Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. MAl 1991. Fréttir Sýndi snarræði þegar skipsfélagi féll í sjóinn á Dohmbanka: Ég hélt Jóhanni vakandi með spjalli - sagði Snorri Þór Guðmundsson eftir hálftíma 1 jökulköldum sjónum „Ég hugsaði aldrei út í að orðið væri of seint að koma honum um borð. Ég hugsaði bara jákvætt. Jó- hanni tókst að halda rænu allan tím- ann sem við svömluðum þarna í sjónum. Við spjölluðum saman og þannig tókst mér að halda honum vakandi. Það er algert þrekvirki hjá Jóhanni að halda rænu í næstum hálftíma í frostköldum sjónum. Hann fékk enga krampa, var alveg rólegur allan tímann og hlýddi mér í einu og öllu. Ég verð samt aö viðurkenna að mér leist alls ekki á blikuna á tímabili," sagði Snorri Þór Guð- mundsson, á rækjubátnum Sjávar- borg GK, í samtali við DV í gær. Snorri sýndi mikið snarræði snemma í fyrrinótt þegar hann stökk á eftir félaga sínum sem féll útbyrð- is. Hélt hann honum á floti í jökulk- öldum sjónum þar til þeir náðust um borð aftur um hálftíma síðar. Sjávarborg var að veiðum á Dohrn- banka, milli íslands og Grænlands, þegar Jóhann féll útbyrðis. Hann íesti fótinn í sterti sem liggur í pok- ann og dróst með honum út. Náðist aö stöðva skipið og bakka því áður en drepið var á vélunum. Leið smá- stund þar til komið var að Jóhanni. Skipverjar voru allir við vinnu þeg- ar óhappið varð. Fyrstu viðbrögð þeirra voru að kasta björgunarhring til Jóhanns en hann lenti langt frá honum. Snorri Þór stökk þá rakleiðis inn og fór í flotgalla í skyndingu. Áður en menn vissu af hafði hann stokkið í sjóinn til Jóhanns. „Ég náöi honum fljótt og tókst að halda honum á floti allan tímann eöa þangað til tveir úr áhöfninni, fastir í línu, stukku til okkar. Mér varð ekki meint af þessu þar sem flotgall- arnir eru mjög góðir." Frekar illa gekk að ná mönnunum um borð aftur. Liðu 27 mínútur frá því Jóhann fór í sjóinn þar til hann náðist um borð. Bilun varð í stýris- búnaði skipsins auk þess sem ekki gekk að koma vélinni í gang. Þannig gátu skipverjar um borð lengi vel lít- ið aðhafst og yar andrúmsloftið farið að verða heldur magnþrungið. Þeim tveim félögum Snorra og Jó- hanns tókst að koma Jóhanni í Mark- úsarnet. Það gekk þó frekar seint, tók 4-5 mínútur. Loks þegar um borð var komið var Jóhann klæddur úr, þurrkaður og settur í hlý fót. Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar sem sótti Jóhann. Farið var með hann á bráðamóttöku Landspítalans og var hann allur að hressast seinni- partinn í gær. -hlh Raímagnsveita ríldsins: Stofnlínur í Eyjaf irði Gyffi Krístjánsson, DV, Akureyri: „Það sem er að gerast er að við erum að endurnýja stofnlínur frá aðveitustöðinni á Rangárvöllum að Eyjafirði, bæðí vestan og aust- an við Eyjafjarðará, og nú leggj- um við þessa stofnlínu í jörð í stað loftlínu," sagðiArnarSigtýs- son hjá Rafmagnsveitu ríkisins á Akureyri. Lagning jarðstrengsins fer fram með gríðarmikiili jarðýtu sem bæöi plægir fyrir strengnum og leggur Itann í jörð. AIls er um að ræða 14 km jarðstreng sem nú er lagður og sagði Arnar að ákvörð- un um að leggja þennan streng nú hefði verið tekin í fyrra. Amar sagði að í kjölfar óveð- ursins á Norðurlandi í vetur þar ■; sem hundruð rafmagnsstaura brotnuðu vegna ísingar hefði ver- ið ákveðið aö leggja jarðstreng á verstu staöina hvað varðar ís- ingu. Þetta yrði gert bæði í Eyja- firði og eirrnig á stöðum i ná- grenni Laxárvirkjunar. Jóhann Jónsson svamlaði 27 mínútur í jökulköldum sjónum áður en hann náðist um borð í Sjávarborg. Myndin er tekin á Landspítalanum. DV-mynd Brynjar Gauti Jóhann Jónsson sem féll útbyrðis: Ætlaði alls ekki að gefast upp „Það runnu margar hugsanir í gegn um hugann þegar ég var að svamla þarna einn í ísköldum sjón- um. Þær hugsanir báru eðlilega keim af því að þetta gæti verið manns síð- asta enda leið töluverður tími þar til ég náðist um borð. En ég var sem betur fer ekki einn í heiminum og ætlaði alls ekki að gefast upp. Þegar Snorri kom að mér hélt hann mér á floti og við skröfuðum margt saman. Snorri sá til þess að ég fékk aldrei tækifæri til að koðna niður í eitt- hvert mók og það hélt í mér lífmu,“ sagði Jóhann Jónsson, skipverji á rækjubátnum Sjávarborg GK frá Sandgerði, í samtali við DV. Jóhann féll útbyrðis á Dohrnbanka um miðnætti í fyrrinótt og var hætt kominn þar sem 27 mínútur liðu þar til hann náðist úr jökulköldum sjón- um. Sæmilegt veður var, austangola. Jóhann segir að hann hafi reynt að hjálpa til með því að svamla með- an Snorri hélt honum en það haíi veriö erfitt þar sem hann var orðinn mjög dofinn og einnig þungur þar sem hann var ekki í flotgalla. Jóhann var aö ná sér þar sem hann lá á Landspítalanum í gærdag en var sýnilega mjög þreyttur eftir þessa reynslu. Hann sagöist eiga eftir að gera upp við sig hvort hann færi aft- ur á sjóinn, sagðist ætla að hugsa sig vel um fyrst. -hlh Alþingi: Síðustu deildaforset- arnir kjornir í gær - Salome Þorkelsdóttir forseti sameinaðs þings Eftir að kjörbréf þingmanna höfðu verið yfirfarin og samþykkt á Alþingi í gær var gengið til forsetakosninga. Þar voru forsetar efri og neðri deild- ar og sameinaðs þings kjörnir í síð- asta sinn. Eftir að þessu þingi lýkur verður orðin sú breyting á að Al- þingi mun starfa í einni málstofu. Þá verður aöeins kjörinn forseti Al- þingis og varaforsetar. Salome Þorkelsdóttir, 2. þingmað- ur Reykjaness, var kjörin forseti sameinaðs þings. Varaforsetar voru kjörnir Jón Helgason, 2. þingmaður Suðurlands, og Árni Johnsen, 3. þingmaður Suðurlands. Síðasti forseti efri deildar var kjör- inn Karl Steinar Guðnason, 6. þing- maður Reykjaness, en varaforsetar Kristín Einarsdóttir, 15. þingmaður Reykjavíkur, og Egill Jónsson, 3. þingmaður Austurlandskjördæmis. Síöasti forseti neðri deildar var kjörinn Matthías Bjarnason, 1. þing- maður Vestfjarðakjördæmis. Vara- forsetar voru kjörnir Hjörleifur Guttormsson, 4. þingmaður Austur- landskjördæmis, og Össur Skarphéð- insson, 17. þingmaður Reykjavíkur. Eins og áður hefur komið fram liggja ekki önnur mál fyrir þessu þingi en að samþykkja stjórnar- skrárbreytinguna um að Alþingi verði ein málstofa og breytingar á þingskaparlögum því tengdar. Þá verður þingi slitið og Alþingi sett að nýju sem ein málstofa og síðan verð- ur þingfundi frestað til hausts. -S.dór Kaupfélag Skagfirðinga: Vallhólmaverksmiðja drýgsta tekjulindin - skilaði 7,1 miHjónar króna hagnaði ÞórhaJlur Asmundsson, DV, Sauöárkróki: Af 57 milljóna króna hagnaði Kaupfélags Skagfirðinga á síðasta ári er drjúgur hluti kominn frá graskögglaverksmiðjunni í Vall- hólma í Skagafirði eða 7,1 milljón króna. Það er athyglisvert hve rekstur Vallhólma gengur nú vel en kaupfélagið eignaðist fyrirtækið eftir gjaldþrot Vallhólma hf. fyrir nokkrum árum. Engin birgðasöfn- un hefur verið 2 síðustu rekstrar- ár, fóðurþörf verið mikil í kjölfar erfiðs árferðis. Þá er skuldastaða graskögglaverksmiðjunnar allt önnur og betri eftir aö fyrirtækið var gert upp. Litlu minni hagnaður varð á síð- asta ári á byggingavörudeild KS eða 7 milijónir. A útibúinu í Varma- hlíð varö 6,4 milljóna rekstraraf- gangur og Skagfirðingabúð á Sauö- árkróki skilaði í fyrsta sinn hagn- aði frá því hún var sett á stofn 1983. Batinn er 9,5 milljónir á milli ára og hagnaður síðasta árs 5,1 milljón. Af nokkrum öðrum rekstrarein- ingum varð lítilsháttar hagnaöur eða á sléttu. Hins vegar varð talsvert tap á rekstri sláturhúss, einkum á sauð- flárslátrun. Tap á kjötvinnslu var 3 milljónir og er ástæöan flutning- ur vinnslunnar á árinu samhliða flárfestingum. Þá varö áfram tap á útibúunum á Hofsósi og Ketilási. Tapið á Hofsósi minnkaði þó um helming frá 1989. Eiginflármyndun kaupfélagsins á síöasta ári var 815 milljónir króna og jókst um 30%. Þá óx eiginflár- hlutfall úr 35,9% í 40%. KS átti vel- gengni að fagna á síöasta ári og hefur staða þess styrkst til muna milli ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.