Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
Helgi Hálfdanarson.
Sigurður Pálsson.
Fríða Á. Sigurðardóttir. Steinunn Sigurðardóttir. Gyrðir Elíasson.
Menningarverðlaun DV:
Fimm bækur tilnefndar
Viö höldum áfram aö kynna störf
nefnda sem eru langt komnar meö
sín störf. í dag birtum viö tilnefning-
ar til bókmenntaverölauna en þá
nefnd skipa Gísli Sigurðsson, Ingi-
björg Haraldsdóttir og Þórður Helga-
son. Fer hér á eftir álitsgerð nefndar-
innar:
„Tilnefndar hafa verið fimm bæk-
ur til verðlauna fyrir árið 1990. Þær
eru Grískir harmleikir í þýðingu
Helga Hálfdanarsonar, Ljóð námu
völd eftir Sigurð Pálsson, Meðan
nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðar-
dóttur, Síðasta orðið eftir Steinunni
Sigurðardóttur og Svefnhjólið eftir
Gyrði Elíasson.
Af þeim þýddu bókmennntaverk-
um, sem út komu á síðastliðnu ári,
sætir þýðing Helga Hálfdanarsonar
á Grískum harmleikjum tvímæla-
laust mestum tíðindum. Hér er um
að ræða snilldarþýðingu á sígildum
verkum sem fylgt hafa mannkyninu
í meira en tvö þúsund ár, stórbrotinn
texta sem hlýtur að verða íslending-
um nútímans jafnnauðsynlegur og
Hómers-kviðurnar urðu forfeðrum
okkar í þýðingu Sveinbjarnar Egils-
sonar.
Sigurður Pálsson sendir að okkar
mati frá sér eina athyglisverðustu
ljóðabók ársins, Ljóð námu völd. í
henni sameinast allir helstu kostir
skáldsins. Sigurði tekst í bókinni að
sameina hnyttni og alvöruþunga á
einkar persónulegan hátt, auk þess
sem ljóð hans einkennast af mynd-
vísi sem fáir aðrir ráða yfir. Sem fyrr
slær þjóðleg afstaða með alþjóðlegri
yfirsýn tón sem gerir ljóð Sigurðar
að sérstökum og heillandi þætti ís-
lenskrar ljóðagerðar.
í skáldsögu sinni Meðan nóttin líð-
ur tekst Fríða Á. Sigurðardóttir á við
einn meginvanda nútímamannsins
og reynir að svara spurningum sem
hver ábyrgur maður hlýtur að spyrja
og leita svara við. Skáldsaga Fríðu
er því mikilvægt verk fyrir samtím-
ann og á stíll bókarinnar og frásagn-
arháttur ekki sístan þátt í því að
skapa listaverk sem lætur fæsta
ósnortna.
Síðasta orðið eftir Steinunni Sig-
urðardóttur byggist á frumlegri hug-
mynd um að skrifa skáldsögu úr
safni minningargreina. Sagan hæðist
að útbreiddri vanahugsun í íslensku
þjóðlífi og nær fram mikilli dýpt með
því að sýna persónur frá ólíkum
sjónarhornum. Þannig birtist flókinn
veruleikinn í mannlegum samskipt-
um um leið og bent er á bilið sem er
á milli draums og veruleika í lífi
fólks.
Gyrðir Elíasson skilaði bókaárinu
1990 skáldsögunni Svefnhjólinu og
kannar í henni enn þau lönd sem
veruleikinn hylur mönnum, lönd þar
sem draumur og vaka renna saman
í eitt og lifendur og dauðir, kynja-
menn og -dýr eiga jafnan tilverurétt
eins og í ævintýrum. Gyrðir hefur
yfir þeim stílgaldri að ráða sem.sjald-
séður er í íslenskum nútímabók-
menntum og leggur hér ekki síst sitt
af mörkum til að skapa þann seið-
andi heim sem lesandanum opnast í
verkinu."
Það kemur svo í ljós fimmtudaginn
21. febrúar hver af þessum fimm rit-
höfundum, sem dómnefndin hefur
tilnefnt, fær bókmenntaverðlaunin
fyrir 1990. Áður hafa fengið menn-
ingarverðlaun fyrir bókmenntir: Ása
Sólveig, Sigurður A. Magnússon,
Þorsteinn frá Hamri, Vilborg Dag-
bjartsdóttir, Guðbergur Bergsson,
Thor Vilhjálmsson (tvisvar), Alfrún
Gunnlaugsdóttir, Einar Kárason,
Ingibjörg'Haraldsdóttir, Björn Th.
Björnsson.og Vigdís Grímsdóttir.
Framsókn, Reykjavík:
Framboðslist-
inn samþykkt-
ureinróma
Fulltrúaráð framsóknarfélag-
anna í Reykjavík hefur eimúma
samþykkt framboðslísta flokks-
ins fyrir alþingiskosningarnar.
Efstu sæti listans skipa:
1. Finnur Ingólfsson, 2. Ásta
Ragnheiður Jóliannesdóttir, 3.
Bolli Héðinsson, 4. Hermann
Sveinbjörnsson, 5. Anna Margrét
Valgeirsdóttir, 6. Þór Jakobsson,
7. Sigríður Hjartar, 8. Ásrún
Kristjánsdóttir, 9. Gunnar B.
Guðmundsson, 10. Vigdís Hauks-
dóttir, 11. Snorri Jóhannsson, 12.
Hafdís Harðardóttir, 13. Sigríður
Thorlacius, 14. Arnrún Kristins-
dóttir, 15. Þorsteinn Kári Bjarna-
son, 16. Karlotta J. Finnsdóttir,
17. Friðrik Ragnarsson og 18.
GerðurSteinþórsdóttir. -hlh
Vesturland:
Framboðslisti
Sjálfstæðis-
flokks
Kjördæmisráð hefur samþykkt
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins á Vesturlandi fyrir komandi
alþingiskosningar. Efstu sæti
listans skipa:
1. Sturla Böðvarsson, 2." Guðjón
Guðmundsson, 3. Elinbjörg
Magnúsdóttir, 4. Sigurður Rúnar
Friðjónsson og 5. Sigrún Símon-
ardóttir.
Þá var Sæmundur Kristjánsson
úr Dalasýslu kjörinn nýr formað-
ur kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins á Vesturlandi. -hlh
Áhyggjur
vegna
loðnubrests
Framkvæmdastjóm Verka-
mannasambandsins lýsir yfir
áhyggjum vegna loðnuveiði-
brests. Vill stjórnin að þeim afla
sem loðnuveiðiskipunum verður
úthlutað í bætur verði landað hjá
innlendum fiskvinnslustöðvum.
S.dór
-HK
Ríkisendurskoðun:
Svarar ekki að svo stöddu
Ríkisendurskoðun svarar ekki
að svo stöddu harðri gagnrýni Ól-
afs Ragnars Grímssonar fjármála-
ráðherra á stofnunina og starfs-
menn hennar vegna málefna Þor-
móðs ramma.
Sigurður Þórðarson hjá Ríkis-
endurskoðun sagði að um svar yröi
ekki að ræða fyrr en umræðum á
Alþingi væri lokið. Færi það einnig
eftir því hver niðurstaða umræðn-
anna yrði.
Fjármálaráðherra veittist mjög
að Ríkisendurskoðun í umræðum
utan dagskrár um Þormóð ramma
á Alþingi í fyrradag þar sem hann
efaðist mjög um faglega hæfni
starfsmanna stofnunarinnar og
sagði stofnunina hreinlega ekki
vera með á nótunum. -hlh
I dag mælir Dagfari__________________
Svívirðilegt siðleysi
Dagfari rakst á frétt í DV í síð-
ustu viku sem honum þótti í meira
lagi tíðindi. Þar var sagt frá því að
stjórn Dagsbrúnar hefði haldið
mikla veislu á kostnað félagsins án
þess að bjóða mótframbjóðendum
stjórnarinnar í nýafstöönum kosn-
ingum. Dagfari hélt að blaðiö
mundi fylgja þessari frétt eftir og
að minnsta kosti mótframbjóðend-
urnir, sem ekki voru boðnir, og
málið yrði kært til rannsóknarlög-
reglunnar. Þarna sátu sjötíu
manns á kostnað stjórnar, það er
aö segja stjómarmennirnir sjálfir,
makar þeirra og nokkrir trúnaðar-
menn og stuðningsmenn Dags-
brúnarstjórnarinnar. Boöiö var
upp á þorramat og brennivín og
segir sagan að hver hafi mátt éta
og drekka eins og hann lysti og
enginn gestanna rukkaður um eitt
eða neitt.
Þetta mál er auðvitað hið mesta
hneyksli. í fyrsta lagi er það óafsak-
anlegt að stjórnarmenn í Dagsbrún
geti boðið sjálfum sér út að borða.
I öðru lagi er það hálfu verra þegar
þeir taka makana með. Og í þriðja
lagi nær það ekki nokkurri átt að
stjórnin bjóði sjálfri sér út að borða
án þess að bjóða mótframbjóðend-
unum með. Allir vita að Dags-
brúnarmenn taka vel til matar síns
og þetta hefur þess vegna ekki ver-
iö nein smáveisla. ímyndið ykkur
Guðmund jaka við veisluborðið þar
sem hann hefur slafrað í sig svið-
akjömmunum og hrútspungunum
ókeypis! Hvað haldið þið að það
hafi kostaö Dagsbrún?
Stjórn Dagsbrúnar hefur verið
legið á hálsi fyrir að ráða félaginu.
Mótframbjóöendurnir voru óán-
ægðir með þá stöðu mála og lögðu
á það áherslu í kosningabaráttunni
að stjórnin þyrfti aðhald og stjórn-
in ætti ekki að ráða þótt hún væri
kosin til að ráöa. Og það var ein-
mitt þetta sem þeir meintu. Stjórn-
in étur ein út af fyrir sig og tekur
sjálf um það ákvörðun að bjóða
ekki öðrum með sér að borða og
spillingin leynir sér ekki. Lág-
markslýðræðiskrafa í Dagsbrún er
auðvitað sú að minnihlutinn sé
boðinn með og fái að sitja við sama
veisluborðið og stjórnin þegar
menn eru að éta á kostnað félags-
ins.
SVo mega menn heldur ekki
gleyma öðru mikilvægu atriði.
Dagsbrún er hætt að berjast fyrir
almennum launakröfum. Dags-
brún hefur meira að segja gengið á
undan til að halda niðri launum
og Dagsbrún hefur beitt sér gegn
því að sparifjáreigendur fái of háa
vexti af innlánum sínum. Dags-
brún hefur sem sé breytt um stefnu
og baráttuaðferðir og nú snýst
valdabaráttan í Dagsbrún um það
hverjir eru boðnir frítt i veislur
þegar stjórnarmenn fara út að
skemmta sér. Með hliðsjón af þess-
um breyttu viðhorfum í þessu
gamla og gróna verkalýðsfélagi,
sem hefur staðið í fararbroddi fyrir
bættum kjörum á íslandi, er það
eðlilegt að nú snúist helstu deilu-
efnin um þorramat og hrútspunga.
Kjörin í Dagsbrún ráðast af því
hver fær frítt og hver fær ekki frítt.
Það er af þessum ástæðum sem
hér er hneyksli á ferðinni og það
er af þeim ástæðum sem mótfram-
bjóðendurnir úr Dagsbrúnarkosn-
ingunum, sem féllu, vilja vekja at-
hygli á því að þeim er ekki ennþá
boðið og fengu þeir þó um þriðjung
atkvæða Dagsbrúnarmanna. Sá
stuðningur hefði átt að nægja til
að fá boðskort í þorramatinn.
Þetta gremst mönnum að vonum.
Þeir fá þriðjungsfylgi í kosningum
en verða samt að borga sinn eigin
þorramat. Þetta er ekkert lýöræði
og þetta eru engin sanngirni og þó
bendir allt til þess að nægur af-
gangur hafi verið í veislunni til að
aðrir hefðu getað étið frítt með
stjórninni. Jafnvel þótt Jakinn hafi
tekið vel til matar síns.
í næstu kosningum verður þetta
mál geymt en ekki gleymt. í næstu
kosningum þurfa menn ekki að
heyja baráttu í stjórnarkjöri án
þess að vita hvað eigi að berjast um.
í næstu kosningum verður þessi
matarveisla rifjuö upp og Dags-
brúnarstjórnin verður rukkuð um
kjammana, sem hún át, og hún
verður rukkuð um peninginn sem
hún kostaði. Og sú stjórn sem tekur
við á að hefna sín á gömlu stjórn-
inni og hún að fara ein út að borða
og ekki bjóða þessum eigingjörnu
átvöglum sem nú sitja í stjórninni.
Það á að láta þá éta þaö sem úti
frýs. Það væri mátulegt á þá.
Dagfari
..........í