Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1991, Blaðsíða 32
þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjörn - Ausjlýsín<|ar - Áskrift - Dreífinsj: Simi 27022
Frjálst, óhaö dagblað
FIMMTUDAGUR 14. MARS 1991.
Hjörleifur Guttormsson:
Er Alþingi
stimpil-
stofnun?
„Ég vísa ummælum iðnaðarráö-
herra til fóðurhúsanna. Það er eðli-
legt að vakin sé athygli á þessu stóra
máli og ráðherrar beðnir um svör
við fjölmörgum atriðum. Ég hef ekki
um neitt að semja varðandi málflutn-
ing og röðun mála. Halda ráðherr-
amir að þeir geti farið með Alþingi
íslendinga eins og einhverja tusku?
Halda menn að Alþingi sé stimpil-
stofnun fyrir mál sem þeir eru að
flytja hér inn? Það er óeðlilegt að
koma með stórmál á síðustu dögum
þings og ætla að þrýsta því í gegn.
^Vinnubrögð iðnaðarráðherra eru
forkastanleg," sagði Hjörleifur Gutt-
ormsson eftir fundarslit í nótt.
„Þingsályktunartillagan sem slík
er ekki ýkja merkileg. Ráðherrann
hefði sem best komist hjá því að leita
eftir þessu umboði og þannig getað
mallað áfram með málið með svipuð-
um hætti og hann hefur gert fram
að þessu. En þegar hann er kominn
inn á Alþingi með málið og biður um
samningsumboö og ákveðna stað-
setningu er málið orðið stórt.“
i „Það er tröðkun á lýðræðinu
hvemig iðnaðarráðherra ætlar að
kýla málið í gegnum þingið og kúga
minnihlutann. Minnihlutinn hefur
rétt á að koma sínum skoðunum á
framfæri. Að gefnu tilefni hefur eng-
inn samið við mig um ræðutíma en
ég get sagt að ræða mín er ekki nema
4-7 mínútur," sagði Danfríður
Skarphéðinsdóttir, Kvennalista.
-hlh
Sverrir Hermannsson:
Hjörleifurvel
að metinu kominn
LOKI
Eftir nóttina er eitt hjörl
komið í 360 mínútur!
Þetta er af skræming
þingræðis og lýðræðis
„Það er leittað þurfa að segja það
en þetta er afskræming þingræðis
og lýðræðis. Örfáar manneskjur
ieyfa sér að traðka yfir skýran
meirihlutaviija þingsins að Ijúka
málinu og virðast ekki sjá hve fiar-
stætt það er,“ sagðí Jón Sigurðsson
iðnaðarráöherra eftir að umræð-
um um álmáliö í sameinuðu þingi
var frestaö í þriðja sinn um klukk-
an fjögur í nótt.
Umræðurnar hófust klukkan níu
í gærkvöld. Eftir stuttar umræöur
um þingsköp þar sem þess var kraf-
íst aö ráðherrar yrðu viðstaddir tók
Hjörleifur Guttormsson til máls.
Talaði Hjörleifur nær viðstöðu-
laust í tæpar sex klukkustundir eða
til klukkan þijú í nótt. Menn voru
ekki sammála um hversu strangt
ætti aö taka á smáhléi sem gert var
á ræðu Hjörleifs en með þessari
ræðu mun hann hafa slegið marg-
frægt met Sverris Hermannssonar
í ræöutíma.
í lok máls síns skoraði Hjörleifur
á þingmenn að visa þingsályktun-
artillögu um samninga um nýtt ál-
ver frá og tryggja að hún fengist
ekki afgreidd á þessu þingi. Til-
kynnti Hjörleifur þá að hann tæki
aftur til máls síðar í umræöunni.
Anna Ólafsdóttir Bjömsson tal-
aði í tæpa klukkustund á eftir Hjör-
leifi og mælti heldur ekkimeð sam-
þykkt tiliögunnar. Áður en lengra
var haldið ræddi Hjörleifur um
þingsköp og vildi að umhverfisxúð-
herra, sem þá var löngu genginn
til náða, mætti í þingsal til að hlýða
á áframhald umræðunnar. Aö öðr-
um kosti taldi Hjörleifur utilokað
að halda umræðunum áfram. Eftir
smástund tjáði Valgerður Sverris-
dóttir varaþingforseti Hjörleifl að
símsvari svaraði heima hjá um-
hverfxsráðherra en hægt væri að
gera ráðstafanir til að sækja hann.
I þann mund tók þingforseti, Guð-
rún Helgadóttir, sitt sæti og til-
kynnti mjög ákveðið að umræðun-
um væri frestað og fundi slitið.
Þingforseti gekk það rösklega til
verks við fundarslitin að hún Ixitti
fyrst ekki bjölluna með hamrinum.
Iðnaðarráðherra lét síðan fyrr-
nefnd orð falla. Hann sagðist alls
ekki vonlaus um að álmáliö næði
fram að ganga en varð fátt um svör
þegar blaðamaður DV spurði
hvemig.
„Hjörleifur og Kvennalistinn
ætla sér greinilega ekki að ljúka
þessum umræðum og því er út í
bláixm að halda þeim áfram,“ sagði
Guörún Helgadóttir og ítrekaði orð
sín um ofbeldi þessara aðila sem
húnviðhafðiíDVígær. -hlh
Steingrímur Hermannsson:
Akveðinn að
slíta þingi
a morgun
, „Hjörleifur er vel að þessu kominn
og finnst mér prýöilegt að vera laus
við þetta númer á Alþingi," sagði
Sverrir Hermannsson, bankastjóri
og fyrrum ráöherra, við DV í morgun
um nýtt ræðumet Hjörleifs Gutt-
ormssonar á Alþingi í nótt. Ræða
Hjörleifs var 6 klukkustundir.
Met Sverris Hermannssonar var 5
klukkustundir og 35 mínútur og tal-
aði hann um grunnskólalögin. „Þetta
voru mótmæli gegn yfirgangi þáver-
andi ríkisstjórnar. 31 þingmaður
hafði gert kröfu um vantraust en
Ólafur heitinn Jóhannesson rauf
þing. Ég ákvað að það skyldi verða
töf á því. Hóf ræðu mína klukkan
tuttugu mínútur yfir ílmm þennan
dag og lauk ræðunni fimm mínútum
'fyrir ellefu um kvöldið."
-JGH
Hjörleifur Guttormsson, sem hélt sex klukkustunda ræðu í Alþingi í gærkvöldi og nótt, spjallar hér við Kristinu
Hinarsdóttur, Kvennalista. Við hlið hans situr Jón Kristjánsson, Framsóknarflokki. DV-mynd BG
„Eg er ákveðinn í því að slíta þing-
inu á morgun og það er fullt sam-
komulag innan stjórnarflokkanna
um það atrjði,“ sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
morgun. „Svo er bara hvort Hjörleif-
ur kemur í veg fyrir að takist að ljúka
þingstörfum."
Að sögn Steingríms eru nokkur
mál á forgangslista ríkisstjórnarinn-
ar um að verða lokið fyrir þingslit.
Þau eru frumvarp um Byggðastofn-
un, erlendar fjárfestingar hér á landi,
Húsnæðisstofnun ríkisins, lánsfjár-
lög, frumvarp um tekjuskatt og eign-
arskatt, Þroskaþjálfaskóla íslands,
þingsályktunartillaga um álver,
grunnskóla- og leikskólafrumvarpið,
vegaáætlun og frumvarp um sam-
vinnufélög.
„Það er góð samstaða í ríkisstjórn
um að afgreiða þessi mál og það á
að ganga upp að afgreiða þau ef
Kvennalistinn og Hjörleifur nota
ekki lýðræðið eins og þau hafa gert
að undanfórnu,“ segir forsætisráð-
herra.
-J.Mar
Veðriðámorgun:
Þurrt að mestu
fyrirnorðan
„.SPAG Hfi
53* /
s: £ ELDSMIÐJAN* ?
OV l
A morgun verður austlæg átt
og skýjað um mestallt landið.
Dálítil snjó- eða slydduél austan-
lands, skúrir eða lítils háttar
rigning vestur með suðurströnd-
inni en snjómugga eða slyddu-
vottur vestanlands. Þurrt að
mestu á Norðurlandi. FrostlauSt
um mestallt land og allt að 5 stiga
hiti sunnanlands að deginum.
TVOFALDUR1. vinningur