Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1991, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Ekki afturkippur enerfiðleikar - segir Jón Sigurðsson „Ég vil ekki taka undir þaö að aft- urkippur hafl orðiö í álversmálinu, hvað varðar ábyrgðir. Hins vegar er bað rétt að það hafa verið nokkrir erfiðleikar á ferðinni undanfarið. Ég tel að þetta mál sé komið á það stig að menn verði nú að taka ákvörðun um hvort þeir vilji eða vilji ekki. Þann 17. maí verður haldinn fundur þar sem fjallað verður um þessi mál öll og þetta ætti að skýrast eftir hann,“ sagði Jón Sigurðsson iðnað- arráðherra í samtali við DV í morg- un. Davíð Oddsson, forsætisráðherra og einn aðalsamningamaður Lands- virkjunar í álmálinu til þessa, segir að afturkippur sé kominn í álmálið hvað varði ábyrgðir. Hann tekur einnig undir með Paul Drack, for- stjóra Alumax, að ekki séu nema helmingslíkur á að af byggingu ál- vers á Keilisnesi verði. -S.dór Vinnuveitendur: Ríkisfyrirtæki seld Á aðalfundi Vinnuveitendasam- bands íslands í gær var lögð mikil áhersla á sölu ríkisfyrirtækja. Sig- urður B. Stefánsson hagfræðingur sagði í erindi sínu að raunhæft væri að selja opinber fyrirtæki hér á landi á almennum markaði fyrir um 20 til 30 milljarða króna fram til aldamóta. Af þessari sölu telur Sigurður að um 1,5 til 2 milljarðar geti runnið beint í ríkissjóð á ári. í ályktun aðalfundarins segir að einkavæðing og eðlileg samkeppni sé leiðin til aukinnar hagkvæmni í opinberum rekstri. Um kjarasamn- inga segir að þeir verði að grundvall- ast á afkomu atvinnulífsins, stöðugu gengi og að verðbólga verði ekki meirienínágrannaríkjum. -JGH Sundsystur á Seltjarnarnesi Systurnar Anna Lilja Másdóttir, 8 ára, Helga Rósa Másdóttir, 11 ára, og Vigdís Másdóttir, 12 ára, geröu sér lítiö fyrir og unnu allar gullverðlaun, hver í sínum aldursflokki, á sund- móti sl. föstudag. Vigdís bætti reynd- ar öðrum gullpeningi í safnið með sigri í boðsundi ásamt bekkjarsystr- um sínum. Þær systur eru á heima- velli í sundlauginni á Seltjarnarnesi því þær hafa allar æft þar með sund- deild K.R. Rotaryklúbburinn á Seltjarnarnesi hefur frá opnun sundlaugarinnar haldið sundmót til þess að örva sundáhuga yngstu kynslóðarinnar. Þess má geta til gamans að elsta syst- irin, Heiðrún, sigraði í sínum aldurs- flokki á fyrsta mótinu. -pj LOKI Hverjum skal árna heilla? EFTAogEB: Verður Island ■ mmm x f ■! Æik skilið eftir? Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra sagði á blaðamanna- fundi í Brussel í gær að ekki væri neinn vafi á að evrópska efhahags- svæðið yrði að veruleika en að það væri hugsanlegt að einhver EFTA- ríki yrðu ekki með þegar á hólminn væri komiö. Þetta segir i skeyti frá Reuter-fréttastofunni. „Öllum vafa um evrópskt efna- hagssvaeði hefur að minu mati ver- ið eytt. Ég tel að við séum nú stödd á þeim punkti að ekki verði aftur snúið og að evrópskt efnahags- svæði verði að veruleika," sagði Jón Baldvin. Hann bætti svo við: „Spurningin er hversu mörg ríki munu taka þátt í evrópska samstarfinu." Jón var þá spurður að því hvort með þessum orðum ætti hann að- eins við Sviss eða hvort hann væri líka að tala um hans eigiö land, ísland. Hann neitaði að svara þeirri spurningu. Margoft hefur komið fram að ís- lendingar munu ekki taka þátt í evrópska samstarfinu nema að tek- ið verði tillit til sérhagsmuna Is- lendinga varðandi sjávarútvegs- mal Nokkurrar óvissu gætir nú um framtíð EFTA-samtakanna. Aust- urríki hefur sótt um aðild að Evr- ópubandalaginu. Svíar eru i start- holunum og munu væntanlega sækja um innan skamms. Þá búast margir við að Norðmenn og jafnvel Finnar sæki um á komandi árum. Eftir eru þá ísland og Sviss. Þar með er ljóst að EFTA-samtökin eru búin að vera. Viðskiptautanríkisráðherra Svia, Anita Gradin, hefur sagt að Svíar muni örugglega skrifa undir samn- inginn um evrópskt efnahagssvæði þótt svo að ekki verði tekið tillit til sérhagsmuna íslendinga varðandi sjávarútvegsmál. Áður hefur komið fram að í því felist mikill styrkleiki fyrir okkur íslendinga að EFTA-ríkin standi saman sem ein sterk heild í viðrseð- unum um evrópska efnahagssvæð- ið. -JGH Systurnar Anna Lilja, Helga Rósa og Vigdis með gullpeningana. DV-mynd Brynjar Gauti Veðrið á morgun: Sunnanátt og stinn- ingskaldi Á morgun verður sunnanátt, víða stinningskaldi og rigning um mestallt land, síst þó norðaust- antil. Snýst til suðvestanáttar með skúrum vestanlands er líður á daginn. Hiti verður á bilinu 7-14 stig í fyrstu en fer síðan kóln- andi, fyrst vestanlands. Borgarstjóraslagurinn: Aukin harka ft milli Árna og Vilhjálms Borgarstj órnarflokkur Sj álfstæðis- flokks kemur saman til fundar klukkan 15 í dag til að taka ákvörðun um eftirmann Davíðs Oddssonar sem borgarstjóra. Mikil óvissa ríkir um niðurstöðu fundarins enda mynda stuðningsmenn Árna Sigfússonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar jafn- stórar fylkingar. Samkvæmt heimildum DV hefur sú aukna harka sem færst hefur í baráttu þessara tveggja borgarfull- trúa um borgarstjórastólinn, dregið stórlega úr möguleikum Davíðs Oddssonar til að ná samkomulagi eða hafa áhrif á niðurstöðna. Hann hefur á undanförnum dögum rætt einslega við allflesta í borgarstjórnarflokkn- t t t t t um. Eftir því sem DV kemst næst hafa skilaboð borgarfulltrúanna verið þau að ekki komi til greina að leita út fyrir borgarstjórnarflokkinn við val á borgarstjóra. Einnig munu margir hafa lagst gegn því að Davíð tilnefndi sjálfur eftirmann sinn. Að sögn Magnúsar L. Sveinssonar má búast við að endanleg ákvörðun um næsta borgarstjóra geti dregist fram eftir morgundeginum. Ákvörð- un verði þó að liggja fyrir þegar borg- arstjórn fundar á morgun. Árni Sigfússon tók í svipaðan streng í samtali við DV í morgun. Aðspurður kvað hann með öllu óljóst hver niðurstaða fundarins í dag yrði. Hann tók þó fram að hann myndi sætta sig við niðurstöðuna þó að hún yrði honum í óhag, svo fremi sem hún fengist með lýðræðislegum hætti. Ekki náðist í Vilhjálm Þ. Vilhjálms- son í morgun. Samkvæmt heimildum DV munum ýmsir af stuðnings- mönnum hans mæta til fundarins í dag staðráðnir í því að knýja fram i leynilega atkvæðagreiðslu milli ] þeirraÁrnaogVilhjálms. -kaa t t t t t t t t Utanríkismálanefnd: t AtökíSjálf- d stæðisflokki „Það er alveg á hreinu að ég sleppi ekki formennsku í utanríkismála- nefnd baráttulaust," sagði Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður samtali við DV í morgun. Björn Bjarnason sækir það stíft að fá formennskuna í utanríkismála- nefnd. Það gerir Eyjólfur líka. í dag eða í fyrramálið mun þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins kjósa um það hvor þeirra verður formaður nefndarinnar. -S.dór SLOKKVITÆKI Þjónusta - sala - hleðsla Reglubundið eftirlit Saekjum - sendum I @91-29399 WV// m ■fvy Allan sólarhringinn Öryggisþjónusta VARI síðan 1969 t t i i i i ®L m )M & TVÖFALDUR1. vinningur i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.