Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 32
MIÐVIKtiDAIptfR, ;])5, :M^Í; I^i?/ 52 ■ Afmæli Halldóra Guðbrandsdóttir Halldóra Guðbrandsdóttir húsmóð- ir, Brúarlandi, Hraunhreppi, er átt- ræðídag. Fjölskylda Halldóra fæddist á Hrafnkelsstöð- um í Hraunhreppi og ólst þar upp. Hún giftist 28.1.1939 Brynjúlfi Ei- ríkssyni, f. 21.12.1910, d. 12.1.1976, mjólkurbílstjóra og b. að Hamra- endum í Hraunhreppi en hann var sonur Eiríks Jóhannessonar og Helgu Þórðardóttur. Börn Halldóru og Brynj úlfs eru Helga, f. 20.10.1936, búsett í Reykja- vík, gift Borge Jónssyni og eiga þau tvö börn; Ólöf, f. 7.6.1938, búsett í Haukatungu, gift Páli Sigurbergs- syni og eiga þau sex börn; Ragn- heiður Hrönn, f. 2.8.1939, búsett í Borgarnesi, gift Hauki Arinbjarnar- syni og eiga þau fjögur böm; Eiríkur Ágúst, f. 15.1.1942; Halldór, f. 20.6. 1943, búsettur í Borgarnesi, kvænt- ur Ástu Sigurðardóttur og eiga þau tvö börn; Brynjólfur, f. 25.3.1945, búsettur í Kópavogi, kvæntur Fann- eyju Einarsdóttur og eiga þau þrj ú börn; Guðbrandur, f. 30.4.1948, bú- settur að Brúarlandi, kvæntur Snjó- laugu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn; Guðmundur Þór, f. 12.12. 1950, búsettur í Borgamesi, kvænt- ur Ásdísi Baldvinsdóttur og eiga þau þrjúbörn. Halldóra átti tíu systkini og eru nú þrjúþeirraálífl. Foreldrar Halldóru voru Guð- brandur Sigurðsson, f. 20.4.1874, d. 1953, b. að Hrafnkelsstöðum, og Olöf Halldóra Guðbrandsdóttir. Gísladóttir, f. 27.1.1876, d. 1956, hús- freyja að Hrafnkelsstöðum. Halldóra tekur á móti gestum á afmæhsdaginn frá klukkan 20.00 í félagsheimilinu Lyngbrekku. Merming Hljómplötur Sigurður Þór Salvarsson Gloria Estefan - Into The Light: Dæmigerður iðnvarningur Þrátt fyrimað Gloria Estefan njóti mikihar hyUi á heimaslóðum sínum vestur í Bandaríkjunum, hefur hún ekki náð verulegri fótfestu á vinsældalistum í Evrópu. Og hérlendis má segja að hún sé allt að því óþekkt. Á þessu er einfóld skýring að mínu mati; sú tónlistar- blanda sem Gloria og félagar bera á borð höfðar ein- faldlega síður til Evrópubúa en Ameríkumanna. Og það er í sjálfu sér ofur eðlilegt ef tekið er tillit til upp- mna Gloriu sem er af kúbversku bergi brotin. TónUst hennar tekur töluvert mið af þessum uppruna og hún snýr sér beint að þessum hópi spænskutalandi Amer- íkumanna í sumum lögum sem eru þá sungin á spænsku. Á þessari plötu er aukinheldur eitt lág sung- ið á portúgölsku. Fyrir utan sérstaka skírskotun tónlistarinnar tU ákveðinna þjóðfélagshópa vestanhafs taka lögin veru- lega mið af amerískri dískóhefð upp á nútímavísu með tölvuvæddu trommu- og hljómborðsspili, sem fyrir mína parta gerir lögin helst til vélræn og harðneskju- leg. Inn á milli er svo samkvæmt formúlunni skotiö mjúkum ballöðum og þar með er kominn skotheldur pakki sem höfðar til margra. Mér finnst hins vegar tónlist af þessu tagi lítt áhugavekjandi og tel hana vera dæmigerða verksmiðjuframleiðslu sem steypt er í fyrirfram ákveðið mót. Gloria Estefan. Andlát Jensína Kristín Guðmundsdóttir, Grettisgötu 20b, andaðist í Land- spitalanum 14. maí. Finnbogi Þorsteinsson, Meistara- völlum 21, andaðist í Landspítalan- um 13. maí. Einar Thoroddsen fyrrv. yfirhafn- sögumaður, Hjarðarhaga 27, lést mánudaginn 13. maí. Ásta Stefánsdóttir, Hávallagötu 38, andaðist í Hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn 13. maí. Ingibjörg Björnsdóttir, Ægisíðu 50, andaðist í Landspítalanum þriðju- daginn 14. maí. Emilía Vigfúsdóttir, Sunnuhlíð, Kópavogi, áður til heimilis í Hófgerði 12, lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíö 13. maí. Sigurjón Axelsson, lést 13. maí. Pétur Ottesen Jónsson rakarameist- ari, Sogavegi 164, Reykjavík, lést á ödrunardeild Borgarspítalans þriðjudaginn 14. maí. Halldór Sæmundsson, Stóra-Bóli, Hornarfirði, andaðist á Landspítal- anum mánudaginn 13. maí. Jarðarfarir Nancy J. Kristjánsdóttir, Háeyri, Bergi, andaðist í Sjúkrahúsi Kefla- víkur 6. maí. Jarðarfórin hefur farið fram. Guðmundur Rafn Kaaber, Gerð- hömrum 13, lést á heimili sínu 13. maí. Útfórin fer fram frá Dómkirkj- unni miðvikudaginn 22. maí kl. 15. Ingvi Þórðarson, Álafossvegi 21, veröur jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 16. maí kl. 13.30. Sigurður Ágústsson, Birtingaholti, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 12. maí sl. Útfórin fer fram frá Hrepphóla- kirkju fóstudaginn 17. maí kl. 14. Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 11.30. Útför Hilmars Árnasonar, Brekku við Vatnsenda, verður gerð frá Foss- vogskirkju fóstudaginn 17. maí kl. 10.30. Kristín Magnúsdóttir, Einimel 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Myndgáta - * -íwEVÞoR,- ( si'nté t&- kJ -*7 -EVÞOR- Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði. Lausn gátu nr. 27: Stinga saman nefjum. Dómkirkjunni fóstudaginn 17. maí kl. 13.30. Sigrún María Schneider, Reynimel 51, verður jarðsungin frá Krists- kirkju, Landakoti, fimmtudaginn 16. maí kl. 15. María Guðvarðardóttir, Álftamýri 50, sem lést á Borgarspítalanum laugardaginn 11. mai, verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni fimmtu- daginn 16. maí kl. 13.30. Sigurbjörn Leifur Bjarnason lést af slysfórum í Englandi 2. maí. Hann fæddist 24. apríl 1954, sonur Bjarna Sigurðar Helgasonar og Sigurlínu Sigurbjargar Eyleifsdóttur. Eftirlif- andi eiginkona hans er Elínborg Sig- uröardóttir. Þau hjónin eignuðust íjögur börn. Útför Sigurbjöms verð- ur gerð frá Seljakirkju í dag kl. 15. Safnaðarstarf Neskirkja Öldrunarstarf: Hár- og fót- snyrting í dag kl. 13-18. Bænamessa kl. 18.20. Bústaðakirkja Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13-17. Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyrirbæn- ir í dag kl. 18. Jiótnkirkjan Hádegisbænir í dag kl. 12.15. Opið hús fyrir aldraða í safnaðarheimil- inu í dag kl. 14-17. Háteigskirkja Kvöldbænir og fyrirbænir í dag kl. 18. Tilkyimingar Ferðafélag íslands Opið hús og ferðakynning í kvöld, 15. maí, kl. 20.30, í Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Ferðanefnd kynnir m.a. sólstöðuferð í Grímsey og Drangey, Vestfjarðaferð (Strandir - ísafjarðardjúp), Homstranda- ferðir, Laugar - Þórsmörk, Kjalvegur hinn forni, miðsumarsferð á hálendiö, Borgarfjörður eystri, Lónsöræfi, Vonar- skarð - Kverkfjöll, kringum Kerlingar- -fjöll, Þórsmörk, Landmannalaugar, Hveravellir og m.íl. spennandi. Einnig kynning á hvítasunnuferðum og utan- landsferðum. Glæsilegar kaffiveitingar í tilefni sumarsins. Aðgangseyrir kr. 500 (kaffi og meðlæti innifalið). Vorferð Nessafnaðar að Odda og Keldum verður farin 18. maí kl. 13 frá kirkjunni. Skráning hjá kirkju- verði í síma 16783 milli kl. 16 og 18. Félag eldri borgara Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Bridge og frjáls spilamennska. Margrét Thor- oddsen verður til viðtals á morgun, fimmtudag, kl. 13-15. Breytingar í farsima- stöðinni Vegna breytinga í farsimastöðinni í nótt geta orðið truflanir í farsímakerfinu og auk þess falla út hringiflutningar frá far- símum í aðra síma. Þeir sem óska eftir aö nota hringiflutning áfram verða að setja hann inn á nýjan leik á morgun. Fundir ITC Gerður heldur „hattafund", sem er um leið síð- asti fundur vetrarins, í Kornhlöðunni, Bankastræti, í dag, 15. maí. Mæting kl. 17. Fundurinn hefst kl. 20. Fundurinn er öllum opinn. Tökum með okkur gesti. Nánari upplýsingar gefur Helga Olafs- dóttir, s. 84328. ■ Mígrensamtökin Fræðslufundur i Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3, í kvöld kl. 20.30. Óm Jónsson tal- ar um nudd og áhrif þess á lækningu höfuðverkja. Alhr velkomnir. ITC-deildin Melkorka heldur fund í kvöld kl. 20 í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi. Fundurinn er öllum opinn. Upplýsingar veita Ólöf, s. 72715, og Guðrún, s. 672806. Tapað fundið Síamsfress týndur úr Ölfusi Síamsfress (Keli) hvarf frá heimih sínu í Ölfusi 30. apríl sl. Hann er merktur með blárri og rauðri hálsól með rauðum, glitr- andi steinum á. Einnig þangir stór mess- ingbjalla í ólinni. Hann er ellefu mánaða gamall með dökkbrúna enda og drappht- aðan búk (seal point). Keli er skráður kynjaköttur Kattaræktarfélags íslands og eigandi hans, Hauður Freyja, 4 ára, saknar hans sárt. Finnandi vinsamlegast hafi samband í hs. 98-34840 eða vs. 98-34262. Læða týnd úr Hafnarfirði Hálfvaxin svört læða með hvíta fætur týndist frá Fagrahvammi í Hafnarfirði. Hún gegnir nafninu Loppa. Ef einhver hefur séð hana eða veit hvar hún er nið- urkomin er sá vinsamlegast beðinn að hringja í síma 651155. Fundarlaun. Gullarmbandsúr tapaðist Kvenmanns-gullarmbandsúr tapaðist 30. apríl sl. á leiö frá Skálholtsstíg 7 niöur Þingholtsstræti. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 636144 á daginn eða 14193 á kvöldin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.