Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1991, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullr&r nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritst|órn - AuQlýsingar - Áskrtft - Dreifing: Sími 27022
Friálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 1991.
íbúð mikið
skemmd eftir
eldsvoða
MiMar skemmdir urðu í íbúð á
fyrstu hæð fjölbýlishúss við Klepps-
veg 110 þegar eldur kviknaði í henni
um klukkan þrjú í nótt. Talið er að
kviknað hafi í út frá sjónvarpi.
Mikinn reyk lagði frá íbúðinni þeg-
ar slökkvilið kom á staðinn. Var ótt-
ast að íbúar væru inni. Tveir reyk-
kafarar voru sendir inn til leitar. Sið-
an kom í ljós að íbúamir voru ekki
inni. Eldur hafði meðal annars kom-
ist í sófa í stofu íbúðarinnar en þar
var einnig sjónvarpstæki.
Gífurlegur hiti myndaðist í íbúð-
inni og sprakk ein rúða af þeim sök-
um. Mikinn reyk lagði fram á stiga-
gang og voru reykkafarar sendir til
að reyklosa. Reykurinn var mjög
magnaður og komst hann inn í aðrar
íbúðir - mest þó í íbúð á annarri
hæð. Varð síðan að brjóta rúðu efst
í stigaganginum til að hleypa honum
út. Ibúðin sem eldurinn kom upp í
er mikið skemmd. Töluverðar
skemmdir eru annars staðar í hús-
-ÓTT
ínu.
Sjálfstæðisflokkurmn:
Þingmennirnir
að byrja að
taka afstöðu
„Ég hef ákveðið að kjósa Davíð
Oddsson á landsfundinum vegna
þess að ég tel meiri líkur til að flokk-
urinn nái árangri í kosningunum
undir forystu hans en Þorsteins, þó
svo ég meti hann mikils. Ég gerði
báðum frambjóðendunum grein fyrir
afstöðu minni í þessú máli i síðustu
viku. Enda þótt ég hefði viljað kom-
ast hjá þessu uppgjöri verður hver
landsfundarfulltrúi að gera það og á
þann hátt sem hann telur flokknum
fyrir bestu,“ sagði Geir H. Haarde
alþingismaður í samtali við DV.
Geir er fjórði þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins sem lýsir opinberlega af-
stöðu sinni í formannskjörinu. Ólaf-
ur G. Einarsson og Ingi Björn Al-
bertsson hafa lýst yfir stuðningi við
Þorstein en Geir H. Haarde og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson hafa lýst
yfir stuðningi við Davíö. -S.dór
Ekki viðbótarloðna
„Loönugangan er nú komin norður
með Vestfjörðum. Hluti af henni er
byrjaður að hrygna," sagði Sveinn
Sveinbjörnsson fiskifræðingur um
borð í Árna Friörikssyni. „Það hefur
ekki fundist nein viðbótarloðna. Við
verðum eitthvað áfram við rann-
sóknir." -J.Mar
LOKI
Þeir segja að Davíð sé
Steini lostinn!
Nær 4 milljóna
króna stuldur
- peningar, tékkar, tryggingarvíxlar og ávísanahefti
Peningaskáp, semi varverömæti sér í heílu lagi. í honum voru viö- þúsund króna í ávísunum og að
upp á hátt á fjórðu miUjón króna, skiptavíxlar. í Kænunni fer einnig minnsta kosti 200 þúsund í pening-
var stohð úr veitingastaðnum framsalaábensiniogolíuoghöfðu um. Þjófarnir tóku líka 70-80 lengj-
Kænunni í Hafnarfirði í nótt. Hér smábátaeigendur lagt víxlana fram ur af sígarettum. Mér finnst bara
er um að ræða peninga, viðskipta- sem tryggingar fyrir greiðslu á olíu dapurlegast að rannsóknarlögregl-
víxla, útgefnar ávísanir og tékk- á báta sína. Í peningaskápnum an er ekki komin á staðinn. Hér er
hefti Þjófarnir stálu einnig öllum voru einnig ávísanir sem geftiar allt fullt af viðskiptavinum fynr
sígarettubirgðum veitingahússins höföu verið út fram í tímann sem utan og við getum ekki opnað. Ég
að andvirði að mnrnsta kosti 200 greiðsla fyrir oliu. Ekki er ná- héltaðþeirvilduaðverksummerki
þúsund krónur. kvæmlega ljóst hve verðmætið er eyðilegðust ekki. Viö erum búnir
Þegar starfsfólk kom til vinnu mikið en þó er ijóst aö það nemur að bíða eftir þeim í nærri einn og
laust fyrir klukkan sjö í morgun hátt á fjórðu milljón króna. hálfan tíma núna,“ sagði Ingvar
blasti ófógur sjón viö. Þjófamir „Við erum með olíusölu til um Árnason, sem rekur Kænuna
höfðu brotið nokkrar læstar hurðir eitt hundrað einstaklinga. Þeir ásamt eiginkonu sinni, í samtali við
til að komast að peningaskápnum hafa lagt fram tryggingarvíxla til DV í morgun. Lögreglumenn í
sem geymdur var á skrifstofunni. að standa á bak við viðskiptin. Hafnarfirði komu á staðinn
Skápar voru einnig brotnir upp. Þetta voru víxlar upp á að minnsta skömmu eftir að starfsfólk til-
Þjófamir brutu festingar af pen- kosti 3 milljónir. Svo voru þarna kynnti um innbrotið.
ingaskápnum og tóku hann með ávísanahefti og einhver hundruð -ÓTT
Haförn BA 327 frá Patreksfirði var staðinn að meintum ólöglegum veiðum í gærmorgun og færður til hafnar í
Grindavík. Það var sjávarútvegsráðuneytið sem óskaði eftir því við Landhelgisgæsluna að hún kannaði hvort
báturinn hefði leyfi til netaveiða. Ekkert reyndist leyfið og var Haförninn umsvifalaust færður til hafnar.
DV-mynd Ægir Már
Veðrið á morgun:
Bjartá
suðvestur-
horninu
Á morgun verður noröaustan
átt víðast hvar, bjartviðri um
suðvestanvert landið, en él eða
slydduél í öðrum landshlutum.
Hitinn verður aðeins undir frost-
marki, nema á Suður- og Suðvest-
urlandi þar sem verður um það
bil þriggja stiga hiti.
Nýr búvörusamningur:
Undirskrift í
lok vikunnar
Nýr búvömsamningur kann að
verða undirritaður þegar í lok vik-
unnar, þó með fyrirvara um sam-
þykki aukaaðalfundar Stéttarsam-
bands bænda og Alþingis. Þegar er
hafmn undirbúningur að því að kalla
saman aukaaðalfund bænda og er
stefnt að því að halda hann næst-
komandi mánudag.
Að sögn Steingríms J. Sigfússonar
landbúnaðarráðherra er stefnt að því
að láta reyna á það til fulls næstu
sólarhringana hvort samkomulag
náist við bændur. „Ég er ekki svart-
sýnn á að það takist," segir Stein-
grímur. Að öðm leyti vildi hann ekki
fjá sig að svo komnu máli.
Samkvæmt heimildum DV byggja
samningsdrögin á nánast óbreyttu
ástandi í mjólkurframleiöslunni, ein-
hverri fækkun í sauðfjárræktinni, en
þó mun minni en tillögur sjömanna-
nefndar gengu út á. Samkvæmt drög-
unum á samningurinn að gilda til
ársloka 1997 og gerir ráð fyrir tugum
milljarða í styrki til bænda á tímabil-
-kaa
mu.
Ný stjórnmála-
samtök stofnuð
I gærkvöldi voru stofnuð ný stjórn-
málasamtök i Reykjavík, sem skýrð
voru Vinstri vængurinn.
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur sagði að hér hefði fólk
ekki verið að endurvekja Fylking-
una. Þessi nýju samtök væru á mun
breiðari grundvelli. Á stofnfundinn
mættu á milli 60 og 70 manns.
Ragnar sagði að ekki hefði verið
ákveðið að bjóða fram í Alþingis-
kosningunum í vor. Þó sagði hann
alls ekki loku fyrir það skotið að það
yrði gert.
Þriggja manna starfsstjórn var
kjörin á fundinum. í henni eiga sæti
Birna Þórðardóttir, Sigurður Einars-
son og Guðlaug Teitsdóttir. -S.dór
Ofbeldi helgarinnar:
Áframhald
rannsóknar
Rannsókn á láti mannsins sem
fannst í bakhúsi í Bankastræti um
helgina heldur áfram hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins. Ekki voru nýjar
féttir af rannsókninni í morgun en í
gær var talið að tvær fólskulegar
árásir og rán um helgina gætu tengst
láti mannsins í Bankastræti. RLR
óskar enn eftir upplýsingum er gætu
varðað þessi mál en þegar hefur
fjöldi ábendinga borist.
Búðarránið á Freyjugötu á fóstu-
dag er enn rannsakað en engar nýj
ungarvoruímálinuímorgun. -hlh
<Á
sb
O
cP
N
tt
y
o
li,
Q_
>
o
HEIMSENDINGA
6i5
XV'