Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991.
Utlönd
Norma Major var ekki heima
þegar sprengjuárásin var gerð á
Downingstræti 10.
Simamynd Reuter
Major-hjónin:
Hlustaðiá
sprenginguna í
símanum
Norma Major, eiginkona Johns
Major, forsætisráðherra Breta,
var að tala við einkaritara manns
síns og heyrði hávaðann þegar
liðsmenn írska lýðveldishersins
gerðu sprengjuárás á powning-
stræti 10. Sjálf var hún stödd úti
á landi.
„Þetta var hræðílegt. Ég vissi
ekkert hvað var að gerast því
símasambandið slitnaði og tlu
mínútur liðu áður en ritarinn
náði sambandi á ný og gat sagt
mér að allt væri í lagi. Þessi stund
var eins og heil eilifð,“ sagöi
Norrna.
„Þaö eina sem ég vissi var að
ritarinn sagöist halda að sprengja
heföi sprungið. Þetta kom mér
algerlega í opna sKjöldu en úr því
að allir sluppu ómeiddir þá þýðir
ekki að láta svona atvik hafa
áhrif á sig.“
Norma og John búa ekki aö
staöaldri að Downingstræti 10.
þau eiga annaö heimili nærri
Cambridge og þar dvelur jafnan
Norma ásamt sonum þeirra
tveimur. Þegar maður hennar tók
viö embætti forsætisráöherra
lýsti hún yfir áhyggjum sínum
vegnahryðjuverka. Reuter
Varsjárbandalagiö hættir aö vera til 1. apríl:
Sovétstjórnin
lét loks undan
- söguleg stund, segir forsætisráðherra Ungverjalands
„Ríkin, sem mynda Varsjárbanda-
lagið, hafa komist að þeirri niður-
stöðu að tími sé kominn til að stokka
upp hernaðarlegt skipulag banda-
lagsins," sagði Vitali Ignatenko, tals-
maður Mikhails Gorbatsjovs Sovét-
forseta, eftir að tilkynnt var að Var-
sjárbandalagið yrði lagt niður fyrir
lok marsmánaðar.
Ríkin sex, sem standa að Varsjár-
bandalaginu, stefna að því að það
verði ekki til í núverandi mynd eftir
1. apríl í vor.'Það eru einkum Tékk-
ar, Ungverjar og Pólverjar sem
þrýsta á um að bandalagið verði lagt
niður og hafa lagt ríka áherslu á það
á síðustu mánuðum að stundin verði
ákveðin þegar bandalagið hættir að
vera til.
Sovétmenn hafa til þessa ekki vilj-
að hraða máhnu en hafa nú gefið
eftir. Haldin verður ráðstefna leið-
toga bandalagsins síðar í þessum
mánuði. Þar verða slit bandalagsins
endanlega ákveðin.
Sovétmenn hafa aUa tíð ráðið öllu
Mikhail Gorbatsjov hefur fallist á að
Varsjárbandalagið verði lagt niður
þann 1. apríl.
Símamynd Reuter
sem þeir hafa viljað í Varsjárbanda-
laginu en ákváðu að nota herstyrk
þess ekki tfi að brjóta lýðræðishreyf-
ingar í Austur-Evrópu á bak aftur
síðustu tvö árin. Bandalagið hafði
um fimm milljónir hermanna undir
vopnum en hefur verið óvirkt að
mestu eftir að flest ríki Austur-
Evrópu sneru baki við kommún-
isma.
Ráðamenn í Austur-Evrópu hafa
fagnað ákvörðun Sovétstjórnarinn-
ar. Varnarmálaráðherra Póllands
sagði t.d. aö Gorbatsjov hefði loks
beygt sig fyrir hinu óhjákvæmilega.
Hann sagði að raunhæft væri að
ljúka verkinu fyrir 1. apríl. Þá sagði
hann að mikfivægt væri fyrir Pól-
veija að hætta að leggja fé tfi banda-
lagsins vegna erfiðrar fiárhagsstöðu.
Aörir hafa tekið í sama streng. Joz-
sef Antall, forsætisráðherra Ung-
veijalands, sagöi að upp væri að
renna söguleg stund fyrir þjóð sína.
Herir Varsjárbandalagsins voru not-
aðir gegn ungverskum uppreisnar-
mönnum árið 1956, ári eftir að banda-
lagiðvarstofnað. Reuter
Kína:
Andófsmenn dæmdir
í 13 ára fangelsi
Tveir þekktir lýðræðissinnar í
Kína voru í gær dæmdir í þrettán ára
fangelsi. Er þaö þyngsta refsing sem
lýðræðissinnar, sakaðir um að
steypa stjórninni með mótmælum
sínum 1989, hafa hlotið hingað til.
Réttarhöldin yfir Chen Ziming og
Wang Juntao, sem gefið var að sök
að hafa ætlað að steypa stjórninni,
tóku ekki langan tíma. Wang kom
fyrir rétt í gær og Chen á mánudag-
inn. Þriöji andófsmaðurinn, Liu
Gang, hlaut sex ára fangelsisvist. Hin
opinbera fréttastofa í Kína sagði
hann hafa viðurkennt glæpi sína og
sýnt iðrun. Lýðræðissinninn Chen
Xiaoping slapp við refsingu þar sem
hann gaf sig fram við yfirvöld og iðr-
aðist gerða sinna að því er fréttastof-
an sagði.
Stjómarerindrekar telja að kín-
verskum yfirvöldum sé í mun að
ljúka af réttarhöldum yfir andófs-
mönnum sem fyrst og ekki sé ljóst
hvort óþekktari andófsmenn veröi
leiddit fyrir rétt síðar.
Reuter
Friður í sjón-
mmu m m *m w
mali i Líbenu
Skriöur komst á friðarviðræður
vegna stríðsins í Líberíu í gær.
Nokkur ríki Vestur-Afríku
standa að viðræðunum og fara
þær fram í Lome, höfuðborg
Togo.
Einn þátttakandinn sagði í gær
að lausn á ófriðnum í Liberíu
værí nú í sjónmáli. „Við erum að
komast að niðurstööu. Það verð-
ur endanlega gengið frá vopna-
hléi áður en langt um líður,“
sagði maðurinn sem þó vildi ekki
láta nafhs sins getið.
Þótt lítið hafi verið baríst i Lí-
beriu síðustu mánuði ríkir þar
enn striðsástand. Deiluaðilar
hafa ekkí viljað fallast á vopnahlé
þótt máttur þeirra til að berjast
sé að mestu þorrinn. Landið er i
rústum eftir heiftúðuga borgara-
styrjöld á síðasta ári. Fjöldi
landsmanna hefur flosnað upp
frá heimilum sínum og jörðum
og er ýmist á vergangi eða fiúinn
úr landi.
Margir óttast að bardagar bijót-
ist út aö nýju ef viðræöumar nú
fara út um þúfur.
Reuter
Týndi hlekkur-
innfundinn
Nýlega fundust í Eþíópíu um 3,5
milljón ára gamli steingervingar,
sem gætu leyst hina aldagömlu
gátu um uppruna mannsins. Það
voru tveir fornleifafræöingar frá
Bandaríkjunum sem grófu upp
steingerð bein dýrs í mannslíki
og telja að þar séu komin elstu
merki þess að apar þar um slóöir
hafa tekið á sig mannsmynd.
Áður var taliö að bein, sem
fundust í Eþíópíu fyrir tveimur
áratugum, væru elstu minjar um
líf manna á jörðinni. Þau eru af
mannveru sem kölluð er Lucy en
fornleifafræðingar eru þó ekki á
eitt sáttir um hvort Lucy hafi lif-
að í tijám eins og api eða gengið
upprétt á jöröinni. Þeir deila
einnig um hve gömul beinin eru.
Beinin, sem nú fundust, eru
hins vegar ótvirætt talin úr
manni og eru eldri en þau
mannabein sem hafa áður fund-
ist.
Reuter
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Skógarhlíð 6, 3. hæð,
á neðangreindum tíma:
Austurberg 14, hluti, þingl. eig. Erla
Sigurðardóttir, föstud. 15. febrúar ’91
kl. 15.00. Uppboðsbeiðandi er Róbert
Ámi Hreiðarsson hdl.
Breiðhöfði 10, þingl. eig. Byggingar-
iðjan hf., föstud. 15. febrúar ’91 kl.
10.30. Uppboðsbeiðendur eru Gjald-
heimtan í Reykjavík og Iðnlánasjóð-
ur.
Flókagata 5, kjallari, þingl. eig. Er-
lingur B. Thoroddsen, föstud. 15. fe-
brúar ’91 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur
em Fjárheimtan hf., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen hrl. og
Reynir Karlsson hdl.
Grýtubakki 6, hluti, þingl. eig. Linda
S. Baldvinsdóttir, föstud. 15. febrúar
’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi er
Hjalti Steinþórsson hdl.
Grænahlíð 20, jarðhæð hægri, þingl.
eig. Ólafía Knstjánsdóttir, föstud. 15.
febrúar ’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðandi
er Helgi Sigurðsson hdl.
Háaleitisbraút 111, hluti, þingl. eig.
Ólafur Júníusson, föstud. 15. febrúar
’91 kl. 10.45. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík og íslands-
banki hf.
Háberg 42, þingl. eig. Jóhanna Kristj-
ánsdóttir, föstud. 15. febrúar ’91 kl.
11.00. Uppboðsbeiðendur em Guðjón
Ármann Jónsson hdl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Hjaltabakki 2, 2. hæð t.h., þingl. eig.
Guðmundur og Guðbjartur Þorsteins-
synir, föstud. 15. febrúar ’91 kl. 11.00.
Úppboðsbeiðandi er Guðjón Ármann
Jónsson hdl.
Hraunbær 42, 2. hæð, þingl. eig. Ruth
P. Sigurhannesdóttir, föstud. 15. fe-
brúar ’91 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur
em Ólafúr Áxelsson hrl., Baldur Guð-
laugsson hrl. og Guðjón Ármann
Jónsson hdl.
Hrefnugata 1, hluti, þingl. eig. Micala
Hannesson, föstud. 15. febrúar '91 kl.
11.30. Uppboðsbeiðendur em Kristinn
Hallgrímsson hdl., Gjaldheimtan í
Reykjavík og Guðjón Ármann Jóns-
son hdl.
Hverafold 26, þingl. eig. Aðalból og
Guðjón Magnússon, föstud. 15. febrú-
ar ’91 kl. 11.30. Uppboðsbeiðendur em
Eggert B. Ólafeson hdl. og Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Hverfisgata 105, 2. hæð hl. D, þingl.
eig. Hár & Snyrting sf., föstud. 15. fe-
brúar ’91 kl. 11.45. Uppboðsbeiðandi
er Iðnlánasjóður.
Kambsvegur 30, þingl. eig. Guðjón
Þór Ólafsson, föstud. 15. febrúar ’91
kl. 11.45. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík og Brynj-
ólfur Kjartansson hrl.
Kringlan 4, hluti, tal. eig. Jónas
Sveinsson og Gunnar Guðmundsson,
föstud. 15. febrúar ’91 kl. 11.00. Upp-
boðsbeiðendur em Steingrímur Ei-
ríksson hdl., Eggert B. Ólafeson hdl.,
Ingvar Bjömsson hdl., Gústaf Þór
Tryggvason hdl., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Biynjólfur Eyvindsson
hdl. og Helgi Sigurðsson hdl.
Krókháls 5A, austurhluti, þingl. eig.
Pólaris hf., föstud. 15. febrúar ’91 kl.
11.45. Uppboðsbeiðendur em bæjar-
fógetinn í Hafnarfirði og Ólafúr Gúst-
afsson hrl.
Laugavegur 163, hluti, þingl. eig. Ár-
roði hf., föstud. 15. febrúar ’91 kl. 11.00.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Markarvegur 16, hluti, þingl. eig. Sig-
fús Ö. Ámason, föstud. 15. febrúaí ’91
kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur em Jó-
hann Þórðarson hrl. og Gjaldheimtan
í Reykjavík.
Mávahlíð 1, hluti, þingl. eig. Atli
ísleifúr Ragnarsson, föstud. 15. febrú-
ar ’91 kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er
Jón Þóroddsson hdl.
Mávahlíð 15, hluti, þingl. eig. Guðný
Einarsdóttir, föstud. 15. febrúar ’91 kl.
13.45. Uppboðsbeiðandi er Fjárheimt-
an hf.
Mávahlfð 23, efri hæð; þingl. eig. Sig-
urbjört Gunnarsd. og Öm Sigurðsson,
föstud. 15. febrúar ’91 kl. 14.00. Upp-
boðsbeiðendur em Tryggingastofhun
ríkisins, Baldur Guðlaugsson hrl. og
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Melbær 38, þingl. eig. Steinn Hall-
dórsson, föstud. 15. febrúar ’91 kl.
14.00. Uppboðsbeiðendur em Ævar
Guðmundsson hdl., Gjaldheimtan í
Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen hrl.,
Landsbanki Islands og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Mýrargata 2, hluti, þingl. eig. Stál-
smiðjan hf., föstud. 15. febníar ’91 kl.
11.15. Uppboðsbeiðandi er Gjald-
heimtan í Reykjavík.
Möðmfell 9, 3. hæð t.h., þingl. eig.
Helga Sóley Alfreðsdóttir, föstud. 15.
febrúar ’91 kl. 14.15. Uppboðsbeiðend-
ur em Ingi H. Sigurðsson hdl., Veð-
deild Landsbanka íslands og Gjald-
heimtan í Reykjavík.
M.b. Orion, dráttarbátur, þingl. eig.
Köfúnarstöðin hf., föstud. 15. febrúar
’91 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Reykjavík, Óskar
Magnússon hdl. og Stefán Bj. Gunn-
laugsson hdl.
Nönnufell 1, hluti, þingl. eig. Runólfur
Eggertsson, föstud. 15. febrúar ’91 kl.
14.30. Uppboðsbeiðendur em Andri
Ámason hdl., Gjaldheimtan í Reykja-
vík og Halldór Þ. Birgisson hdl.
Nönnufell 3, 2. hæð t.v., þingl. eig.
Jakob Sigurðsson Bachmann, föstud.
15. febrúar ’91 kl. 14.15. Uppboðs-
beiðendur em Jón Ingólfeson hrl. og
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Rjúpufell 29, hluti, þingl. eig. Sigurrós
Agnarsdóttir, föstud. 15. febrúar ’91
kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em
Halldór Þ. Birgisson hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Guðjón Ármann
Jónsson hdl., Landsbanki íslands,
Búnaðarbanki íslands, Gjaldheimtan
í Reykjavík og íslandsbanki hf.
Skaftahlíð 10, 2. hæð f.m„ þingl. eig.
Iðnvélar og tæki hf„ föstud. 15. febiú-
ar ’91 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em
Islandsbanki hf„ Gjaldheimtan í
Reykjavík og Lögmenn, Hamraborg
12.
Smiðjustígur 12, þingl. eig. Halldóra
Kristjánsd. og Jóhannes Vilhjálms,
föstud. 15. febiúar ’91 kl. 14.45. Upp-
boðsbeiðendur em Tiyggingastofhun
ríkisins, Skúli Sigurðsson hdl., Lög-
fræðiþjónustan hf. og Veðdeild Lands-
banka Islands.
Spóahólar 20,2. hæð, þingl. eig. Krist-
inn Kjartanss. og Guðmn Agústsd.,
föstud. 15. febrúar ’91 kl. 14.45. Upp-
boðsbeiðendur em Baldur Guðlaugs-
son hrl. og Veðdeild Landsbanka Is-
lands.
Tjamargata 10A, 4. hæð, þingl. eig.
Bjami Sigtryggsson, föstud. 15. febrú-
ar ’91 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur em
Veðdeild Landsbanka íslands, Val-
garður Sigurðsson hdl., Gjaldheimtan
í Reykjavík og Ásgeir Thoroddsen hrl.
Þingholtsstræti 5, þingl. eig. ísafoldar-
prentsmiðja hf., föstud. 15. febrúar ’91
kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Iðn-
lánasjóður, Búnaðarbanki íslands,
Gjaldheimtan í Reykjavík og Eggert
B. Ólafeson hdl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVÍK