Dagblaðið Vísir - DV - 13.02.1991, Side 24
32
.reer ífAiwap .er HUÐAaujíiVGFiM
MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1991.
Nauðungaruppboð
Vegna vanefnda uppboöskaupanda verður fasteignin Engihjalli 9, 8. hæð
C, þinglesin eign Nönnu Þorsteinsdóttur, boðin upp að nýju og seld á
nauðungaruppboði sem fram fer á eigninni sjálfri föstudaginn 15. febrúar
1991 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru islandsbanki, Gjaldskil sf„ Ólafur
Gústafsson hrl., Ásdis Rafnar hdl., Sigurmar Albertsson hrl., Landsbanki
islands, Róbert Árni Hreiðarsson hdl. og Húsnæðisstofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Höfum opnað að nýju flísaverslun
Nýborgar hf. að Skútuvogi 4. Vandaðar
vörur á betra verði. Frá Spáni, Ítalíu og
Þýskalandi. Fúgi og lím frá Kerakoll-
verksmiðjunum á italíu. Leiðandi fyrir-
tæki á sínu sviði.
Leggjum áherslu á betra verð og gæði.
Nýborg (%>
Skútuvogi 4, sími 82470.
FREEPORTKLUBBURINN
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 14.
febrúar kl. 20.30 í Bústaðakirkju. •
Gestur fundarins:
Jónas Kristjánsson ritstjóri.
Öllu áhugafólki er frjáls þátttaka.
Stjórnin
SKÁKKEPPNI STOFNANA
OG FYRIRTÆKJA 1991
hefst í A-riðli mánudag 18. febrúar kl. 20.00 og í
B-riðli miðvikudag 20. febrúar kl. 20.00.
Teflt verður í Félagsheimili Taflfélagsins að Faxafeni
12. Keppt er í fjögurra manna sveitum og er öllum
fyrirtækjum og stofnunum heimil þátttaka í mótinu.
Nýjar keppnissveitir hefja þátttöku í B-rióli.
Þátttöku í keppnina má tilkynna í síma Taflfélagsins
á kvöldin kl. 20-22. Lokaskráning í A-rióli veröur
sunnudag 17. febrúar kl. 14-17, en í B-riðli þriðju-
dag 19. febrúar kl. 20-22.
Taflfélag Reykjavíkur, Faxafeni 12, 108 Rvík
Símar 83540 og 681690
ISH0KKIVÖRUR
Skautar, kylfur, pekkir,
hjálmar, grindur, hanskar,
buxur, axlahlífar
og legghlífar.
Einnig mikið úrval af
listskautum.
Afar hagstætt verð
Sendum í póstkröfu
spörTI
MARKAÐURINN
SKEPHOLTI 50C, StMl 31290
Sviðsljós
Ferðafólk á
febrúarfagnaði
Um síðustu helgi stóö Ferðaskrif-
stofa Reykjayíkur fyrir febrúarfagn-
aði á Hótel íslandi. Til fagnaðarins
var öllum Benidormförum boðið, svo
og öðrum viðskiptavinum og velunn-
urum ferðaskrifstofunnar.
Var gestum boðið upp á kokkteil
og ýmis skemmtiatriði. Jóhannes
Kristjánsson eftirherma lét gamm-
inn geisa og dansarar frá Dansskóla
Auðar Haralds sýndu dans. Að lok-
um var dregið í ferðahappdrætti er
efnt var til.
Á meðfylgjandi myndum eru
nokkrir þeirra er mættir voru á Hót-
el ísland þetta kvöld.
Jónatan Þórmundsson, íslaug Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri ferða-
skrifstofunnar, Soffia Halldórsdóttir, Rebekka Friðgeirsdóttir, Eydis Einars-
dóttir, Inga Andrésdóttir, Sigríður Jóhannsdóttir, sem allar starfa hjá Ferða-
skrifstofu Reykjavíkur, og Jóhann Björnsson.
Sigríður Kristófersdóttir, Benedikt Benediktsson, Guólaug Kristófersdóttir,
Niels J. Hansson, Karl E. Loftsson og Valdís Ragnarsdóttir, öll farþegar hjá
Ferðaskrifstofu Reykjavikur.
Dýrt að tjá ást sína
-hjá stjörmmum í Hollywood
SyIvester Stallone stóðst ekki mátiö er hann sá Jennifer, þrátt fyrir fyrirheitin.
Það er nóg að gerast í rómantíkinni
í Hollywood um þessar mundir. Ný-
lega festu tveir eftirsóttir karlmenn,
Sylvester Stallone og Kiefer Suther-
land, ráð sitt þar í þorg. Og heitmeyj-
arriar þurftu sannarlega ekki aö
kvarta því þáðar fengu þær dýrindis
demantshringa í kaupbæti.
Sylvester Stallone, sem er tvífrá-
skilinn, var að yngja upp, en nýja
unnustan, Jennifer Flavin, sem er
23 ára gömul, er 21 ári yngri en hann.
Þau trúlofuðu sig í skíðaferð nýlega
og gaf hann henni sjö og hálfrar
milljónar króna demantshring. Aö
vísu var Stallone búinn að heita því
áð hætta öllu kvennastússi því síöari
eiginkona hans, Birgitte Nielsen,
hafði af honum dágóða fulgu við
skilnaöinn.
Það var síðan „stórkostleg stúlka"
sem nældi í Kiefer Sutherland, eða
öfugt. En Julia Roberts er fræg fyrir
að hafa leikið í hinni geysivinsælu
mynd, Stórkostleg stúlka. Viö trúlof-
unina gaf hann henni rúmlega
Storkostlega stúlkan sýnir hringinn
dýrmæta frá Kiefer Sutherland.
þriggja milljóna króna demants-
hring. Sögur segja að þau séu yfir sig
ástfangin en þau kynntust er þau
voru að leika saman í myndinni
Flatliners.
Ólyginn
sagði...
Mark Stevens
sem leikur Nick Page í sjónvarps-
þáttunum Nágrannar, ætlaöi aö
gera garðinn frægan á fleiri svið-
um en leiklistarinnar og var rétt
í þann veginn að gefa út plötu
fyrir stuttu er hann var stoppað-
ur af. Titillag plötunnar, Enskur
og niöurbrotinn, þótti óviðeig-
andi sökum kringumstæöna í
heimsmálum. Þetta er ekkijýrsta
lagið sem fær slíka útreið þessa
dagana, BBC hefur sett mörg
fræg lög á bannlista, einkum lög
er á einhvern hátt tengjast stríðs-
málum eða friöarmálum. T.d. er
Waterloo með Abba bannað
vegna þess að Bretar töpuðu orr-
ustu er tengdist þeim stað og lag-
iö Give Peace a Chance með Bítl-
unum er einnig bannaö.
Paloma Picasso
sem er fræg fyrir að vera dóttir-
frægasta málara allra tíma og
framleiða samnefnt ilmvatn, er
ákveöin í að eignast ekki börn.
Hún og eiginmaður hennar, Rap-
hael Lopez-Cambil, hafa ákveðið
aö nota lífsorkuna í önnur verk-
efni en barnauppeldi. Þau hjónin
feröast mikiö og eyða allt að þriðj-
ungi ársins á hótelum víös vegar
um heiminn. Segja sögur að þau
séu eins og sköpuð hvort fyrir
annað. Að hún sé þessi skapandi
og óskipulagði persónuleiki en
hann sá sem tekur til og kemur
reglu á hlutina.
Sinead O'Connor
snoðaða írska söngkonan, sem
fræg er fyrir aö fara ekki troðnar
slóðir, hefur látið í veðri vaka að
hún vilji losna við frægðarljóm-
ann. Hún vakti mikla hneykslan
á síðasta ári í Bandaríkjunum er
hún neitaði að bandaríski þjóð-
söngurinn yröi leikinn fyrir tón-
leika hennar. Hin 23 ára gamla
söngkona sagði í viðtali nýlega
að henni líkaði frægðin mjög illa.
Þaö hefur reyndar verið augljóst
frá upphafi ferils hennar því aö
hún hefur atþakkaö flest verð-
laun og viðurkenningar og gert
lítið úr uppákomum er tengjast
lífi fræga fólksins.