Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 14. MAIÍS 1991.
5
Fréttir
Bæjarþing Reykjavíkur um bráðabirgðalögin á BHMR:
Lögin voru nauðsynleg
„Líta verður svo á að löggjafanum
sé heimilt undir vissum kringum-
stæðum, svo sem við framkvæmd
efnahagsstefnu, að skerða samnings-
bundin laun manna án þess að bætur
komi fyrir,“ segir meðal annars í
dómi bæjarþings Reykjavíkur í máli
BHMR gegn ríkinu.
Málið snerist í raun um rétt ríkis-
stjórnarinnar til að setja bráða-
birgðalög sem felldu úr gildi ákvæði
kjarasamnings BHMR sem tryggt
hefði félögum BHMR meiri launa-
hækkanir en önnur launþegasamtök
höfðu samið um.
í dómnum segir að þeir sem með
bráðabirgðalöggjafarvald fari hafi
allfrjálsar hendur til að meta hvort
brýn nauðsyn sé fyrir setningu slíkra
laga eins og 28. grein stjórnarskrár-
innar mælir fyrir um. í þessu tilfelli
sé sýnt að bráðabirgðalögin hafi ver-
ið nauðsynleg til að ná stjórnmála-
legum markmiðum ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálum.
Einnig hafnar dómstóllinn því
sjónarmiði stefnanda að með laga-
setningunni hafi ríkisstjórnin verið
að brjóta gegn 2. grein stjórnarskrár-
innar sem kveður á um þrígreiningu
ríkisvaldsins. Tekið er fram í dómn-
um að tilgangur lagasetningarinnar
hafi ekki verið sá að fría ríkissjóð frá
greiðsluskyldu heldur að koma í veg
fyrir víxlhækkun launa. Því bindi
dómur Félagsdóms skömmu fyrir
lagasetninguna, sem féll BHMR í
hag, ekki hendur löggjafarvaldsins.
Dóminn kváðu upp þeir Friðgeir
Björnsson yfirborgardómari, Allan
V. Magnússon borgardómari og Jón
L. Arnalds borgardómari.
-kaa
Páll Halldórsson:
Samningar
ekki pappírs-
ins virði
„Þessi dómur undirréttar segir ein-
faldlega að ef samningar eru ekki í
samræmi við efnahagsstefnu ríkis-
stjórnarinnar á hverjum tíma þá
skuli þeir víkja. Með dómnum er
samningsrétturinnn léttvægur fund-
inn og þýðir í raun að kjarasamning-
ar sem verða gerðir hér eftir séu
ekki virði þess pappíi s sem þeir eru
skrifaðir á,“ sagði Páll Halldórsson,
formaður BHMR, eftir að dómur féll
fyrir bæjarþingi Reykjavíkur í gær-
morgun ríkinu í vil.
Páll segir að stjórn BHMR muni
taka sér nokkra daga til að skoða
dóminn áður en ákvörðun verði tek-
in um hvort máhnu verði áfrýjað til
Hæstaréttar. Hann segir hins vegar
ljóst að finna verði leiðir á næstunni
til að endurheimta samningsréttinn.
„Samkvæmt þessum dómi er til-
gangslaust að gera samninga um
launakjör heldur er launafólki gert
að fylgjast með því hver efnahags-
stefna ríkisstjórnarinnar er á hverj-
um tíma. Það virðist því tilgangs-
laust fyrir okkur að verja bæði tíma
og fjármunum i að gera kjarasamn-
inga sem síðan hafa ekkert gildi.“
Að sögn Páls lítur hann ekki á
þennan dóm sem áfellisdóm yfir for-
ystu BHMR þó svo að bæði fram-
kvæmdavaldið og dómsvaldið hafi
hafnað því að farið væri að kröfum
hennar. Hins vegar feli hann í sér
þungan áfelhsdóm yflr því samfélagi-
sem hafni frjálsum samningsrétti.
-kaa
Ólafur Ragnar Grímsson:
Niðurstaðan
er afdráttar-
laus og skýr
„BHMR-málið hefur verið mjög er-
fitt og viðkvæmt. Þess vegna er mjög
mikilvægt að niðurstöður dómsins
séu mjög skýrar og afdráttarlausar.
Þar kemur fram að bráðabirgðalögin
eru í fullu samræmi við stjórnarskrá
og réttarreglur og brjóta ekki gegn
almennum félagarétti. Á þessari
stundu er hins vegar mikilvægast að
draga lærdóma af reynslu þessa tíma
og átta sig á aö lífið heldur áfram,"
segir Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra um sýknudóm bæjar-
þings Reykjavíkur í máli BHMR gegn
ríkinu.
Ólafur Ragnar segir mikilvægt að
þær viðræður sem hann hefur átt við
forystumenn einstakra félaga BHMR
haldi áfram á opnum og hreinskilnis-
legum grundvelli eins og verið hefur.
Meta beri í sameiningu hvaða skyn-
sömu leiðir sé hægt að fara til að
styrkja kjör háskólamenntaðara
manna hjá ríkinu.
„Það hafa verið gerðir ýmsir kjara-
samningar við samtök launafólks
þar sem sérhæfðum aðferðum hefur
verið beitt. Og þær hafa skilað veru-
legum árangri fyrir félagsmenn
þeirra. Kannski eru þessar leiðir
skynsamlegri heldur en þær al-
mennu aðferðir sem forysta BHMR
hefur vhjað beita.“
-kaa
Öll tœkin eru sjáltstœöar einingar og fullkomin fjarstýring stjórnar öllum aögeröum stœöunnar.
Magnarinn er lóö wött meö tengingu fyrir "surround" hátalara.
Lltvarpiö er meö 28 stööva minni (FM/LB/MB) og innbyggðri klukku ("timer").
Tvöfalda segulbandið er bœöi meö hraðyfirfœrslu og raðspilun, auk þess sem annaö tœkiö
spilar i báöar áttir.
Plótuspilarinn er alsjálfvirkur með T4P tónhöföi.
Hátalararnir eru bœöi fallegir og sérlega hljómgóöir.
Geislaspilarinn er 18 bita og með 20 laga minni.
er fjarstýrð samstœöa sem sómir sér vel i hvaöa herbergi sem er,
Magnarinn er ÍOO wött og meö fimm banda tónjafnara.
Útvarpiö er meö 24 stööva minni (FM/LB/MB).
Tvöfalda segulbandið er bœöi með hraðyfirfœrslu og raöspilun.
Plötuspilarinn er hálfsjálfvirkur.
Hátalararnir sem eru sérlega vandaðir, er i viðarkassa.
18 bita geislaspilari.
er snoturt, létt og lipurt stereo feröaútvarp meö segulbandi. Þaö
er með innbyggöum hljóðnema. FM stereo og miðbylgju. Tengi
fyrir heyrnatœki.
Þetta Sony tœki er á frábœru verði.
er kraftmikið stereo ferðaútvarp með segulbandi. Það er 20 wött og
með fjórum hátölurum. Það er með innbyggðum hljóðnema, þriggja
banda tónjafnara og fjórum útvarpsbylgjum (FM/MB/LB/SB/).
Verð á þessu kraftmikla tœki er
JAPIS
TECHNICS X-IOCD
PANASONIC SG-HM35CD
SONY CFS-204
PANASONIC RXFS420