Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991,
4 i
Fréttir
Hallarbylting í borgarstjómarflokki Davíðs:
Fékk ekki að velja arftakann
- launaði grikkinn með því að sitja áfram sem borgarstjóri
Davíð Oddsson borgarstjóri við borðsendann. Tii hans líta þeir fjórir
borgarfulltrúar sem helst eru orðaðir við hið eftirsótta borgarstjóraemb-
ætti: Árni Sigfusson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Katrín Fjeldsted og
Magnús L. Sveinsson.
Borgarstjórnarflokkur Davíðs
hefur sýnt sig í nýju ljósi undan-
farna daga. Eftir aö ljóst varð fyrir
rúmum tveim vikum að Davíð
Oddsson myndi standa upp úr stól
borgarstjóra sem forsætisráöherra
hófst hörð valdabarátta meðal fé-
laga hans í borgarstjórn. Fyrst í
stað fór baráttan um stól Davíðs
nokkuö leynt en eftir því sem kapp
Fréttaljós
Kristján Ari Arason
færðist í menn fóru aö koma í ljós
brestir í þá samstöðuímynd sem
jafnt borgarbúar sem aðrir lands-
menn hafa haft af borgarstjórnar-
flokknum.
Árni fyrstur af stað
Eftir aö Davíð Oddsson náöi kjöri
sem formaður Sjálfstæðisflokksins
á landsfundinum í mars fóru
nokkrir af mest áberandi borgar-
fulltrúum flokksins að huga að
möguleikum sínum á að setjast í
stól Davíðs. Sá sem einna fyrst sá
fyrir sér að hafa möguleika var
Arni Sigfússon. Hans ferill til
áhrifa innan Sjálfstæðisflokksins
er ekki ólíkur margra annarra sem
sest hafa í borgarstjórastólinn og
ekki mun þaö hafa dregið úr kjarki
hans að hann hefur reynst Davíð
traustur og dyggur stuðningsmað-
ur. Að mati margra, einkum þess
arms Sjálfstæðisflokksins sem
studdi Davíð til formennsku, var
hann talinn allt að því sjálfkjörinn
sem arftaki lærimeistarans.
En innan borgarstjórnarflokks-
ins ríktu sumpart önnur sjónar-
mið. Að mati margra þykir hann
of tækifærissinnaður og hyghnn
„sínum mönnum".
Tregablandinn léttir
Til langs tíma hefur mörgum þótt
Davíð vera fullfyrirferðamikill og
stjórnsamur og fyrir vikið skyggt á
aðra. Sem leiðtogi borgarstjórnar-
flokksins hefur hann nánast alfarið
tekið við því lofi sem stjórn borgar-
innar hefur fengið, meðan þeir sem
verkin hafa unnið, venjulegir borg-
arfulltrúar i nefndum og stjórnum
borgarinnar, hafa orðið að láta sér
nægja gagnrýna fjölmiðlaumfjöll-
un.
Þrátt fyrir að margir borgarfull-
trúar Sjálfstæðisflokks hafi um
nokkurt skeið verið ósáttir við þær
aðferðir sem Davíð notar við að
stjórna borginni hefur hann engu
síður notið trausts þeirra og virð-
ingar. Undir hans forystu vann
borgarstjórnarflokkurinn sinn
stærsta kosningasigur í síðustu
borgarstjórnarkosningum og að
mati flestra hefur Davíð tekist að
stjórna borginni með miklum
ágætum.
Það var því tregablandinn léttir
fyrir marga félaga Davíðs í borgar-
stjórn þegar hann ákvað að snúa
sér að landsmálapólitík og hætta
sem borgarstjóri. Sáu þeir þar með
fyrir sér að dyr möguleikanna
væru að opnast, sjálfur borgar-
stjórastóllinn.
Hörð barátta
Þeir borgarfulltrúar sem einkum
hafa sóst eftir því að verða valdir
sem næsti borgarstjóri eru þau
Katrín Fjeldsted, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson og Magnús L. Sveinsson,
auk Árna Sigfússonar. í raun hefur
baráttan þó einkum verið milli
þeirra Árna og Vilhjálms og virðast
þeir njóta jafnmikils stuðnings inn-
an borgarstjórnarflokksins.
í þeirri baráttu sem fram hefur
fariö um borgarstjórastólinn hefur
Davíð fátt látið hafa eftir sér opin-
berlega. í upphafi baö hann félaga
sína um að ræða ekki þessi mál við
fjölmiðla heldur reyna að leysa
málið sín í milli. Þegar í ljós kom
aö baráttan var meiri en svo að
hægt væri að halda henni leyndri
kom Davíð fram með þá hugmynd
að ef til vill þyrfti að leita að gegn-
um sjálfstæðismanni út fyrir borg-
arstjóraraflokkinn í embættið.
Jafnframt kvaðst hann sjálfur ætla
að benda á eftirmann sinn, þó að
höfðu samráði við félaga sína í
borgarstj órnarflokknum.
í kjölfarið voru ýmis nöfn nefnd
í fólmiðlum, einkum þeirra Ólafs
B. Thors, Brynjólfs Bjarnasonar og
Ingibjargar Rafnar.
Samkvæmt heimildum DV mun
Davíð ekki haft neitt þessara nafna
í huga þegar hann varpaði þessari
hugmynd fram. Þvert á móti hafi
hann séð Kjartan Gunnarsson,
framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins. Með þessu virðist hann
hafa séð sér þann leik á borði að
launa vini sínum góðan stuðning á
síöasta landsfundi.
Þrátt fyrir þá harkalegu valda-
baráttu sem átti sér stað innan
borgarstjórnarflokksins virðist þó
þegar hafa myndast samstaða um
að hafna þessari hugmynd. Og and-
staðan varð það mikil að Davíð sá
sig knúinn til að hætta við að reyna
að koma Kjartani í stól borgar-
stjóra.
Davíð hefur ekki lengur
sömu tökin
Svo virðist vera sem Davíð hafi í
raun misst tökin á borgarstjórnar-
flokknum þegar eftir alþingiskosn-
ingarnar. Alla vega hafði hann ekki
lengur þau tök á félögum sínum aö
hann gæti tryggt Árna Sigfússyni
meirihlutafylgi meðal félaga sinna.
Engu að síður mun hann hafa gert
örvæntingarfullar tilraunir til
þessa stuttu fyrir fund borgar-
stjórnarflokksins síðastliðinn mið-
vikudag. Andstaða Vilhjálms Þ.,
Katrínar, Júlíusar, Magnúsar
Önnu Kristínar Jónsdóttur og fleiri
borgarfulltrúa var hins vegar þaö
mikil aö Davíð varð enn á ný að
láta í minni pokann.
Að vonum undi Davíð illa þeim
lyktum að fá ekki vilja sínum fram-
gengt. Því tók hann þá ákvörðun
að hætta tímabundið við að hætta
og fara frekar í sumarfrí. Þetta til-
kynnti hann eftir fund borgar-
stjórnarflokksins á miðvikudaginn
var með þeim rökstuöningi að
lengri tíma þyrfti til að finna nýjan
borgarstjóra meðal félaga sinna
sem samstaða geti náðst um.
Frestun talin skaða
Samkvæmt heimildum DV
kunna margir sjálfstæðismenn
Davíö litlar þakkir fyrir þá stöðu
sem komin er upp meðal borgar-
fulltrúanna. Þykir mörgum sýnt aö
með því að fresta ákvörðun um
næsta borgarstjóra færist enn
meiri harka í slaginn um borgar-
stjórastólinn, jafnvel það mikil að
flokkurinn hljóti óbætanlegann
skaða af. Þá þykir mörgum að Dav-
íð hefði þegar í upphafi átt að draga
sig til hlés í þessu máli og leyfa
félögum sínum sjálfum að axla þá
ábyrgð að velja sér leiðtoga. Bent
er á í þessu sambandi að þegar allt
kemur til alls þá verða það borgar-
fulltrúarnir sjálfir sem komi til
með að stjórna Reykjavíkurborg
næstuþrjúárin. -kaa
Höfn:
Glerbrotum dreift í
sandkassa leikskólans
Júíia Imsland, DV, Höfn:
Brotist var inn í leikskólann á Höfn
aðfaranótt miðvikudagsins. Ekki er
sýnilegt að tilgangur innbrotsins hafi
verið að stela en annan óhugnanleg-
an verknaö framdi sá eða þeir sem
þarna voru að verki því í sandkass-
anum fundu fóstrurnar mikið af
smáum glerbrotum sem dreift hafði
verið saman við sandinn.
Að sögn Gunnar Ágústsdóttur for-
stöðukonu er þetta ekki í fyrsta sinn
sem svona óhæfa á sér stað í leikskó-
lanum því fyrir þremur vikum var
brotist þarna inn og miklu af nöglum
komiö fyrir í sandinum. Þá var málið
kært til lögreglunnar en ekkert hefur
komiö út úr því.
Þetta innbrot hefur vakiö mikinn
óhug hér þar sem um stórhættulegt
athæfi er að ræða og er vonandi að
lögreglu staðarins takist að hafa upp
á þeim sem þarna voru að verki.
„Við höfum vörö við sandkassann
þar til nýr sandur kemur,“ sagði
Gunnur og það verða ýmsar ráðstaf-
anir geröar til að koma í veg fyrir
að þetta endurtaki sig. Annars er
málið í höndum lögreglunnar.
Sandkassinn sem glerbrotum og nöglum hefur verið dreift i. DV-mynd Ragnar