Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 14. MARS 1991.
33
Frank Lacy á íslandi:
Faðir minn kallar mig
gjöf sína til djassins
Frank Lacy, fjölhæfur hljóðfæraleikari sem einnig er liðtækur söngvari.
DV-mynd BG
Frank Lacy er ung og upprennandi
stjarna í djassheiminum. Hann hefur
á undanförnum árum verið að geta
sér gott orð með ýmsum stórmeistur-
um eins og Art Blakey, Dizzy Gil-
lespie, Carla Blay og Lester Bowie.
Lacy hefur þegar hljóðritað sína
fyrstu plötu sem væntanleg er á
markaðinn fljótlega. Frank Lacy er
nú staddur á íslandi þessa dagana til
að hljóðrita nýja tónlist eftir Tómas
R. Einarsson á plötu. Ásamt Tómasi
sem leikur á bassa eru það Pétur
Östlund, trommur, Sigurður Flosa-
son, saxófónn og Eyþór Stefánsson,
píanó sem leika tónhst Tómasar sem
er afrakstur af starfslaunum sem
Tómas fékk á síðasa ári. í kvöld
verða þeir félagar með hljómleika í
Púlsinum þar sem leikin verða þessi
nýju lög og sjálfsagt emhver fleiri.
Frank Lacy fæddist 1958 í Houston
í Texas. Faðir hann er þekktur djass-
og blúsmaður. Lacy nam tónlist við
Berklee skólann í Boston og Rotgers
University. Eftir að hann flutti til
New York lék hann meðal annars
með stórsveitum Illionis Jacquet og
Dizzy Gillespie. 1986 varð hann með-
limur í hljómsveit trompetleikarans
Lester Bowie, Brass Fantasy og um
svipað leyti lék hann einnig með
sextett saxófónleikarans Henry
Threadgill og stuttu síðar lék hann í
hljómsveit Cörlu Bley. 1988 verður
hann svo meðlimur í hinni frægu
hljómsveit Art’s Blakeys Jazz Mess-
engers, þar sem hann auk þess að
leika á básúnu var tónlistarstjóm-
andi. Hann lék með Jazz Messengers
í tvö ár og fékk hljómsveitin yfirleitt
mikið hrós undir hans stjórn.
Hefur öll blásturs-
hljóðfæri á valdi sínu
Allt frá því djassgagnrýnendur
fóru að taka eftir Frank Lacy hefur
honum verið hrósað í blöðum auk
þess sem hann hefur verið framar-
lega í kosningum gagnrýnenda
bandaríska djasstímaritsins Down
Beat um besta básúnuleikarann á
undanförnum árum. DV spjallaði
stutta stund við Frank Lacy og var
hann fyrst spurður hvaðan hann
hefði komið hingað?
„Ég kom til íslands í gegnum Lux-
emburg, en hef verið í Berlín og
Hamborg síðustu þrjár vikur þar
sem ég lék með ýmsum þýskum
djassleikurum og lék einnig á „Go-
spell“- tónleikum."
- Nú munt þú leika með kvartett
Tómasar R. Einarssonar hér á landi.
Hefur þú leikið áður með Tómasi?
„Það var eiginlega fyrst eftir að ég
kom til landsins sem ég lék með
kvartettinum, en við héldum smá-
tónleika fyrir skólafólk og var ég al-
veg undrandi á hve góðar viðtökur
við fengum og hve krakkarnir sýndu
mikinn skilning á tónlistinni."
- Þú hefur kosið básúnu sem þitt
aðalhljóðfæri, en ég hef heyrt að þú
sért í raun jafnvígur á öll hljóðfæri
og líka vel hðtækur söngvari?
Ekki öll hljóðfæri, en ég hef gott
vald á öllum blásturshljóðfærum og
ég byrjaöi feril minn sem trompet-
leikari, en smám saman æxlaðist það
þannig að básúnan varð mitt aðal-
hljóðfæri. Söngurinn er aukabúgrein
sem ég hef gaman af.“
í tónleikaferð
um Evrópu
- Þegar þú ferð héðan, hvað tekur
þá við?
„Ég hef nýlega stofnað eigin hljóm-
sveit og erum viö búnir að hljóðrita
plötu sem heitir Toll Weights and
Blue Fire og erætlunin að fara í tón-
leikaferðalag um Evrópu sem hefst
að öllum líkindum í júní og vaeri
gaman að geta komið þá aftur til ís-
lands. Með mér í hljómsveitinni er
faðir minn sem er mjög góður djass-
og blúsmaður og verður þetta í fyrsta
skiptið sem hann fer í hljómleikaferð
til Evrópu."
- Hvernig djass er svo á plötunni
þinni?
„Það má eiginlega segja að tónlistin
sé blanda af gömlum og nýjum stefn-
um í djassinum. Hljóðfæraskipunin
er nokkuð óvenjuleg, aðeins básúna,
trommur og bassi og gefur það plöt-
unni dálítinn keim af frjálsum djassi.
Auk þess syng ég á plötunni ásamt
föður mínum sem aftur á móti kemur
með sín áhrif sem runnin eru upp
úr hefðbundnum djassi og blús.
- Hvernig höfðar tónlist Tómasar R.
Einarssonar til þín?
„Við höfum ekki æft öll lögin sem
verða á plötunni enn sem komið er,
en þau lög sem ég hef þegar kynnst
hkar mér vel við. Þetta er góð blanda
af blús og frjálsum djassi.“
Frank Lacy mun dvelja hér í viku-
tíma og eins og áður segir gefst tæki-
færi að heyra í honum ásamt kvart-
ett Tómasar R. Einarssonar í kvöld
og annað kvöld. Þá munu jafnvel
verða tónleikar með honum í næstu
viku þar sem hann mun leika eigin
tónsmíðar, en það var ekki afráðið
þegar þetta viðtal fór fram.
-HK
Þýskur ljósmyndari sýnir ljósmyndir frá Islandi á sýningu 1 Hamborg:
Klaki úr Vatnajökli í kokkteilinn
Jóharuia S. Sigþórsdóttir, DV, Þýskalandi:
Þessa dagana stendur yfir athyglis-
verð ljósmyndasýning í Hamborg.
Þar eru sýndar eitt hundrað ljós-
myndir, sem ahar eiga það sameigin-
legt að hafa verið teknar á íslandi.
Manfred Ehrich ávarpar gesti við
opnun sýningarinnar. í bakgrunni
má sjá tvö verka hans.
Sá sem myndirnar tók er þýskur hst-
ljósmyndari, Manfred Ehrich, að
nafni.
Sýningin var opnuð í forsal elsta
kvikmyndahúss Hamborgar, í St.
Pauli-hverfinu, sem margir íslend-
ingar þekkja. Við opnunina var fjöl-
menni, þar á meðal Hjálmar W.
Hannesson, sendiherra íslands í
Þýskalandi og kona hans Anna Birg-
is. Einnig má nefna Gísla Gestsson
kvikmyndagerðarmann, sem var
sérlegur aðstoöarmaður Manfreds
meðan hann dvaldi á íslandi.
Kvaðst Gísh meðal annars í ávarpi
sem hann flutti, hafa komið með
smáhtið brot af Vatnajökh meðferðis
í kæliboxi og heföi það verið mulið
út í kokkteil þann sem gestir gæddu
sér á.
Þær myndir, sem á sýningunni
voru, vann ljósmyndarinn Manfred
í tveimur heimsóknum til landsins.
Allt eru þetta landslagsmyndir, sem
teknar höfðu verið uppi í óbyggðum,
af jöklum, hellum og eða þá grænu
umhverfi, svo eitthvað sé nefnt. Ljós
og skuggar voru látin spha saman í
myndunum og litbrigðin voru ólýs-
anlega falleg.
Eins og áður sagði hefur Manfred
Hilmar Örn Agnarsson og Hildigunnur Rúnarsdóttir, sem bæði eru við nám
í Þýskalandi, fluttu gestum nokkur íslensk lög.
Ehrich unnið sér nafn sem listljós-
myndari. Hafa verk hans farið víða
og má nefna að umrædd sýning frá
íslandi hefur þegar verið sett upp í
Japan viö mikla hrifningu. Þá hangir
ein myndanna uppi á vegg hjá banka-
. íi Ssjruí tn'iEf ’íi5nl Biœu sr.ili t
stjóra í risabankanum Deutsche
Bank í Frankfurt í Þýskalandi. Sú
mynd hefur verið stækkuð upp í íjög-
urra fermetra flöt, sem er alveg
óhætt, því þetta er íðilfögur ljósmynd
l
af Jqkujsárlpni,
Merming
Bryndis Petra Bragadóttir í hlut-
verki Hildar i Ég er meistarinn.
Bryndís Petra
tekinvið
hlutverki Hildar
Ekkert lát virðist vera á vin-
sældum íslenska leikritsins, Ég
er meistarinn, eftir Hrafnhildi
Hagalín Guðmundsdóttur. Upp-
selt hefur verið á allar sýningar
frá þvi frumsýnt var á litla svið
Borgarleikhússins í haust og hafa
nú rúmlega tíu þúsund manns
séð verkið. Elva Osk Ólafsdóttir,
sem leikið hefur eitt af þremur
hlutverkum í leikritinu, hefur
orðið að hætta sökum þess að hún
á von á barni. í fyrstu var ákveð-
ið að hætta að sýna leikritið en
hortið var frá þessari ákvörðun
og Bryndís Petra Bragadóttir
fengin til að leysa Elvu Ósk af
hólmi og eru nú hafhar sýningar
á leikritinu að nýju með henni í
hlutverki Hildar.
„Mokkakaffi
fullkominn
sýningar-
staðurfyrir
smámyndir“
Magnús Kjartansson listmálari
hefur opnað sýningu á smámynd-
um á lúnni þekktu kaffistofu,
Mokkakaffi við Skólavörðustíg.
Magnús segir að staðurinn sé
fullkominn sýmngarstaður fyrir
smámyndir. „Hvergi hefi ég rýnt
í og hugleitt gaumgæfilegar verk
annarra listamanna, né komist í
nánari snertingu við þau,“ segir
Magnús. Um smámyndagerð sína
segir hann að hún sé fyrir honum
„Mnn frjósami akur, þar sem
hugmyndir vaxa upp og falla sem
grasið á akrinum. Eins og grasið
er sjaldnast sýnt á landbúnaðar-
sýningum, en frekar skepnan
sem á þvi nærist, þanmg eru og
smáverk listamanna ógjarnan
sýnd en frekar tún veigameiri
verk, er eiga tilvist sína oftlega
smáverkunum að þakka. Þetta
mætti breytast." Sýning Magnús-
ar opnaði í gær og stendur til 3.
apríl.
Nýtt leikrit
eftirSjön
frumsýntíkvöld
Keiluspil heitir nýtt leikrit eftir
Sigurjón B. Sigurðsson eða Sjón
eins og listamannsnafn hans er.
Leikfélag Flensborgarskóla
frumsýnír leikritið í kvöld. Leik-
ritinu er lýst sem ærslafullu æv-
intýri með alvarlegum undirtón.
Leikendur eni ailir nemendur við
Flensborgarskóla, en leikstjóri er
leikarinn Skúh Gautason. Keilu-
spil verður sýnt í Bæjarbíói í
Hafnarfirði og eru næstu sýning-
ar á sunnudag og mánudag.