótrúlega afkastamikh Prince
er um þessar mundir að hljóðblanda
nýja plötu sína sem væntanleg er síð-
ar á þessu ári. Hann er hins vegar
enn að senda frá sér smáskífur af
Graffiti Bridge plötunni sem út kom
í fyrra. Lagið The Question Of U
verður næst til að koma út á lítilli.
Og fleira gerist í útgáfumálum
Prince á þessu ári. Öll myndbönd
hans hingað til eiga að koma út á
einni eða tveimur spólum. Kennir
þar margra grasa og margra athygl-
isverðra.
Prince á sér allmarga gallharða
aðdáendur hér á landi. Þeir mynda
með sér útibú frá Controversý, al-
þjóðlegum aðdáendasamtökum
Prince. Að sögn Siguröar Sveinsson-
ar, svæðisstjóra Controversy á ís-
landi, er fyrirhuguð ferð á Graffiti
Bridge hljómleika Prince í Evrópu í
sumar. Þá eru uppi hugmyndir um
ferð til Minneapolis í haust þar sem
næturlífið verður skoðað og meðal
annars litið inn á Glam Slam nætur-
klúbbinn sem Paisley Park, fyrirtæki
Prince, opnaði nýlega. Princeaðdá-
endur, sem enn hafa ekki tengst
Controversy klúbbnum, geta óskað
eftir nánari upplýsingum með þvi að
senda Sigurði bréf. Heimihsfang
hans er Njarðargata 29 í Reykjavík.
vveiiuiiiDOO
imrm 1' '' * m • ; 100 kr. leikurinn mánudaga til föstudaga
V kl. 12.00-17.00. 11
Keilusalurinn
[ , ■ ■! 1 * « Öskjuhlíð
FYLLINGAREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýrnun, frostþolið og þjappast
vel.
Ennfremur höfum við fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöföa 13 - sími 681833
Húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á húsnæði á Egils-
stöðum, Húsavík, ísafirði, Skagaströnd og
Þórshöfn.
Um er að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús,
u.þ.b. 150-200 m2 að stærð að meðtalinni bíl-
geymslu.
Tilboð, er greini stærð, byggingarár og -efni, fast-
eigna- og brunabótamat, verðhugmynd og áætlaðan
afhendingartíma, óskast send eignadeild fjármála-
ráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 21.
febrúar 1991.
Fjármálaráðuneytið, 7. febrúar 1991