Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1991, Blaðsíða 16
16' FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991. íþróttir___________ Sport- stúfar Gylfi Kxístjánsson, DV, Akureyri: Erlingur Kristjánsson hefur ákveðið að leika með KA í 1. deildinni í knattspyrnu í sumar en hann hafði verið aö velta því fyrir sér að taka frí í sumar. Er- lingur hefur mörg undanfarin ár veriö lykilmaður í liðum KA, bæði i handknattleik og knatt- spyrnu, og álagið hefur því verið mikið á honum. Erlingur hefur nú hafið æfingar með 1. deildar liði KA af fiillum krafti og er ekki að efa að KA-liöið verður sterk- ara með hann innbyrðis en ella. Gunnar leikur með Þórsurum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Njarðvíkingurinn Gunnar Örlygsson hefur ákveðið að feta í fótspor Sturlu bróður síns og leika með Þór í úrvals- deildinni í körfuknattleik næsta keppnistímabíl. Gunnar sló i gegn með Njarðvíkurliöinu í vet- ur, átti mjög vaxandi leiki og stór- leiíd undir lokin í baráttu UMFN , og ÍBK um titilinn. Þórsarar eru nú farnir að huga aö ráðningu þjálfara, þeir ætla sér aö fá bandarískan þjálfara og eins hyggjast þeir skarta meö erlend- an leikmann eins og önnur lið deildarinnar. Lið Þórs verður því nokkuð breytt í úrvalsdeildinni næsta vetur því að þeir Jón Örn Guðmundsson og Dan Kennard munu ekki leika með liðinu. íslenskur sigur í Austurríki Islenska unghnga- landsliðiö í knatt- spyrnu, skipað leik- mönnum 18 ára og yngri, sigraöi Austurríkismenn, 1-ð, 1 vináttulandsleik sem fram fór i bænum Purgstall, skammt frá Vínarborg, í fyrrakvöld. Sig- urmark íslands var sjálfsmark heimamanna. íslenska liðið ernú komið til Tékkóslóvakíu þar sem það tekur þátt í alþjóðlegu móti um helgina. Það mætir Rúmen- um í dag, Þjóöverjum á morgun, Grikkjum á sunnudag og úrvals- liði Slóvakíu á mánudag. United vann aðra keppni árið1968 í DV og fleiri fiölmiölum í gær var sagt aö Manchester United heiði unnið Evrópukeppni bikar- hafa i knattspymu öðm sinni í fyrrakvöld þegar félagið lagði Barcelona að velli í Rotterdam. Hið rétta er aö árið 1968 sigraöi United í Evrópukeppni meistara- liða. Golfmót í Grafarholtí Golfkeppnin um Arni- son-skjöldinn, sem fre- stað var fyrir skömmu, verður haldin í Grafar- holti á laugardag. Ræst verður út frá klukkan 8. Þá fer fram öld- ungamót á sama staö á mánudag, annan í hvítasunnu, og verður ræst út frá klukkan 9. Finnar unnu Finnar unnu sinn fyrsta sigur í 6. riðli Evrópukeppni landsliöa í knattspymu í gær þegar liöiö sigraði Möltu, 2-0, í Helsinki i Finnlandi í gærkvöldi. Finnar skomðu bæði mörk sín í síðarí hálfleik, Petri Jarvinen á 51. mín- útu og Jari Litmanen á 88. mín- útu. Staðan í 6. riöli eftir þennan leik er þannig; Holland........5 4 0 1 13-1 8 Portúgal......5 3 11 9-3 7 Grikkland......3 2 0 1 7-14 Finnland.......4 12 13-24 Malta..........7 0 l 6 1-22 1 Boðsveit ÍR sló 21 árs gamalt met - á vormóti ÍR í frjálsum íþróttum 1 Mosfellsbæ 1 gær Vormót IR í frjálsum íþróttum, það 49. í röðinni, fór fram í Mos- fellsbæ í gærkvöldi. Mótið var fyrsta frjálsíþróttamót sumarsins og meðal þátttakenda var lands- liðsfólk og keppendur íslands á Smáþjóðaleikunum í Andorra. Það bar helst til tíðinda að drengjasveit ÍR setti íslandsmet í 4x100 metra boðhlaupi á tímanum 45,24 sek. og sló gamla metið sem sett var fyrir 21 ári. í sveit ÍR voru þeir Jóhannes Marteinsson, Hjalti Sigurjónsson, Anton Sigurðsson og Daði Ingólfsson. Jóhann Ingibergsson sigraöi í hinu árlega Kaldalshlaupi sem er 3000 m og hlaut í verðlaun glæsileg- an farandbikar. Sigurður Einarsson sigraði auð- veldlega í spjótkasti karla og kast- aði 77,42 metra en Einar Vilhjálms- son var ekki með á mótinu. „Ég er nokkuð sáttur við útkomuna í þessu móti og þetta er minn besti árangur hér á landi í ár. Ég hef verið þreyttur í fótunum að undan- fórnu og beitti mér því ekki af full- um krafti. Ég verö orðinn klár í slaginn í næstu viku í Andorra og stefni þá á að ná betri árangri. Það væri gott að ná alla vega 80 metra kasti þar og ég held að ég eigi góða möguleika á því. Það verður gaman að keppa við Einar Vilhjálmsson þar og við munum bæta hvor ann- an upp,“ sagði Sigurður eftir loka- kastið í gærkvöldi. í spjótkasti kvenna sigraði íris Grönfeldt, UMSB, kastaði 56,84 m. „Ég er ánægð með kastið miðað við það að ég æíi ekki eins vel og áður. Ég náði lágmarkinu sem ég þurfti og mér líst vel á framhaldið. Það verður spennandi að spreyta sig í Andorra en síðast þegar smáþjóða- leikar voru átti ég við meiðsli að stríða," sagði íris. Martha Ernstsdóttir, ÍR, vann sigur í 1500 m hlaupi kvenna á tím- anum 4:31,54 mín. „Ég er í góðu formi og búin að bæta hraðann. Sumarið leggst vel í. mig og ég hlakka til að keppa á smáþjóðaleik- unum í næstu viku þar sem mörg landslið munu koma saman,“ sagði Martha eftir sigurinn í gærkvöldi. Ólafur Guðmundsson, Selfossi, vann sigur í 110 m grindahlaupi karla á 15,26 sek. og Guðrún Amar- dóttir, UBK, sigraði í 100 m grinda- hlaupi kvenna á 14,90 sek. í 400 m. hlaupi kvenna vann Kristín Markúsdóttir, UMSB, á 63,66 sek. í 100 m hlaupi karla sigraði Einar Þór Einarsson, Ármanni, á tíman- um 11,06 sek. og í 100 m hlaupi kvenna sigraði Þuríður Ingvars- dóttir, Selfossi, á 13,11 sek. í 800 m hlaupi karla sigraði Stefán Guðjónsson, IR, á 2.00,35 mín. Ólaf- ur Guðmundsson sigraði einnig í langstökki karla, stökk 6,63 m. í stangarstökki vann Kristján Giss- urarson, UMSE, sigur, stökk 4,20 m, og í þrístökki sigraði Haukur Guðmundsson, Selfossi, stökk 13,54 m. í hástökki kvenna sigraði Sig- ríður Guðjónsdóttir, HSK, stökk 1, 55 m. í sleggjukasti karla vann Jón Auðunn Sigurjónsson, komungur kastari úr UBK, óvæntan sigur á Guðmundi Karlssyni, FH. í kringlukasti kvenna sigraði Margrét Óskarsdóttir, ÍR. • í boð- hlaupi karla sigraði sveit KR-inga á tímanum 44,73 sek. en sveit FH varð önnur. • í boðhlaupi kvenna unnu ÍR-stúlkur sigur á 54,23 sek. -RR Frjálsíþrótta- menn óhressir - vegna aðstöðuleysis 1 Laugardalnum „Frjálsíþróttafólk í Reykjavík býr í dag við sömu gömlu vandamálin og á ámm áður. Baldurshaginn er lokaður frá 1. maí, búningsaðstöð- unni á Laugardalsvelli er líka lokað, og í veöráttu eins og hefur verið und- anfarna er litið hægt að gera,“ sagði Sigurborg Guðmundsdóttir frjáls- íþróttakona í samtali við DV. Mikil ólga er meðal frjálsíþrótta- fólks í Reykjavík þessa dagana vegna aðstöðuleysisins í Laugardalnum. „Þaö er árlegur viðburður að þann 5. maí er hengdur upp miði á útidyrn- ar þar sem stendur að búningsklef- unum sé lokað um óákveðinn tíma. Okkur er sagt að þetta sé vegna við- gerða en síðan verður maður ekki var við að neitt sé verið að gera. Svo þegar við erum búin að rífa kjaft yfir þessu nógu lengi, er opnað á ný,“ sagði heimildamaður DV úr röðum fijálsíþróttafólks viö DV í gær. „Eftir mikinn undirbúning yfir vet- urinn emm við i maímánuði að koma okkur í gang fyrir keppni sumarsins. Þá þarf að fara í ýmsar tækniæfing- ar, æfa viðbragð og fleira, og það er einfaldlega ekki hægt aö gera á Val- bjarnarvellinum eins og veðrið hefur verið. En Baldurshagann fáum við ekki að nota og ekki heldur lyftinga- tækin sem þar eru, og emm því nán- ast bjargarlaus," sagði Sigurborg. „Án búningsklefanna er aðstaðan óbærileg. Þá þurfúm við að klæða okkur í vinnunni eða annars staðar og mæta í æfingagallanum á svæðið. Þessa dagana hefur landsliðsfólkið verið að búa sig undir Smáþjóðaleik- ana í Andorra, en skilyrðin hafa ver- ið þessi,“ sagði Sigurborg ennfrem- ur. „Völlurinn sjálfur er gjörsamlega ónýtur, búningsaðstaðan engin, og á þessum tíma þarf að æfa snerpuæf- ingar. Þær er ekki æskilegt að gera utan dyra þegar svona blautt er og því ætti Baldurshaginn að vera op- inn. Þangað kemst enginn, nema ef góðviljaðir menn laumast til að hleypa okkur þangaö stund og stund. Þetta er hrikalegt, ekki síst þar sem stefna íþróttaráðs Reykjavíkurborg- ar er sú að aðstaða frjálsíþróttafólks skuli vera í Laugardalnum en ekki á félagssvæðunum og félögin fá ekki styrki til að koma upp grunnaðstööu á sínum svæðum,“ sagði frjáls- íþróttaleiðtogi við DV. -VS • Miði er hengdur á hurðina að búningsklefunum og þar stendur að lokað sé frá og með 5. maí um óákveðinn tíma. DV-mynd Brynjar Gauti Unglingalandsliðið til Finnlands - tekur þátt í Norðurlandamóti í handknattleik seni hefst í dag Landslið íslands í handknattleik, skipað leikmönnum fæddum 1972 og yngri, hélt utan til Finnlands í gærmorgun og mun þar taka þátt í Norðurlandamóti í sínum ár- gangi. Eftirtaldir 15 leikmenn voru valdir til fararinnar: Reynir Reynisson.......Víkingi Ásgeir Baldursson..........UBK IngvarRagnarsson.....Stjömunni Andri Sigurðsson...........Fram Gunnar Kvaran..............Fram Jason Ólafsson.............Fram Karl Karlsson..............Fram Páll Þórólfsson............Fram Ragnar Kristjánsson........Fram Dagur Sigurösson............Val Ólafur Stefánsson...........Val ValgarðThoroddsen...........Val Róbert Sighvatsson......Víkingi Björgvin Björgvinsson.......UBK Patrekur Jóhannesson ..Stjörnunni • Liðið leikur gegn Svíum í kvöld, gegn Finnum á laugardagsmorgun, Dönum á laugardagskvöld og síð- asti leikur liðsins er gegn Norð- mönnum á sunnudagsmorgun. • Þjálfari piltanna er Geir Hall- steinsson og liösstjóri er Kristján Halldórsson. -GH • FH-ingarnir Þórður Magnússon (t.v.) o< hlaupi karla í gærkvöldi. Þeir urðu í efstu tvi Góðstaða • Detroit Pistons sigraði Boston Celtics á NBA-deildarinnar í fyrrinótt. Þar með er C einvigi iiðanna i nótt þegar liðin mætasl vinnur fjóra leiki, mætir Chicago i úrslitale ur við Los Angeles Lakers eða Portland u ir Robert Parish, leikmaður Boston, sig h Kemur Pele - vegna átaks KSÍ og Visa ui Svo gæti farið að Pele, fyrrui sumar vegna átaks KSÍ og Vis; DV í gær. Að sögn forráðamanna KSÍ h bandið um komu Pele til landsins og voi endaðan júlí eða byrjun ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.