Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1991, Page 6
.6
ítóÍÐkjtóA&UR 2Í:' ívÍÁÍ(Ítóí;
Fréttir
Framkvæmdastjóm heilsuhælisins fær heimild til að segja starfsfólkinu upp:
Reka verður hælið
samkvæmt lögum
- segir heilbrigðisráðherra en vlðræður heflast á morgun
„Þaö er ásetningur heilbrigðis-
ráöuneytisins að reka þetta hæli eins
og önnur í safnræmi við íslensk lög.
Forráðamenn hælisins óska sjálfir
eftir því að hælið verði rekiö eftir
nýsettum lögum. Eftir ákvæðum
þeirra laga um íjárhagsstjórnun og
faglega meðferð læknisfræðilega
verða stjómarmenn að fara,“ sagði
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis-
ráðherra í samtali við DV um mál-
efni heilsuhælis Náttúruiækningafé-
lags íslands í Hveragerði.
„Hinn kosturinn er sá að reka þetta
sem sjálfstætt heilsuhæli en þá án
afskipta ríkisins. Það eru því tvö mál
sem þarf að leysa, þ.e. deilur sem
risið hafa milli lækna og rekstrarað-
ila um faglega meðferð og hins vegar
að koma á fjárhagslegri stjórnun."
Viðræður stjómar Náttúrulækn-
ingafélagsins og heilbrigðisráðu-
neytis hefjast á miðvikudag. Sam-
kvæmt nýlegri skýrslu ríkisendur-
skoðunar er pottur brotinn í töku
daggjalda af sjúklingum og auk þess
telur ríkisendurskoðun tengsl
heilsuhælisins við Náttúrulækn-
ingafélagið óeðlileg og ennfremur
séu reikningsskil ekki í samræmi við
lög. Þannig sýndi bókhald fyrir 1990
36,6 milljóna halla en ætti að sýna
52 milljónir í rekstrarafgang ef farið
væri aö lögum.
Skaði til margra ára
„Allt þetta mál, bæði framganga
læknanna og málflutningur, hefur
valdið félaginu miklum skaða sem
tekur mörg ár að bæta,“ sagði Vil-
hjálmur Ingi Ámason, formaður
NLFÍ, í samtali við DV. Hann var
skipaður formaður á nýafstöðnu
landsþingi NLFÍ sem kvatt var sam-
an sérstaklega vegna skýrslu ríkis-
endurskoðunar og deilna starfandi
lækna við heilsuhælið viö fram-
kvæmdastjóm þess um faglega með-
ferö.
Landsþingið ályktaði ekki sérstak-
lega um málefni heilsuhælisins en
veitti framkvæmdastjórn hæhsins
leyfi sitt til þess að segja upp öllu
starfsfólki þess. Þær uppsagnir hafa
ekki enn komið til framkvæmda.
Samkvæmt heimildum DV verður
heimildinni ekki beitt nema til þess
að segja upp tveimur starfandi lækn-
um á heilsuhælinu.
„Við lítum svo á að þetta sé mál
framkvæmdastjómar hælisins og
veittum henni þessa heimild til þess
Forsvarsmenn heilsuhælis NLFI i Hveragerði á blaðamannafundi. T.v Vilhjálmur Ingi Arnason, formaður NLFI, og
til hægri Eiríkur Ragnarsson, framkvæmdastjóri heilsuhælisins í Hveragerði.
DV-mynd GVA
að auðvelda úrlausn málsins," sagði
Vilhjálmur. „Mál læknanna verður
rekið fyrir dómstólum og ég get ekki
séð að neitt banni vinnuveitanda að
segja upp starfsmönnum og ráða
nýja. Læknafélagið getur varla sett
NLFÍ stólinn fyrir dymar í þessu
máli. Annar læknanna hafði dreift
bréfi til ýmissa aðila þar sem hann
leggur tÍL að stjóm hælisins verði
tekin úr helgreipum Náttúrulækn-
ingafélagsins. Við slíkar aðfarir
starfsmanns verður náttúrlega ekki
unað.“
Úrsögn úr stjórninni
Rannsókn ríkisendurskoðunar var
upphaflega gerð að beiðni Jóhannes-
ar Ágústssonar, þáverandi stjómar-
maiins í NLFÍ. Honum var síðan vik-
ið úr stjóm félagsins að beiðni meiri-
hluta stjómar og Reykjavíkurdeild
NLFÍ dró til baka stuðning sinn við
hann sem fulltrúa sinn í stjóm.
Reynir Ármannsson, sem einnig átti
sæti í sljóm NLFÍ, sagði sig skriflega
úr stjórninni áður en nýafstaðið
landsþing var kallað saman. Reynir
vildi í samtali við DV ekki fara nánar
út í ástæður úrsagnar sinnar en
kvaðst hafa verið í minnihluta innan
stjórnarinnar og skoðanir hans ekki
fengið neinn hljómgrann þar.
„Reynir átti að víkja úr stjóm á
þessu landsþingi hvort sem var,“
sagði Vilhjálmur formaður í samtali
við DV. Vilhjálmur sagði stjómina
hafa ákveðið í janúar síðastiiðnum
aö kalla landsþing saman fyrr en lög
félagsins mæltu fyrir og sagði stjóm-
ina hafa kannað lögmæti þess sér-
staklega en efast hefur verið um lög-
mæti landsþingsins.
„Okkar lögfræðingar komust að
þeirri niðurstöðu að ákvæðið um
tímasetningu landsþings væri fyrst
og fremst til leiðbeiningar."
Samkvæmt heimildum DV áttu
deilur Jóhannesar Ágústssonar við
stjórn NLFÍ rót sína að rekja til per-
sónulegs ágreinings við Jónas
Bjamason, fráfarandi formann fé-
lagsins, og gátu þeir ekki unnið sam-
an.
Deilurnar, sem snúast um heilsu-
hælið í Hveragerði, eru því í raun
þríþættar. í fyrsta lagi voru persónu-
legar deilur innan stjómarinnar
milli Jóhannesar og Jónasar. í ööru
lagi em deilur milli lækna hælisins
og framkvæmdastjómar um faglega
læknisfræðilega meðferð og í þriðja
lagi er ágreiningur um fjármála-
stjóm eins og lesa má í skýrslu ríkis-
endurskoðunar.
„Ég er sannfærður um að viðræður
okkar við ráðuneytið eiga eftir aö
leysa þetta mál og tryggja áfram-
haldandi rekstur hælisins," sagði
Vilhjálmur Ingi, nýkjörinn formað-
ur. Miðaö við yfirlýsingar ráðherra
hér að framan er ekki víst að lausn,
sem stjóm NLFÍ getur sætt sig við,
sé í sjónmáh.
-Pá
Brotist inn
í skíða-
skála Fram
- sjónvarpstæki stolið
Brotist hefur verið inn í skíöa-
skála Fram í Eldborgargili í Blá-
fjöllum. Að sögn Gunnars V.
Andréssonar, formanns skíða-
deildarinnar, haföi útidyrahurð-
in verið brotin upp ásamt búr-
hurð inni í skálanum.
„Þaöan var stolið sjónvarps-
tæki af stærstu og dýrustu gerð
sem velgjörðamenn skíðadeildar-
innar höfðu gefið í tilefm vígslu
skálans fyrir rúmu ári. Ég hafði
gengið frá skálanum í fyrstu vik-
unni í maí en þegar komið var
aö skálanum laugardaginn fyrir
hvítasunnu var aðkoman
óskemmtileg.“
-Pj
Unnið að uppfyllingu fyrir
slysavarnahús á Akureyri
Að undanförnu hefur verið unnið við uppfyllingu við Pollinn á Akureyri og
mun slysavarnahús rísa á þessari uppfyllingu. DV-mynd gk
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Athygli vegfarenda nærri Strand-
götu á Akureyri hefur að undan-
fömu beinst að krana nokkrum sem
hefur mokað upp efni úr sjónum og
er búinn að búa til mikla uppfyllingu
út í Pollinn í suður frá Norðurgötu.
Segja má að þama sé um að ræða
fyrstu framkvæmdir vegna smábáta-
hafnar sem á að vera staðsett í krik-
anum þar sem Strandgata og Glerár-
gata mætast. Á uppfyllingunni sem
unnið hefur veriö við mun hinsvegar
rísa hús Kvennadeildar og Sjóbjörg-
unardeildar Slysvamafélags íslands
á Akureyri. Um er að ræöa byggingu
þar sem sjóbjörgunardeildin mun
geyma útbúnað sinn og í húsinu
verður einnig samkomusalur.
Sandkom
Uffeman
Mennhafavelt
því nokkuðlyr-
irsérhvers
vegnadanski
utanrikisráð-
herrannUffe
Ellemann-
Jensenhafigef-
iðþaðískyn
viðdönsku
______________ fféttastofuna
Ritzau að Jón Baldvin hafi ljáð máis
á að ræða þann möguleika að leyfa
skipum ff á EB-löndunum veiðar á
íslandsmiðum gegn tollff elsi á sjáv-
arafúrðum íslendinga. Skýringin
kann að vera aö kalt er á milli Jóns
og Uffe Ellemann. Jón Baidvin hefur
haft lag á að ergja norræna stj órn-
málamenn, ekld síst flokksbræður
sína í krataflokkunum. Frægt var
þegar Jón Baldvin huöskammaði
Norðurlandakrata í ræðu á Norður-
landaþinginu sem haldið var hér á
landi fyrir nokkrum árum. Þeir urðu
æfir út x Jón og sumir töluðu ekki
við hann lengi. Þá var þessi visa ort
umJónBaldvin:
Málglaður hann metið setti,
mun það eflaust lengi standa.
Af sér hristi á einu bretti
alla krata Norðurlanda.
Að frelsa heiminn
Þaðerekki
skemmtileg-
astastarfsem
tileraðvera
fréttamaðm-a
Aljángi.Ii'
komastundir
sem aðfcins rot-
arttl.Þaðhefur
verið gamanað
fylgjastmeð
ungu nýju alþíngjsmönnunum sem
er fjölmennur hópur á vorþinginu.
Allt er þetta hið mesta myndarfólk,
fallegt tit augnanna og býður af sér
góðan þokka. En það sem er svona
skemmtilegt við að fylgjast með þ ví
er hve það tekur þetta nýja starf sitt
og sjálft sig alvarlega. Það gengur,
nei, svífur um með svip þess sem er
að byrja að frelsa heiminn. Það situr
inni í sal og fylgist með hverju orði
sem sagt er með alvörusvip. Ekki er
laust við að margir þeirra eldri og
reyndari brosiaðþeim nýju. Eðaeins
og einn þeirra sagði á dögunum.
„Þetta breytist allt þegar þeir komast
að því að heimurinn verður ekki
frelsaður í Alþingishúsinu."
Má ekki vinna
í sumarfríinu
íorlofslögun-
um.semsam-
þvkktvoruá
Alþingíásín-
um tínm, segir
aðfólkisé
óheimiltað
vinnaísum-
arlrusimihia
oðrufynnæki.
..... Þaðviröistþví
ljóst að Davíð Oddsson, forsætisráð-
herra og borgarstjóri, sé aö brjóta
landslög. Hann kom út af fundi borg-
arstjómarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins, þar sem mistókst að velja nýjan
borgarstjóra, og sagðist vera farinn í
sumarfi-í sem borgarstjóri, í þriðja
sinn á níu árum. Hann er hins vegar
að vinna hjá ríkinu sem forsætisráð-
herra og alþingismaður á sama tíma.
Það má hann ckki samk væmt orlofs-
lögunum.
Annarokkar dó
Akureyringur
einnvarað
berjasérvegna
þessaðvinnu-
álagiðátKxnum
værislíktaö
hann va-ri eig-
mlegiialvcgiið
ktkniuindan :;
þvi. Hann væri
------------- einnaðvinna
tveggjamannaverk. Hann var þá
spurður hvers vegna hann téti bjóða
sér þetta. Hvers vegna hann krefðist
þess ekki að annar maður væri ráð-
inn til starfans með honum.
„Jú, sjáöu til. Þetta er nú nýtilkom-
íð. Við unnum þama tveir en annar
okkardó..." Svokom smáþögn en
síðan bætti hann við: „Það var að
sjálfsögðuhinn."
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson