Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 27
tál&táKUDAGUlM iV&í 1991. 147 pv________________________________Menning Hin ramma taug - Sverre Wyller í Norræna húsinu Sverre Wyller heitir einn af mörgum norskum far- andverkamönnum í aldingarði nútímalistar; menntað- ur í Osló, Berlín og Róm, býr nú í New York, en sæk- ir innblástur að einhveiju eða öllu leyti til fósturjarð- arinnar. Sverre Wyller hefur fengið inni á þekktustu sýningarstöðum á Norðurlöndum, og geta íslendingar nú kynnt sér myndhst hans, því gott úrval hennar er að finna í Norræna húsinu (til 26. maí). Ber að fagna því að Norræna húsið skuli aftur hafa tekið til við að sýna okkur verk eftir norræna myndlistarmenn af yngri kynslóð. Verk Wyllers komu mér talsvert á óvart, og þá einn- ig vinsældir þeirra á norrænum myndhstarvettvangi. Þau eru nefnilega mjög frábrugðin verkum þeirra norrænu hstamanna sem mest eru í sviðsljósinu um þessar mundir, stilhleg, formfóst og tær. Ef th vill skilar sér þar nám listamannsins í byggingarlist. í fljótu bragði er eins og listamaðurinn hafl hlaupið yfir norska síðexspressjónismann eins og hann leggur sig og bundið trúss sitt við eldri konkretista eins og Odd Tandberg. Nánari skoðun leiðir í ljós að Wyller leitar fyrir sér enn aftar í listasögunni, sumsé í sam- ræmdum kúbisma. Tvenns konar veruleiki Hins vegar er það ekki kjarni kúbismans, yfirfærsla þrívíddar í tvívídd, sem er Wyher hugstæðastur, held- ur hið frjóa samsph „ytri“ og „innri“ veruleika sem kúbískir listamenn innleiddu í verkum sínum. Þeir Delauney, Chagall, Gris og Braque stiha saman einka- veröld sinni, því sem þeir hafa fyrir framan sig á vinnustofunni og umheiminum, því sem þeir sjá út um gluggann hjá sér, svo úr verður einn myndheim- ur, táknmynd heildrænnar hfssýnar. í dag er sennilega erfitt að halda shkri lífssýn th streitu. Enda virðist Wyller nota þessa „gluggasýn" á veruleikann til að gefa til kynna tilfmningalega fjar- lægð frá viðfangsefninu og gefa firringarhugtakinu þar með undir fótinn. í „útlegöinni" í New York guða á gluggann hjá honum norsk „minni“ - „stugan" úti á tanga, tréð/báturinn úti í skerjagarði, og fer öll hans orka í að gera upp hug sinn til þeirra, „mæla“ fjarlægð- ina til þeirra á striga skýrt og greinhega, án allrar th- finningasemi. Skuggamyndir Það sem er kannski sérkennilegast (og bandarísk- ast) við myndhst Wyllers er mynsturgerðin, umritun Bíóborgin - Nornirnar ★★★ Af músum og mönnum Nornirnar er prýðisgóð skemmtun fyrir bæði börn og fullorðna því hér er ekki verið að tala niður til barnanna þótt sagan sé ætluð þeim. Sagan er jafn- skemmtileg og hún er ótrúleg. Þegar leikurinn berst til hótelsins og nomanna situr maður blísperrtur. Eft- ir að músaatriðin byija þá eru þau hvert öðm betra. Brellumenn og músatemjarar hafa unnið listilega sam- an og er ævintýrafór þeirra hreint ótrúleg. Stíll leikstjórans Roeg er skemmtilega gamaldags, bæði hvað verðar sjónarhorn og lýsingu. Stundum er eins og myndin sé áratuga gömul og þegar orðin klass- ísk. Leikurinn er allur mjög ýktur, sérstaklega hjá bresku leikurunum. Anjelica Houston er góð höfuð- norn en ekkert meira og Mai Zetterhng er ágæt í hlut- verki ömmunnar. The Witches (Band.-1989) Framleiðandi: Jim Henson. Handrit Allan Scott eftir sögu Roald Dahl (Óvænt endalok). Leik- stjórn: Nicholas Roeg (Walkabout, Don’t Look Now). Leikar- ar: Anjelica Houston (Crimes and Misdemeanors, Prizzi’s Honor) Mai Zetterling, Jasen Fisher, Rowan Atkinson (Black Adder), Bill Paterson (A Private Function), Brenda Blethyn. Nornirnar er eitt af síðustu verkum hins látna brúðumeistara Jim Henson. Nornimar eru eitt af þess- um fáu bamaævintýrum sem er eins mikh skemmtun fyrir fuhorðna. Hér em engir prinsar eða smástelpur í vanda. Eins og við var aö búast af höfundi Óvæntra endaloka Roald Dahl er tónninn í myndinni allt annar en í dæmigerðu ævintýri. Nornaþing er haldið á strandhóteh einu í Englandi Kvikmyndir Gísli Einarsson og tveir strákar flækjast inn í áætlanir nornanna að breyta öllum bömum landsins í mýs. Höfuðnomin (Houston) nær þeim báðum og verða þeir fyrstir fyrir barðinu á töfraformúlu hennar. En þeir em knáir þótt smáar mýs séu og með hjálp ömmu annars þeirra, sem hefur kljást við nomir áður og þekkir th þeirra, freistast þeir th að binda endi á ráðagerðir nornanna. Sverre Wyller-Sýnishorn skipuleggjandans II, 1989. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson hinna norsku „minna“ í marflatar og auðþekkjanlegar skuggamyndir af sjálfum sér. Þannig telur hann sig sjálfsagt komast nær frumgerðum - erkitýpum - þeirra, sem gefur þeim um leið víðari skírskotun. Þar með má segja að verkin fjalli ekki einvörðungu um „heimþrá" listamannsins sjálfs heldur um „heim- kynni“ yfirleitt - hugmyndina um „Heimat". Takt- fastar endurtekningar skuggamyndanna eru stöku sinnum rofnar af utanaðkomandi „myndum“ í öðrum blæbrigðum, sem gera hvort tveggja í senn að skerpa heildarmyndirnar og draga í efa sannleiksghdi þeirra. Af sýningunni í Norræna húsinu að dæma hefur myndlist Wyllers þróast með fremur óvenjulegum hætti á allra síðustu misserum. Mynstrin vísa nú í æ ríkara mæli til uppruna síns, það er skuggamyndir náttúrunnar eru á góðri leið með að breytast aftur í náttúru, með thheyrandi breytingum á handbragði. Þetta er öfugt við það sem yfirleitt gerist í verkum nútíma myndhstarmanna. Nú virðist Wyller meira í mun að ná utan um mikilfengleik - „súblímítet" - náttúrunnar, verða þátttakandi í henni, en að yrkja sig frá henni, sjá feiknarstór tilbrigði hans um skerja- landslag. Allt um það verður fróðlegt að fylgjast með fram- vindu í myndlist Sverre Wyhers á næstu árum. Nýr umboðsmaður HÚSAVÍK Þórunn Kristjánsdóttir Brunnagerði 11 S. 41620 Félag framreiðslumanna Aðalfundur Félags framreiðslumanna verður haldinn í dag, miðvikudaginn 15. maí 1991, kl. 17.00, í Veit- ingahöllinni í Húsi verslunarinnar. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kvöldverður framreiddur að loknum aðalfundarstörfum. Stjórnin #»Altematorar ^ Startarar Ótal gerðir og tilheyrandi varahlutir. Hagstætt verð. 12 mán.ábyrgð. H ÁBERG” SKEI FUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88 22.000 KRÓNUR Á DAG! Við gerðum könnun einn dag í Kolaportinu og spurðum 10 seljendur notaðra muna hvað þeir hefðu selt fyrir mikið þann daginn og meðaltalið var 22.030 krónur. Reyndar höfum við margoft heyrt hærri tölur, og þvífjölbreytt- ari varningur, því betra. Það er lítil áhætta að prófa Kolaportið því við bjóðum nú sértilboð á sunnudögum í maímánuði. Þá kostar lítill bás 2.240 krónur, stór bás 3.040. Og heilu kvenna- og karla- klúbbarnir geta auðvitað sameinast um bás- inn. Hringdu í dag og pantaðu þér pláss. Síminn er 687063 kl. 16-18. Kolaportið - nú einnig á sunnudögum. , STÓRKOSTLEG FERÐAVINNINGUR NR. 3 DREGINN ÚT 17. MAÍ Við drögum ef tir 3 daga ERTÞÚ ÖRUGGLEGA ORÐINN ÁSKRIFANDI? SÍMI27022 OG 99-6270 (GRÆNISÍMINN)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.