Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 1991. 9 Utlönd Niðurstöður kosninganna á Grænlandi koma á óvart: Miðflokkurinn sigraði óvænt - Jonathan Motzfeldt heldur að öllum líkindum velii Andstætt öllum spán er Bjarne Krautzman, fyrrum borgarstjóri í Nuuk og stofnadi nýja Miðflokksins, sigurvegari kosninganna á Græn- landi. Þegar búið var að telja tvo þriðju atkvæða var flokkur hans kominn með 11,2% atkvæða og þrjú þingsæti en spár bentu til að Bjarni næði einn frambjóðenda flokksins naumlega sæti á landsþinginu. Miðflokkurinn var stofnaður með stuttum fyrirvara nú í vetur. Að hon- um standa einkum sveitarstjórnar- menn, sem eru óánægðir með fram- göngu Jonathans Motzfeldt og stjórn- ar hans í efnahagsmálum. Þá gagn- rýndu flokksmenn spilhngu ráða- manna harðlega. Þótt gagnrýni miðflokksmánna beindist einkum að Siumut-flokkn- um og Motzfeldt þá virðast þeir hafa unnið mest fylgi af stjómarandstöðu- flokknum Atassut. Sá flokkur hefur tapað um 12% af fylgi sínu. Atassut- menn berjast fyrir því að Grænlend- ingar gangi á ný í Evrópubandalagið en sú stefna hefur greinilega ekki falhð Grænlendingum í geð. Flokk- urinn tapaði þremur sætum á þingi og hefur nú átta. Siumut-flokkurinn tapar aðeins 2,1% sem þykir undraverður árang- ur þegar haft er í huga að flokkurinn hefur setið undir þungú ámæli fyrir spihingu og sóun á opinberu fé. Heimastjórn Motzfeldts hefur til þessa notið stuðnings flokks Inuita sem jók fylgið um 2,5% og vann eitt þingsæti tU viðbótar við þau fjögur sem flokkurinn hafði áður. Siumut hélt sínum 11 þingsætum. Stjórnin hefur því styrkt stöðu sína. Á grænlenska landsþinginu eru 27 sæti og hefur stjórnin nú að baki sér 16 þeirra. í persónulegri keppni Motzfeldt og Lars Emil Johansen hafði sá síðarnefndi betur en Motz- feldt sagði í morgun að það breytti engu um stöðu sína því hann ætlaði sér að leiða flokkinn áfram. Ritzau Fyrstu aukakosnlngar í embættistíð Johns Major: íhaldsf lokkurinn í hættu - þráttfyrirvinsældirleiðtogans John Major er í Moskvu og ræðir við Mikhail Gorbatsjov meðan flokks- félagar hans heima berjast fyrir fyrsta kosningasigrinum i embættistíð hans. Símamynd Reuter Skoðanakannanir sýna að John Major forsætisráðherra og íhalds- flokkur hans gætu lent í vanda þegar aukakosningar verða haldnar í einu af sterkustu vígum flokksins nú í vikunni. Kosið verður um þingsæti flokkins í Ribble Vahey í Norður- Englandi. Þetta eru fyrstu aukakosningamar á Englandi frá því Major tók við embætti í nóvember síðasta haust og því er litið á þær sem prófstein á vin- sældir forsætisráðherrans. Skoðanakönnun, sem birt er í dag- blaðinu Indipendent, sýnir að íhalds- menn njóta stuðnings 45% kjósenda en jafnaðarmenn eru með 34% fylgi. Verkamannaflokkurinn stendur þar nokkuð að baki hinum flokkunum tveimur með 18%. Það sem veldur íhaldsmönnum áhyggjum er að 10% af stuðningsmönnum þeirra sögðust helst vhja frambjóðanda jafnaðar- manna og mundu kjósa hann ef hann ætti möguleika á að ná kjöri. Þá sýndi könnunin að fylgi íhalds- flokksins er 16% minna en í síðustu kosningum og hafa jafnaðarmenn unnið það fylgi. í lokaslagnum fyrir kosningarnar gætu þeir hæglega náð að skjóta íhaldsmönnum ref fyrir rass ef frambjóðanda jafnaðarmanna tekst að sannfæra þá um að hann eigi möguleika. Skoðanakannanir á landsvísu sýna að John Major er vinsælasti forsætis- ráðherra Breta allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þar nýtur hann framgöngu sinnar í Persaflóa- stríðinu rétt eins og George Bush, sem er vinsælasti forseti Bandaríkj- anna frá stríðslokum. Það vekur hins vegar athygh að íhaldsflokkurinn er ekki jafnvinsæh og leiðtogi hans. Skoðanakannanir sýna að Ihaldsflokkurinn er aðeins líthlega vinsæhi en Verkamanna- flokkurinn. Svo virðist því sem John Mjaor hafi á fyrstu 100 dögunum í embætti tekist að treysta sig í sessi en ekki flokk sinn. Reuter Sovétríkin: Verkfall námumanna breiðist út Verkfall kolanámumanna í Sovét- ríkjunum breiddist út í gær og er það nú sagt ógna iðnaðinum í landinu. Valentin Pavlov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, segir hins vegar kröf- ur námumanna óréttmætar. Námu- mennirnir fara fram á hærri laun og betri skilyrði auk þess sem þeir kreíj- ast afsagnar Gorbatsjovs Sovétfor- seta. Pavlov segir kröfur námumanna um allt að 150 prósent engan veginn samræmast minnkandi framleiðslu. Frá áramótum hefur landsfram- leiðsla minnkað um 5 prósent, að sögn forsætisráðherrans. Talsmenn verkalýðsfélaga í Kuz- bass námuhéraðinu í vesturhluta Síberíu sögðu í gær verkamenn í fimm námum hafa lagt niður störf um óákveðinn tíma í kjölfar sólar- hrings verkfalls á mánudaginn. Tass fréttastofan sovéska sagði talsmenn námumanna hafa vísað á bug fuh- yrðingum verkalýðsleiðtoganna og sagt að vinna lægi aðeins að hluta til niðri í einni námu. Verkfall er enn sagt vera í Donbass námuhéraðinu í Ukraínu. Námu- verkamenn í Vorkuta og Inta í Síber- íu hafa tekið undir kröfur námu- manna í Donbass og sagst leggja nið- ur störf ef yfirvöld hafa ekki hafið samningaviðræður á morgun. Reuter VIÐHALD FASTEIGNA Tökum að okkur hvers konar viðhald og breytingar fasteigna, hvort sem þarf að láta skipta um járn á þaki, endurnegla þakið, skipta um gler, glugga eða gera aðrar endurbætur. Smíðum einnig sólstofur eftir máli. G. Daníelsson, s. 985-27512 Nauðungaruppboð Eftir kröfu Magnúsar H. Magnússonar hdl. og Elvars Ö. Unnsteinssonar hdl., bústjóra í þrotabúi Steintaks hf., fer fram opinbert uppboð á byggingarkrana, teg. Potain, tal. árgerð 1971, fimmtudaginn 7. mars nk. kl. 14.00. Kraninn er staðsettur að Klapparstíg 1. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Reykjavík VETRARTILBOÐ HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 91-61-44-00 BiLALEIGA ARNARFLUGS HtFGoodrich Amerísk jeppadekk og felgur á ótrúlegu verðí AIl-Terrain 30"..Kr. 9.220 stgr. All-Terrain 31".Kr. 10.590 stgr. AII-Terrain 32".Kr. 11.390 stgr. AIl-Terrain 33".Kr. 11.930 stgr. AII-Terrain 35".Kr. 13.950 stgr. Felga, hvit 15X7....Kr. 3.300 stgr. Felga, hvit 15X10 ..Kr. 4.490 stgr. Visa - Euro Greiðslukjör allt að 12 mánuðum Vagnhöfða 23, sími 685825 Þar sem allt fæst í jeppann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.