Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ1991'.' 3' ) i ) I ) I I I Fréttir DV Borgarfjörður: Skaut mink og tóf u í einu skoti Refaskytta úr Borgarfirði skaut tófu og mink í einu og sama skotinu þegar hann var á veiðum í sveitum Borgaríjarðar á dögunum. í samtali við skyttuna vildi hún sem minnst úr þessu gera, þetta hafl bara verið slembilukka. DV hefur oft sagt frá refa- og minkaskyttum en kunnugir segja það einstakt að skjóta bæði mink og tófu í einu skoti. Má sannar- lega segja að borgfirska skyttan hafi þarna slegið tvær ílugur í einu höggi. -hlh Leitlð upi fáið bækling plýsinac eklmq! Laugavegi 3-101 Reykjavík - Sími: (91) 626362 Fjaroargötu 8,710 Seyðisfjörður. Sími:(97) 21111 Grænlandsþorskur: Ellefu merki borist til Hafrannsóknastofnunar „Okkur hafa borist 11 merki og all nokkuð af kvörnum úr Grænlands- þorski, sem sannar að eitthvað magn af honum hefur gengið á íslandsmið á vertíðinni. Við bjuggumst alltaf við að hann myndi ganga fremur seint, svona í apríl og maí. Þess vegna er of snemmt að segja til um hvort spá okkar um magn, 70 til 80 þúsund lest- ir verður rétt,“ sagði Björn Ægir Steinarsson, fiskifræðingur hjá Haf- rannsóknastofnun. Björn sagði að menn hefðu verið að veiða Grænlandsþorsk í nokkrum mæli bæöi í Skerjadýpi og Víkurál undanfarið. Hann sagði að úttekt á Grænlandsgöngunni væri enn í vinnslu hjá fiskifræðingum og því of snemmt að segja nokkuð ákveðið um þetta mál. -S.dór Verkamannasamband íslands: znzzmizzzz Fallegur skápur óskar efltír vegg ER 272 CM A BREIDD 54 CM A DYPT I 205 CM A Vaxtahækkunin ólíðandi brot á þjóðarsáttinni - segir í ályktun sambandsstjómar sem fundaði á Akureyri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Fundur sambandsstjórnar Verka- mannasambands íslands, sem lauk á Akureyri í gær, lýsti andstöðu sinni við þá hækkun vaxta sem nú þegar er orðin og hefur verið boðuð, allt að 30% hækkun. „Þetta er ólíðandi brot á þeim kjarasamningum sem gengið hafa undir nafninu „þjóðar- sátt“ “ segir m.a. í ályktun sem fund- urinn samþykkti. Kjaramál voru aðalviðfangsefni fundarins sem samþykkti ítarlega ályktun varðandi þau mál. „Við leggjum mjög sterka áherslu á hækk- un lægstu launa jafnframt því að við- halda efnahagslegum stöðugleika. Verkamannasambandið mun hafa það sem meginmarkmið að verð- bólgu verði haldið niðri en jafnframt að sá afrakstur sem fyrirtækin hafa fengið með síðustu kjarasamningum verði skilað til fólksins í landinu," sagði Karl Steinar Guðnason, vara- formaður VMSÍ, en hann þurfti að yfirgefa fundinn áður en ályktanir voru teknar til afgreiðslu í fundar- lok. Þegar Karl Steinar yfirgaf fundinn stóð m.a. yfir umræða um vaxtamál. Hann sagðist hafa beðið fundinn um að vísa tillögu varðandi vaxtamálin til framkvæmdastjórnar VMSÍ. „Ég þarf aö fara til Reykjavíkur, hef ekki tíma til að slást hér mikið meira en vona bara að menn fari að óskum mínum," sagði Karl Steinar. Þess má geta að Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður VMSÍ, gat ekki sótt fundinn vegna veikinda. Karli Steinari varö ekki að þeirri ósk sinni að fundurinn ályktaði ekki um vaxtamálin, því fundurinn sam- þykkti tillöguna varðandi vaxtamál- in með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða. I þeirri tillögu segir m.a. að með hækkun kostnaðarþátta eins og vaxta sé verið að eyða árangri þeirr- ar samningsgerðar sem þjóðarsáttin var. Hagnaðurinn af henni sé færður til þeirra sem ekkert hafa til hennar lagt í stað þess að launafólk fái aö njóta eins og um var samið. Sam- bandsstjórnin varaði alvarlega við aðgerðum af þessu tagi, um þær verði engar sættir. silV*Y. sCtU’ Hann er stór og fallegur þessi þorskur sem Pétur Kristjánsson, starfsmaður á Faxamarkaði heldur hér á, þótt trauðla sé þessi kominn frá Grænlandi. Og ekki er annað að sjá en að þeir sem í karinu eru séu sæmilega vænir. DV-mynd S Pósthússtræti 13, sími 22477 Þú þarft ekki að fara ann — —: / BlLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199 FAX 91-673511 Fjáröflun fatlaðra: „Gullmolar“ Iþróttasamband fatlaðra stendur fyrir söfnunarhátíðinni „Gullmolar" á Hótel íslandi 26. maí n.k. Aðgöngu- miðar kosta kr. 10.000 en inni í því er viðurkenningarskjal, kvöldverður og íjölbreytt skemmtidagskrá. Þeir íjármunir sem fást með söfn- uninni verða notaðir til að fjármagna ferð 18 þroskaheftra íþróttamanna til Bandaríkjanna. Þar munu þeir taka þátt í Ólympíuleikum þroskaheftra í Minnesota í lok júlí. Miðapantanir eru í síma 686301. -PÍ Gjöfin hennar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.