Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 7
NpViJíyDAGUliyx.Ní^l, 7 4 Fréttir Þrjár geitungategundir þrífast hér á landi: KR-ingurinn er grimmastur Af þeim þremur geitungategund- um sem hafa gerst landnemar hér er hinn svokallaði KR-ingur grimm- astur og árásargjarnastur. Hann heldur til í vesturbænum og er auk- inheldur röndóttur. Hinar tegund- irnar eru mun ljúfari í lund. Erling Ólafsson dýrafræðingur segir að í sjálfu sér sé stunga geitungsins ekki hættuleg eri getur verið óþægileg. Undanfarið hafa margir orðið varir við nokkuð stórar flugur og skordýr sem hafa yfir sér erlent yfirbragð og eru ekki líkar íslensku fiskiflugun- um. Mest áberandi er hunangsflugan sem er í stærra lagi og stærst land- nemanna. Hún er hins vegar alger- lega hættulaus. „Hunangsflugan stingur ekki nema hún sé hreinlega neydd til þess. Það þarf að taka ansi hressilega á henni til þess og hún ræðst ekki á menn að fyrra bragði. Geitungarnir ráðast aftur á móti á menn og þá sérstak- lega á haustin. Þá virðast þeir verða eitthvað æstir, sennilega vegna þess að þá fer hlutverk þeirra dvínandi. Þá stinga þeir til að gera eitthvað," segir Erling. Margar skordýrategundir koma hingað til lands samfara auknum flutningum milli landa. Sumar þeirra setjast hér að og virðast þrífast ágæt- lega í íslensku loftslagi. Hunangs- flugan grefur sér holu í jörð og liggur þar í dvala yfir veturinn en fer á stjá á þessum árstíma. Af kakkalökkum hafa íslendingar lítið að segja en samt er þó nokkuð af þeim hér á landi. Þeir halda nær algerlega til á Keflavíkurvelli og þrífast þar ágætlega. Erling segir ástæðuna fyrir því vera þá að stöðug- ur innflutningur á varningi sé til hersins og kakkalakkarnir komi með gámum og fleiru. „En þeir virðast virða girðinguna og fara ekki út fyrir hana. Það er mikið af kakkalökkum innan girð- ingarinnar en til dæmis í Keflavík- urbæ er sáralítið af þeim,“ segir Erl- ing. -ns Hunangsflugan stingur ekki nema hún sé hreinlega neydd til þess. Stykkishólmur heillar: Stéttarfélög bjóða í gömul hús í Hólminum Vart hefur það kot verið selt í Að sögn Sturlu Böðvarssonar enda stuðli það að aukinni umferð hins vegar hentað ágætlega sem Stykkishólmi upp á síðkastið að hæjarstjóra eruþað einkum gömul ferðamanna um hæinn. orlofshús. Vinsældir þeirra orlofs- ekki berist fjöldi kauptilboða í þau og gamaldags einbýlishús sem „Þó hér sé mikill skortur á íbúð- húsa sem fyrir eru benda alla vega frá stéttarfélögum og lífeyrissjóð- heillað hafa ýmis stéttarfélög og arhúsnæði þá eru flest þessara til þess.“ umíReykjavík. Allsmununúvera lífeyrissjóði. Hann segir bæjaryfir- húsa það gömul að þau uppfylla -kaa eitthvað á annan tug orlofsíbúða í völd nokkuö sátt við að þessum illa þær kröfur sem fólk gerir til Hólminum í eigu félaga og sjóða. húsum sé breytt í orlofsíbúðir, íbúðarhúsnæðis. Uppgerð geta þau BÍLASPRAUTUN IÉTTINGAR Varmi Auðbrekku 14, sími 64-21 -41 KOdfBDC JAPAN VIDEOTOKUVÉLAR 3 LUX ÞRÁÐLAUS FJARSTÝRING Dagsetning Klukka - Titiltextun 3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM GEFUR ÞÉR MÖGULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MEÐ ALLRA BESTU MYNDGÆÐUM. - 3 LUX ÞVÐA ALLRA BESTU UÓSNÆMNI A MYNDBANDSVÉLUM A MARK- AÐNUM I DAG. MÐ ER EKKI BARA NÓG AÐ TALA UM LINSUOPSTÆRÐ. HELDUR VERÐUR UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. - MACRO UNSA 8 xZOOM - SJÁLFVIRKUR FOCUS — MYNDLEITUN I BÁÐAR ÁTTIR — SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING — VINDHUÓÐNEMI — FADER - RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILU- STYKKI o.ll. — VEGUR AÐEINS l.l KG. SÉRTILBOÐ KR. 69.950,- stgr. Rétt verð KR. 90.400,- stgr. 3D Afborgunarskilmálar [g] VÖNDUÐ VERSLUN HUÉIÍOI, FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 t Þú færð hvergi jafn öfluga tölvu ffyrir eins GOrTVERÐ! Verðsamanburður hefur sannfært tölvunotendur um að erfitt er að gera betri kaup en eirimitt í Acrotech tölvunum, þar sem saman fara gæði, góð vinnslugeta og makalaust verð. Það er einnig alkunna að nýja 20MHz Acrotech 286AT er hraðvirkasta AT tölvan á markaðinum. Innifalið í verði: VSK, Super VGA litaskjár, l Mb innra minni, 40 Mb harður diskur og MS-DOS 4.01. Ótrúlegt verð fyrir óviðjafnanlega tölvu. Opið laugardag frá kl. 10:00 til 16:00. BALTI hf. ÁRMÚLA l SÍMI (91) 8 25 55 SÍMI (91)812555 Res$ vegna kunna tölvunotendur að meta Acrotech tölvurnar. Nú átt þú auðvelt með að bætast í hóp Acrotech eigenda, því verðið er hreint með ólíkindum. Acrotech 286AT 20MHz kostar kr. 117.800,- Acrotech 386SX 16MHz kostar kr. 139.614,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.