Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1100 kr. Verð í lausasölu virka daga 105 kr. - Helgarblað 130 kr. Bankana til fólksins Bankar eða sparisjóðir skipta miklu í lífi nær hvers manns. Því er brýnt, að þessar stofnanir veiti góða þjón- ustu, séu manneskjulegar. Bankar eru á breytingatím- um um þessar mundir og þróun hröð. Margt hefur breytzt um bankastarfsemi á stuttum tíma. Verðbréfa- markaður blómstrar og hlutabréfamarkaður er farinn að skjóta rótum, svo að dæmi séu nefnd. Nú tala menn um raunvexti af sparifé, það eru vextir umfram verð- bólgu, í stað þess, að fyrir rúmum áratug var reglan gjafvextir, það eru vextir sem voru minni en verðbólg- an, spariféð rýrnaði stöðugt, en hinir skuldugu græddu. Þetta eru framfarir. Peningalegur sparnaður hefur tvö- faldazt á tíu árum, þegar skoðað er, hver sparnaðurinn er í hlutfalli við framleiðsluna í landinu. Nú heyrir það sögunni til, að lánsfé sé skammtað, þótt að sjálfsögðu fái ekki allir allt. Frjálsræði í bankamálum hefur aukizt mikið. Búast má við tilkomu erlendra aðila, svo sem erlends eða er- lendra banka. Samkeppnin um sparifé landsmanna mun vaxa. Ætlunin er að afnema nær öll höft í gjaldeyrisvið- skiptum innan fárra ára. Allt þetta ber að sama brunni: Það verður að auka enn aðhald að bönkunum. En það verður jafnframt með afli upplýsts almenningsálits að stöðva, að stjórnmálamenn megni að rugla spilunum 1 bankamálum. Bankaráð og bankastjórar eiga ekki að vera gæðingar flokksforystna, og ríkisbanka þarf að afleggja. Þá þarf að uppfræða fólk, svo að samvizkulaus- ir stjórnmálamenn geti ekki blekkt, til dæmis með því að halda því fram, að hækkun vaxta auki verðbólgu. Hér er mikið verk óunnið, eins og nýleg dæmi sanna. Bankarnir ráðgera ýmsar nýjungar á næstunni, svo sem að þróa gírókerfið, sjálfvirkar færslur í bönkum og svonefnd debetkort, sem leysi tékka af hólmi að hluta. Þetta er geysimikilvægt öllum almenningi. Sem dæmi má nefna, að útgefnir tékkar voru í fyrra um það bil 28,5 milljónir talsins. Ef kostnaður við hverja ávísun eru 44 krónur, þá er heildarkostnaðurinn 1250 milljónir króna. Viðskiptamenn hafa að líkindum greitt 250 millj- ónir króna fyrir þessar ávísanir, bara fyrir ávísanablöð- in ein. Verð seldra gíróseðla hefur getað verið um 380 milljónir króna, bara fyrir blöðin ein. Þarna hafa verið tekin dæmi um greiðslur, sem fólk hugsar gjarnan lítið um en skipta miklu, þegar saman kemur. Úr þessu má bæta. Fyrirhugaðar nýjungar ættu að leiða til hraðvirkari og betri þjónustu bankanna, draga úr notkun seðla, myntar og tékka og auka öryggi í viðskiptunum. Tékkar eru dýr greiðslumiðill, eins og nefnt var hér að framan, og tímafrekur. Með tilkomu strimlakerfisins í búðar- kössunum tekur oft lengri tíma að fylla út tékkann en að slá inn í kassann. Þannig ráðgera bankamir mikil- vægar úrbætur, en sitthvað hefur á hinn bóginn breytzt til hins verra. Biðraðir í bönkum höfuðborgarinnar eru aftur orðnar algeng sjón og minna á fréttir úr austur- vegi, þar sem efnahagur er í rúst. Bankar og sparisjóðir verða einnig að snúa sér að því að fylgja þeirri þróun, að afgreiðslutími fari eftir þörfum vinnandi fólks. Verzl- anir hafa verið á réttri leið og nú bíðum við eftir bönkun- um. Forráðamenn bankanna reyna stöðugt að veita betri þjónustu, en þeir þarfnast meiri víðsýni. Þótt margt sé vel, og kannski flest, þarf margt að bæta til að flytja bankana meira til fólksins Haukur Helgason Af nemum auð- lindaskattinn Að undanfórnu hefur gætt þess misskilnings að uppi séu hug- myndir um álagningu auðhnda- skatts. Misskilningurinn hefur meðal annars verið fólginn í því að ruglað er saman sölu veiðileyfa og auðlindaskatti. Hér mun gerð til- raun til að skýra þennan misskiln- ing og sýnt fram á að auðlinda- skattur og sala veiðileyfa eru and- stæðir pólar og aö reyndar hafi auðlindaskattur verið innheimtur um langt árabil, þótt dulbúinn sé. Fiskistofnarnir eru þjóðareign Fiskistofnarnir á miðunum um- hverfis landið eru sameign þjóðar- innar. Þetta er fest í lögum um stjóm fiskveiða. Á hinn bóginn hefur þjóðin ekki notið eignar sinnar sem skyldi. Því er nefnilega svo farið aö virði eignar ræðst af arðinum sem hún gefur af sér. Hvað fiskistofnana varðar þá eru þeir takmörkuð auðlind og ættu sem slíkir að gefa af sér rentu. Mat á slíkri rentu hefur verið fram- kvæmt hjá Háskóla íslands og hef- ur niðurstaðan verið sú að um væri að ræða verðmæti að fjárhæð 16 til 28 milljarðar króna á núver- andi verðlagi, en þá er miðað við markaðsvirði þeirra réttinda að nýta auðlindina í eitt ár. Skattlagningin Þessi verðmæti, sem jafngilda •árlegum tekjum að fjárhæð 63 þús- und krónur á hvert mannsbarn, hefur almenningur farið á mis við. Ástæðan er sú að hið opinbera hef- ur gert arðinn af auðlindinni upp- tækan með dulbúinni skattlagn- ingu. Ríkið hefur nefnilega látið útgerðinni veiðiheimildir í té - ókeypis - og það felur í sér tvennt í senn. í fyrsta lagi er um að ræða skattlagningu á almenning, sem af þessum sökum verður af sínum 63 þúsundum króna á mann. Þessar tekjur hafa verið teknar af almenn- ingi áður en hann fær þær í hendur en þaö er sami háttur og hafður er á um tekjuskatt einstaklinga. Skattlagningin á sér hins vegar staö án þess að einstaklingnum sé gerð grein fyrir því, gagnstætt því sem gert er með tekjuskattinn. Skatturinn er dulbúinn. í öðru lagi hafa skattatekjumar verið veittar beint til útgerðarinnar. Útgerðin hefur síöan ráðstafað fénu með dýrari og óhagkvæmari sókn. Rétt- ur almennings til auðlindarent- unnar, arösins af hinni sameigin- legu eign, hefur að sama skapi ver- ið virtur aö vettugi. Brestir í bókhaldi Sú skattlagning, sem hér er lýst, hefur verið með þeim hætti að í KjaUariim Yngvi Harðarson hagfræðingur bókum hins opinbera eru hvorki skattatekjurnar færöar til tekna né heldur styrkirnir til útgerðarinnar til gjalda. Þessa bresti í bókhaldi ríkisins ber vitanlega að leiðrétta hiö allra fyrsta en einnig ber að afnema auðhndaskattinn. Skatturinn er nefskattur Ein af þeim ástæðum, sem knýr á um að auðlindaskatturinn verði afnuminn, a.m.k. að margra mati, er þaö hvernig hann er lagður á almenning. Álagningin er nefni- lega alveg óháð tekjum einstakling- anna. Þannig er sama fjárhæð, minnst 63 þúsund krónur á ári, innheimt af hverju mannsbarni í landinu, hvítvoðungi sem elhlífeyrisþega, verkamanni með 50 þúsund króna mánaðarlaun og ráðherra með 274 þúsund í mánaðarlaun. Skatturinn er því gæddur sömu eiginleikum og hinn óvinsæh nefskattur, sem nýverið var tekinn upp í Bretlandi, nema hvað þar er skatturinn til dæmis ekki lagður á nýfædd böm. Lífskjör að láni Enn hefur í þessari grein ekkert verið minnst á sambandið milh innheimtu núverandi auðlinda- skatts og gengisskráningar krón- unnar, en til þessa hefur gengis- skráningin tekið mið af því að af- koma sjávarútvegs sé innan til- tekinna marka. Sú viðmiðun, ásamt styrkjum til sjávarútvegs í formi ókeypis veiðiheimilda, hefur þýtt að gengi krónunnar hefur að jafnaði verið haldið hærra en ella hefði verið. Þannig hafa innfluttar vörur verið tiltölulega ódýrar í samanburði við innlendar vörur og það virkað sem kjarabót. Sá lífskjarabati hefur hins vegar verið tekinn að láni erlendis þar sem útflutningstekjur hafa ekki nægt til að greiða andvirði inn- flutnings. Þannig hefur veriö hahi á viðskiptum við útlönd í rösklega þrjú ár af hverjum fjórum sé litið yfir tímabihð frá 1960. Því má segja að almenningur hafi óafvitandi verið hvattur til að taka erlend lán fyrir þeim hluta neyslu og fjárfest- ingar sem tekjur þjóðarinnar duga ekki fyrir. Hið sama gildir um at- vinnurekstur. Andstæðir pólar En hvernig er unnt að afnema auðlindaskattinn? Það er unnt með því að láta sölutekjur af veiöileyf- um renna til almennings. Sölutekj- ur sem fást með því að selja útgerð- inni aflaheimildir á frjálsum mark- aði. Þar með væri styrkveiting hins opinbera til útgerðar í formi ókeyp- is veiðileyfa afnumin en jafnframt væri skatturinn afnuminn og lífs- kjör almennings bötnuðu. Sala veiðileyfa og auðhndaskattur eru því ekki hið sama, heldur andstæð- ir pólar. Óþarfir ríkisstyrkir Við þetta bætist síöan að sá at- vinnuvegur, sem best á að geta borið sig, nýtur ríkisstyrkja með þeim hætti sem hér er lýst. Vitan- lega er alger óþarfi að styrkja starf- semi sem þjóðin er fyllilega fær um að stunda styrkjalaust. Samkeppn- isstaða atvinnuveganna á einfald- lega að endurspeglast í gengis- skráningu krónunnar. Ef pólitísk- ur vilji er hins vegar fyrir því aö innheimta áfram auðlindaskatt ætti að huga að því að verja skatt- fénu með skynsamlegri hætti en nú er gert. Yngvi Harðarson „Þessi verðmæti, semjafngilda árleg- um tekjum að Qárhæð 63 þúsund krón- ur á hvert mannsbarn, hefur almenn- ingur farið á mis við. Astæðan er sú að hið opinbera hefur gert arðinn af auðlindinni upptækan með dulbúinni skattlagningu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.